Bændablaðið - 22.09.2016, Page 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 2016
Sjötta alþjóðlega júgurbólguráð-
stefna IDF, sem eru alþjóðasamtök
mjólkuriðnaðarins, var haldin í
Nantes í Frakklandi dagana 7. til
9. september og tóku 360 manns
þátt í ráðstefnunni.
Dagskrá ráðstefnunnar var afar
fjölbreytt og voru alls haldnar 8 mis-
munandi málstofur á ráðstefnunni:
um mjaltir, um forvarnir og vöktun,
um bústjórn, um kindur, geitur og
kameldýr, um mótstöðu og erfðir, um
meðferðarúrræði, um gagnanotkun
og um faraldursfræði. Hér verður hér
gerð stuttlega grein fyrir nokkrum
málstofum þessarar ráðstefnu.
Mjaltir
Í þessari málstofu voru haldin 6
erindi og stóðu tvö erindi upp úr,
annars vegar erindi hins þekkta vís-
indamanns Douglas Reinmann frá
háskólanum Wisconsin-Madison í
Bandaríkjunum og hins vegar erindi
Japanans Hajime Nagahata.
Douglas ræddi í erindi sínu um
áhrif spenagúmmís á júgurheilbrigði
í víðum skilningi, en hann hefur ein-
beitt sér að þessu rannsóknaefni í
áratugi. Sú deild sem Douglas þessi
starfar við hefur m.a. þróað einkar
áhugaverða aðferð við að prófa mis-
munandi spenagúmmí og áhrif mis-
munandi hönnunar þeirra á spena-
enda og gæði mjalta en aðferðin
byggir m.a. á því að mæla með
hlutlægum hætti mótstöðu, sveigju
og rými spenagúmmís. Í dag snúast
mjaltir mikið til um afköst enda því
meiri sem þau eru, því lægri verður
framleiðslukostnaður mjólkurinn-
ar svo fremi sem mjólkurgæðin
og júgurheilbrigði kúnna haldist í
lagi. Ræddi hann m.a. um hve hátt
væri hægt að fara með kerfissog
mjaltakerfa, hvernig breyta mætti
hreyfitíðni spenagúmmís og um áhrif
þess að vera með loftventla í kraga
spenagúmmís í stað hefðbundins
ventils í mjaltakrossi. Í stuttu máli
sagt er hægt að hraða mjöltum
umtalsvert með auknu kerfissogi
og með því að lengja mjaltafasa
sogskiptis sé þess gætt að kýrnar
séu tilbúnar til mjalta við ásetningu
tækis, þ.e. selji vel, og sé mjaltatæk-
ið tekið af í tíma. Þess má geta að
í Danmörku eru viðmið við aftöku
mjaltatækja í dag 5–700 ml/mínútu
sé mjólkað tvisvar á dag.
Erindi Hajime var ekki síður
áhugavert en hann starfar hjá fyrir-
tæki sem sérhæfir sig í sótthreinsun
mjaltatækja á milli mjalta einstakra
kúa í mjaltaþjónum. Fyrirtækinu
hefur tekist að þróa aðferð, þar sem
jónuðu vatni er dælt inn í mjalta-
hylkin þegar búið er að taka af kúnni
og þau sótthreinsuð þannig. Þetta
hefur gefið mun betri raun en að nota
t.d. gufu að hans sögn, en hefur ekki
verið prófað víða utan Japan enn sem
komið er.
Bústjórn
Erindin í þessari málstofu voru afar
ólík og tóku til ólíkra aðstæðna.
Mörg snéru að geldstöðunni og
hvernig best sé að sinna forvörnum
gegn júgurbólgu þegar kýrnar eru
á því skeiði. Svíinn Håkan Landin
flutti einkar gott erindi um tilraun
sem gerð hefur verið í Svíþjóð með
spenakítti eins og t.d. Boviseal eða
Orbeseal.
Sumir hafa haldið að nóg sé að
nota spenakítti án þess að meðhöndla
kýr með geldstöðulyfi á sama tíma
og var niðurstaða tilraunarinnar að
sé ekki notað annað en spenakítti,
þá sé það hreinlega verra en að nota
það ekki. Ástæðan gæti falist í því
að með spenakítti lokast spenaendinn
algjörlega og séu einhverjar bakter-
íur í júgrinu við lokun, lokist þær
inni. Niðurstaðan var því sú að eigi
að nota slíkt kítti, sé það einungis
gert séu kýrnar meðhöndlaðar með
lyfjum á sama tíma einnig.
Mótstaða og erfðir
Í þessari málstofu voru flutt fjöl-
breytt erindi en erindi Pascal Rainard
frá Frakklandi stóð upp úr að mati
greinarhöfundar. Hann fjallaði um
hina áhugaverðu spurningu sem oft
heyrist: Er hægt að vera með of lága
frumutölu í hjörð? − Með öðrum
orðum, getur lág frumutala til lengri
tíma leitt til þess að mótstaða kúnna
veikist og kýrnar fái oftar svæsin
tilfelli júgurbólgu?
Til eru rannsóknir sem benda í
báðar áttir og því leitaði Pascal að
svörum við þessari áleitnu spurn-
ingu með því að kynna sér ótal rann-
sóknir á þessu sviði og bera saman
niðurstöður þeirra auk þess að skoða
frönsk gögn í þessu sambandi.
Til þess að gera langa sögu stutta
þá var niðurstaða hans að það sé
alltaf kostur að lækka frumutölu
hjarðarinnar, jafnvel vel niður fyrir
100 þúsund. Takist það dregur veru-
lega úr smitálagi því sem kýrnar
sjálfar dreifa um fjósið og á milli sín.
Hann mælti því með því að þegar
horft er til kynbótastarfs eigi alltaf
að horfa á frumutölu gripa, með því
sé valið fyrir sterkari einstaklingum
sem hafa betri mótstöðu gegn júg-
urbólgu og ekki þurfi að óttast að
frumutalan verði of lág.
Meðferðarúrræði
Hin finnska Satu Pyörälä flutt í
þessari málstofu erindi um með-
ferðarúrræðin og hvort það væri
eitthvað nýtt undir sólinni þegar
að því kæmi að meðhöndla kýr við
júgurbólgu.
Allt frá fimmta áratug síðustu
aldar hafa verið notaðar spenatúpur
með mótefnum í og hefur í raun lítið
breyst í meðferð gegn júgurbólgu
frá þeim tíma, annað en skammta-
stærðin og lyfjagerðin sem í túp-
unum er.
Í Finnlandi hefur meðhöndlun
gegn júgurbólgu orðið mun mark-
vissari með árunum og með bættri
greiningatækni eins og notkun á
PCR þá hefur nákvæmni við lyfja-
val aukist verulega. Það sem hefur
þó skilað Finnum mestum árangri
í því að draga úr lyfjanotkun sinni
er að hlúa að forvörnum, að koma í
veg fyrir að kýrnar fái júgurbólgu.
Í því sambandi benti Satu m.a. á
samnorrænar leiðbeiningar um
forvarnir gegn júgurbólgu og með-
höndlun júgurbólgutilfella. Einnig
að nú orðið horfi flestir dýralæknar
til þess að meðhöndla kýr í geld-
stöðu í stað þess að reyna við júg-
urbólgutilfellin á mjaltaskeiðinu
sjálfu. Auk þess séu fleiri og fleiri
bændur í Finnlandi farnir að rækta
heima sýnin úr kúnum svo þegar
dýralæknir ber að garði þá liggur
nákvæmlega fyrir hvaða sýkill er á
ferðinni og því verður meðhöndlun-
in gegn sjúkdóminum mun réttari.
Þannig sé meðhöndlað með lyfjum
séu bakteríurnar gram-jákvæðar en
séu þær gram-neikvæðar er ekki
meðhöndlað.
Meðhöndlun með breiðvirkum
lyfjum hefur því dregist stórlega
saman og sýndi hún niðurstöður
um að á þeim búum sem hafa tekið
þessa aðferð upp í Bandaríkjunum,
Kanada og nokkrum Evrópulöndum
þá hefur lyfjanotkun dregist saman
um 50%. Á sama tíma hefur ekki
verið sýnt fram á að hlutfall nýsmit-
aðra kúa aukist þrátt fyrir að veru-
lega sé dregið úr meðhöndlun.
Gagnanotkun
Víða um heim er gögnum safnað um
mjólkurframleiðslu og sé rétt unnið
með gögn má oftar en ekki nýta þau
með eftirtektarverðum árangri.
Í þessari málstofu var víða komið
við og var áhugavert að fræðast um
það hvernig írskir vísindamenn nýta
þarlendan gagnagrunn til þess að ná
tökum á frumutöluvandamálum í
landinu í heild sinni.
Finola McCoy kynnt verkefnið
CellCheck sem er írskt júgurheil-
brigðisátak en því er ætlað að leiða
til þess að árið 2020 verði 75% af
allri framleiddri mjólk í landinu með
minna en 200.000 frumur/ml. Það er
metnaðarfullt markmið. Í dag eru í
landinu um 1.250 þúsund mjólkur-
kýr og 17 þúsund kúabú með með-
alstærð í kringum 64 kýr.
CellCheck-verkefnið snýr að
hverju og einu kúabúi en með því
er sett innra markmið fyrir hvert og
eitt kúabú, gerðar greiningar á þeim
nú gögnum sem búið býr yfir og þær
bornar við landsupplýsingarnar.
Hver breyta er svo tengd við krón-
ur og aura og getur kúabóndinn séð
með ein-földum hætti hvað hann eða
hún getur gert til þess að nýta tekjur
búsins betur og/eða jafnvel aukið
tekjur búsins.
Áhugavert og næstum línulegt
samhengi er í Írlandi á milli hagnaðs
og meðal-frumutölu, en þau bú sem
eru með frumutölu sem er lægri en
100.000 eru í hinum írska gagna-
grunni með tvöfalt meiri hagnað en
þau bú sem eru með 300–400.000
í meðal frumutölu. Þá er hagnað-
ur hinna frumulágu búa um 60%
meiri en þeirra búa sem eru með
200–300.000 í meðal frumutölu.
Snorri Sigurðsson
sns@seges.dk
Ráðgjafi hjá SEGES P/S
Danmörku
Sjötta Alþjóðlega júgurbólgu-
ráðstefna IDF
Utan úr heimi
Konungleg tilmæli:
Karl Bretaprins hvetur
fólk til að klæðast ull
Hans konunglega tign, Karl
Bretaprins, skrifaði pistil í The
Telegraph fyrr í þessum mánuði
þar sem hann mærir ull og hvet-
ur fólk til að klæðast ullarfatnaði
á vetri komandi.
Greinin hefst á því að spyrja
hvað sé betra en efnið sem er
ræktað á náttúrulegan hátt, þurfi
bara vatn og gras og að hægt sé
að búa til úr því hlýjan og góðan
fatnað og hafi teygju og styrk í
endingargóð teppi og áklæði.
Efni sem sé fyrirtaks varma- og
hljóðeinangrun og heldur hita þrátt
fyrir að blotna og sé brunaþolið
og taki ekki í sig lykt. Og það sem
meira er, það brotnar niður á nátt-
úrulegan hátt í náttúrunni.
Það furðulegasta af öllu er að
þetta undraefni er til og hefur verið
til í langan tíma og er ull. Það að
ull sé ekki nýtt efni og að ekki þurfti
að finna hana upp hefur hugsanlega
valdið því að við höfum misst sjón-
ar á henni og notum hana ekki sem
skyldi nú á tímun.
Ekki er þörf fyrir jarðefnaelds-
neyti til að framleiða náttúrulegar
afurðir eins og ull og hægt er að
endurnýta þær. Slíkar afurðir koma
til með að verða sífellt mikilvægari í
framtíðinni og baráttunni við hlýnun
jarðar.
Næst segir Karl frá því að hann
ætla að standa fyrir ullarráðstefnu
í Skotlandi þar sem saman munu
koma fjöldi aðila sem tengist ull og
framleiðslu úr henni. Vonast prinsinn
að vegur ullar muni aukast og að
verð á henni til bænda hækki í kjölfar
ráðstefnunnar. /VH
Hans konunglega tign, Karl Bretaprins, klæðist iðulega ullartvídjakka.
Sameinuðu þjóðirnar:
Stefnt að því að útrýma sýkingum
vegna sýklalyfjaónæmra baktería
Öll 193 lönd Sameinuðu þjóðanna
hafa samþykkt að undirrita yfir-
lýsingu þar sem stefnt er að því að
útrúma sýkingum vegna sýklalyf-
jaónæmra baktería.
Yfirlýsingin var sex ár í vinnslu
og ef hún gengur eftir er talið að
koma megi í veg fyrir ótímabæran
dauða 700 þúsund manna á ári. Þetta
er í fjórða sinn sem Sameinuðu þjóð-
irnar senda frá sér svipaða yfirlýs-
ingu. Fyrst vegna HIV-veirunnar árið
2001, næst 2011 vegna krónískra
sjúkdóma sem ekki eru smitandi og
síðan 2013 vegna ebóla-veirunnar.
Þjóðir sem undirrita yfirlýs-
inguna hafa tvö ár til að setja saman
áætlun um varnir gegn sýkingum
vegna sýklalyfjaónæmra baktería.
Gríðarleg ógn
Sérfræðingar á svið bakteríusýk-
inga segja sýkingar af þessu tagi
séu ein stærsta heilsufarslega ógn
sem mannkynið stendur frami fyrir
í dag. Verði ekki gripið inn strax er
talin veruleg hætta á að tiltölulega
litlar sýkingar geti farið úr böndun-
um vegna þess að sýklalyf sem til
eru í dag ráði ekki við bakteríurnar
sem valda þeim. Dæmi um aðgerðir
sem gætu reynst banvænar eru lið-
skipti og keisaraskurður.
Ástæða þess að margar bakteríur
hafa mynda ónæmi gegn sýklalyf-
jum er ofnotkun á sýklalyfjum við
lækningar á fólki og búfé og sem
vaxtarhvata í búfjárrækt. Alþjóða
heilbrigðismálastofnunin spáir því
að árið 2050 muni allt að 10 millj-
ónir manna látast af völdum sýkinga
af þessu tagi verði ekkert að gert.
Aukið eftirlit og fræðsla
Í yfirlýsingunni kemur fram að
þjóðir sem undirrita hana muni
koma sér upp eftirlitskerfi þar sem
fylgst verður með sölu og notkun á
sýklalyfjum til lækninga á mönnum
og dýrum. Hvetja til þess að þróuð
verði ný lyf og að greining á sýk-
ingum verði hraðað og að fræðsla til
heilbrigðisstarfsmanna og almenn-
ings vegna hættu á sýkingum vegna
sýklalyfjaónæmra baktería verði
aukin. /VH