Bændablaðið - 01.12.2016, Side 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Í síðasta Bændablaði kom fram
í viðtali við Lenu J. Reiher,
ráðunaut í lífrænni ræktun
hjá Ráðgjafarmiðstöð land-
búnaðarins, að hún hefði
setið dagnámskeið hjá VOR
og Vottunarstofunni Túni um
aðlögun að lífrænum búskap
árið 2014.
Ólafur Dýrmundsson, frá-
farandi ráðunautur, bendir á að
Bændasamtök Íslands hafi einnig
átt þátt í þessu námskeiðahaldi.
Kastljós afhjúpar slæman aðbúnað
á eggjabúum Brúneggja
– Sambærilegar aðstæður ekki sést á öðrum búum, segir dýralæknir alifuglasjúkdóma hjá Matvælastofnun
Leiðrétting:
Námskeiðahald í
lífrænum búskap
Fréttir
SS lækkar verð á óerfðabreyttu
fóðri, kúafóðri um 2,5–3% kálfa
og nautaeldisfóðri um 3%.
Lækkunin tekur gildi frá og með
1. desember 2016. SS lækkaði síðast
fóðurverð 1. október síðastliðinn og
er þetta 4. verðlækkunin á einu ári.
Lækkunin nemur allt að 15,5%
á óerfðabreyttu kúafóðri á þessu
tímabili.
Lækkunin, að þessu sinni, stafar
af styrkingu krónunnar.
Verðlækkun á
fóðri frá SS
Bændasamtökin fordæma illa meðferð á dýrum
Bændasamtök Íslands sendu á
þriðjudag frá sér yfirlýsingu
vegna umfjöllunar Kastljóss
mánudagskvöldið 28. nóvember
um málefni eggjaframleiðandans
Brúneggja ehf.
„Í yfirlýsingunni, sem undirrituð
er af Sindra Sigurgeirssyni, formanni
Bænda samtakanna, segir:
Í Kastljósi Ríkissjónvarpsins
í gærkvöldi [mánudag] var fjall-
að um málefni eggjaframleið-
andans Brúneggja ehf. Þar kom
meðal annars fram að fyrirtæk-
ið hefur ekki sinnt aðfinnslum
Matvælastofnunar með fullnægj-
andi hætti vegna athugasemda
um aðbúnað dýra. Skort hefur
á viðeigandi ráðstafanir til að
mæta kröfum sem gerðar eru til
eggjaframleiðenda. Auk þess hafa
Brúnegg ehf. notað merki vistvæns
landbúnaðar þrátt fyrir að reglu-
gerð um merkið hafi verið numin
úr gildi fyrir rúmu ári síðan.
Fordæma illa meðferð á dýrum
Bændasamtök Íslands fordæma illa
meðferð á dýrum enda hafa samtök-
in ávallt lagt áherslu á að íslenskur
landbúnaður sé til fyrirmyndar hvað
varðar dýravelferð og góðan aðbún-
að. Það veldur vonbrigðum að heyra
af slæmum aðbúnaði varphænsna hjá
eggjaframleiðandanum Brúneggjum
ehf. á síðustu árum. Undir yfirskini
vistvænnar framleiðslu, þar sem
fólki er talin trú um að velferð
varphænsnanna sé tryggð, virðast
neytendur hafa verið blekktir um
árabil. Þetta er óafsakanlegt og er
harmað.
Ríkari aðbúnaðarkröfur í nýjum
lögum sem tóku gildi 2014
Ný lög um velferð dýra tóku gildi
í ársbyrjun 2014. Í þeim eru mjög
framsæknar reglur um velferð dýra
og fylgja innleiðingu þeirra mikl-
ar áskoranir fyrir landbúnaðinn.
Lögin og reglugerðir sem á þeim
byggja gera ríkari kröfur til aðbún-
aðar búfjár en áður hefur tíðkast.
Markmiðið er að tryggja velferð og
heilbrigði dýra með góðri meðferð,
umsjá og aðbúnaði.
Bændasamtökin hafa áður lýst
yfir mikilvægi þess að eftirlit sé
gott með þeim sem stunda landbún-
að og matvælaframleiðslu og farið
sé eftir lögum og reglum í hvívetna.
Matvælastofnun hefur á síðustu
árum þróað eftirlitskerfi og hefur
fleiri úrræði en áður til þess að
bregðast við slæmri meðhöndlun
dýra. Hlutverk stofnunarinnar er að
gæta þess að mál líkt og fjallað var
um í Kastljósinu komi ekki upp.
Það vekur spurningar af hverju
mál geta velkst um í kerfinu jafn-
vel um árabil og lítið sé aðhafst.
Mikilvægt er að tryggja að mál sem
þetta endurtaki sig ekki.
Hugtakið „vistvæn framleiðsla“
ekki lengur stutt af reglugerð
Reglugerð um vistvæna framleiðslu
var felld brott 1. nóvember 2015.
Var það gert að tillögu starfs-
hóps á vegum ráðuneytisins, sem
Bændasamtökin áttu m.a. fulltrúa
í. Þetta starf og niðurstaða þess var
kynnt aðildarfélögum BÍ á sínum
tíma.
Fordæmalaust tilvik
Þær myndir sem birtust lands-
mönnum í Kastljósþættinum í
gærkvöldi [mánudag] voru slá-
andi og bera búskapnum á við-
komandi eggjabúum slæmt vitni.
Bændasamtökin telja að málið sé
fordæmalaust og hér sé um einstakt
tilvik að ræða eins og fram kom í við-
tali við forstjóra Matvælastofnunar
í Kastljósþættinum.“
Í Kastljósi Ríkisútvarpsins síð-
astliðið mánudagskvöld var
fjallað um slæman aðbúnað og
óviðunandi ástand varphæna á
eggjabúum Brúneggja að Teigi í
Mosfellsbæ og á Stafholtsveggjum
2 í Borgarfirði.
Grundvöllur umfjöllunarinnar er
hátt í þúsund blaðsíður úr eftirlits-
skýrslum Matvælastofnunar á undan-
förnum níu árum, sem Kastljós fékk
aðgang að í krafti upplýsingalaga.
Í Kastljósinu kom fram að
Matvælastofnum hefði á þessum
árum ítrekað gert athugasemdir um
aðbúnað á búunum, að hann stæðist
ekki lágmarkskröfur reglugerða. Á
árunum frá 2007 til 2014 voru í gildi
aðrar aðbúnaðarreglur og önnur lög
giltu um velferð dýra í landinu og í
raun voru heimildir Matvælastofnunar
á þessum árum afar takmarkaðar til
að knýja fram úrbætur á búum. Það
var ekki fyrr en með nýjum lögum frá
janúar 2014 og reglugerð frá febrúar
2015 að stofnunin fékk raunverulegar
heimildir til að þvinga fram aðgerðir
til úrbóta. Til stóð að vörslusvipta búið
í nóvember 2015, en vegna þess að á
síðustu stundu hafði verið sýnt fram á
úrbætur var fyrirtækið þess í stað beitt
dagsektum, sem hafa alls numið um
2,6 milljónum króna.
Matvælastofnun hefði átt
að upplýsa um stöðu mála
Í úttektum Matvælastofnunar varð
einnig ljóst að merkingarnar sem
skartað var á umbúðum Brúneggja,
um að varan væri vistvænt vottuð, gæfi
í raun ranga mynd af raunverulegum
aðbúnaði á búunum. Í Kastljósinu kom
fram að þar sem Matvælastofnun var
ekki eftirlitsaðili með vistvænni vott-
un, hafi stofnuninni verið viss vandi
á höndum að búa yfir þessum upplýs-
ingum. Dýralæknir alifuglasjúkdóma
hjá Matvælastofnun hafi þó sent ráðu-
neytinu upplýsingar um stöðu mála, en
málið dagaði þar uppi.
Jón Gíslason, forstjóri
Matvælastofnunar, sagði þó í þættin-
um að rík ástæða hefði verið til að
upplýsa neytendur um athugasemdir
stofnunarinnar. Eftir að þátturinn var
sýndur bætti hann um betur í viðtali
við Ríkisútvarpið og sagði að hann
teldi að stofnunin hefði hreinlega átt
að ganga fram og veita meiri upplýs-
ingar, jafnvel þótt þarna væri um að
ræða löggjöf sem væri ekki á hennar
verksviði.
Reglugerð um vistvæna
landbúnaðarframleiðslu
Í reglugerðinni um vistvæna landbún-
aðarframleiðslu frá 1998 kemur fram
í 4. grein hennar að „Eftirlitsaðilar
með gæðastjórnun samkvæmt reglu-
gerð þessari eru búnaðarráðunautar
og dýralæknar, sem sótt hafa sérstök
námskeið eins og krafist er hverju
sinni og hlotið hafa viðurkenningu
landbúnaðarráðuneytisins til að starfa
við eftirlitið. Hver framleiðandi og
afurðastöð sem óskar eftir viðurkenn-
ingu skal sækja um hana til viðkom-
andi búnaðarsambands sem felur
eftirlitsaðila að framkvæma úttekt
á framleiðsluaðstöðu umsækjanda.
Eftirlitsaðilar skulu eigi sjaldnar en
einu sinni á ári gera úttekt hjá fram-
leiðendum og afurðastöðvum sem
hafa hlotið viðurkenningu á aðstöðu
þar með talið landgæðum og búnaði
til framleiðslu og vinnslu.“
Svo virðist sem lítið eftirlit hafi
verið með vistvænni landbúnað-
arframleiðslu á gildistíma reglu-
gerðarinnar, en hún var felld úr
gildi 1. nóvember 2015. Merki vist-
vænnar vottunar hefur þó víða verið
notað, ekki síst í garðyrkju. Sveinn
Sigurmundsson, framkvæmdastjóri
Búnaðarsambands Suðurlands, segir
að það sé vissulega tiltekið í reglu-
gerð að búnaðarsamböndin eigi að
hafa aðkomu að veitingu leyfa til að
nota merkið um vistvæna vottun – og
hafa eftirlit með því að búskapur sé
í samræmi við vottunina undir eft-
irliti ráðuneytisins. Hann bendir þó
á að námskeið hafi ekki verið haldin
fyrir þá sem áttu að sinna eftirlitinu.
„Leyfin fyrir okkar fólk runnu út árið
1999 og eftir það hafa þau ekki haft
leyfi til að votta vistvæna framleiðslu.
Engin námskeið voru haldin og auk
þess bárust ekki óskir um slíka vottun
eftir þennan tíma. Hins vegar hefðum
við alveg mátt vera virkari og ganga
eftir endurnýjuðu starfsleyfi hjá ráðu-
neytinu,“ segir Sveinn.
Búnaðarþing Kjalarnesþings
veitti Brúneggjum vottun
Það var Búnaðarsamband
Kjalarnesþings sem veitti Brún eggjum
vistvæna vottun fyrir níu árum, þegar
fyrirtækið hóf starfsemi og átti sam-
kvæmt reglugerð að hafa eftirlit með
framleiðslunni. Það var hins vegar
aldrei gert og segir Guðmundur
Davíðsson, formaður sambandsins, að
dagleg starfsemi Búnaðarsambands
Kjalarnesþings hafi í raun lagst af, en
notið þjónustu hjá Búnaðarsambandi
Vesturlands í staðinn.
Notkun á merkinu áfram heimil
Ástæður þess að reglugerðin um vist-
væna landbúnaðarframleiðslu
var felld brott, voru meðal
annars þær að ekki hafði
verið reglubundið eft-
irliti með þeim aðilum
sem höfðu fengið vist-
væna vottun. Í umfjöllun
Bændablaðsins í sept-
ember 2015, um brottfall
reglugerðarinnar, var haft
eftir Ólafi Friðrikssyni, skrif-
stofustjóra í sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytinu, að ráðuneytið
myndi ekki banna áframhaldandi
notkun á merkinu „vistvæn landbún-
aðarafurð“. Það eigi við um alla þá
sem muni nota merkið og gildi þá
einu hvort þeir hafi einhvern tím-
ann uppfyllt skilyrði vottunarinnar
eða ekki.
Dæmin einstök frá Brúneggjum
Í kjölfar umfjöllunarinnar í
Kastljósinu sendi Félag eggja-
framleiðenda frá sér yfirlýsingu.
Þar kemur fram að á undanförn-
um árum hafi átt sér stað miklar
umbætur í íslenskum eggjabúum
sem hafa miðað að því að bæta
aðbúnað varphæna, meðal annars
með nýjum húsum sem uppfylla
ýtrustu kröfur. „Félagið mun leggja
sig fram, í samstarfi við opinberar
eftirlitsstofnanir og neytendur, við
að uppræta starfshætti í líkingu við
þá sem fjallað var um í Kastljósi því
þeir eru með öllu óboðlegir,“ segir
meðal annars í yfirlýsingunni.
Samkvæmt upplýsingum frá
Brigitte Brugger, dýralækni ali-
fuglasjúkdóma hjá Matvælastofnun,
eru dæmin frá Brúneggjum einstök
hvað varðar slæma meðferð á varp-
hænum – og sambærilegar aðstæð-
ur við meðferð á fuglum hafa ekki
sést annars staðar. Hún segir að
Matvælastofnun hafi farið í úttekt
í 11 af 13 eggjabúum eftir að lögin
tóku gildi 1. janúar 2014. „Það hafa
komið fram frávik vegna dýravel-
ferðar á öðrum eggjabúum þar sem
fimm hænur hafa fundist í búrum
þar sem mega vera að hámarki fjór-
ar. Alla jafna eru þó fjórar
hænur í mesta lagi í búrum.
Í heildinni má segja að
frávik vegna of mikils
þéttleika hafi verið
minni háttar og ekk-
ert í líkingu við þann
þéttleika sem hefur sést
í varphúsum Brúneggja.
Þess má þó geta að ef
fimm hænur eru í búri sem
er fyrir fjórar að hámarki, þá eru
í því búri 25 prósent fleiri fuglar en
leyfilegt er. Misjafnlega hefur geng-
ið að fá fram úrbætur hjá fyrirtækj-
um hvað þetta varðar.
Önnur frávik sem hafa komið
fram hafa verið um daglegar skrán-
ingar og smitvarnir á búum – og hafa
ekki haft áhrif á velferð hæna.
Í lausagönguhúsum hjá öðrum en
Brúneggjum hafa aðallega komið
upp einhver tilvik um vandamál með
loftræstingu og ammoníaksmeng-
un,“ segir Brigitte. /smh
Frá búi Brúneggja á Stafholtsveggjum 2. Mynd / smh