Bændablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
„Við erum afskaplega ánægð, aðbúnaður
fyrir skepnurnar er mjög góður og mjalta-
þjónninn hefur reynst sérlega vel,“ segir
Elín Margrét Stefánsdóttir, sem býr ásamt
Ævari Hreinssyni, manni sínum, og börnum
í Fellshlíð í Eyjafjarðarsveit.
Yfir 120 manns komu í heimsókn í Fellshlíð
nýverið í tilefni af því að eitt ár var liðið frá
uppsetningu fyrsta GEA-mjaltaþjónsins á
Íslandi, en hann er frá Líflandi. Annar slíkur
hefur síðan verið tekinn í notkun og verið að
setja þann þriðja upp um þessar mundir.
Elín Margrét segir að samhliða því að
nýi mjaltaþjónninn var tekinn í notkun hafi
breytingar verið gerðar á fjósi og hlöðu á
bænum. „Við breyttum gömlu fjósi og hlöðu
í lausagöngufjós og þar eru nú básar fyrir 68
mjólkandi kýr, auk þess sem geldkýr hafa sér-
pláss í húsunum og þar er einnig aðstaða fyrir
geldneyti. Alls höfum við pláss fyrir rúmlega
150 gripi og erum að fullnýta húsin,“ segir hún.
Getur tekið frá mjólk frá tilteknum
spenum
Mjaltaþjónninn í Fellshlíð er af gerðinni
Mlone og segir Elín Margrét að hann hafi
staðið undir væntingum. Mjaltaþjónninn
er útfærður á þann hátt að einn þjónn eða
þjarki færist á milli mjaltaklefa og getur
hann sinnt allt að fimm klefum, eða á þriðja
hundrað kúa. Jafnframt þessu fara þvottur
spena, þurrkun, formjaltir og mjaltir fram í
spenahylkjum eftir ásetningu og styttir sú
tækni viðveru hverrar kýr í mjaltaklefa.
Ásetning spenahylkja þykir jafnframt
mjög skilvirk hjá MIone-þjóninum og þjónn-
inn lærir að þekkja og muna stöðu spena hjá
hverri kú. Til viðbótar getur þjónninn tekið
mjólk frá tilteknum spenum og leitt í affall
eða frátökumjólk. Ekki er því þörf á að hella
allri mjólk frá kú sem mælist með hækkandi
leiðnitölu í ákveðnum spenum. „Það er mikill
kostur að þessi möguleiki er fyrir hendi, að
hægt sé að taka mjólk úr einum spena frá ef
eitthvað er athugavert, en halda engu að síður
áfram að mjólka úr hinum þremur,“ segir hún.
Bændur sammála um að gera enn betur
Elín Margrét segir að þær breytingar sem gerð-
ar voru á þeim húsakosti sem fyrir var kosti
um helmingi minna fé en ef ráðist hefði verið
í að byggja nýtt fjós.
„Við erum ánægð með hvernig til tókst hjá
okkur, hér er allt nýuppgert og fínt en útgjöldin
eru mun minni en ef við hefðum farið út í
nýbyggingar,“ segir Elín. Hún kveðst frekar
bjartsýn til framtíðar litið og hún finni fyrir
auknum áhuga kúabænda varðandi það að
byggja ný fjós eða endurbæta sinn húsakost.
„Menn eru ekki neitt að gefast upp, það
er langur vegur frá, ég held að almennt séu
bændur sammála um að gera enn betur,“ segir
hún og nefnir t.d. í því sambandi að Auðhumla/
MS muni nú um áramót hrinda af stað nýju
verkefni sem ber nafnið Fyrirmyndarbú. Elín
Margrét á sæti í stjórn Auðhumlu og MS og
hefur tekið þátt í undirbúningi þess.
Dýralæknir á vegum Auðhumlu mun fara
heim á þau bú sem þess óska og taka þau út,
m.a. skoða dýravelferð og aðbúnað, aðkomu
og umgengni. Þau bú sem standast úttektina fá
greitt 2% hærra verð fyrir sínar afurðir. Ekki
er skylda að taka þátt í verkefninu en það er
að sögn Elínar Margrétar hugsað sem hvatning
fyrir bændur að gera eins vel og framast er
kostur. /MÞÞ
Opið fjós í Fellshlíð í Eyjafjarðarsveit:
Fyrsti GEA-mjaltaþjónninn
hér á landi í notkun í eitt ár
− Hefur reynst einstaklega vel, segja ábúendur
Líf og starf MÆLT AF
MUNNI FRAM
Stundum geta glöp reynst gróðavegur. Svo fór fyrir mér þá ég fyrir skömmu misfór með höfund að vísunni „Þú
mátt eiga vísu vísa“ en fékk blessunarlega
leiðréttingu frá hollvini þessa vísnaþáttar,
Halldóri Ólafssyni, sem gjörþekkti höfund-
inn, Sigurð Þórarinsson jarðfræðing. Með
leiðréttingunni fylgdi nefnilega greinar-
korn sem Halldór reit um jarðfræðinginn
Sigurð, og birti í tímaritinu Jökli. Í þessum
vísnaþætti verða því tilfærðar vísur úr grein
Halldórs.
Sigurður var einhverju sinni staddur í
tímamótateiti heima hjá Magnúsi Kjaran
stórkaupmanni.Sigurður þakkaði húsráð-
anda með stöku í gestabókina:
Þulið er margt í þakkarræðum,
þykir mér jafnan klén sú varan.
En af hans konu og af hans skræðum
öfunda ég Magnús Kjaran.
Einhverju sinni á tímum Kröfluelda, eftir
innilegu í húsi Norrænu eldfjallastöðvar-
innar í Mývatnssveit sakir stórhríðar, orti
Sigurður:
Víst er þó að voni ég
að veðri sloti,
að öll var dvölin yndisleg
í Eldakoti.
Sigurði Thoroddsen verkfræðingi og
jarðfræðingnum var vel til vina. Sextugur
fékk verkfræðingurinn svofellda kveðju frá
jarðfræðingnum:
Lífið hratt fram hleypur með jag sitt og stress,
hlaup þau jarðfræðingar láta sig engu varða,
er aldurinn hækkar hugsa þeir aðeins til þess
hve hann er enn lágur á jarðsögumælikvarða.
Á jólum 1963 fékk Halldór Ólafsson vísu
frá Sigurði, sem þá velktist illa haldinn um
borð í varðskipi að rannsaka Surtseyjargosið
sem hófst í nóvember það ár:
Bráðum hef ég hlotið nóg
Herra allsvaldandi.
Gef mér ekki gos á sjó,
en gos á þurru landi.
Halldór fékk svo kveðju frá Sigurði á
jólum 1968, en það ár sá fyrir endann á
Surtseyjargosinu:
Fölna glóðir eyju elds,
allar slóðir huldar fönnum;
á þó sjóð til ævikvelds
enn frá góðum jöklamönnum.
Fjallabílstjórinn Guðmundur Jónasson
var í vina hópi Sigurðar. Eitt sinn á ferða-
lagi um Skagafjörð bað Guðmundur
Sigurð að stinga vísu að Jónasi Jónassyni,
(Hofdala Jónasi) sem annaðist mæðiveikis-
girðingarvörslu við Grundarstokksbrú yfir
Héraðsvötn:
Glöggt ber vitni getuleysi og fálmi
girðingin, því hennar eiginleiki
er, að vera illur farartálmi
öllu nema garna- og mæðuveiki
Sigurður ferðaðist talsvert með Ferðafélagi
Íslands. Í einni Kjalferðinni var fararstjóri
Hallgrímur Jónasson kunnur hagyrðingur.
Hallgrímur orti stanslítið framan af ferðinni,
en er á leið, tregaðist honum um tungu. Um
þau umskipti orti Sigurður:
Mala kvarnir meistarans,
mjög þó harðnar stritið.
Eru farnir andar hans
í Þjóðvarnarritið?
Halldór Ólafsson gerðist félagi í
Jöklarannsóknarfélagi Íslands og hafði
mikið samneyti við Sigurð, og gerðist
um hríð aðstoðarmaður hans. Eftir eina
vel lukkaða rannsóknarferð á Vatnajökul,
gerðu menn sér gleðistund í skálanum í
Jökulheimum. Þeir félagar Sigurður og
Halldór, sváfu andfætis í sömu koju. Um
morguninn kvað Sigurður til Halldórs:
Er með þræl í aumu bæli
ei mér hæli sérlega.
Dauf er sæla‘ á drykkjuhæli
Dóri vælir ferlega.
167
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
Þær breytingar sem gerðar voru á húsakosti sem fyrir var í Fellshlíð kostuðu helmingi minna
fé en ef ráðist hefði verið í að byggja nýtt fjós á staðnum.
Yfir 120 manns komu í heimsókn í Fellshlíð í tilefni af því að eitt ár var liðið frá uppsetningu fyrsta GEA-mjaltaþjónsins á Íslandi, en hann er frá
Líflandi.
Ábúendur í Fellshlíð í Eyjafjarðarsveit, Elín
Margrét Stefánsdóttir og Ævar Hreinsson,
ásamt börnum sínum, Erni, Þór og Evu Ævars-
börnum. Elsta soninn, Jóhann Jóhannesson,
myndina.