Bændablaðið - 22.09.2016, Qupperneq 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 2016
Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum
á landinu og á öll lögbýli landsins.
Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti
gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 9.900 með vsk. (innheimt í tvennu lagi).
Ársáskrift fyrir eldri borgarar kostar 4.950 með vsk.
Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík.
Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar −
SKOÐUN
Árum saman hefur Bændablaðið birt
fréttir af áhyggjum lækna, bæði íslenskra
og erlendra, yfir að ofnotkun sýklalyfja
við framleiðslu matvæla sé að leiða til
óviðráðanlegra heilsufarsvandamála. Nú
hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
séð ástæðu til að gefa út yfirlýsingu vegna
sama máls.
Lengst af hafa hagsmunaaðilar í innflutn-
ingi á landbúnaðarafurðum reynt að gera
lítið úr þessum málflutningi og nefnt hann
sem dæmi um gamaldags hræðsluáróður
bænda. Innflutningsfyrirtækin séu aftur á
móti að hugsa um hag neytenda. Sömuleiðis
hafa sumir fjölmiðlar þessa lands, svo ekki
sé talað um háværa hópa á samfélagsmiðl-
um, lagst á sveif með innflutningsverslun-
inni í þessum efnum. Sama má segja um
Samtök atvinnulífsins, Alþýðusamband
Íslands og Neytendasamtökin, en málflutn-
ingur þeirra hefur verið á þeim nótum að
frjáls innflutningur á kjöti sé til að bæta hag
neytenda. Lítið er þá gert með mögulega
áhættu varðandi lýðheilsu þjóðarinnar.
Á þriðjudag var birt í kvöldfrétt-
um Sjónvarpsins frétt um áhyggjur
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar
(WHO) af þessu máli. Breska ríkisútvarp-
ið BBC fjallaði líka ítarlega um málið í
gær. Spáir stofnunin því að árið 2050 dragi
sýkingar af völdum ónæmra baktería tíu
milljónir jarðarbúa til dauða árlega, fleiri
en deyja úr krabbameini.
Sýklalyf eru notuð í stórum stíl í land-
búnaði bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum
sem vaxtarhvetjandi efni. Á Íslandi er notk-
un sýklalyfja í landbúnaði aftur á móti ein
sú minnsta sem þekkist í heiminum. Þá
hefur lítil tíðni sýkinga, t.d. í íslenskum
kjúklingum, vakið alþjóðlega athygli.
Afleiðingin af ofnotkun sýklalyfja er sú
að bakteríur mynda smám saman með sér
ónæmi gagnvart sýklalyfjunum. Slíkar ofur-
bakteríur finnast nú í auknum mæli í kjöti
sem fólk neytir. Berist slíkar sýklalyfja-
ónæmar bakteríur eða ensím sem myndar
vörn fyrir bakteríurnar í fólk, getur verið
mjög erfitt að lækna það ef þá ekki ómögu-
legt. Vitað er að árlega deyja á þriðja tug
þúsunda manna í Bandaríkjunum af þessum
sökum. Dánartalan í Evrópu er svipuð og
fer vaxandi.
Íslenskir og erlendir læknar og sér-
fræðingar í smitsjúkdómum hafa árum
saman varað við þessu og hafa talað um
stærstu heilsufarsógn mannkynsins. Nú tala
sérfræðingar WHO um að vandinn sé að
verða óviðráðanlegur.
Það sem gerir vandann einstaklega erfið-
an við að eiga er alþjóðavæðing með sífellt
frjálsari viðskiptum milli landa með hrátt
kjöt og aðrar landbúnaðarvörur. Á þriðjudag
fóru fram mikil mótmæli í Brussel, höfuð-
vígi Evrópusambandsins. Þar var mótmælt
brölti við gerð TTIP fríverslunarsamnings
við Bandaríkin. Þar óttast fólk ekki bara
atvinnumissi, heldur líka innflutning á
erfðabreyttum matvörum. Þótt erfðabreytt
korn þurfi ekki að vera hættulegt í sjálfu
sér, þá er við ræktun þess notuð sífellt meiri
eiturefni til að hámarka framleiðsluna. Þetta
sýna ítrekaðar úttektir m.a. frá Eurostat.
Þessi eiturefni hverfa ekkert við uppskeru
og berast því í önnur matvæli sem erfða-
breytta kornið er notað í. Í þessu ljósi ætti
staðfesting Alþingis á nýjum tollasamningi
við Evrópusambandið að vekja mönnum
ugg. Þar er gefið stóraukið frelsi til inn-
flutnings á landbúnaðarafurðum.
Viðleitni íslenskra sauðfjárbænda til
að banna erfðabreytt fóður við sína fram-
leiðslu er því sérstaklega eftirtektarverð í
þessu samhengi. Þar er markvisst verið að
vinna að auknum hreinleika afurða og gegn
massaframleiðslu með aðstoð hættulegra
hjálparefna. /HKr.
Heilsufarsógn
Ísland er land þitt
Stöðvarfjörður er þorp á sunnanverðum Austfjörðum og stendur við samnefndan fjörð. Íbúar eru um 200. Stöðvarfjörður varð hluti af Fjarða-
byggð við sameiningu sveitarfélaga árið 2006. Íbúafjöldinn í Fjarðabyggð var 1. júní sl. 4.693 og hefur fjölgað talsvert á síðustu árum. Þéttbýlið á
en störfum hefur þó fækkað mikið undanfarin ár. – Um Stöðvarfjörð segir í Landnámu: „Þórhaddur hinn gamli var hofgoði í Þrándheimi á Mæri.
Mynd / HKr.
Nú er rúm vika síðan Alþingi samþykkti lög
er varða framkvæmd búvörusamninga. Það
hefur tekið sinn tíma að sigla málinu í höfn
en nú geta bændur horft fram á veginn og
gert áætlanir í sínum rekstri.
Fjölmörg jákvæð atriði er að finna í búvöru-
samningunum sem munu efla innlenda mat-
vælaframleiðslu. Óhætt er að segja að afgreiðsla
málsins á Alþingi hafi vakið mikla athygli og
umtal í samfélaginu. Ýmis orð hafa fallið um
umfang og eðli búvörusamninganna, bæði
frá fylgismönnum þeirra og gagnrýnendum.
Bændur fagna allri umræðu um landbúnað en
er mikið í mun um að hún sé byggð á réttum
upplýsingum en ekki órökstuddri gagnrýni. Eitt
af því sem mikið er rætt um er tíu ára gildistími
samninganna og endurskoðunarákvæði sem
kveðið er á um árin 2019 og 2023.
Samningarnir verða endurskoðaðir 2019
Í nýsamþykktum lögum er kveðið á um að allir
fjórir samningarnir skuli endurskoðaðir árið
2019. Endurskoðunarákvæði laganna byggir
á endurskoðunarákvæðum sem eru til staðar í
öllum samningunum fjórum og kveður á um að
endurskoðun þeirra skuli fara fram árin 2019 og
2023. Þessa samninga hafa bændur samþykkt í
atkvæðagreiðslu. Lögin kveða jafnframt á um
að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skuli
fyrir 18. október næstkomandi skipa formlegan
samráðshóp um endurskoðun búvörusamning-
anna þar sem aðkoma afurðastöðva, atvinnu-
lífs, bænda, launþega og neytenda skuli tryggð.
Endanleg samningagerð verður þó áfram milli
bænda og ríkisins eins og áður.
Því hefur ranglega verið haldið fram, meðal
annars af Alþýðusambandi Íslands, að bændur
geti með einhverjum hætti komið í veg fyrir
endurskoðun og þannig sé ekki um virka endur-
skoðun að ræða. Hefur jafnvel verið ýjað að því
að það sé hagur bænda að koma í veg fyrir þessa
endurskoðun. Ekkert er fjær sanni.
Það er mjög mikilvægt fyrir bændur að
endurskoðun samninganna fari fram. Bæði eru
ákvæði í samningunum sem eðlilegt er að endur-
meta og síðan eru það hreinir og klárir hags-
munir allra málsaðila að sátt náist um íslenskan
landbúnað. Þess vegna fögnuðu Bændasamtök
Íslands því víðtæka samráði sem meirihluti
atvinnuveganefndar lagði til og ráðist verður
í á næstu þremur árum. Bændur munu ganga
til þeirrar vinnu með opnum hug og ríkan vilja
til sáttar. Fyrir ASÍ og aðra þá sem vilja kynna
sér markmiðin með endurskoðunarákvæðunum
er hér rifjað upp hvað segir í samningunum um
þau málefni.
Verður kvótakerfi í mjólk eftir 2021?
Við endurskoðun nautgriparæktarsamningsins
árið 2019 þarf að taka ákvörðun um það hvort
kvótakerfið verði afnumið 1. janúar 2021 eður
ei. Kosið verður um málið á meðal kúabænda
og mun niðurstaðan úr þeirri atkvæðagreiðslu
ráða því hvernig trúnaðarmenn bænda verða
nestaðir þegar gengið verður að samninga-
borðinu með ríkisvaldinu. Einnig þarf að leggja
mat á það hvernig framleiðslan hefur þróast,
bæði í mjólk og nautakjöti, hvaða árangur hefur
náðst við útflutning mjólkurafurða og hvernig
markmið samningsins hafi gengið eftir.
Hvernig þróast afurðatekjur
sauðfjárbænda?
Við endurskoðun sauðfjársamnings verður
fyrst og fremst horft til þess hvernig framleiðsla
sauðfjárafurða og afkoma í greininni hefur
þróast, hvaða árangur hefur náðst við útflutning
og hvernig markmið samningsins hafi gengið
eftir. Einnig skal skoða þróun í bústærð, fjölda
búa eftir svæðum og fjárfjölda í landinu. Fram
að fyrri endurskoðun er stefnt að því að auka
útflutningstekjur af sauðfjárrækt sem leiði til
þess að hlutur bænda í heildarverðmætasköp-
un greinarinnar aukist um 7,5% að lágmarki.
Þetta miðast við óbreyttan fjárfjölda í landinu
og fast verðlag. Takist það ekki skal niður-
tröppun beingreiðslna endurskoðuð. Fjölgi fé
í landinu yfir 10% frá gildistöku samnings-
ins, fram til fyrri endurskoðunar árið 2019
skal endurskoða býlisstuðning, bæði fjárhæðir
og þrep. Sérstaklega skal hafa í huga við þá
endurskoðun að styðja við byggð alls staðar
í landinu.
Hvernig mun garðyrkjunni reiða af?
Í endurskoðun á garðyrkjusamningi verður
fyrst og fremst verði horft til þess hvernig
framleiðsla garðyrkjuafurða hefur þróast og
hvernig markmið samningsins hafa geng-
ið eftir. Samningsaðilar munu á tímabilinu
2017–2019 greina hagkvæmni þess að taka upp
uppskerutengdar greiðslur vegna útiræktaðra
garðyrkjuafurða og kartaflna gegn mögulegri
niðurfellingu og/eða lækkun tollverndar.
Skýr skilaboð frá atvinnuveganefnd
Til viðbótar því sem stendur í samningunum
sjálfum ályktaði meirihluti atvinnuveganefndar
Alþingis sérstaklega um endurskoðunarákvæð-
in og tilgang þeirra. Nefndin telur nauðsynlegt
að við endurskoðun búvörusamninga árið 2019
verði rýnt í markmið samninganna og laganna,
metið hvernig til hafi tekist og eftir atvikum
lagðar til breytingar með hliðsjón af því mati.
Meirihluti atvinnuveganefndar lagði til að
við endurskoðun samninga 2019 lægi fyrir
heildaráætlun um hlutverk landbúnaðarins í
aðgerðum sem snerta loftslags- og umhverfis-
mál. Nefndin vill skerpa á þeim atriðum í
samningunum sem snúa að umhverfismálum
og setja fram tölusett markmið og áfanga í þeim
verkefnum. Meirihlutinn lagði áherslu á að við
endurskoðunina 2019 lægju fyrir áætlanir um
minni losun gróðurhúsalofttegunda í landbún-
aði, um endurheimt votlendis, um sjálfbærni
beitilands og um eflingu skógræktar og upp-
græðslu á vegum bænda.
Meirihluti atvinnuveganefndar lagði til að
farið yrði vandlega yfir það hvernig samkeppn-
islög gilda um mjólkuriðnað. Einnig verði rýnt
í fyrirkomulag á söfnun og dreifingu mjólkur
og starfsumhverfi afurðastöðva með tilliti til
staðsetningar og mikilvægis fyrir þau byggðalög
sem þau starfa í. Meirihlutinn taldi nauðsynlegt
að við endurskoðunina verði af hálfu ríkisins
sérstaklega kannað hvernig landbúnaðarstefnan
geti enn frekar ýtt undir framleiðslu afurða beint
frá býli og vöruþróun sem byggist á uppruna
eða landfræðilegri sérstöðu. Jafnframt taldi
meirihlutinn rétt að örva og hvetja til frekari
sóknar fjölbreyttari flóru fyrirtækja í frum-
vinnslu búvara og auk þess að huga að fyrir-
komulagi og framtíð menntunar starfsmanna
afurðastöðva í mjólkurfræði og kjötiðnaði.
Sérstaklega var tekið fram að við endur-
skoðun landbúnaðarstefnu þyrfti að huga að
tengslum landbúnaðar við aðra atvinnuvegi.
Vöxtur og viðgangur ferðaþjónustu hefði skapað
sveitunum ný tækifæri víða um land og menn-
ingarlandslag og byggðamynstur væru mikil-
vægir þættir sem tengdust landbúnaði sterkum
böndum.
Deilur um landbúnað engum að gagni
Að framansögðu er ljóst að næg verkefni
eru fyrirliggjandi við að móta landbúnaðar-
stefnu til framtíðar. Sitt sýnist hverjum um
það landbúnaðarkerfi sem við búum við og
deilur um það hafa gert umhverfi greinarinnar
mun erfiðara en ella. Það eru hreinir og klárir
hagsmunir Bændasamtaka Íslands að sátt náist
um íslenskan landbúnað. Þess vegna fagna
þau því víðtæka samráði sem ráðist verður í
á næstu þremur árum. Bændur munu ganga
til þeirrar vinnu með opnum hug og ríkan
vilja til sáttar.
Sindri Sigurgeirsson
formaður Bændasamtaka Íslands
sindri@bondi.is
Sannleikurinn um endurskoðun búvörusamninga
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 − Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is – Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson
smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is – Auglýsingastjóri: Ásgerður María Hólmbertsdóttir amh@bondi.is – Sími: 563 0303 – Netfang auglýsinga: augl@bondi.is − Vefsíða blaðsins:
www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is
Frágangur fyrir prentun: Prentsnið – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621