Bændablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Í Norður-Noregi, á landsvæði
norðurljósa og miðnætur-
sólar, eru hátt í 150 bændur
sem taka beinan þátt í ferða-
mannastraumnum þar um slóðir.
Hér er það fjölbreytni og
nýsköpun sem ræður för hvort sem
er að upplifa mat og menningu í
fullum vetrarskrúða utandyra við
varðeld á Kroglia Kulturgård eða
þeysast um á fjórhjóli til fundar við
hreindýrahjörð Samakonunnar Inga
Sami Siida, svo dæmi séu tekin.
Bændurnir hafa þó áhuga á að
kynna sig enn betur á netinu og
samfélagsmiðlum, segir Hanne-
Sofie Trager, verkefnisstjóri hjá
landbúnaðar- og hreindýradeild
héraðsstjórans í Norður-Noregi.
„Aðalaðdráttaraflið fyrir ferða-
menn hér er án efa að upplifa norð-
urljósin og miðnætursólina. Margir
koma einnig til að upplifa menn-
ingu og líf Samanna ásamt strand-
menningunni hér sem byggist upp
á aldagömlum fiskveiðum. Fyrir
þúsund árum síðan hófst útflutning-
ur á prótínríkri skreið til Mið- og
Suður-Evrópu þar sem kaþólikkar
áttu trú sinni samkvæmt að borða
fisk á föstunni. Þá hófst mikið
blómaskeið hér í Norður-Noregi
sem stendur í raun enn því hér um
slóðir er mest veitt af þorski í heim-
inum. Fiskurinn er látinn hanga á
stórum statífum til þurrkunar eða
í hjöllum og þetta er einn af þeim
þáttum sem ferðamönnunum finnst
mjög áhugavert að skoða og upp-
lifa. Hið margbrotna umhverfi og
náttúran er einnig stór þáttur ásamt
menningunni og matnum og það er
þar sem bændur hér um slóðir koma
inn,“ útskýrir Hanne-Sofie.
Ferðamenn ánægðir
með Norður-Noreg
Það er ýmislegt hægt að upplifa
í Norður-Noregi og er til dæmis
svokallað eyjahopp að verða sífellt
vinsælla þar sem ferðamenn ferðast
á milli eyja á svæðinu. Samkvæmt
könnun Nýsköpunarmiðstöðvar
Noregs í fyrra voru bæði innlendir
og erlendir ferðamenn ánægðastir
með fríið sitt í Norður-Noregi af
öðrum stöðum sem þeir komu til.
„Slíkar kannanir og útkomur
gefa okkur byr undir báða vængi
hér uppi í norðri en kemur okkur í
raun ekki svo mjög á óvart. Hér er
opið, tignarlegt og fjölbreytt lands-
lag ásamt sögu og menningu sem er
ekki hægt að upplifa annars staðar,
“ segir Hanne-Sofie og bætir við:
„Um 145 bændur hér á svæðinu
leggja áherslu á ferðamenn og hafa
upp á eitthvað að bjóða fyrir þá. Þá
erum við að fjalla um að þeir bjóða
ýmist upp á gistingu, veitingastað
eða kaffihús og/eða einhvers konar
upplifun. Það er, ásamt fjölbreytni
í landslagi, mikil fjölbreytni í því
sem bændurnir hafa upp á að bjóða.
Samamenningin með sínum hrein-
dýrum vekja alltaf athygli en einnig
bændurnir sem selja vörur beint frá
býli og/eða sem hafa komið upp
eigin veitingastað eða kaffihúsi,
það er alltaf mjög vinsælt. Það
sem hefur komið í ljós í könnun
sem við á skrifstofunni hér létum
framkvæma var að mikill meirihluti
viðskiptavina voru mjög ánægðir
með að dvelja á bóndabæ og upp-
lifa lífið þar. “
Vinsælir staðir úr alfaraleið
Líkt og á Íslandi fylgja auknum
ferðamannastraumi ýmsar áskoran-
ir og hafa íbúar Norður-Noregs ekki
farið varhluta af því að vandamál
sökum mannfjölda og umgengni
er ærið verkefni að fylgjast með
og bregðast við.
„Það sem hefur verið mikil
óánægja með hér eru ferju- og hrað-
bátaflutningar til og frá fyrirtækjum
á svæðinu. Nú hafa stjórnvöld ráðið
inn starfsmann sem hefur eingöngu
það verkefni að skoða og leysa úr
þessu vandamáli. Hér eru fyrirtæki
sem eru sum hver úr alfaraleið en
mörg þeirra hafa vakið athygli á
landsvísu í sjónvarpi eða öðrum
fjölmiðlum. Þetta hefur veitt þeim
mikla athygli og aukið umferðina
til muna á þessum stöðum. Þessu
þarf að bregðast við eins og til
dæmis þegar kemur að samgöng-
um til að upplifun viðskiptavinarins
verði eins og best verður á kosið,“
útskýrir Hanne-Sofie og segir jafn-
framt:
„Norður-Noregur er að nálgast
það markmið að 16,7 prósent af
heildar landsvæðinu er þjóðgarður.
Því fylgja strangar reglur sem þarf
að uppfylla. Annars hefur færst
í aukana að viðkvæm landsvæði
þola illa meiri ágang og því hafa
stjórnvöld í Noregi þurft að skerast
í leikinn til að aðstoða á svæðum
sem eru afar vinsæl eins og til
dæmis Lofoten. Þannig eru stjórn-
völd í samráði við ferðamannaráð
á staðnum að vinna að aðferð við
að rukka ferðamannaskatt á svæð-
inu. Það sem hefur til dæmis orðið
mikið vandamál þar er að ferða-
menn tjalda hvar sem er, jafnvel í
kirkjugörðum, og nýta guðsgræna
náttúruna til salernisnotkunar. Svo
það eru ekki eingöngu jákvæðar
hliðar við ferðamannastrauminn
en það eru þættir sem við verðum
að bregðast við og það í tíma svo
allir geti farið til baka með góða
upplifun héðan af ferðalagi sínu.“
Þess má geta að HANEN, sam-
tök sem upphefja norskar byggða-
perlur, hafa nú um 400 staði á
heimasíðu sinni og í nýútkomnu
appi þar sem ferðamenn geta sótt
áhugaverða staði á ferðalagi sínu
í snjalltækið og upplifað sveitina
í rauntíma þegar þeir þeysast um
landið í leit að ævintýrum og upp-
lifunum.
/ehg
Ferðaþjónusta í Norður-Noregi:
Mikil upplifun að dvelja á bóndabæ
Utan úr heimi
Það er vinsælt að líta við hjá Samanum Inga Sami Siida, sem býður upp á
hreindýra„safarí“ og matarupplifun í Samatjaldi.
Myndir / News on Request AS/Rune Nilsen/Fylkesmannen i Nordland.