Bændablaðið - 01.12.2016, Page 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Tannburstar eru sjálfsagður
hlutur í okkar lífi og vonandi
lífi allra. Colgate-hárin renna
um munn okkar daglega, stökk
hár, mjúk hár, græn hár, gul
hár, barnaburstar, burstar með
gúmmígómbursta á annarri
hliðinni, keyptir í kippum á
heimilið og allir hafa sinn lit til
aðgreiningar frá hinum.
Tannburstinn er einfalt
verkfæri. Notandinn áttar sig á
hvernig hann er notaður um leið
og hann sér fyrirbærið. Kannski
vegna þess að hann er bara prik,
sem forfeður okkar notuðu eflaust
til að sækja maura sér til matar í
trjástofna. Virknin svipuð líka,
við skiptum bara maurunum út
fyrir Karíusi og Baktusi. Hvernig
byrjaði þessi vegferð sem varð að
svo sjálfsögðum hlut?
Fundist hafa leifar af forvera
tannburstans frá því um 3500 f.
Krist. Þetta var einfaldlega trjá-
sprek sem Babýlonar tuggðu á,
útleggst líklega á íslensku sem
tuggusproti. Sprotinn hefur einnig
fundist í egypskum grafhýsum frá
um 3000 f. Krist og eru ritaðar
heimildir til frá Kínverjum frá
því árið 1600 f. Krist. Grikkir
og Rómverjar til forna eru taldir
hafa notað tannstöngla við sína
tannhirðu.
Eftir því sem við komum
nær okkur í tíma fer að færast
fjör í leikinn. Elsti burstinn
með hárum sem fundist hefur er
kínverskur og er frá tíma Tang-
keisaraveldisins (690–907).
Burstinn var framleiddur úr
bambus og svínshárum frá kaldari
svæðum Kína og Síberíu, þar
sem svínum vaxa stífari burstir.
Tannburstinn barst svo með
ferðalöngum á 16. öld frá Asíu
til Evrópu þar sem aðferðin við
tannhirðuna var að nudda sótuga
og salt tusku við tennurnar.
Bretinn William Addis er
talinn eiga heiðurinn af fyrsta
fjöldaframleidda burstanum í
Evrópu í kringum 1770. Honum
leiddist fangelsisvist sem hann sat
af sér og ákvað að tuskuaðferðin
væri léleg og hannaði því bursta úr
beini og fangavarðahárum. Þessi
frumgerð varð síðar fyrirmynd
að fjöldaframleiddri vöru eftir að
tukthúsvist hans lauk.
Fyrsti Ford T-bíllinn skreið af
færibandinu árið 1908, um svipað
leyti voru menn að átta sig á því
að plastburstar væru sniðugri
en dýrahársburstar sem héldu
lengi í sér vatni og bakteríum. Á
þessum tíma var fjöldaframleiðsla
á burstum komin á í Evrópu og
Ameríku og eftirspurnin að aukast
þrátt fyrir að tannburstun hafi
ekki orðið almenn á bandarískum
heimilum fyrr en eftir seinna stríð
þar sem hermönnum var skylt að
bursta daglega.
Burstinn hefur síðan eftir
plastbyltinguna fengið alls
konar upplyftingu. Nefna má
straumlínulagaðri handföng,
löng hár á köntunum og styttri
fyrir miðju til að ná að hjúpa
tönnina betur, fjaðrandi framenda,
gúmmí til að kitla tannholdið og
svo mætti lengi telja. Til marks
um mikilvægi burstans var
hann valinn sú uppfinning sem
Bandaríkjamenn mættu minnst
við að missa árið 2003.
Tannburstinn á sér sem sagt
langa sögu þrátt fyrir að láta lítið
fyrir sér fara og hér var bara stikl-
að á stóru. Við eigum forfeðrum
okkar mikið að þakka að við
getum í dag vaknað með Colgate-
bros á vör og farið með hreinar og
fínar tennur út í daginn.
Halldór Laxness segir í
Alþýðubókinni að hefði hann
efni á að gefa öllum Íslendingum
tannbursta, mundi hann gera
þjóðinni meira gagn en þótt hann
skrifaði handa henni ódauðleg
ljóð. /Jóhannes F. Halldórsson
Saga tannburstans
STEKKUR
Ástæðan fyrir því að vinna
skipulag og tilgangurinn með því
virðist oft gleymast og umræða
um skipulasmál þróast því miður
gjarnan þannig að þátttakend-
ur skipast í lið – með eða á móti
skipulagsframkvæmdunum.
Þeir sem vinna við skipulag
forðast svo oft að tjá sig um málið
að líkja mætti því við þöggun, sem
stafar kannski af hræðslu við að fá
ekki fleiri verkefni.
Richard E. Klosterman fjallaði
um rök með og á móti skipulagi í
nútíma lýðræðislegu samfélagi með
frjálsa markaði í grein sem kom út
1985. Rökunum skiptir hann upp í
fjóra eftirfarandi flokka:
Hagræn rök
Hægræn öfl þrýsta á að einfalda
skipulagsferlið og fækka reglu-
gerðum. Hugmyndafræðin gengur
út á að frjálsir markaðir leiði til
þeirra ákvarðana sem eru bestar
og best sé að lágmarka opinber
afskipti. Það byggist á þeirri
forsendu að markaðir séu full-
komnir og enginn aðili hafi mark-
aðsráðandi stöðu.
Það á þó alls ekki alltaf við og
sér í lagi ekki þar sem teknar eru
ákvarðanir sem skipta máli fyrir
aðra en þá sem koma beint að
ákvarðanatökunni. Þegar einhver af
forsendum fyrir fullkomnum mörk-
uðum heldur ekki er talað um mark-
aðsbresti og þá er hugsanlegt að
íhlutun opinberra aðila geti leitt til
betri niðurstöðu fyrir samfélagið.
Það á til dæmis við um almanna-
gæði svo sem almenningsgarða þar
sem notkun eins aðila takmarkar
ekki notkun annars. Annað dæmi
þar sem markaðir bresta er þegar
kostnaður vegna starfsemi fellur á
aðra, til dæmis sem mengun.
Skipulag leikur mikilvægt hlut-
verk í aðskilnaði ósam rýmanlegrar
starfsemi. Enn eitt dæmi þar sem
íhlutun hins opinbera getur haft
áhrif er þegar ákvarðanir einkaað-
ila leita í óhagstætt jafnvægi vegna
væntinga um hegðun annarra. Slík
dæmi geta til að mynda komið upp
í sambandi við viðhald á fjölbýl-
ishúsum. Svona vandi er þekktur
sem prisoners‘ dilemma.
Enn fremur eru ákveðnir aðilar
sem geta orðið undir í samkeppni
á frjálsum markaði. Hið opinbera
getur haft áhrif á skiptingu gæða
og gætt hagsmuna barna og eldri
borgara.
Inngrip stjórnvalda í markaðs-
bresti felst því ekki aðeins í
opinberri mótun skipulags.
Markaðsaðferðir eru skilvirkari
en miðstýring. Markmið samfé-
lagsins þurfa að vera skýr svo að
niðurstaða skipulags skili sínu
hlutverki.
Fjölbreytileiki
Ákvarðanir stjórnvalda eiga að
styðja við markaðssamkeppni. Því
miður er samkeppni á stjórmála-
vettvangi ekki fullkomin frekar en
markaðssamkeppnin. Munur er á
hugmyndafræði og raunveruleika.
Tilteknir hópar eru með ráðandi
stöðu á ákveðnum sviðum stjórn-
mála. Stjórnvöld þurfa að tryggja
að tekið sé viðeigandi tillit til sjón-
armiða minnihlutahópa og einstak-
linga sem eiga sér ekki málsvara.
Hefðbundin sjónarmið
Það er hlutverk hins opinbera
að útvega almannagæði. Þröngt
skorðaðar áætlanir hins opinbera
ná iðulega hvorki utan um vanda-
málið né koma með fullnægjandi
lausn.
Marxísk rök
Marxistar líta svo á að hið opin-
bera sé hlutlaust verkfæri sem sér
um að uppfylla þarfir samfélags-
ins. Til að ná framförum þarf sam-
félagið að umbylta vinnuaflinu og
fela hinu opinbera þær ákvarðanir
sem teknar eru á mörkuðum og á
vettvangi stjórnmála.
Þótt það samræmist fyrirkomu-
lagi skipulagsmála nú á tímum
býður marxíska kerfið ekki upp
á annan farveg breytinga en
byltingu. Slík athöfn dregur úr
mikilvægi skipulags og er ólíkleg
í vextrænum lýðræðisríkjum.
Samantekt
Þessi sjónarmið gefa til kynna
ferns konar hlutverk skipulags. Í
fyrsta lagi er því ætlað að styðja
við sameiginlegar þarfir samfé-
lagsins. Í annan stað að taka tillit
til ytri áhrifa athafna einstaklinga
og hópa. Í þriðja lagi að bæta
upplýsingar fyrir ákvarðanatöku
opinberra aðila og einstaklinga og
að lokum að vernda þarfir þeirra
sem minnst mega sín.
Skipulag má samt ekki falla í
farveg endurtekningar og strangra
verndunarreglna. Til að fá aukinn
stuðning frá samfélaginu þyrfti hið
opinbera að bæta skilning sinn á
almannahagsmunum, upplýsing-
um og stjórnmálaathöfnum. Þá
gæti skipulag uppfyllt betur grunn-
þarfir samfélagsins.
SKIPULAGSMÁL
Af hverju skipulag?
Sigríður Kristjánsdóttir
lektor − auðlinda- og
umhverfisdeild LbhÍ
sigridur@lbhi.is
Nýja fjósið sómir sér vel við bæinn Hvamm í Ölfusi, alls um 830 fermetrar að stærð. Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Nýtt og glæsilegt fjós á Hvammi í Ölfusi
„Byggingin gjörbreytir allri
aðstöðu hjá okkur, við erum í skýj-
unum með nýja fjósið og ekki síður
kýrnar og nautgripirnir sem eru
komnir inn í það, þetta er draum-
ur sem er orðinn að veruleika,“
segir Pétur Guðmundsson, bóndi
á Hvammi Í Ölfusi.
Nýja fjósið sem hann var að
taka í notkun er 830 fermetrar að
stærð, legubásafjós með geldneyta-
aðstöðu, sambyggt eldra fjósi.
Pláss er fyrir 67 kýr en nýja
fjósið er hannað með aðstöðu fyrir
mjaltaþjón þótt hann sé ekki kom-
inn. Haughús er undir öllu húsinu.
„Við munum nota eldra fjósið fyrir
sjúkra- og kálfastíur. Tilgangurinn
með nýja fjósinu er að bæta alla
aðstöðu fyrir kýrnar og framleiðsl-
una, bæta vinnuaðstöðuna og mæta
auknum kröfum sem nýjar reglu-
gerðir kveða á um,“ bætir Pétur við.
/MHH
Charlotte Clausen
og Pétur á Hvammi
eru hæstánægð
með nýja fjósið
sem Stefán
Helgason og hans
starfs menn hjá
verktakafyrirtækinu
Kríutanga byggðu
á sjö mánuðum.
Húsið kostar eins
og gott einbýlishús
á höfuðborgar-
svæðinu.