Bændablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016 Í síðasta Bændablaði kom fram í viðtali við Lenu J. Reiher, ráðunaut í lífrænni ræktun hjá Ráðgjafarmiðstöð land- búnaðarins, að hún hefði setið dagnámskeið hjá VOR og Vottunarstofunni Túni um aðlögun að lífrænum búskap árið 2014. Ólafur Dýrmundsson, frá- farandi ráðunautur, bendir á að Bændasamtök Íslands hafi einnig átt þátt í þessu námskeiðahaldi. Kastljós afhjúpar slæman aðbúnað á eggjabúum Brúneggja – Sambærilegar aðstæður ekki sést á öðrum búum, segir dýralæknir alifuglasjúkdóma hjá Matvælastofnun Leiðrétting: Námskeiðahald í lífrænum búskap Fréttir SS lækkar verð á óerfðabreyttu fóðri, kúafóðri um 2,5–3% kálfa og nautaeldisfóðri um 3%. Lækkunin tekur gildi frá og með 1. desember 2016. SS lækkaði síðast fóðurverð 1. október síðastliðinn og er þetta 4. verðlækkunin á einu ári. Lækkunin nemur allt að 15,5% á óerfðabreyttu kúafóðri á þessu tímabili. Lækkunin, að þessu sinni, stafar af styrkingu krónunnar. Verðlækkun á fóðri frá SS Bændasamtökin fordæma illa meðferð á dýrum Bændasamtök Íslands sendu á þriðjudag frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Kastljóss mánudagskvöldið 28. nóvember um málefni eggjaframleiðandans Brúneggja ehf. „Í yfirlýsingunni, sem undirrituð er af Sindra Sigurgeirssyni, formanni Bænda samtakanna, segir: Í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi [mánudag] var fjall- að um málefni eggjaframleið- andans Brúneggja ehf. Þar kom meðal annars fram að fyrirtæk- ið hefur ekki sinnt aðfinnslum Matvælastofnunar með fullnægj- andi hætti vegna athugasemda um aðbúnað dýra. Skort hefur á viðeigandi ráðstafanir til að mæta kröfum sem gerðar eru til eggjaframleiðenda. Auk þess hafa Brúnegg ehf. notað merki vistvæns landbúnaðar þrátt fyrir að reglu- gerð um merkið hafi verið numin úr gildi fyrir rúmu ári síðan. Fordæma illa meðferð á dýrum Bændasamtök Íslands fordæma illa meðferð á dýrum enda hafa samtök- in ávallt lagt áherslu á að íslenskur landbúnaður sé til fyrirmyndar hvað varðar dýravelferð og góðan aðbún- að. Það veldur vonbrigðum að heyra af slæmum aðbúnaði varphænsna hjá eggjaframleiðandanum Brúneggjum ehf. á síðustu árum. Undir yfirskini vistvænnar framleiðslu, þar sem fólki er talin trú um að velferð varphænsnanna sé tryggð, virðast neytendur hafa verið blekktir um árabil. Þetta er óafsakanlegt og er harmað. Ríkari aðbúnaðarkröfur í nýjum lögum sem tóku gildi 2014 Ný lög um velferð dýra tóku gildi í ársbyrjun 2014. Í þeim eru mjög framsæknar reglur um velferð dýra og fylgja innleiðingu þeirra mikl- ar áskoranir fyrir landbúnaðinn. Lögin og reglugerðir sem á þeim byggja gera ríkari kröfur til aðbún- aðar búfjár en áður hefur tíðkast. Markmiðið er að tryggja velferð og heilbrigði dýra með góðri meðferð, umsjá og aðbúnaði. Bændasamtökin hafa áður lýst yfir mikilvægi þess að eftirlit sé gott með þeim sem stunda landbún- að og matvælaframleiðslu og farið sé eftir lögum og reglum í hvívetna. Matvælastofnun hefur á síðustu árum þróað eftirlitskerfi og hefur fleiri úrræði en áður til þess að bregðast við slæmri meðhöndlun dýra. Hlutverk stofnunarinnar er að gæta þess að mál líkt og fjallað var um í Kastljósinu komi ekki upp. Það vekur spurningar af hverju mál geta velkst um í kerfinu jafn- vel um árabil og lítið sé aðhafst. Mikilvægt er að tryggja að mál sem þetta endurtaki sig ekki. Hugtakið „vistvæn framleiðsla“ ekki lengur stutt af reglugerð Reglugerð um vistvæna framleiðslu var felld brott 1. nóvember 2015. Var það gert að tillögu starfs- hóps á vegum ráðuneytisins, sem Bændasamtökin áttu m.a. fulltrúa í. Þetta starf og niðurstaða þess var kynnt aðildarfélögum BÍ á sínum tíma. Fordæmalaust tilvik Þær myndir sem birtust lands- mönnum í Kastljósþættinum í gærkvöldi [mánudag] voru slá- andi og bera búskapnum á við- komandi eggjabúum slæmt vitni. Bændasamtökin telja að málið sé fordæmalaust og hér sé um einstakt tilvik að ræða eins og fram kom í við- tali við forstjóra Matvælastofnunar í Kastljósþættinum.“ Í Kastljósi Ríkisútvarpsins síð- astliðið mánudagskvöld var fjallað um slæman aðbúnað og óviðunandi ástand varphæna á eggjabúum Brúneggja að Teigi í Mosfellsbæ og á Stafholtsveggjum 2 í Borgarfirði. Grundvöllur umfjöllunarinnar er hátt í þúsund blaðsíður úr eftirlits- skýrslum Matvælastofnunar á undan- förnum níu árum, sem Kastljós fékk aðgang að í krafti upplýsingalaga. Í Kastljósinu kom fram að Matvælastofnum hefði á þessum árum ítrekað gert athugasemdir um aðbúnað á búunum, að hann stæðist ekki lágmarkskröfur reglugerða. Á árunum frá 2007 til 2014 voru í gildi aðrar aðbúnaðarreglur og önnur lög giltu um velferð dýra í landinu og í raun voru heimildir Matvælastofnunar á þessum árum afar takmarkaðar til að knýja fram úrbætur á búum. Það var ekki fyrr en með nýjum lögum frá janúar 2014 og reglugerð frá febrúar 2015 að stofnunin fékk raunverulegar heimildir til að þvinga fram aðgerðir til úrbóta. Til stóð að vörslusvipta búið í nóvember 2015, en vegna þess að á síðustu stundu hafði verið sýnt fram á úrbætur var fyrirtækið þess í stað beitt dagsektum, sem hafa alls numið um 2,6 milljónum króna. Matvælastofnun hefði átt að upplýsa um stöðu mála Í úttektum Matvælastofnunar varð einnig ljóst að merkingarnar sem skartað var á umbúðum Brúneggja, um að varan væri vistvænt vottuð, gæfi í raun ranga mynd af raunverulegum aðbúnaði á búunum. Í Kastljósinu kom fram að þar sem Matvælastofnun var ekki eftirlitsaðili með vistvænni vott- un, hafi stofnuninni verið viss vandi á höndum að búa yfir þessum upplýs- ingum. Dýralæknir alifuglasjúkdóma hjá Matvælastofnun hafi þó sent ráðu- neytinu upplýsingar um stöðu mála, en málið dagaði þar uppi. Jón Gíslason, forstjóri Matvælastofnunar, sagði þó í þættin- um að rík ástæða hefði verið til að upplýsa neytendur um athugasemdir stofnunarinnar. Eftir að þátturinn var sýndur bætti hann um betur í viðtali við Ríkisútvarpið og sagði að hann teldi að stofnunin hefði hreinlega átt að ganga fram og veita meiri upplýs- ingar, jafnvel þótt þarna væri um að ræða löggjöf sem væri ekki á hennar verksviði. Reglugerð um vistvæna landbúnaðarframleiðslu Í reglugerðinni um vistvæna landbún- aðarframleiðslu frá 1998 kemur fram í 4. grein hennar að „Eftirlitsaðilar með gæðastjórnun samkvæmt reglu- gerð þessari eru búnaðarráðunautar og dýralæknar, sem sótt hafa sérstök námskeið eins og krafist er hverju sinni og hlotið hafa viðurkenningu landbúnaðarráðuneytisins til að starfa við eftirlitið. Hver framleiðandi og afurðastöð sem óskar eftir viðurkenn- ingu skal sækja um hana til viðkom- andi búnaðarsambands sem felur eftirlitsaðila að framkvæma úttekt á framleiðsluaðstöðu umsækjanda. Eftirlitsaðilar skulu eigi sjaldnar en einu sinni á ári gera úttekt hjá fram- leiðendum og afurðastöðvum sem hafa hlotið viðurkenningu á aðstöðu þar með talið landgæðum og búnaði til framleiðslu og vinnslu.“ Svo virðist sem lítið eftirlit hafi verið með vistvænni landbúnað- arframleiðslu á gildistíma reglu- gerðarinnar, en hún var felld úr gildi 1. nóvember 2015. Merki vist- vænnar vottunar hefur þó víða verið notað, ekki síst í garðyrkju. Sveinn Sigurmundsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands, segir að það sé vissulega tiltekið í reglu- gerð að búnaðarsamböndin eigi að hafa aðkomu að veitingu leyfa til að nota merkið um vistvæna vottun – og hafa eftirlit með því að búskapur sé í samræmi við vottunina undir eft- irliti ráðuneytisins. Hann bendir þó á að námskeið hafi ekki verið haldin fyrir þá sem áttu að sinna eftirlitinu. „Leyfin fyrir okkar fólk runnu út árið 1999 og eftir það hafa þau ekki haft leyfi til að votta vistvæna framleiðslu. Engin námskeið voru haldin og auk þess bárust ekki óskir um slíka vottun eftir þennan tíma. Hins vegar hefðum við alveg mátt vera virkari og ganga eftir endurnýjuðu starfsleyfi hjá ráðu- neytinu,“ segir Sveinn. Búnaðarþing Kjalarnesþings veitti Brúneggjum vottun Það var Búnaðarsamband Kjalarnesþings sem veitti Brún eggjum vistvæna vottun fyrir níu árum, þegar fyrirtækið hóf starfsemi og átti sam- kvæmt reglugerð að hafa eftirlit með framleiðslunni. Það var hins vegar aldrei gert og segir Guðmundur Davíðsson, formaður sambandsins, að dagleg starfsemi Búnaðarsambands Kjalarnesþings hafi í raun lagst af, en notið þjónustu hjá Búnaðarsambandi Vesturlands í staðinn. Notkun á merkinu áfram heimil Ástæður þess að reglugerðin um vist- væna landbúnaðarframleiðslu var felld brott, voru meðal annars þær að ekki hafði verið reglubundið eft- irliti með þeim aðilum sem höfðu fengið vist- væna vottun. Í umfjöllun Bændablaðsins í sept- ember 2015, um brottfall reglugerðarinnar, var haft eftir Ólafi Friðrikssyni, skrif- stofustjóra í sjávarútvegs- og land- búnaðarráðuneytinu, að ráðuneytið myndi ekki banna áframhaldandi notkun á merkinu „vistvæn landbún- aðarafurð“. Það eigi við um alla þá sem muni nota merkið og gildi þá einu hvort þeir hafi einhvern tím- ann uppfyllt skilyrði vottunarinnar eða ekki. Dæmin einstök frá Brúneggjum Í kjölfar umfjöllunarinnar í Kastljósinu sendi Félag eggja- framleiðenda frá sér yfirlýsingu. Þar kemur fram að á undanförn- um árum hafi átt sér stað miklar umbætur í íslenskum eggjabúum sem hafa miðað að því að bæta aðbúnað varphæna, meðal annars með nýjum húsum sem uppfylla ýtrustu kröfur. „Félagið mun leggja sig fram, í samstarfi við opinberar eftirlitsstofnanir og neytendur, við að uppræta starfshætti í líkingu við þá sem fjallað var um í Kastljósi því þeir eru með öllu óboðlegir,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni. Samkvæmt upplýsingum frá Brigitte Brugger, dýralækni ali- fuglasjúkdóma hjá Matvælastofnun, eru dæmin frá Brúneggjum einstök hvað varðar slæma meðferð á varp- hænum – og sambærilegar aðstæð- ur við meðferð á fuglum hafa ekki sést annars staðar. Hún segir að Matvælastofnun hafi farið í úttekt í 11 af 13 eggjabúum eftir að lögin tóku gildi 1. janúar 2014. „Það hafa komið fram frávik vegna dýravel- ferðar á öðrum eggjabúum þar sem fimm hænur hafa fundist í búrum þar sem mega vera að hámarki fjór- ar. Alla jafna eru þó fjórar hænur í mesta lagi í búrum. Í heildinni má segja að frávik vegna of mikils þéttleika hafi verið minni háttar og ekk- ert í líkingu við þann þéttleika sem hefur sést í varphúsum Brúneggja. Þess má þó geta að ef fimm hænur eru í búri sem er fyrir fjórar að hámarki, þá eru í því búri 25 prósent fleiri fuglar en leyfilegt er. Misjafnlega hefur geng- ið að fá fram úrbætur hjá fyrirtækj- um hvað þetta varðar. Önnur frávik sem hafa komið fram hafa verið um daglegar skrán- ingar og smitvarnir á búum – og hafa ekki haft áhrif á velferð hæna. Í lausagönguhúsum hjá öðrum en Brúneggjum hafa aðallega komið upp einhver tilvik um vandamál með loftræstingu og ammoníaksmeng- un,“ segir Brigitte. /smh Frá búi Brúneggja á Stafholtsveggjum 2. Mynd / smh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.