Bændablaðið - 01.12.2016, Qupperneq 1
23. tölublað 2016 ▯ Fimmtudagur 1. desember ▯ Blað nr. 480 ▯ 22. árg. ▯ Upplag 32.000
Smitfaraldur af völdum H5N8-veiru veldur vaxandi ugg hjá alifuglabændum á Norðurlöndunum og víðar í Evrópu:
Fuglaflensa breiðist út með villtum fuglum
– Matvælastofnun telur litlar líkur á að pestin berist hingað til lands yfir vetrartímann
Staðfest hefur verið af Matvæla-
stofnun Danmerkur að nokkur
tilfelli fuglaflensu af völdum
H5N8 veirunnar hafi greinst
í landinu. Smit hefur einnig
greinst í fjölmörgum löndum í
Evrópu.
Undanfarnar vikur hafa nokkur
tilfelli fuglaflensu greinst á villtum
fuglum í Evrópu sem hefur meðal
annars leitt til smits á hænsnabúum.
Þetta hefur einnig uppgötvast hjá
fiðurfé í Danmörku og Svíþjóð. Nú
fylgjast norsk stjórnvöld vel með
ástandinu og hafa nú sett bann á
ákveðnum svæðum við útigöngu
fiðurfénaðar.
Matvælastofnunin á Íslandi
(MAST) telur litlar líkur á að
fuglaflensan berist hingað til lands.
Þar ræður árstíminn og strangar
reglur um innflutning á lifandi
fuglum þyngst.
Fuglaflensan í Danmörku
Flensan er af A(H5N8)-stofni.
Fyrstu tilfelli í Danmörku greindust
í þrjátíu öndum á býli á Sjálandi.
Sýkingin hafði áður greinst í
villtum fuglum í Danmörku og
í kjölfarið er búið að banna alla
lausagöngu alifugla í landinu. Smit
hefur einnig greinst í Þýskalandi,
Sviss, Austurríki, Ungverjalandi,
Póllandi, Hollandi og Króatíu svo
dæmi séu nefnd.
Hækka viðbúnaðarstig
Frá því að upp komst um sýk-
inguna í Danmörku hafa yfirvöld
í Þýskalandi fyrirskipað að tæplega
9.000 gæsum verði slátrað vegna
smits á fuglaalibúi í Slésvík-
Holstein-héraði.
Fyrir nokkrum vikum var slátr-
að um 30.000 hænsnum og þriggja
ferkílómetra svæði einangrað í
Slésvík-Holstein vegna hættu á
smiti eftir að sýking greindist í
mávum í nágrenni við alifuglabú.
Um svipað leyti var 300.000 eggj-
um í Þýskalandi, sem ætluð voruð
til áframeldis í Danmörku, fargað
í varúðarskyni.
Í Austurríki er búið að slátra rúm-
lega 4.000 hænsnum á búi skammt
frá landamærum Þýskalands og
Sviss.
Fuglaflensusmit í Svíþjóð
Í lok nóvember tilkynntu sænsk
yfirvöld að fundist hefði fuglaflens-
usmit í villtum fugli þar í landi. Á
svipuðum tíma var einnig tilkynnt
að uppgötvast hefði inflúensuvírus
á varphænubúi. Bæði tilfellin voru
á Skáni. Sænsk yfirvöld hafa nú
hækkað viðbúnaðarstig í kjölfar
frétta um smit í nágrannalöndum
sínum og bannað lausagöngu ali-
fugla.
Hættusvæði lýst í
Austur-Noregi
Nú hafa svæði í Austur-Noregi verið
skilgreind sem áhættusvæði þar
sem bændum er gert skylt að gera
ráðstafanir sem hindrar beint sam-
band milli hænsna sem geta farið
á útisvæði og villtra fugla. Krafan
á við um allar tegundir hænsna-
búa utandyra, einnig til þeirra sem
hafa einungis nokkur dýr og stunda
svokallaðan hobbíbúskap. Ástæðan
fyrir því að Matvælastofnun í
Noregi setur þessar tafarlausu reglur
nú er að komið hefur upp „höyp-
atogen-fuglainflúensa“ í Åland í
Finnlandi.
Talin berast með fuglum frá Asíu
Sýkingin hefur aðallega fundist
í villtum fuglum en hefur einnig
borist í alifugla og þá einkum
alifugla í opnum búum. Stofn
fuglaflensuveirunnar A(H5N8) er
útbreiddur í Asíu og talið er að veir-
an hafi borist með farfuglum frá
Asíu til Evrópu í haust og er það
í annað skipti sem það gerist svo
vitað sé. Berst veiran aðallega með
lifandi fuglum og fugladriti.
Matvælastofnunin metur á
hverjum tíma líkur á að smit geti
borist í alifugla hér á landi. Matið
er í meginatriðum tvíþætt, annars
vegar hversu miklar líkur eru á að
veirurnar berist til landsins og hins
vegar á að þær berist í alifugla hér
á landi.
Að svo stöddu telur Matvæla-
stofnun litlar líkur á að þetta smit
berist til landsins, þar sem lítið er
um komur fugla á þessum árstíma,
annarra en stöku flækinga.
Ekki hægt að útiloka smit í fólk
Sýkingar í fólki af völdum þessa
fuglaflensustofns, A(H5n1), eru
ekki þekktar en skyldir stofnar,
A(H5N1) og A(H5N6), hafa valdið
alvarlegum veikindum í fólki í
Kína. Því er ekki hægt að útiloka
að smit geti borist úr fuglum í menn
og fólki er því ávallt ráðlagt að gæta
smitvarna. Fuglaflensa er ekki talin
smitast við neyslu kjöts eða eggja.
/ehg/VH
– Sjá nánar bls. 4
Viljum fyrst og
fremst varðveita
dans- og
dægurlög
Opið hús var í fjósinu hjá ábúendum í Fellshlíð í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 25. nóvember þar sem verið var að kynna GEA-mjaltaþjón. Hér eru ábúend-
urnir, Elín Margrét Stefánsdóttir og Ævar Hreinsson, ásamt börnum sínum, Erni, Þór og Evu Ævarsbörnum. Elsta soninn, Jóhann Jóhannesson, sem er
Egg seld undir
fölsku flaggi?
Kastljósþáttur Sjónvarpsins á
mánudagskvöld, um vafasama
framleiðsluhætti á brúneggj-
um um langa hríð, hefur vakið
gríðarlega athygli.
Í þættinum var rekið fram-
leiðsluferli hjá framleiðanda svo-
kallaðra Brúneggja sem seld hafa
verið sem „vistvæn framleiðsla,
frá frjálsum hænum“. Rakin voru
margítrekuð alvarleg afskipti
Matvælastofnunar af framleiðsl-
unni vegna slæms aðbúnaðar. Að
því er fram kom mun þar einkum
hafa verið um að ræða of mikinn
þéttleika fugla í lausagöngu sem
olli fuglunum skaða. Viðgekkst
þetta um margra missera skeið og
var þar vitnað í skýrslur MAST.
Tekið var fram að í dag sé starf-
semin með allt öðrum hætti og búið
sé að gera þar úrbætur. Enn mun þó
vera fylgst með starfseminni sem
stóð til að loka um tíma.
Umrætt fyrirtæki, Brúnegg
ehf., var stofnað árið 2004 af
bræðrunum Kristni Gylfa og
Birni Jónssonum. Framleiðslan
var lengst af að mestu á Teigi í
Mosfellsbæ. Starfsemin var svo
stóraukin 2015 með nýrri aðstöðu
á bænum Stafholtsveggjum II í
Borgarfirði.
Athygli vekur að alvarleg brota-
löm virðist hafa verið í fjölda ára á
samskiptum stofnana og ráðuneyta
sem fjalla eiga um dýravelferð og
matvælaöryggi.
− Sjá nánar á bls 2, 4 og 6
32–33
Jólaskógar opnir
almenningi á aðventunni
Nýtt og glæsilegt fjós tekið í
notkun á Vöglum
10 12