Bændablaðið - 01.12.2016, Page 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Fréttir
Haraldur Kristjánsson, bóndi í Einholti:
Gaf Bláskógabyggð
tíu milljónir króna
− vegna endurbóta á íbúðum fyrir eldri borgara
Haraldur Kristjánsson, bóndi
í Einholti í Biskupstungum, gaf
Bláskógabyggð 10 milljónir króna.
Er féð ætlað til endurbóta á íbúð-
um fyrir eldri borgara.
„Fjármagnið verður nýtt til að
endurbæta og gera neðri hæðina í
Kistuholti 3–5 í Reykholti betri fyrir
eldri borgara, s.s. til margvíslegra
samverustunda, tómstunda og
aðstöðu til líkamsræktar. Hvað verð-
ur gert nákvæmlega á eftir að hanna
og ákveða meira í smáatriðum.
Þetta er því peningagjöf sem
verður nýtt til að búa betur að eldri
borgurum í því húsnæði sem sveitar-
félagið hefur byggt fyrir eldri borgara
í Kistuholti,“ segir Valtýr Valtýsson,
sveitarstjóri Bláskógabyggðar.
„Sveitarstjórn Bláskógabyggðar
þakkar Haraldi Kristjánssyni fyrir
þann stórhug og rausnarskap sem
hann sýnir samfélaginu með þessari
peningagjöf,“ bætir Valtýr við.
/MHH
Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri
Bláskóga byggðar.
Flóttamenn frá Sýrlandi flytja
á Selfoss og í Hveragerði
Áætlað er að tvær fjölskyldur
sýrlenskra flóttamanna flytji á
Selfoss í janúar 2017, alls fjórtán
einstaklingar.
Sveitarfélagið er búið að taka á
leigu húsnæði fyrir fólkið og unnið
er að gerð samnings við velferð-
arráðuneytið um verkefnið. Þá
flytur ein fjölskylda í Hveragerði,
foreldrar og fimm börn þeirra.
„Sveitarfélagið Árborg og
Hveragerði hafa með sér samstarf
um ákveðna þætti sem snúa að
móttöku flóttamanna og verður
auglýst eftir verkefnisstjóra sem
mun leiða verkefnið og vinna að
móttöku flóttamanna í báðum
sveitarfélögunum.
Ráðuneytið gerir líka samning
við Rauða krossinn um aðkomu
þeirra að málinu, en hún snýr
m.a. að húsbúnaði í íbúðirnar og
að útvega stuðningsfjölskyldur,“
segir Ásta Stefánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Sveitarfélagsins
Árborgar. /MHH
Húnavatnshreppur:
Fimm félög fá styrki
Á fundi sveitarstjórnar
Húnavatnshrepps í liðinni viku
var samþykkt að styrkja ýmis
félög vegna starfsemi þeirra á
næsta ári.
Textílsetur Íslands fær
400.000 króna styrk vegna starf-
semi setursins á næsta ári og
Björgunarfélagið Blanda fær
350.000 króna styrk til kaupa
á sérhæfðum sjúkrabörum.
Ungmennasamband Austur-
Húnvetninga fær 350.000 krónur
í styrk, Ungmennafélagið Geisli
280.000 krónur og Karlakór
Bólstaðarhlíðarhrepps 225.000
krónur.
Þá fær mótanefnd Hesta-
mannafélagsins Neista 30.000
krónur í styrk vegna Ísmótsins
Svínavatn 2017 og einnig sam-
þykkti sveitarstjórn að greiða
vildargjald 2017 að fjárhæð 79.000
til Farskólans. /MÞÞ
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra:
Vilja iðnaðaruppbyggingu
við Hafursstaði
Sveitarfélögin í Austur-
Húnavatnssýslu, ásamt Húnaþingi
vestra og Sveitarfélaginu
Skagafirði, hafa lýst vilja til
samvinnu um iðnaðaruppbyggingu
við Hafursstaði í Austur-
Húnavatnssýslu.
„Í ljósi mikillar og stöðugrar
fækkunar íbúa landshlutans er þýð-
ingarmikið að sveitarfélögin fái
stuðning hins opinbera til þess að
kanna þá kosti sem uppi geta verið í
stóriðjumálum og henta landshlutan-
um, m.a. með tilliti til náttúrugæða,“
segir í ályktun um iðnaðarupp-
byggingu við Hafursstaði sem sam-
þykkt var á ársþingi Sveitarfélags á
Norðurlandi vestra, en það fór fram
nýlega.
Fram kemur í ályktuninni að
þakka beri framlag til málsins á
fjárlögum ársins 2016, en jafnframt
verði að krefja stjórnvöld um áfram-
haldandi og aukinn beinan fjárstuðn-
ing við uppbyggingu iðnaðarkosta
í landshlutanum. Gerð er skýlaus
krafa um að öll orkuöflun í lands-
hlutanum verði nýtt til atvinnuefl-
ingar á svæðinu.
Á ársþinginu kom fram í ræðu
framkvæmdastjóra þess að samþykkt
hefði verið að gera íbúakönnun á
starfssvæði samtakanna. Í könnun-
inni var spurt um ýmsa búsetuþætti
á svæðinu. Einnig var spurt um
viðhorf til iðnaðaruppbyggingar við
Hafursstaði. Fram kom að verið væri
að vinna úr svörum við könnuninni
og niðurstöður hennar yrðu kynntar
fljótlega. /MÞÞ
Jólaskógarnir opnir
almenningi á aðventunni
Eins og síðustu ár verða jóla-
skógar skógræktarfélag-
anna opnir á aðventunni.
Ragnhildur Freysteinsdóttir hjá
Skógræktarfélagi Íslands segir
fyrirkomulag jólatrjáasölu hjá
skógræktarfélögunum vera svipað
frá ári til árs, en það sveiflist þó
aðeins hvort sala sé hjá tilteknum
félögum eður ei.
Ég er þessa dagana að hnippa
í félögin og biðja um upplýsingar
– hvort þau verði með sölu og þá
upplýsingar um söluna, ef svo er. Þau
félög sem ég hef fengið upplýsingar
frá eru öll inni á jólatrjáavefnum
okkar (www.skog.is/jolatre) – þar
set ég upplýsingar inn um leið og
þær berast,“ segir Ragnhildur.
Að fella sitt eigið tré
Að sögn Ragnhildar eru flest félögin
með þannig sölu að fólk getur komið,
valið sér tré í skóginum og fellt.
„Sum félög, eins og Skógræktarfélag
Akraness, Skógræktarfélag
Mosfellsbæjar, Skógræktarfélag
Árnesinga, Skógræktarfélag
Reykjavíkur og Skógræktarfélag
Eyfirðinga, eru einnig með felld tré
eða annan varning til sölu samhliða.
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar er
eina undantekningin, þar eru bara
seld felld tré.“
Stafafuran langalgengust
Á jólatrjáavef Skógræktarfélags
Íslands eru upplýsingar um algeng-
ustu jólatrjáategundirnar. Stafafuran
er langalgengust – en meira en helm-
ingur selst af henni. Á eftir henni
fylgja svo rauðgreni, með um 20
prósent sölu, blágreni með um 15
prósent og sitkagreni um 10 prósent.
Restin skiptist á margar tegundir –
mest af fjallaþin og svo stöku tré
af síberíuþin, lindifuru, bergfuru
og einhverjar fleiri tegundir seljast
líka.
Ragnhildur segir fjallaþin vera
vonarstjörnuna, að því leyti að hann
er fyllilega samkeppnishæfur við
innflutta nordmannsþininn útlits-
lega séð. „En það er enn mikið
verk eftir til að finna betri kvæmi
af honum fyrir ræktun til jólatrjáa
hérlendis. Það er það stutt síðan
farið var að gróðursetja hann í ein-
hverju magni að það er töluvert í
að hann fari að vega eitthvað að
ráði sem jólatré, sérstaklega þar
sem hann þarf lengri tíma til þess
að verða jólatré en til dæmis stafa-
furan. Það eru engir sérstakir skógar
með fjallaþin þannig séð – það er
smá af honum á víð og dreif í hinum
og þessum skógum félaganna.“
Jólamarkaður við Elliðavatn
Mikil jólastemning er jafn-
an á aðventunni á jólamarkaði
Skógræktarfélags Reykjavíkur
við Elliðavatn. Hann var opnaður
laugardaginn 26. nóvember og verð-
ur opinn allar helgar fram að jólum
frá 11–16.30.
Á hlaðinu eru til sölu nýhöggvin
íslensk jólatré og þar að auki mikið
úrval af tröpputrjánum vinsælu,
eldiviði, viðarkyndlum auk annarra
afurða úr Heiðmörk. Í boði er stafa-
fura, rauðgreni, blágreni, sitkagreni
og fjallaþinur.
Það er orðin sterk hefð í mörg-
um fjölskyldum að koma í Jólaskóg
Skógræktarfélags Reykjavíkur á
aðventunni og höggva sitt eigið jóla-
tré. Í ár verður Jólaskógurinn opinn
helgarnar 3–4. desember 10.–11.
desember og 17.–18 desember, kl.
11–16.
Alla daga verður líf og fjör, jóla-
sveinarnir verða á staðnum og það
verður logandi varðeldur. Hægt verð-
ur að kaupa heitt kakó og smákökur
og jólalögin sungin.
Íslensk jólatré eru vistvæn. Þau
eru ræktuð án eiturefna og eru ekki
flutt á milli landa. Í staðinn fyrir
hvert tré sem höggvið er gróðurset-
ur Skógræktarfélag Reykjavíkur að
minnsta kosti þrjátíu tré. /smh
Frá jólamarkaði Skógræktarfélags Reykjavíkur við Elliðavatn. Myndir / smh
Á hlaðinu við gamla bæinn eru til sölu nýhöggvin íslensk jólatré.
Góð stemning er jafnan á jólamarkaðinum við Elliðavatn.