Bændablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Krist og á innsigli eins af fyrstu
konungum veldisins er mynd sem
sýnir buffalóa fórnað. Þaðan berast
þeir áfram til Miðausturlanda og
áfram til Norður-Afríku og Suður-
Evrópu.
Flest bendir til að vatnabuffalóar
hafi borist til Sikileyja með Aröbum
og frá Sikileyjum til suðurhéraða
Ítalíu um árið 1000 eða um svip-
að leyti og byggð er að festa rætur
á Íslandi. Ítalir tóku buffalóunum
fagnandi og gripirnir döfnuðu vel
og voru buffalóar algeng sjón sem
vinnudýr á ökrum Suður-Ítalíu allt
fram á miðja síðustu öld.
Tyrkir notaðu buffalóa sem
burðar- og dráttardýr þegar
Ottomannveldið gerði innrás í
Evrópu á fimmtándu öld. Í dag er
enn að finna afkomendur þeirra
dýra tvist og bast í Austur-Evrópu,
til dæmis Búlgaríu, Transylvaníu og
í Rúmeníu þar sem vatnabuffalóar
eru kallaðir kýr fátæka mannsins.
Nokkrum öldum eftir að Kristófer
Kólumbus og James Cook römbuðu,
hvor í sínu lagi, til Ameríku og
Ástralíu voru vatnabuffalóar fluttir
til þeirra heimsálfa.
Fyrstu fljótabuffalóarnir voru
fluttir til Ástralíu snemma á nítjándu
öld. Gripirnir kunni vel við sig í nýju
heimkynnunum og dýr sem sluppu
út í náttúruna fjölguðu sér hratt.
Árið 1895 hófst eldi á fljótavatna-
buffalóum við ósa Amasónfljóts til
mjólkur- og kjötframleiðslu. Í dag er
þá að finna í flestum löndum Suður-
Ameríku og í Argentínu og eflaust
víðar hægt að sækja um leyfi, gegn
gjaldi, til að fara á vatnabuffalóa-
veiðar.
Það var ekki fyrr en árið 1974 að
fyrstu vatnabuffalóarnir voru flutt-
ir til Norður-Ameríku. Um var að
ræða fjögur dýr frá eyjunni Gvam
í Vestur-Kyrrahafi sem ætluð voru
til rannsókna. Fjórum árum síðar
var innflutningurinn aukinn tals-
vert og afkomendur þeirra dýra
eru í dag undirstaða framleiðslu
vatnabuffalóakjöts og mjólkur í
Bandaríkjunum.
Vísundar í Norður-Ameríku og
Evrópu, Bison bison og B. bonasus,
eru fjarskyldir ættingjar vatna-
buffalóans og iðulega rangnefndir
buffalóar.
Ásýnd, hegðun og æxlun
Vatnabuffalóar eru stór, belgmik-
il jórtur- og klaufdýr með fremur
stutta en sterka fætur og langan háls
og hala. Snögghærður feldurinn er
dökkur, svartur, brúnn eða grár
auk þess sem dýr geta verið dökk-
skjöldótt eða með hvíttum flekkjum.
Alhvítir albínóar eru algengir hjá
sumum ræktunarkynjum.
Naut fljótabuffalóa eru milli 400
kíló og eitt tonn að þyngd og 1,5 til
1,8 metra á herðakamb eftir kynjum
en kýrnar yfirleitt minni og léttari.
Mýrarafbrigðið er smávaxnara og
325 til 450 kíló að þyngd. Horn
buffalóa eru aftursveigð og horn
fljótabuffalóa eru hlutfallslega
stærri, 40 til 80 sentímetrar að lengd,
miðað við líkamsstærð en horn á
mýrarbuffalóum og einnig sveigðari.
Líkt og nöfnin benda til er kjör-
búsvæði fljótabuffalóa oft í djúpu
vatni en mýrarbuffalóar kjósa
grynnra vatn. Mýrarbuffalóar eiga til
að búa til leðjupolla með hornunum
og velta sér í þeim og hylja húðina
með drullu í miklum hita.
Villtir vatnabuffalóar mynda litlar
hjarðir með einu nauti og nokkrum
kúm.
Búsvæði þeirra er staðbundið
og halda dýrin sig yfirleitt innan
nokkurra ferkílómetra beitarsvæðis
með að minnsta kosti einni vatns-
uppsprettu.
Ástæða þess að buffalóar halda
sig mikið í vatni í náttúrulegum
heimkynnum sínum er til að kæla
sig í miklum hita. Þar sem loftslag
er kaldara er kælingin þeim ekki
eins mikilvæg og þrífast skepnurnar
ágætlega á graslendi.
Vatnabuffalóar hafa mikla
aðlögunarhæfni að nýjum búsvæð-
um og þrífast við hitastig frá núll og
upp í 30° á Celsíus.
Fæðuval þeirra er fjölbreytt og
geta buffalóar lifað á nánast hvaða
gróðri sem er. Við mjólkur- og kjöt-
framleiðslu er þeim gefið grænfóð-
ur og fóðurbætur líkt og gert er
við eldi á nautgripum. Buffalóar
þrífast einnig ágætlega á bönunum,
kassavarót, ananas, sykurreyr, sítrus-
ávöxtum og döðlum og mun allt slíkt
gefa bæði mjólkinni og kjötinu sér-
stakan keim.
Fljótabuffalóar verða kynþroska
á öðru til þriðja ári og fyrr en mýrar-
kynið. Góður boli getur sætt ríflega
hundrað kýr á ári og eru kýrnar frjóar
á öllum árstímum. Meðganga kúnna
er um það bil ellefu mánuðir og yfir-
leit ber kýrin einum kálfi að henni
lokinni.
Í náttúrunni tilheyra kvígur móð-
urhjörðinni alla ævi en nautkálfar
eru hraktir á brott af ríkjandi bola
um það leyti sem þeir ná kynþroska.
Hraustir buffalóar geta lifað í ríf-
lega 40 ár og nýtilegir til vinnu í 30.
Mjólk, kjöt og dráttardýr
Nytjar af vatnabuffalóum eru fjöl-
margar, þeir eru dugleg dráttardýr,
kýrnar eru mjólkaðar og kjötið haft
til matar. Vatnabuffalóakýr eru hinar
eiginlegu heilögu kýr á Indlandi.
Á Indlandi og Pakistan eru kýr
vatnabuffalóa helsta uppspretta
mjólkur og mjólkurafurða landanna.
Við stærstu borgir eru kýrnar mjólk-
aðar í mjaltaróbótum eftir nýjustu
tækni en víðast hvar til sveita eru
handmjaltir algengastar.
Mjaltaskeið buffalóakúa er 170
til 180 dagar og getur kýrin mjólkað
fjóra til átján lítra á sólarhring, eftir
kynjum, í allt að tuttugu ár.
Mjólk buffalóa hentar vel til
ostagerðar. Mozzarella-ostur úr
buffalóamjólk er upprunninn á
Ítalíu, la mozzarella di bufala, og
þykir með afbrigðum bragðgóður. Í
dag er ostur úr buffalóamjólk fram-
leiddur víða um heim.
Mozzarella-ostur úr buff-
alóamjólk hefur verið á boðstólum
hér á landi en í takmörkuðu magni.
Fyrir nokkrum árum var sótt um
leyfi til að flytja inn buffalóaost
á viðbótartollkvótum en því var
hafnað.
Kjöt vatnabuffalóa er seigara en
nautakjöt og því oft hægelda til að
mýkja það. Indverjar eru stærstu
útflytjendur vatnabuffalóakjöts í
heiminum.
Skinn buffalóa er þykkt og mikið
notað í leðurskó og úr hornum og
beinum eru meðal annars unnir
skartgripir og hljóðfæri. Mykjan
er notuð sem áburður eða þurrku
og brennd sem eldiviður.
Vatnabuffalóar eru sagðar vera
einstaklega meðfærilegar skepnur
og hreint barnameðfæri. Konur,
iðulega ungar stúlkur, sjá yfirleitt
um mjaltirnar en karlmenn og helst
ungir drengir um dýrin þegar þeim
er beitt fyrir plóg eða sem burðar-
eða dráttardýr fyrir vagni.
Klaufir vatnabuffalóa eru breiðar
og sveigjanlegar og gripirnir fót-
vissir fyrir plógi í blautum og hálum
jarðvegi hrísgrjónaakranna. Dýrin
flytja uppskeruna í hús og þeim
er beitt þegar grjónin eru möluð.
Vegna þessa eru vatnabuffalóar
stundum kallaðir lifandi dráttarvélar
austursins.
Buffalóaklónar á Filippseyjum
Fyrsti klónaði vatnabuffalóa-
kálfurinn leit dagsins ljós á rann-
sóknastofu á Filippseyjum 15. sept-
ember árið 2007. Sampura eins og
kálfurinn var kallaður drapst viku
eftir fæðingu vegna erfðagalla.
Filippseyingarnir létu það ekki slá
sig út af laginu og nokkrum mánuð-
um síðar kom annar klónaður kálfur
í heiminn sem fékk nafnið Garima.
Hinn 1. janúar 2008 var sagt frá
því á Filippseyjum að vísindamönn-
um þar hefði með hjálp erfðatækni
tekist að auka nyt vatnabuffalóakúa
úr fjórum lítrum í átján á dag.
Vatnabuffalóinn er eitt af þjóðar-
táknum Filippseyja.
Vatnabuffalóar og menning
Vatnabuffalóar tengjast víða í Asíu
helgihaldi og þeim fórnað í tengsl-
um við tilbeiðslu og haft er fyrir víst
að Lae Tse, höfundur Tao-te-king,
sem á íslensku kallast Bókin um
veginn, hafi yfirgefið Kína ríðandi
á vatnabuffalóa.
Samkvæmt hindúasið ríður
dauðaguðinn Yama vatna buffalóa-
bola þegar hann heimsækir við-
skiptavini sína og hindúagyðjurnar
Varahi og Vihot Mata hafa vatna-
buffalóa sem reiðskjóta. Í goðsögn-
um hindúa fyrirfinnst vera sem
líklega er fyrirmynd Mínótárus
sem var maður með nautshaus í
grískri goðafræði. Hindúa-útgáfan
er undirheimaguð sem kallast
Mahishasura og er hálfur maður
og hálfur vatnabuffalói.
Í Víetnam, á Filippseyjum og
Taílandi eru á hverju ári haldnar
hátíðir þar sem vatnabuffalóanauta-
at kemur við sögu. Í ötunum er
annað hvort att saman tveimur naut-
um upp á líf og dauða eða manni
og nauti. Í lok atanna er nautunum
fórnað.
Eitt magnaðasta atriðið í kvik-
myndinni Apocalypse Now sýnir
þegar vatnabuffalóa er fórnað á
sama tíma og Martin Sheen drepur
Marlon Brando við undirleik The
Doors.
Vatnabuffalóakappreiðar eru
vinsælt gaman á Indlandi og víðar
í Suðaustur-Asíu.
Vatnabuffalóar á Íslandi
Ekki er vitað að enn sem komið
er hafi vatnabuffalói stigið fæti á
Íslandi en aldrei að vita hvað gerist
í framtíðinni. Hugsanlega getur inn-
flutningur á vatnabuffalóum á fæti
orðið íslenskum bændum lyftistöng
og þeir skellt sér út í framleiðslu á
buffalóaostum og kjöti.
Heilög kýr.
Eitt magnaðasta atriðið í kvikmyndinni Apocalypse Now er þegar
vatnabuffalóanum er fórnað.
Vatnabuffalóakappreiðar eru
vinsælt gaman á Indlandi og víðar
í Suðaustur-Asíu.
Vatnabuffalóar eru stundum kallaðir dráttarvélar austursins.