Bændablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 54

Bændablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016 Ís-Band er nýtt bílaumboð stað- sett í Mosfellsbæ og selur m.a Jeep, Fiat, Dodge og fleiri bíla- tegundir. Fyrir nokkru prófaði ég jepplinginn Jeep. Renegade-jepplingurinn er að mínu mati sá jepplingur sem kemst næst því að kallast jeppi, en hann er með hátt og lágt drif, yfirbyggingin er soðin á grindina undir bílnum. Örlítil breyting breytir bílnum úr jeppling í jeppa Jeep Renegade er fáanlegur í nokkrum útfærslum, en bíllinn sem ég prófaði var með 2,0 dísilvél sem á að skila 170 hestöflum, sjálfskipt- ur með 9 þrepa sjálfskiptingu og á tveim númerum stærri hjólbörðum. Með því að stækka dekkin um tvær stærðir fer jepplingurinn úr „slyddu- jepplinga“flokki í jeppa-flokk. Við svona mikla stækkun á hjól- börðum eru bæði kostir og ókostir, en helsti kosturinn er betri fjöðrun út úr hjólbörðum, betra grip (hjólbarðar breikka um tvo sentímetra og hækka bílinn um a.m.k. þrjá sentímetra undir lægsta punkt), hærri bíll þegar ekið er í snjó og á vegslóðum. Ókosturinn er að viðbragð er aðeins minna og eldsneytiseyðsla hækkar, en kemur ekki að sök þar sem kostir eru meiri en ókostir. Þægilegur í akstri og fer vel með ökumann í langkeyrslu og eyðsla lítil miðað við kraft Ég ók bílnum án þess að stoppa í Hrútafjörð (rétt tæpa 200 km) og verð ég að segja að þessi bíll er sá sem mér hefur liðið best í af þeim mörgu bílum sem ég hef prófað í langkeyrslu. Uppgefin meðaleyðsla sam- kvæmt bæklingi er 5,9 lítrar á hundraðið, en á stærri dekkjum og snjór á veginum var ég að eyða í þessum fyrri helmingi 7,4 lítrum á hundraðið sem er að mínu mati mjög gott miðað við aðstæður. Eftir ýmsar prófanir og torfæruprófanir í djúpum snjó endaði ég eftir 400 km akstur í meðaleyðslu upp á 7,8 lítra, en tel að þessari tölu megi vel koma niður um einn lítra þegar maður er búinn að læra á bílinn. Fyrsta sinn sem ég sé 220 volta rafmagnstengil í bíl Eins og flestir bílar er Renegade hlaðinn aukabúnaði og öryggisbún- aði og er m.a. með ABS hemla, ESC stöðuleikastýringu, ERM veltivörn, og fjarlægðarskynjara allan hringinn. Þeir skynjuðu vel snjóruðninga við hliðina á bíln- um, en í snjókófinu aftan á bíln- um urðu þeir óvirkir þar til ég fór út og strauk af þeim. Í bílnum er einnig bakkmyndavél og GPS leið- sögukerfi. Framsætin eru með stillanlegan mjóbaksstuðning og hitarinn í sætinu hitar upp á mitt bak, hiti í stýri, tveir 12v tenglar, USB tengi, og útvarpið skilar hljóðinu út í sex hátalara og að hlusta á góða tónlist er hreinn unaður í þessum bíl. Aukabúnaðurinn sem ég var hrifnastur af er að í bílnum er 220 volta tengill sem gefur rafmagn fyrir rafmagnstæki sem nota minna raf- magn en 1500 wött. Verðið á Jeep Renegade er frá 4.790.000 Það er nánast ekkert hægt að lasta í þessum bíl, en af nógu er að taka í hóli. Hátt og lágt drif með 5 mis- munandi stillingar fyrir fjórhjóla- drifið sem miðast af við hvaða undirlag er í akstri. Full stærð á varadekki, góð miðstöð sem er fljót að hitna og aksturstölva með mikið af upp- lýsingum. Jeep Renegade er fáanlegur í fjórum útfærslum, með tveim mis- munandi 2000 dísilvélum, annars vegar 140 hestafla eða 170 hestafla vél, beinskiptan sex gíra kassa eða 9 þrepa sjálfskiptingu. Allir Jeep Renegade eru fimm manna og fimm dyra. Mikið er lagt upp úr frágangi og útliti samanber að beggja vegna við baksýnisspeg- ilinn má sjá skraut sem er gamla grillið af gamla Jeep. Ef vel er af gáð má sjá þetta merki víðar s.s. í afturljósi. Svo má finna grópað í bílinn ártal af fyrstu árgerð Jeep, landakort af þekktum fjallvegi í USA svo eitt- hvað sé nefnt. Alla vega var ég yfir mig hrifinn af bílnum eftir þennan prufuakstur og væri alveg til í að skipta út mínum „jepplingi“ fyrir Jeep Renegade. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast um bílinn á vef- síðunni www.isband.is. Vélabásinn liklegur@internet.is Hjörtur L. Jónsson Hæð 1.670 mm Breidd 1.800 mm Lengd 4.260 mm Helstu mál og upplýsingar Jeep Renegade Trailhawk. Myndir / HLJ Þrátt fyrir að gluggapóstar séu stórir skyggja þeir sáralítið á útsýni fram á við. Varadekk í fullri stærð. Valmöguleikarnir fyrir mismunandi undirlag og hátt og lágt drif er stjórnað með einum takka. Það eru fáir bílar sem státa af 220 v rafmagnstengli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.