Bændablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 46

Bændablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016 Í Norður-Noregi, á landsvæði norðurljósa og miðnætur- sólar, eru hátt í 150 bændur sem taka beinan þátt í ferða- mannastraumnum þar um slóðir. Hér er það fjölbreytni og nýsköpun sem ræður för hvort sem er að upplifa mat og menningu í fullum vetrarskrúða utandyra við varðeld á Kroglia Kulturgård eða þeysast um á fjórhjóli til fundar við hreindýrahjörð Samakonunnar Inga Sami Siida, svo dæmi séu tekin. Bændurnir hafa þó áhuga á að kynna sig enn betur á netinu og samfélagsmiðlum, segir Hanne- Sofie Trager, verkefnisstjóri hjá landbúnaðar- og hreindýradeild héraðsstjórans í Norður-Noregi. „Aðalaðdráttaraflið fyrir ferða- menn hér er án efa að upplifa norð- urljósin og miðnætursólina. Margir koma einnig til að upplifa menn- ingu og líf Samanna ásamt strand- menningunni hér sem byggist upp á aldagömlum fiskveiðum. Fyrir þúsund árum síðan hófst útflutning- ur á prótínríkri skreið til Mið- og Suður-Evrópu þar sem kaþólikkar áttu trú sinni samkvæmt að borða fisk á föstunni. Þá hófst mikið blómaskeið hér í Norður-Noregi sem stendur í raun enn því hér um slóðir er mest veitt af þorski í heim- inum. Fiskurinn er látinn hanga á stórum statífum til þurrkunar eða í hjöllum og þetta er einn af þeim þáttum sem ferðamönnunum finnst mjög áhugavert að skoða og upp- lifa. Hið margbrotna umhverfi og náttúran er einnig stór þáttur ásamt menningunni og matnum og það er þar sem bændur hér um slóðir koma inn,“ útskýrir Hanne-Sofie. Ferðamenn ánægðir með Norður-Noreg Það er ýmislegt hægt að upplifa í Norður-Noregi og er til dæmis svokallað eyjahopp að verða sífellt vinsælla þar sem ferðamenn ferðast á milli eyja á svæðinu. Samkvæmt könnun Nýsköpunarmiðstöðvar Noregs í fyrra voru bæði innlendir og erlendir ferðamenn ánægðastir með fríið sitt í Norður-Noregi af öðrum stöðum sem þeir komu til. „Slíkar kannanir og útkomur gefa okkur byr undir báða vængi hér uppi í norðri en kemur okkur í raun ekki svo mjög á óvart. Hér er opið, tignarlegt og fjölbreytt lands- lag ásamt sögu og menningu sem er ekki hægt að upplifa annars staðar, “ segir Hanne-Sofie og bætir við: „Um 145 bændur hér á svæðinu leggja áherslu á ferðamenn og hafa upp á eitthvað að bjóða fyrir þá. Þá erum við að fjalla um að þeir bjóða ýmist upp á gistingu, veitingastað eða kaffihús og/eða einhvers konar upplifun. Það er, ásamt fjölbreytni í landslagi, mikil fjölbreytni í því sem bændurnir hafa upp á að bjóða. Samamenningin með sínum hrein- dýrum vekja alltaf athygli en einnig bændurnir sem selja vörur beint frá býli og/eða sem hafa komið upp eigin veitingastað eða kaffihúsi, það er alltaf mjög vinsælt. Það sem hefur komið í ljós í könnun sem við á skrifstofunni hér létum framkvæma var að mikill meirihluti viðskiptavina voru mjög ánægðir með að dvelja á bóndabæ og upp- lifa lífið þar. “ Vinsælir staðir úr alfaraleið Líkt og á Íslandi fylgja auknum ferðamannastraumi ýmsar áskoran- ir og hafa íbúar Norður-Noregs ekki farið varhluta af því að vandamál sökum mannfjölda og umgengni er ærið verkefni að fylgjast með og bregðast við. „Það sem hefur verið mikil óánægja með hér eru ferju- og hrað- bátaflutningar til og frá fyrirtækjum á svæðinu. Nú hafa stjórnvöld ráðið inn starfsmann sem hefur eingöngu það verkefni að skoða og leysa úr þessu vandamáli. Hér eru fyrirtæki sem eru sum hver úr alfaraleið en mörg þeirra hafa vakið athygli á landsvísu í sjónvarpi eða öðrum fjölmiðlum. Þetta hefur veitt þeim mikla athygli og aukið umferðina til muna á þessum stöðum. Þessu þarf að bregðast við eins og til dæmis þegar kemur að samgöng- um til að upplifun viðskiptavinarins verði eins og best verður á kosið,“ útskýrir Hanne-Sofie og segir jafn- framt: „Norður-Noregur er að nálgast það markmið að 16,7 prósent af heildar landsvæðinu er þjóðgarður. Því fylgja strangar reglur sem þarf að uppfylla. Annars hefur færst í aukana að viðkvæm landsvæði þola illa meiri ágang og því hafa stjórnvöld í Noregi þurft að skerast í leikinn til að aðstoða á svæðum sem eru afar vinsæl eins og til dæmis Lofoten. Þannig eru stjórn- völd í samráði við ferðamannaráð á staðnum að vinna að aðferð við að rukka ferðamannaskatt á svæð- inu. Það sem hefur til dæmis orðið mikið vandamál þar er að ferða- menn tjalda hvar sem er, jafnvel í kirkjugörðum, og nýta guðsgræna náttúruna til salernisnotkunar. Svo það eru ekki eingöngu jákvæðar hliðar við ferðamannastrauminn en það eru þættir sem við verðum að bregðast við og það í tíma svo allir geti farið til baka með góða upplifun héðan af ferðalagi sínu.“ Þess má geta að HANEN, sam- tök sem upphefja norskar byggða- perlur, hafa nú um 400 staði á heimasíðu sinni og í nýútkomnu appi þar sem ferðamenn geta sótt áhugaverða staði á ferðalagi sínu í snjalltækið og upplifað sveitina í rauntíma þegar þeir þeysast um landið í leit að ævintýrum og upp- lifunum. /ehg Ferðaþjónusta í Norður-Noregi: Mikil upplifun að dvelja á bóndabæ Utan úr heimi Það er vinsælt að líta við hjá Samanum Inga Sami Siida, sem býður upp á hreindýra„safarí“ og matarupplifun í Samatjaldi. Myndir / News on Request AS/Rune Nilsen/Fylkesmannen i Nordland.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.