Bændablaðið - 22.09.2016, Page 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 2016
Í einni ítarlegustu úttekt og for-
orðningu sinni, Capitulare de
Villis, lét Karlamagnús gera lista
yfir ríflega sjötíu tegundir jurta
sem hann vildi hafa í görðum
sínum. Allar þessar jurtir höfðu
þá verið í ræktun frá upphafi
söguritunar við norðanvert
Miðjarðarhaf.
Einkum eru það matjurtirn-
ar, t.d. káltegundir og laukar af
ýmsu tagi, salat og spínat, gulræt-
ur, betur og baunir sem enn eru
ræktaðar um alla Evrópu. Ekki
vantaði heldur krásjurtir eins
og sellerí, fennil, pastínökku og
hinar náskyldu dillu, kóríander,
steinselju, skessujurt og kerfil, svo
eitthvað sé nefnt sem við þekkjum
af eigin reynslu í görðunum okkar.
Kryddjurtir af öllu tagi voru
þar líka tilteknar. Flestar þeirra
má enn finna í okkar daglegu
matargerð. En ekki síst margs-
konar lækningajurtir og plöntur
sem skiptu máli við undirbúning
kirkjustarfs og til lyfjagerðar í
klaustrunum eða sem almenningur
greip til sér til bóta við algeng-
um meinum. Kirkjujurtirnar eru
sérlega áhugaverðar, því þær eru
enn á slæðingi kringum klaustur-
rústir, kirkjur og kirkjugarða hér
á Norðurlöndum sem arfur frá
pápískri tíð.
Aldursforseti garðjurtanna
Sú kirkjujurt sem er áberandi enn
þann dag hér á Íslandi er ugglaust
reinfangið, Tanacetum vulgare.
Tegundin vex villt um mestan
hluta Evrópu og Vestur-Asíu. Á
Norðurlöndum, meðal annars á
Íslandi, finnst reinfang hér og
hvar í skúfum og stóðum en er
hvergi yfirdrifið. En það var ekki
villitegundin sem Karlamagnús
vildi sjá. Heldur afbrigðið með
hrokknu blöðunum, það sem
nú hefur fræðiheitið Tanacetum
vulgare f. crispum.
Svíar og Norðmenn kalla það
munkareinfang og ég sting upp á
að við öpum það eftir þeim. Og sú
nafngift er ekki að ástæðulausu, því
að munkareinfangið skipti miklu
máli við klausturhaldið, kirkjusiði
og ekki síst þegar verið var að búa
lík til greftrunar. Munkareinfangið
er lægra og þéttvaxnara en frum-
tegundin. Ilmur þess og önnur efni
eru mun magnaðri. Í raun er það
„klónn“, það er að segja að allt
munkareinfang er og hefur verið
einn og sami einstaklingurinn
frá því að það var uppgötvað.
Og þessi klónn hefur dreifst með
Evrópumönnum um allan heim
og þrífst hvarvetna þar sem hann
fær vetrarríki og hjálparhönd frá
mönnum.
Uppruni munkareinfangsins
er óviss en gæti verið í einhverj-
um fjalladal á svæðinu næst
Svartahafi vestanverðu, líklega
í ræktun. Það blómgast seint og
þroskar sjaldan fræ á okkar slóð-
um. En gerist það, verða allir
afkomendurnir bara venjulegt
reinfang. Líklegasta skýringin
á útbreiðslu reinfangs í Vestur-
Evrópu er að hún sé að mestu að
þakka fræplöntum af munkarein-
fangi sem námu land hér og hvar
alla leið til nyrstu héraða vest-
rænna byggða og hófu sjálfstætt
líf án afskipta manna.
En sjálft munkareinfangið
þrífst hvergi nema í návistum
við menn og er háð mannlegri
umönnun og dreifingu af manna
völdum. Það gefst fljótt upp í
samkeppni við gras og þar sem
ágangur sauða og geita er einhver.
Skepnur af því tagi nauðnaga
það að rót um leið og það byrjar
að bæra á sér á vorin. Því þarf
alltaf að fjölga með skiptingu eða
stöngulgræðlingum. Og þegar
við sinnum um eða sjáum rein-
fang með hrokkin blöð er gott
að minnast þess að þar er um að
ræða einstakan plöntuklón sem
á að baki sér einhverja lengstu
ræktunarsögu sem nokkur garðjurt
getur státað af.
Kær börn eiga mörg nöfn
Hér á landi hefur munkareinfang-
ið líklega vaxið á flestum kirkju-
stöðum fyrir siðaskipti eins og
hvarvetna þar sem kaþólska kirkj-
an hafði yfirhönd. Og kannski
höfðu tilmæli Karlamagnúsar
ekki síst áhrif á að það dreifðist
milli klaustra og kirkna um leið og
þjóðir NV-Evrópu tóku upp krist-
inn sið. Það var notað til að krydda
messuvínið í Dymbilvikunni,
remman af því átti að minna á
þjáningar Krists á föstudaginn
langa. Blöð þess voru höfð í
fatakistum til að verja fatnaðinn
mölflugum og pöddunagi. Það var
líka tengt útfararsiðum, lík voru
þvegin með reinfangsseyði til að
tryggja hinum látnu betri endur-
komu á upprisudegi og líka til að
fyrirbyggja að skordýr legðust á
líkin þegar þau stóðu uppi.
Nafnið reinfang er svo sér
kapítuli. „Reinfan“ er hið upp-
haflega. Komið úr fornþýsku,
máli Karlamagnúsar. Samsett út
tveim hugtökum, „rein“ og „fön“.
Rein þýðir mjó ræma eða lítill
blettur, jafnvel afmörkun og leiði
í kirkjugarði. Orðið fön er oftast
notað í fleirtölumyndinni fanir.
Í nafni reinfangsins er líkingin
dregin af fönum fjaðra og fanir
eru líka gamalt heiti á vængjum.
Géið í endann hefur svo bæst við
í íslensku vegna dansks misskiln-
ings á síðustu öld.
Semsagt: rein + fjöður. Það var
skilningurinn sem Karlamagnús
lagði í nafnið. Þýska heitið
„Reinfarn“ (rein + burkni) er síð-
ari tíma útskýring eftir að hugtak-
ið „fön“ hætti að virka í þýsku. En
þetta forngermanska orð lifir enn
í enskunnar „fan“ sem merkir nú
blævængur eða vifta.
Reinfann er norska heitið, ren-
fana á sænsku og danska heitið
er rejnfan. Á íslensku var heitið
reinafáni eða reinfan. En um
aldamótin 1900 skrifaði danskur
garðaskríbent „regnfang“ í texta
sem hann lét frá sér. Sá ritháttur
smitaði út frá sér og þarna þótti
vera komin góð skýring á nafn-
inu – „auðvitað fangar það regn-
ið!“. Danir gera ekki greinarmun
í framburði á „rejn“ og „regn“
og margir þeirra skilja heldur
ekki orðið rejn. Einar Helgason
og Stefán Stefánsson nota báðir
„reinfan“ í bókum sínum.
En íslenskir garðyrkjubóka-
höfundar sem síðar komu tóku
upp hið danska „regnfang“ því
sá ritháttur var farinn að vera yfir-
gnæfandi þar. Og fáir skildu frum-
nafnið. En síðari tíma garð- og
plöntufræðahöfundar í Danmörku
eru fyrir löngu búnir að leiðrétta
misskilninginn og skrifa nú alltaf
„rejnfang“ samkvæmt upprunan-
um. En við sitjum uppi með „rein-
fang“ og jafnvel „regnfang“ eftir
þetta nafnaævintýri. Á íslensku
eru samt til all mörg önnur heiti
á reinfanginu. Rannfang, ramfrag,
leiðabuski, rammfang, ránfang,
rænfang, reinfáni, daggarsmali,
leiðabuski og ormagras eru nokk-
ur dæmi. Síðasta heitið er gamalt
og gefur vísbendingu um notkun
þess sem ormalyfs.
Ríkir yfir dauðanum
Ættkvíslarheitið Tanacetum er
gamalt. Upphaflega komið af
grískunnar „aþasania“ sem þýðir
„sá sem sigrar dauðann“ eða öllu
heldur „sá sem ríkir yfir dauðan-
um“. Í fornsögum er sagt frá því að
Seifur hefði látið færa hinum fagra
en dauðlega unglingi Ganymedesi,
sem hann hafði ofurást á, drykk
ódauðleikans, aþanasia, svo að
hann gæti eilíflega dvalið hjá
honum meðal hinna ódauðlegu
guða. Grísku guðirnir viðhöfðu
semsé enga einstefnu í ástamálum
sínum. Líklega hefur þessi ódáind-
veig verið uppáhellingur þar sem
reinfangið kom við sögu. Enska
heitið „tansy“ er af sama stofni og
fræðiheitið. Var komið til sögunnar
löngu áður en Linné ákvað fræði-
heitið.
Til ættkvíslarinnar heyra um 180
tegundir sem vaxa víðsvegar um á
Norðurhveli jarðar. Í Evrópu voru
það fyrst og fremst reinfangið og
maríubráin, Tanacetum balsamita,
sem ræktaðar voru sem kirkju-
og lyfjajurtir. En fleiri tegundir
koma einnig við sögu í öðrum
heimshlutum. Í Egyptalandi hinu
forna var reinfang notað í tróðið
sem sett var inn í múmíurnar og
léreftið sem vafið var utan um þær
hafði verið vætt í reinfangsseyði
til að koma í veg fyrir pöddugang.
Alþýðunot og læknisdómar
Hvarvetna hefur reinfang komið
við sögu í þjóðtrú og daglegu
brúki Vestur-Evrópumanna. En
hafa þarf varann á, því plönturn-
ar innihalda mörg varhugaverð
efni sem ekki er gott að innbyrða
í mannslíkamann. Eitt af þeim er
tújón sem er sterkt eiturefni og
ástæðan fyrir því hve vel reinfang
gagnast gegn smádýrum og örver-
um. En auk þess m.a. ísótújon,
kíneol og kamfóru. Saman gefa
þessi efni frá sér hina sérstöku
lykt sem einkennir reinfangið.
Sterkust er reinfangslyktin af
munkareinfanginu vegna þess að
efnainnihald þess er mun megnara
en í frumtegundinni.
Blómunum var safnað, þau
síðan þurrkuð og mulin smátt og
lögð í vín eða mysu. Vökvinn var
svo notaður í hóflegum skömmt-
um gegn innyflaormum í fólki
og fénaði. Enn nota sumir dýra-
læknar þennan lög gegn ormum
í skepnum.
Litlir snapsar af rein-
fangskrydduðu brennivíni þóttu
góðir gegn meltingartruflunum,
kláða og gikt. Þóttu líka vinna á
krampaflogum og magakveisu.
Seyði af reinfangsblöðum var
ráðlagt fólki sem átti í vandræðum
með þvaglát eða svitaköst. Setbað
í reinfangsvatni var ráðlagt konum
sem þjáðust af klæðaföllum. Og
í nokkrum löndum tíðkaðist að
leggja bakstra úr reinfangi yfir líf-
bein sængurkvenna til að auðvelda
þeim fæðinguna. Reinfangsbakstrar
voru líka lagði yfir auma og bólgna
liði til að draga úr verkjum. Og
brögð voru að því að konur drukku
reinfangsveig til að losna undan
óvelkominni þungun. En þar þurfti
að fara varlega svo að ekki hlytist
verra af.
Reinfangsblöðum var oft núið
á kjöt til að verja það skemmdum.
Líka mátti vefja reinfangsblöðum
utan um kjötið í sama tilgangi. Og
reinfang var ekki síður nytsamlegt
sem fjandafæla. Reinfangsknippi hér
og hvar í híbýlum og peningshús-
um þóttu standa sig sérlega vel að
því að halda púkum og öðru illþýði
andskotans í skefjum.
Með varúð er hægt að nota
reinfang sem kryddjurt. Fyrst og
fremst til að gefa sérstæða remmu í
öl og brennivín. Enskur siður meðal
kaþólikka var að gera svokallaðan
„tansy-pudding“ sem er einhvers
konar búðingur gerður úr hrærð-
um eggjum, brauðmylsnu og ótal
kryddum, ósætt. Af honum var ramt
kryddbragð þar sem reinfangið yfir-
gnæfði. Þetta var borið fram með
öðrum mat um páskana og þótti
verðug ábending um pínu Krists.
Á nokkrum stöðum þar sem sauðfé
er haft til matar á Bretlandseyjum
þykir gott að gera sósu úr ediki og
reinfangi sem svo er borin fram
með kjötinu til að kæfa ullar-
bragðið.
Um aldaraðir hefur reinfang
verið notað sem litunarjurt fyrir
ullarband. Með ýmsum aðferðum
má fá fram með því gula, græna
eða brúna litatóna.
Varnaðarorð og reinfangsráð
í restina
Vegna efnainnihaldsins er rein-
fang af öllu tagi nokkuð eitrað.
Geitur og sauðfé þola það í ein-
hverjum mæli, en ekki fólk. Þess
vegna verður að hafa það hugfast
að fara varlega ef ætlunin er að
nota það sem krydd eða til lækn-
inga. Best er að láta það ógert, en
eitt og eitt blað af og til er samt varla
banvænt. Hægt er að búa til sterkt
skordýraeitur með því að leggja
reinfangsblöð í sjóðandi vatn í hlut-
föllunum 1:1 að rúmmáli og láta
kólna vel. Lögurinn er svo síaður
og blandaður með einni matskeið af
fljótandi mjúksápu í hvern lítra af
leginum. Pressið vel allan vökva úr
blöðunum. Síðan þynntur 1:10 með
vatni og úðað á skaðvalda í gróðri.
Þetta er snertieitur, svo ekki þýðir
að nota hann sem fyrirbyggjandi
vörn. Og þó, ef þessum legi er
úðað meðfram smáplöntum af
káljurtum á þeim tíma sem kál-
flugan er á sveimi truflar lyktin
kálfluguna svo að hún finnur ekki
plönturnar.
Fróðleiksbásinn
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur
Jurtir Karlamagnúsar – munkareinfang
Plöntulistinn í Capitulare de Villis.
Munkareinfang, Tanacetum vulgare f. crispum.