Bændablaðið - 22.09.2016, Qupperneq 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 2016
Fréttir
Umhverfis- og auðlindaráðherra
hefur ákveðið hvernig fyrirkomu-
lag rjúpnaveiða skuli vera nú í
október og nóvember. Leyft verður
að veiða í 12 daga sem skiptast á
fjórar helgar á tímabilinu frá 28.
október til 20. nóvember 2016. Er
það fyrirkomulag með sama sniði
og verið hefur síðustu þrjú ár.
Leyfileg heildarveiði á rjúpum er
40.000 rjúpur sem gerir fimm til sex
rjúpur á hvern skotveiðimann miðað
við fjölda þeirra í fyrra. Er það í sam-
ræmi við mat Náttúrufræðistofnunar
Íslands (NÍ) á veiðiþoli stofnsins.
Þetta er 20 prósent minni veiði en
leyfð var í fyrra þegar heimilt var
að veiða 54 þúsund fugla. Áfram
verður sölubann á rjúpum og er
Umhverfisstofnun (UST) falið að
fylgja því eftir.
Horft framhjá Umhverfisstofnun
Eftir að umhverfis- og auðlindaráð-
herra hafði tilkynnt um ákvörðun
sína heyrðust óánægjuraddir frá
Skotveiðifélagi Íslands (SKOTVÍS),
þess efnis að ráðherra hefði tekið
tillögur Náttúruverndarstofnunar
Íslands fram yfir þær sem UST lagði
fram. Þar var lagt til að veiðidagarnir
yrðu 18 – eða sex þriggja daga helg-
ar – og það veiðifyrirkomulag yrði
ótímabundið. Þó er þar tiltekið að
varpstofn rjúpu færi ekki undir 90
þúsund fugla. Gerðist það yrðu veið-
ar ekki heimilaðar það ár og ekki
aftur fyrr en varpstofninn teldi 100
þúsund fugla. Varpstofn rjúpu er
metinn 131.563 fuglar, samkvæmt
stofnmati NÍ.
Dúi J. Landmark, formaður
SKOTVÍS, segir að það sé fyrst
og fremst ósætti við að ráðherra
skuli algjörlega líta framhjá tillög-
um sem Umhverfisstofnun leggur
fram. „Það er sú stofnun sem fer
með veiðistjórnun í landinu. Þessar
tillögur voru unnar í samvinnu við
SKOTVÍS og Fuglavernd, og mikil
og fagleg vinna sem liggur þeim
að baki. Okkur þykir óverjandi að
ráðherra taki ekki meira mark eða
tillit til þess sem þessir aðilar hafa
fram að færa.
Þegar veiðistjóraembættið var
lagt niður upp úr árinu 2000 og UST
var komið á laggirnar tók hún við
veiðistjórnunarhlutverkinu sam-
kvæmt stjórnskipun og hefur gegnt
því síðan. Eitt af hlutverkum NÍ er
að veita ráðgjöf og leiðbeiningar
þegar kemur að nýtingu náttúru-
auðlinda, ekki veiðistjórnun. Hún
hefur þó seilst inn á það svið reglu-
lega þegar kemur að rjúpnaveiðum.
Árlega sendir NÍ frá sér tilkynningu
um stöðu stofnsins sem er gott og
blessað, en oftar en ekki koma þeir
með hugmyndir um hvernig þeir
telja að fyrirkomulagi veiða á að
vera háttað – sem er einfaldlega
ekki þeirra hlutverk.
Sú slæma hefð virðist síðan hafa
skapast að bæði fjölmiðlar og ráð-
herrar oft á stundum taki þessum
hugmyndum NÍ sem stóra sann-
leik þegar kemur að veiði rjúpu.
Á NÍ er að finna mikið af mjög
hæfu fólki sem við hjá SKOTVÍS
berum mikla virðingu fyrir og vilj-
um eiga málefnalega samvinnu við.
Veiðistjórnun er samt sem áður ekki
hennar hlutverk, það ætti ráðherra
að vita og miða sínar ákvarðanir
við það.
Við viljum að sjálfsögðu fá
fleiri daga, en það þýðir ekki meiri
sóknarþunga eins og skilningur ráð-
herra virðist vera, heldur að álagið
dreifist á fleiri daga. Það verður því
minni veiðiþungi á hverjum leyfð-
um veiðidegi. Þetta snýst um að
dreifa álaginu og hafa meira öryggi
fyrir veiðimenn. Það þýðir ekki fleiri
veiddar rjúpur,“ segir Dúi.
Lokaákvörðun um fyrirkomulag
rjúpnaveiða er alltaf í höndum ráð-
herra en Dúi segir að það gangi ekki
að tillögur UST séu ítrekað virtar að
vettugi við þá ákvörðunartöku. „Við
höfum fyllstu trú á að ráðherra geti
séð ljósið í þessu. Það ganga fimm til
sex þúsund atkvæðisbærir veiðimenn
og -konur til veiða á hverju hausti.
Þetta fólk tekur eftir því hvernig
þeirra málstað er sinnt af hálfu stjórn-
málamanna. Hið sama má segja um
þá tólf þúsund veiðikorthafa sem er
að finna í landinu.“
UST og NÍ ráðherra til ráðgjafar
Ingveldur Sæmundsdóttir, aðstoðar-
maður umhverfis- og auðlindaráð-
herra, segir að í 3. grein laga um
villt dýr sé tekið fram að UST og
Náttúrufræðistofnun Íslands skulu
báðar vera ráðherra til ráðgjafar og
gera tillögur varðandi vernd, friðun
og veiðar á villtum fuglum og villt-
um spendýrum eftir því sem tilefni er
til. „Umhverfis- og auðlindaráðherra
hefur viðmið um sjálfbærar veiðar
í fyrirrúmi við sína ákvarðanatöku.
Ráðherra ákvað því í þessu ljósi, það
er fyrirliggjandi mati á stærð stofns-
ins, að veiðidagafyrirkomulag haustið
2016 verði einfaldlega með sama
sniði og verið hefur undanfarin þrjú
ár, það er 12 veiðidagar á landinu. Til
að tryggja fyrirsjáanleika er jafnframt
gefinn út veiðitími fyrir árin 2017 og
2018, en með þeim fyrirvara að daga-
fjöldinn þá geti átt eftir að aukast eða
minnka eftir því hverjar niðurstöður
eru í stofnmælingum.
Áhugavert er að leita leiða til að
styrkja veiðistjórnun á rjúpu – og ef
mögulegt er að fjölga veiðidögum.
Það er eftirsóknarvert til að sem flestir
veiðimenn geti notið þessa sports og
tilheyrandi útiveru í náttúrunni, ef
hægt er að tryggja að það leiði ekki
til ósjálfbærra veiða og umfram það
sem ráðlagt er. Það mun ráðuneytið
skoða í samstarfi við sínar fag-
stofnanir og hagsmunaðila,“ segir
Ingveldur.
UST gerir tillögur
um stjórn og framkvæmd veiða
Eins og Ingveldur segir er það tekið
skýrt fram í 3. grein laga um vernd,
friðun og veiðar á villtum fuglum
og villtum spendýrum að NÍ og UST
skuli vera ráðherra til ráðgjafar og
gera tillögur varðandi vernd, friðun
og veiðar á villtum fuglum. Þar er
eftirfarandi einnig tiltekið í 3. grein:
„Umhverfisstofnun hefur umsjón
með og stjórn á þeim aðgerðum af
opinberri hálfu sem ætlað er að hafa
áhrif á stofnstærð og útbreiðslu villtra
dýra eða koma í veg fyrir tjón af
þeirra völdum, sbr. VI. kafla. [Í þeim
tilvikum sem ákveðið er að aflétta
friðun skal Umhverfisstofnun gera
tillögur til [ráðherra]1) um stjórn og
framkvæmd veiða á stofnum villtra
fugla og spendýra, sbr. 7. gr., að höfðu
samráði við Náttúrufræðistofnun
Íslands.]2)
Um stefnumótandi mál um vernd,
friðun og veiðar á villtum fuglum og
villtum spendýrum skal haft samráð
við Bændasamtök Íslands, Samband
íslenskra sveitarfélaga, hrein-
dýraráð að því er varðar hreindýr,
Skotveiðifélag Íslands sem og áhuga-
og hagsmunasamtök um vernd, friðun
og veiðar á villtum fuglum og villtum
spendýrum.
Umhverfisstofnun leiðbeinir þeim
sem stunda veiðar og aðrar aðgerðir
til þess að koma í veg fyrir tjón af
völdum villtra dýra.] “ /smh
Umhverfis- og auðlindaráðherra ákveður fyrirkomulag rjúpnaveiða:
Heimilt að veiða 20 prósent
færri fugla en í fyrra
– Formaður Skotveiðifélags Íslands gagnrýnir vinnubrögð ráðherra
Dúi J. Landmark, formaður Skotveiðifélags Íslands.
Í skýrslu Matvælastofnunar og
Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga
um eftirlitsverkefni varðandi nær-
ingarmerkingar matvæla, sem
kom út í lok ágústmánaðar, kemur
fram að töluvert er af frávikum
sem kalla á úrbætur, þótt víðast
hvar séu merkingar í lagi.
Í niðurstöðum skýrslunnar kemur
fram að eingöngu matvörur með
næringarmerkingar hafi verið skoð-
aðar. Meirihluti skoðaðra matvara,
eða 58 prósent, var með næringar-
merkingu þrátt fyrir að aðeins væri
skylt að næringarmerkja 42 prósent
varanna sem skoðaðar voru.
Sameiginleg eftirlitsverkefni
Matvælastofnunar og Heilbrigðis-
eftirlits sveitarfélaga eru unnin í því
skyni að samræma matvælaeftirlit í
landinu og skoða ákveðna þætti við
framleiðslu og dreifingu matvæla.
Þetta verkefni var unnið á tímabilinu
frá byrjun september 2015 til loka
febrúar 2016 og var tilgangurinn tví-
þættur; annars vegar að auka þjálfun
eftirlitsmanna Matvælastofnunar og
Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga í að
skoða næringarmerkingar og hins
vegar að kanna hvort næringarmerk-
ingar sem eru á matvörum á markaði
eru réttar.
Nýjar reglur um
næringarmerkingar
Tilefni þessa verkefnis er meðal
annars það að 13. desember 2016
verður skylt að merkja næringargildi
á flestar forpakkaðar matvörur og
því mikilvægt að efla þekkingu og
þjálfun á þessu sviði. Fram til þess
tíma er eingöngu skylt að næringar-
merkja ákveðnar matvörur, svo sem
matvörur með næringar- og heilsu-
fullyrðingum og kjötvörur. Jónína
Stefánsdóttir, fagsviðsstjóri hjá
Matvælastofnun, gefur dæmi um
þær matvörur sem nýja reglugerðin
mun ná yfir: forpakkað brauð, við-
bit, ostar, kex, sælgæti, jógúrt, súpur,
sósur, grautar, fiskvörur (svo sem
plokkfiskur), pitsur, tilbúin matvæli,
ís og fleira af svipuðu tagi. Hún segir
að þróunin sé nú hröð í þá átt að fyr-
irtæki séu tilbúin þegar fresturinn
rennur út í desember, margir séu
þegar farnir að merkja sínar matvörur
í samræmi við reglugerðina.
Í þeirri reglugerð um næringar-
merkingar sem nú er í gildi kemur
fram að í miðlun upplýsinga um mat-
væli til neytenda skulu vera upplýs-
ingar um orku, fitu, kolvetni, trefjar,
prótein og salt. Einnig má gefa upp
magn af vítamínum og steinefnum.
Nær reglugerðin yfir birtingar allra
slíkra upplýsinga; hvort sem um er að
ræða vefsíður, matseðla eða annað.
Þetta mun einnig eiga við í reglu-
gerðinni sem tekur gildi í desember.
Saltmagn utan vikmarka í 12 af
37 matvörum
Í eftirlitsverkefninu voru næringar-
merkingar skoðaðar á 183 matvör-
um frá tæplega 80 fyrirtækjum og
natríummælingar (saltmælingar)
voru gerðar á 47 matvörum frá 37
fyrirtækjum. Þegar lögboðnar nær-
ingarlýsingar voru skoðaðar kom í
ljós að í rúmlega 75 prósent tilvika
voru öll næringarefni og orka gefin
upp.
Í saltmælingunum kom í ljós
að í 12 tilvikum var saltmagn utan
vikmarka og í fimm tilvikum var
saltmagnið meira en gefið var upp
samkvæmt merkingu. Í þremur
vörum var nærri einu grammi meira
af salti í 100 grömmum en gefið var
upp á merkingum.
Frávikum sem komu í ljós
við skoðun næringarmerkinga
er fylgt eftir af opinberu eft-
irliti (Heilbrigðiseftirliti eða
Matvælastofnun) viðkomandi
matvælafyrirtækis. Öllum fyrir-
tækjum var tilkynnt skriflega um
niðurstöður natríummælinga (salt).
Þar sem mælt magn var ekki innan
vikmarka er málinu fylgt eftir af
opinberu eftirliti (Heilbrigðiseftirliti
eða Matvælastofnun) viðkomandi
matvælafyrirtækis.
Í lokaorðum skýrslunnar segir
að fjöldi frávika frá saltmagni veki
athygli og sýni ef til vill þörf á að
yfirfara bakgrunn næringarmerk-
inga svo að treysta megi betur þeim
upplýsingum sem gefnar eru. Í því
sambandi er sérstaklega tiltekið að
mikilvægt sé að merking gefi ekki
upp of lítið af salti svo að neytend-
ur, sem þurfa heilsu sinnar vegna
að takmarka saltinntöku, séu ekki
blekktir. Skýrslan er aðgengileg
á vef Matvælastofnunar, undir
Eftirlitsniðurstöður. /smh
Verkefni um næringarmerkingar matvæla:
Töluvert af frávikum
sem kalla á úrbætur
– Ný reglugerð tekur gildi 13. desember
Dæmi um framsetningu umbúða-
merkinga.