Bændablaðið - 01.12.2016, Qupperneq 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Fréttir
„Það þýðir ekkert annað en vera
bjartsýnn. Það er vissulega fram-
tíð í íslenskum landbúnaði þó svo
að nú um stundir sé nokkur óvissa
ríkjandi. Það var farið af stað með
þessar framkvæmdir hér þegar
hvað mest bjartsýni var ríkjandi
og markaðurinn kallaði á okkar
afurðir. Svo skipast veður oft fljótt
í lofti,“ segir Gísli Björn Gíslason
á Vöglum í Skagafirði.
Gísli og María Hjaltadóttir, kona
hans, buðu sveitungum að skoða nýtt
fjós sem þau hafa reist við bæinn og
taka senn í notkun. „Við erum að
vinna hér við ýmiss konar frágang
og erum á lokametrunum, ég geri ráð
fyrir að kýrnar verði fluttar yfir í nýja
fjósið á næstu dögum,“ segir hann.
Gísli og María búa að Vöglum
ásamt börnum sínum tveimur,
Hákoni Kolka, 10 ára og Iðunni
Kolku, 7 ára auk þess sem móðir
Gísla, Kristín Sigurmonsdóttir, býr
þar og Þorsteinn Egilsson vinnu-
maður til fjölda ára. Þau búa með
80 kýr, 120 geldneyti, nokkra ketti
og tvo hunda svo öllu sé nú til haga
haldið. Gísli er fæddur og uppalinn
á Vöglum, er þar fjórði ættliður sem
stundar þar búskap, þannig að ætt
hans hefur verið þar tæp hundrað ár.
Núverandi fjós var byggt á árun-
um 1988 til 1989, var upphaflega
básafjós og hlað sem breytt var
í lausagöngu með mjaltabás árið
2000. Árið 2007 keyptu þau hjón
Delaval-mjólkurþjón.
„Við byrjuðum að byggja hér
1100 fermetra stálgrindarhús með
steinullarklæðningum vorið 2015 og
er það samtengt eldra fjósi. Gluggar
eru á hliðum og loftræsting með
strompum. Það eru 97 básar í nýja
fjósinu, tveir Delaval-mjólkurþjónar
og Valmetal-fóðurkerfi,“ segir
Gísli Björn. Kýrnar verða í tveimur
hópum, nýbærur og kýr sem sinna
þarf aukalega eru í svonefndu vel-
ferðarrými, en það og átsvæðið er
klætt gúmmímottum.
Gúmmímottur ryðja sér til rúms
Gúmmímotturnar eru frá Animat
í Kanada, þar sem slíkar mottur
á steinbita eru boðnar til kaups
eftir máli. Kaupfélag Skagfirðinga
tók þátt í uppbyggingu fjóssins á
Vöglum og fluttu gúmmímotturnar
inn til landsins. Indriði Grétarsson,
sölumaður hjá KS, segir að það fær-
ist í vöxt að gúmmímottur séu settar
á steinbita og það sé ágætur kostur
fyrir bændur að bæta slíkum mottum
við hjá sér.
„Það eru margir spennandi kost-
ir við nýja fjósið,“ segir Indriði og
nefnir auk gúmmímottanna, haug-
tankinn, sem fram til þessa hafa ekki
verið algengir á bæjum hér á landi.
Breyting gæti þó orðið þar á vegna
reglugerðarbreytinga. Hann segir að
KS hafi flutt haugtankinn sem stend-
ur við Vagla inn frá IBF í Danmörku,
sem er eitt stærsta fyrirtækið þar í
landi sem framleiðir forsteyptar ein-
ingar hvers konar sem og steinbita.
Öflugasta útfærslan fyrir
norrænar slóðir
Tankurinn er 2020 m3 í heildar-
rúmmál og tekur 1620 rúmmetra
af mykju, hann er settur saman úr
forsteyptum einingum og er fjögurra
metra hár. Sú hæð þótti hentugasti
kosturinn bæði varðandi uppsetningu
og einnig nýtingu. Sérfræðingur kom
á staðinn til að kenna KS-mönnum
réttu handtökin við uppsetningu og
frágang
„Ef við hefðum ætlað að vinna
þetta eftir höfðinu hefði það tekið
marga daga að klóra sig fram úr því
verkefni,“ segir Indriði.
Starfsmenn Friðriks Jónssonar
ehf. á Sauðárkróki voru fengnir í
verkið og munu þeir eftirleiðis sjá
um uppsetningu á tönkum frá KS, en
þeir nutu leiðsagnar frá framleiðanda
við að setja haugtankinn upp. „Við
vildum vera vissir um að rétt væri
að málum staðið frá fyrsta degi,“
segir Indriði. Sams konar tankur
hefur verið í notkun á Kjalarnesi frá
árinu 2007. „Sú útfærsla sem verður
notuð á Vöglum er talin sú öflugasta
fyrir norrænar slóðir, það er komin
á hana áratuga góð reynsla á öðrum
Norðurlöndum.“
Störfin verða léttari
Gísli Björn segir að störfin í nýju
fjósi verði mun léttari en áður var,
það verði til að mynda afskaplega
gott að hafa nú tvo mjaltarþjóna í
stað eins áður. „En ég geri líka ráð
fyrir að því fylgi mikil þægindi að
hafa valið þessa lausn með haug-
tankinn, það flýtir fyrir og sparar
vinnu,“ segir hann. Indriði bætir við
að þessi lausn að safna úrgangi í þar
til gerðan tank utanhúss gæti einnig
hentað annarri starfsemi eins og til
dæmis fiskeldi.
„Þessi bygging er eingöngu ætluð
mjólkandi kúm, eldra fjós verður
notað fyrir geldstöðukýr, burðarstíur
og uppeldi,“ segir hann.
Víðimelsbræður sáu um jarðverk-
töku, Örn Felixson í Reykjavík var
yfirsmiður, stálgrind og klæðningar
voru keyptar af Sindrason og félagið
Stálbyggingar sá um að reisa nýja
fjósið. /MÞÞ
Nýtt og glæsilegt fjós tekið í
notkun á Vöglum í Skagafirði
Mikilvægi vistheimtar er ört vax-
andi nauðsyn og alþjóðlegir samn-
ingar í umhverfismálum krefjast
aðgerða við endurheimt vistkerfa.
Þar má nefna aðgerðaráætlun við
samning Sameinuðu þjóðanna um
líffræðilega fjölbreytni sem stefnir
að því að 15% raskaðra vistkerfa
verði endurheimt fyrir 2020.
Markmið af þessu tagi kalla á
vinnu við stefnumörkun. Vegna
takmarkaðs fjármagns til stjórnunar
náttúruauðlinda og í náttúruvernd er
mikilvægt að forgangsraða þannig
að fé sé nýtt sem best í þágu nátt-
úrunnar.
Landgræðslan í norrænu
samstarfi
Á heimasíðu Landgræðslu ríkisins
segir að stofnunin hafi tekið þátt í
norrænu og eistlensku samstarfs-
verkefni undir forystu Svía um for-
gangsröðun og áætlanir í vistheimt.
Verkefninu lauk nýlega með
útgáfu rits sem kallast Restoration
priorities and strategies; Restoration
to protect biodiversity and enhance
Green infrastructure: Nordic examp-
les of priorities and needs for stra-
tegic solutions.
Tilgangur verkefnisins var að
deila reynslu þátttökuþjóðanna
af forgangsröðun og vistheimt.
Ekki var ætlunin að taka saman
heildaryfirlit um forgangsröðun í
löndunum heldur frekar að sýna
með dæmum mögulegar leiðir,
ræða þær út frá fræðum um for-
gangsröðun við nýtingu lands og
að leggja grunn að áframhaldandi
vinnu um forgangsröðun í vistheimt
á Norðurlöndunum.
Ólíkar leiðir hafa verið farnar í
löndunum en helsta niðurstaðan var
að engir staðlar eru til um forgangs-
röðun í vistheimt og jafnframt hefur
mjög takmörkuð vinna farið fram
um hvernig best sé að forgangsraða.
Slæmt ástand á Íslandi
Vegna slæms ástands vistkerfa á
Íslandi eru mörg vistheimtarverk-
efni sem æskilegt er að fara í. Því
er mikilvægt hér á landi sem annars
staðar að forgangsraða verkefnum
og sú vinna sem fram fór í sam-
starfsverkefninu ætti að nýtast
umhverfis- og auðlindaráðuneytinu,
Landgræðslunni og öðrum aðilum
sem koma að vistheimt við þá vinnu.
Samhliða vann sami hópur verk-
efni undir stjórn Norðmanna um það
hvernig Norðurlöndin gætu skipulagt
vinnu til að bregðast við markmið-
um sem tengjast vistheimt í aðgerð-
aráætlun samnings SÞ um líffræði-
lega fjölbreytni til 2020. Sérstaklega
markmiðið um endurheimt 15%
raskaðra vistkerfa. Þeirri vinnu
lauk með útgáfu ritsins The Nordic
Aichi restoration project; How can
the Nordic countries implement the
CBD-target on restoration of 15% of
degraded ecosystems within 2020?
/VH
Norðurlandasamstarf:
Forgangsröðun í vistheimt
Leiðrétting á staðsetningu kúabúa
Myndir / IRG
-
Í frétt í síðasta blaði um mesta
innlegg af mjólk frá einstökum
búum á yfirstandandi ári slædd-
ust inn tvær hvimleiðar villur.
Þar er sagt að Þverholtsbúið, sem
var í þriðja sæti yfir heildarmagn
innleggjenda og með langflestar
árskýr, eða um 250, sé í Dölum.
Hið rétta er að Þverholtsbúið er
og hefur alltaf verið á Mýrum þótt
eignarhald Daða Einarssonar og
fjölskyldu í landbúnaði teygi sig
eflaust í Dalina.
Þá var sagt að Birtingaholt 1,
sem var í fjórða sæti með innlegg,
væri á Skeiðum. Þar búa Bogi Pétur
Eiríksson og Svava Kristjánsdóttir
með 118,7 árskýr og tilheyra
Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Beðist
er velvirðingar á þessu.
Ný reglugerð um gæði eldsneytis
Umhverfis- og auðlindaráðu-
neytið hefur gefið út reglugerð
um gæði eldsneytis, sem felur í
sér breytingar á reglum um fljót-
andi eldsneyti.
Markmið reglugerðarinnar er
að draga úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda í tengslum við eldsneyti
eða orku sem afhent er hér á landi
og hugsanlegum skaðlegum áhrif-
um eldsneytis á heilsu fólks og
umhverfi.
Í reglugerðinni eru gerðar
ákveðnar kröfur til bensíns og
dísileldsneytis sem er markaðssett
hérlendis. Einnig kveður reglu-
gerðin á um skyldu birgja til að
skila inn skýrslum um styrk gróð-
urhúsalofttegunda úr eldsneyti og
orku sem afhent hefur verið hér
á landi og að draga í áföngum úr
losun gróðurhúsalofttegunda úr
eldsneyti og orku, um allt að 10%
fram til 2020.
Með reglugerðinni eru inn-
leidd ákvæði tilskipunar Evrópu-
sambandsins um gæði bensíns og
dísileldsneytis.