Bændablaðið - 01.12.2016, Side 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Ís-Band er nýtt bílaumboð stað-
sett í Mosfellsbæ og selur m.a
Jeep, Fiat, Dodge og fleiri bíla-
tegundir. Fyrir nokkru prófaði
ég jepplinginn Jeep.
Renegade-jepplingurinn er að
mínu mati sá jepplingur sem kemst
næst því að kallast jeppi, en hann er
með hátt og lágt drif, yfirbyggingin er
soðin á grindina undir bílnum.
Örlítil breyting breytir bílnum úr
jeppling í jeppa
Jeep Renegade er fáanlegur í
nokkrum útfærslum, en bíllinn sem
ég prófaði var með 2,0 dísilvél sem
á að skila 170 hestöflum, sjálfskipt-
ur með 9 þrepa sjálfskiptingu og á
tveim númerum stærri hjólbörðum.
Með því að stækka dekkin um tvær
stærðir fer jepplingurinn úr „slyddu-
jepplinga“flokki í jeppa-flokk.
Við svona mikla stækkun á hjól-
börðum eru bæði kostir og ókostir,
en helsti kosturinn er betri fjöðrun út
úr hjólbörðum, betra grip (hjólbarðar
breikka um tvo sentímetra og hækka
bílinn um a.m.k. þrjá sentímetra undir
lægsta punkt), hærri bíll þegar ekið
er í snjó og á vegslóðum.
Ókosturinn er að viðbragð er
aðeins minna og eldsneytiseyðsla
hækkar, en kemur ekki að sök þar
sem kostir eru meiri en ókostir.
Þægilegur í akstri og fer vel með
ökumann í langkeyrslu og eyðsla
lítil miðað við kraft
Ég ók bílnum án þess að stoppa í
Hrútafjörð (rétt tæpa 200 km) og verð
ég að segja að þessi bíll er sá sem mér
hefur liðið best í af þeim mörgu bílum
sem ég hef prófað í langkeyrslu.
Uppgefin meðaleyðsla sam-
kvæmt bæklingi er 5,9 lítrar á
hundraðið, en á stærri dekkjum
og snjór á veginum var ég að eyða
í þessum fyrri helmingi 7,4 lítrum
á hundraðið sem er að mínu mati
mjög gott miðað við aðstæður. Eftir
ýmsar prófanir og torfæruprófanir í
djúpum snjó endaði ég eftir 400 km
akstur í meðaleyðslu upp á 7,8 lítra,
en tel að þessari tölu megi vel koma
niður um einn lítra þegar maður er
búinn að læra á bílinn.
Fyrsta sinn sem ég sé 220 volta
rafmagnstengil í bíl
Eins og flestir bílar er Renegade
hlaðinn aukabúnaði og öryggisbún-
aði og er m.a. með ABS hemla,
ESC stöðuleikastýringu, ERM
veltivörn, og fjarlægðarskynjara
allan hringinn. Þeir skynjuðu vel
snjóruðninga við hliðina á bíln-
um, en í snjókófinu aftan á bíln-
um urðu þeir óvirkir þar til ég fór
út og strauk af þeim. Í bílnum er
einnig bakkmyndavél og GPS leið-
sögukerfi.
Framsætin eru með stillanlegan
mjóbaksstuðning og hitarinn í
sætinu hitar upp á mitt bak, hiti í
stýri, tveir 12v tenglar, USB tengi,
og útvarpið skilar hljóðinu út í sex
hátalara og að hlusta á góða tónlist
er hreinn unaður í þessum bíl.
Aukabúnaðurinn sem ég var
hrifnastur af er að í bílnum er 220
volta tengill sem gefur rafmagn fyrir
rafmagnstæki sem nota minna raf-
magn en 1500 wött.
Verðið á Jeep Renegade er frá
4.790.000
Það er nánast ekkert hægt að lasta
í þessum bíl, en af nógu er að taka
í hóli. Hátt og lágt drif með 5 mis-
munandi stillingar fyrir fjórhjóla-
drifið sem miðast af við hvaða
undirlag er í akstri.
Full stærð á varadekki, góð
miðstöð sem er fljót að hitna og
aksturstölva með mikið af upp-
lýsingum.
Jeep Renegade er fáanlegur í
fjórum útfærslum, með tveim mis-
munandi 2000 dísilvélum, annars
vegar 140 hestafla eða 170 hestafla
vél, beinskiptan sex gíra kassa eða
9 þrepa sjálfskiptingu.
Allir Jeep Renegade eru fimm
manna og fimm dyra. Mikið er lagt
upp úr frágangi og útliti samanber
að beggja vegna við baksýnisspeg-
ilinn má sjá skraut sem er gamla
grillið af gamla Jeep.
Ef vel er af gáð má sjá þetta
merki víðar s.s. í afturljósi. Svo
má finna grópað í bílinn ártal af
fyrstu árgerð Jeep, landakort af
þekktum fjallvegi í USA svo eitt-
hvað sé nefnt.
Alla vega var ég yfir mig hrifinn
af bílnum eftir þennan prufuakstur
og væri alveg til í að skipta út
mínum „jepplingi“ fyrir Jeep
Renegade. Nánari upplýsingar er
hægt að nálgast um bílinn á vef-
síðunni www.isband.is.
Vélabásinn
liklegur@internet.is
Hjörtur L. Jónsson
Hæð 1.670 mm
Breidd 1.800 mm
Lengd 4.260 mm
Helstu mál og upplýsingar
Jeep Renegade Trailhawk. Myndir / HLJ
Þrátt fyrir að gluggapóstar séu stórir skyggja þeir sáralítið á útsýni fram á við. Varadekk í fullri stærð.
Valmöguleikarnir fyrir mismunandi undirlag og hátt og lágt drif er stjórnað
með einum takka.
Það eru fáir bílar sem státa af 220 v
rafmagnstengli.