Bændablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 45

Bændablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016 Krist og á innsigli eins af fyrstu konungum veldisins er mynd sem sýnir buffalóa fórnað. Þaðan berast þeir áfram til Miðausturlanda og áfram til Norður-Afríku og Suður- Evrópu. Flest bendir til að vatnabuffalóar hafi borist til Sikileyja með Aröbum og frá Sikileyjum til suðurhéraða Ítalíu um árið 1000 eða um svip- að leyti og byggð er að festa rætur á Íslandi. Ítalir tóku buffalóunum fagnandi og gripirnir döfnuðu vel og voru buffalóar algeng sjón sem vinnudýr á ökrum Suður-Ítalíu allt fram á miðja síðustu öld. Tyrkir notaðu buffalóa sem burðar- og dráttardýr þegar Ottomannveldið gerði innrás í Evrópu á fimmtándu öld. Í dag er enn að finna afkomendur þeirra dýra tvist og bast í Austur-Evrópu, til dæmis Búlgaríu, Transylvaníu og í Rúmeníu þar sem vatnabuffalóar eru kallaðir kýr fátæka mannsins. Nokkrum öldum eftir að Kristófer Kólumbus og James Cook römbuðu, hvor í sínu lagi, til Ameríku og Ástralíu voru vatnabuffalóar fluttir til þeirra heimsálfa. Fyrstu fljótabuffalóarnir voru fluttir til Ástralíu snemma á nítjándu öld. Gripirnir kunni vel við sig í nýju heimkynnunum og dýr sem sluppu út í náttúruna fjölguðu sér hratt. Árið 1895 hófst eldi á fljótavatna- buffalóum við ósa Amasónfljóts til mjólkur- og kjötframleiðslu. Í dag er þá að finna í flestum löndum Suður- Ameríku og í Argentínu og eflaust víðar hægt að sækja um leyfi, gegn gjaldi, til að fara á vatnabuffalóa- veiðar. Það var ekki fyrr en árið 1974 að fyrstu vatnabuffalóarnir voru flutt- ir til Norður-Ameríku. Um var að ræða fjögur dýr frá eyjunni Gvam í Vestur-Kyrrahafi sem ætluð voru til rannsókna. Fjórum árum síðar var innflutningurinn aukinn tals- vert og afkomendur þeirra dýra eru í dag undirstaða framleiðslu vatnabuffalóakjöts og mjólkur í Bandaríkjunum. Vísundar í Norður-Ameríku og Evrópu, Bison bison og B. bonasus, eru fjarskyldir ættingjar vatna- buffalóans og iðulega rangnefndir buffalóar. Ásýnd, hegðun og æxlun Vatnabuffalóar eru stór, belgmik- il jórtur- og klaufdýr með fremur stutta en sterka fætur og langan háls og hala. Snögghærður feldurinn er dökkur, svartur, brúnn eða grár auk þess sem dýr geta verið dökk- skjöldótt eða með hvíttum flekkjum. Alhvítir albínóar eru algengir hjá sumum ræktunarkynjum. Naut fljótabuffalóa eru milli 400 kíló og eitt tonn að þyngd og 1,5 til 1,8 metra á herðakamb eftir kynjum en kýrnar yfirleitt minni og léttari. Mýrarafbrigðið er smávaxnara og 325 til 450 kíló að þyngd. Horn buffalóa eru aftursveigð og horn fljótabuffalóa eru hlutfallslega stærri, 40 til 80 sentímetrar að lengd, miðað við líkamsstærð en horn á mýrarbuffalóum og einnig sveigðari. Líkt og nöfnin benda til er kjör- búsvæði fljótabuffalóa oft í djúpu vatni en mýrarbuffalóar kjósa grynnra vatn. Mýrarbuffalóar eiga til að búa til leðjupolla með hornunum og velta sér í þeim og hylja húðina með drullu í miklum hita. Villtir vatnabuffalóar mynda litlar hjarðir með einu nauti og nokkrum kúm. Búsvæði þeirra er staðbundið og halda dýrin sig yfirleitt innan nokkurra ferkílómetra beitarsvæðis með að minnsta kosti einni vatns- uppsprettu. Ástæða þess að buffalóar halda sig mikið í vatni í náttúrulegum heimkynnum sínum er til að kæla sig í miklum hita. Þar sem loftslag er kaldara er kælingin þeim ekki eins mikilvæg og þrífast skepnurnar ágætlega á graslendi. Vatnabuffalóar hafa mikla aðlögunarhæfni að nýjum búsvæð- um og þrífast við hitastig frá núll og upp í 30° á Celsíus. Fæðuval þeirra er fjölbreytt og geta buffalóar lifað á nánast hvaða gróðri sem er. Við mjólkur- og kjöt- framleiðslu er þeim gefið grænfóð- ur og fóðurbætur líkt og gert er við eldi á nautgripum. Buffalóar þrífast einnig ágætlega á bönunum, kassavarót, ananas, sykurreyr, sítrus- ávöxtum og döðlum og mun allt slíkt gefa bæði mjólkinni og kjötinu sér- stakan keim. Fljótabuffalóar verða kynþroska á öðru til þriðja ári og fyrr en mýrar- kynið. Góður boli getur sætt ríflega hundrað kýr á ári og eru kýrnar frjóar á öllum árstímum. Meðganga kúnna er um það bil ellefu mánuðir og yfir- leit ber kýrin einum kálfi að henni lokinni. Í náttúrunni tilheyra kvígur móð- urhjörðinni alla ævi en nautkálfar eru hraktir á brott af ríkjandi bola um það leyti sem þeir ná kynþroska. Hraustir buffalóar geta lifað í ríf- lega 40 ár og nýtilegir til vinnu í 30. Mjólk, kjöt og dráttardýr Nytjar af vatnabuffalóum eru fjöl- margar, þeir eru dugleg dráttardýr, kýrnar eru mjólkaðar og kjötið haft til matar. Vatnabuffalóakýr eru hinar eiginlegu heilögu kýr á Indlandi. Á Indlandi og Pakistan eru kýr vatnabuffalóa helsta uppspretta mjólkur og mjólkurafurða landanna. Við stærstu borgir eru kýrnar mjólk- aðar í mjaltaróbótum eftir nýjustu tækni en víðast hvar til sveita eru handmjaltir algengastar. Mjaltaskeið buffalóakúa er 170 til 180 dagar og getur kýrin mjólkað fjóra til átján lítra á sólarhring, eftir kynjum, í allt að tuttugu ár. Mjólk buffalóa hentar vel til ostagerðar. Mozzarella-ostur úr buffalóamjólk er upprunninn á Ítalíu, la mozzarella di bufala, og þykir með afbrigðum bragðgóður. Í dag er ostur úr buffalóamjólk fram- leiddur víða um heim. Mozzarella-ostur úr buff- alóamjólk hefur verið á boðstólum hér á landi en í takmörkuðu magni. Fyrir nokkrum árum var sótt um leyfi til að flytja inn buffalóaost á viðbótartollkvótum en því var hafnað. Kjöt vatnabuffalóa er seigara en nautakjöt og því oft hægelda til að mýkja það. Indverjar eru stærstu útflytjendur vatnabuffalóakjöts í heiminum. Skinn buffalóa er þykkt og mikið notað í leðurskó og úr hornum og beinum eru meðal annars unnir skartgripir og hljóðfæri. Mykjan er notuð sem áburður eða þurrku og brennd sem eldiviður. Vatnabuffalóar eru sagðar vera einstaklega meðfærilegar skepnur og hreint barnameðfæri. Konur, iðulega ungar stúlkur, sjá yfirleitt um mjaltirnar en karlmenn og helst ungir drengir um dýrin þegar þeim er beitt fyrir plóg eða sem burðar- eða dráttardýr fyrir vagni. Klaufir vatnabuffalóa eru breiðar og sveigjanlegar og gripirnir fót- vissir fyrir plógi í blautum og hálum jarðvegi hrísgrjónaakranna. Dýrin flytja uppskeruna í hús og þeim er beitt þegar grjónin eru möluð. Vegna þessa eru vatnabuffalóar stundum kallaðir lifandi dráttarvélar austursins. Buffalóaklónar á Filippseyjum Fyrsti klónaði vatnabuffalóa- kálfurinn leit dagsins ljós á rann- sóknastofu á Filippseyjum 15. sept- ember árið 2007. Sampura eins og kálfurinn var kallaður drapst viku eftir fæðingu vegna erfðagalla. Filippseyingarnir létu það ekki slá sig út af laginu og nokkrum mánuð- um síðar kom annar klónaður kálfur í heiminn sem fékk nafnið Garima. Hinn 1. janúar 2008 var sagt frá því á Filippseyjum að vísindamönn- um þar hefði með hjálp erfðatækni tekist að auka nyt vatnabuffalóakúa úr fjórum lítrum í átján á dag. Vatnabuffalóinn er eitt af þjóðar- táknum Filippseyja. Vatnabuffalóar og menning Vatnabuffalóar tengjast víða í Asíu helgihaldi og þeim fórnað í tengsl- um við tilbeiðslu og haft er fyrir víst að Lae Tse, höfundur Tao-te-king, sem á íslensku kallast Bókin um veginn, hafi yfirgefið Kína ríðandi á vatnabuffalóa. Samkvæmt hindúasið ríður dauðaguðinn Yama vatna buffalóa- bola þegar hann heimsækir við- skiptavini sína og hindúagyðjurnar Varahi og Vihot Mata hafa vatna- buffalóa sem reiðskjóta. Í goðsögn- um hindúa fyrirfinnst vera sem líklega er fyrirmynd Mínótárus sem var maður með nautshaus í grískri goðafræði. Hindúa-útgáfan er undirheimaguð sem kallast Mahishasura og er hálfur maður og hálfur vatnabuffalói. Í Víetnam, á Filippseyjum og Taílandi eru á hverju ári haldnar hátíðir þar sem vatnabuffalóanauta- at kemur við sögu. Í ötunum er annað hvort att saman tveimur naut- um upp á líf og dauða eða manni og nauti. Í lok atanna er nautunum fórnað. Eitt magnaðasta atriðið í kvik- myndinni Apocalypse Now sýnir þegar vatnabuffalóa er fórnað á sama tíma og Martin Sheen drepur Marlon Brando við undirleik The Doors. Vatnabuffalóakappreiðar eru vinsælt gaman á Indlandi og víðar í Suðaustur-Asíu. Vatnabuffalóar á Íslandi Ekki er vitað að enn sem komið er hafi vatnabuffalói stigið fæti á Íslandi en aldrei að vita hvað gerist í framtíðinni. Hugsanlega getur inn- flutningur á vatnabuffalóum á fæti orðið íslenskum bændum lyftistöng og þeir skellt sér út í framleiðslu á buffalóaostum og kjöti. Heilög kýr. Eitt magnaðasta atriðið í kvikmyndinni Apocalypse Now er þegar vatnabuffalóanum er fórnað. Vatnabuffalóakappreiðar eru vinsælt gaman á Indlandi og víðar í Suðaustur-Asíu. Vatnabuffalóar eru stundum kallaðir dráttarvélar austursins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.