Bændablaðið - 22.09.2016, Page 35

Bændablaðið - 22.09.2016, Page 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 2016 Getum við orðið að liði? – Við seljum m.a. Frábærar vélar fyrir m.a. þvottahús, hótel og gistiheimili FR U M - w w w .f ru m .is Eigum hágæða þýskt hótellín Vandaðar Vefsíður Seldu þína þjónustu og afurðir á netinu! Kynntu þér málið á www.vefurraedi.is eða í síma: 5378787 -Uppsetningarverð á vefsíðum eru frá 58.500 kr.- án VSK- Láttu sjá þig á netinu! Byggjum á reynslu, góðum verðum og nýjum nálgunum -Veitum ráðleggingar og markaðsaðstoð- Beint frá Býli til neytenda Fe rð aþ jó nu st a Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020 eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is Skipholt 50b, 105 Reykjavík Vegna aukinnar eftirspurnar óskum við eftir bújörðum á söluskrá Kynntust fyrst í herstöðinni í Keflavík Russ og JoAnne kynntust fyrst sem unglingar þegar feður þeirra voru hermenn hjá bandaríska hernum á Keflavíkurflugvelli. Eins og áður segir þá lendir faðir Russ í þessu flugslysi og segist Russ yngri enn muna daginn sem pabbi hans kom heim eftir atvikið, hann hafi verið niðurdreginn og sumarfrí fjölskyldunnar var sleg- ið af í kjölfarið. Stuttu síðar var Íslandsdvölinni lokið. Nokkrum árum síðar vill það svo til að feður þeirra eru aftur staðsettir á sama stað, þá í Memphis, þar sem báðar fjölskyldur settust að um árabil. Russ þekkti systur JoAnne frá því á Íslandi og mundi eftir litlu systur hennar. Þegar hann var í háskóla kom systirin því svoleiðis fyrir að þau færu á stefnumót og þar með voru örlögin ráðin. Mánuði síðar bað hann JoAnne að giftast sér og hafa þau nú verið gift í 41 ár. Þau segja að Ísland eigi sérstakan stað í hjarta þeirra og er þetta ekki í fyrsta skipti sem þau koma til lands- ins eftir að hafa búið hér sem ung- lingar. Í dag búa þau í Los Angeles og eru komin á eftirlaun. Russ segist lengi hafa haft áhuga á að gera sögunni um flugslysið skil og dregur enga dul á að flugslysið var föður hans að kenna samkvæmt þeirri rannsóknarskýrslu sem gerð var eftir slysið, þetta sé bara partur af sögu fjölskyldunnar. Russ og JoAnne stoppuðu tvo daga á Þórshöfn og fengu heimboð í réttir á Gunnarsstöðum, sem þau höfðu mikla ánægju af, enda svo- lítið langt frá þeirra daglega lífi í Los Angeles. /GBJ Mynd / GBJ Mynd / Gréta Bergrún Jóhannesdóttir ÞÓR FH REYKJAVÍK: Krókháls 16 Sími 568-1500 AKUREYRI: Lónsbakka Sími 568-1555 Vefsíða: www.thor.is Með RITCHIE kerfinu verður meðhöndlun sauðfjár leikur einn. Einingarnar í RITCHIE kerfinu eru hannaðar til þess að ganga saman sem eykur notkunarmögu- leika og styttir vinnuferla. Einingarnar eru teinaðar saman á fljótlegan og einfaldan hátt. Allar vörurnar frá RITCHIE eru heitgalvanhúðaðar sem tryggir hámarksendingu við íslenskar aðstæður. Combi-Clamp - fjárklemman Fjárklemman klemmir féð og heldur því kyrru á meðan það er meðhöndlað. Flokkun í 3 áttir. Rétt vinnuhæð. Veltibúr Auðveldar klaufskurð til muna. Snýr fénu og skorðar það á bakið. Rétt vinnuhæð, ekkert bogr, engin barátta. Fjárgangur Til meðhöndlunar og flokkunar á sauðfé. Grun- neining. Mögulegt er að bæta við grunneiningu eða kaupa staka hluti úr henni. Fjárvogir Fjárvogir - Skífuvogir og tölvuvogir. Áratuga reynsla á Íslandi. Hægt að fá tölvu með örmerkjalesara. Aðrar vörur í sauðfjárbúskapinn: Gerðisgrindur - Koma í tveimur lengdum, 1,2 m og 1,8 m. Hagstætt verð. Læsast saman án nokkura festinga. Gjafagrindur - Gjafagrindurnar frá Ritchie eru sterk smíði. Teinaðar saman, einfaldari meðhöndlun. Heitgalvanhúðaðar. Drykkjarker - Drykkjarker með floti, henta vel í fjárhúsin. Galvaniseruð á góðu verði. Rafmagnsheyskeri - Meðfærilegur og góður. Sker rúllur eins og smjör.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.