Bændablaðið - 01.12.2016, Side 21
21Bændablaðið | Þriðjudagur 22. mars 2016
uppi um viðskipti með mjólkurvörur,
bíla og lyf allt fram á síðasta dag
samningaviðræðnanna.
TTIP-samningagerðin í frosti
Af svipuðum toga hefur á liðnum
misserum verið reynt að hnoða
saman öðrum fríverslunarsamningi
á milli Bandaríkjanna og
Evrópusambandsins.
Gengur hann undir nafninu
„Transatlantic Trade and Investment
Partnership,“ skamm stafað TTIP, í
talmáli gjarnan nefnt „Tí-tip“. Þeim
áformum hefur m.a. verið harðlega
mótmælt í Þýskalandi, ekki síst
af umhverfisverndarsinnum sem
óttast m.a. ítök efnarisa á borð við
Monsanto í evrópskum landbúnaði.
Eftir að Donald Trump náði kjöri
sem forseti Bandaríkjanna hafa
viðræður um TTIP verið í frosti.
Barack Obama reyndi þó að halda
uppi voninni um þá samningsgerð
á fundi hans með Angelu Merkel í
Þýskalandi fyrir skömmu. Í umfjöllun
um fund þessara leiðtoga í þýska
vikublaðinu Wirtschaftswoche,
var sagt að Þjóðverjar og
Bandaríkjamenn eygðu með TTIP-
samningnum möguleika á að móta
alþjóðavæðinguna samkvæmt sínu
gildismati og hugmyndum.
„Við skuldum okkar fyrirtækjum,
okkar þegnum og jafnvel
heimsbyggðinni allri, það að breikka
og dýpka okkar samvinnu,“ sagði í
mjög svo gildishlaðinni umfjöllun
Wirtschaftswoche um ágæti
samningsins. Þar sagði einnig:
„Þetta er í takt við virðingu fyrir
mannlegri reisn og skyldur okkar
í mannúðarmálum og að veita
milljónum flóttamanna um allan
heim aðstoð.“ Þá var í greininni sagt
að TTIP-samningurinn „muni án
nokkurs vafa“ gagnast bandarískum
og þýskum atvinnurekendum,
launamönnum, neytendum sem og
bændum. Virðist þessi málflutningur
vera á nákvæmlega sömu nótum
og tal hagsmunaaðila varðandi
stóraukið frelsi í innflutningi á
vörum til Íslands.
Það eru samt greinilega ekki allir
sammála fagurgalanum um aukið
frelsi í alþjóðaviðskiptum. Þannig
mótmælti aðgerðarhópur neytenda
nýverið TTIP-samningagerðinni og
aukinni alþjóðavæðingu í Berlín.
Hundruð þúsunda tóku þátt í þeim
mótmælum.
Hnattvæðingin sögð komin að
endamörkum
Í umfjöllun breska blaðsins
Guardian er spurt hvort sú viðleitni
að auka stöðugt hnattvæðinguna
í viðskiptaheiminum sé komin
að endamörkum. Sem dæmi um
það er bent á að dregið hafi úr
milliríkjaviðskiptum í hlutfalli við
verga þjóðarframleiðslu á heimsvísu.
Einnig er bent á að Bretland sé á leið
út úr stærsta fríverslunarsvæðinu,
þ.e. ESB.
„Það eru teikn á lofti um að
hægur dauðdagi sé fram undan hjá
alþjóðavæðingunni sem innleidd
var af ríku þjóðunum eftir seinni
heimsstyrjöldina,“ sagði í grein
Guardian.
Þýska blaðið Wirtschaftswoche
segir aftur á móti af mikilli
kokhreysti að það sé engin leið til
baka í það ástand sem ríkti fyrir daga
hnattvæðingarinnar.
Samningur Mið-Ameríkuríkja
CAFTA
Margvísleg deilumál hafa komið
upp út af framkvæmd fríverslunar-
samninga. Eitt slíkt kom m.a. upp í
El Salvador, í tengslum við „Central
American Free Trade Agreement
(CAFTA)“. Þessi samningur er
á milli Gvatemala, El Salvador,
Hondúras, Kosta Ríka og Dóminíska
lýðveldisins. Hann var undirritaður
28. maí 2004 og er sagður hafa
verið að hluta fyrirmynd við TPP-
samningagerðina, sér í lagi er varðar
yfirþjóðlegan rétt fyrirtækja.
Í El Salvador spratt m.a. upp eitt
mál þar sem almenningur krafðist
þess að hætt yrði við námusamning
við stórfyrirtæki vegna mengunar á
grunnvatni. Í kjölfarið fór fyrirtækið
í mál við ríkið og krafðist bóta um
á 315 milljónir dollara samkvæmt
ákvæðum frí-verslunarsamningsins.
Annað dæmi hefur verið nefnt af
stórfyrirtækinu Bechtel sem stefndi
Bólivíu vegna áætlaðs 50 milljóna
dollara taps á framtíðarhagnaði.
Þá var fyrirtækið aðeins búið að
fjárfesta fyrir 1 milljón dollara
þegar einkavæða átti vatnsveitur í
landinu. Tugir mála af svipuðum
toga hafa sprottið upp út af þessum
fríverslunarsamningi og hafa
fréttaveitur á borð við Bloomberg
m.a. fjallað um slík mál.
Fríverslunarsamningur CETA á
milli Kanada og ESB
Enn einn samningurinn er svo
„Comprehensive Economic and
Trade Agreement“ (CETA), sem
hefur verið í smíðum á milli Evrópu-
sambandsins og Kanada. Gert
er ráð fyrir að hann öðlist gildi á
næsta ári og að innleiðingin taki 7
ár. Það varðar m.a. niðurfellingu
tolla af hveiti, nautakjöti og öðrum
landbúnaðarvörum. Hefur þessum
samningi verið líkt við TTIP-
samninginn og verið harðlega
mótmælt víða um Evrópu. Talað er
um ólýðræðisleg vinnubrögð við
samningagerðina sem hafi farið fram
á bak við luktar dyr.
Lá við að samningurinn yrði
endanlega jarðaður er Vallónar
í Belgíu lögðust gegn honum.
Haldinn var neyðarfundur á
Evrópuþinginu vegna þess með
aðkomu Kanadamanna og Paul
Magnette, fulltrúa Vallóna. Belgía
samþykkti í kjölfarið samninginn,
síðust 28 ESB-þjóða. Hann var svo
undirritaður formlega 30. október
sl. í Brussel af hálfu fulltrúa ESB
og Justin Trudeau, forsætisráðherra
Kanada.
Gagnrýnendur samningsins hafa
bent á að hann muni veikja rétt
neytenda í Evrópu, sér í lagi þeirra
sem annt er um matvælaöryggi.
Þá er einnig gagnrýnt að
samningurinn sé að mestu hugsaður
út frá hagsmunum fjölþjóðlegra
stórfyrirtækja. Áhættan fyrir
almenning sé líka mikil í formi
mögulegs atvinnuleysis vegna
tilflutnings á atvinnutækifærum.
Auk þess sem hann muni leiða
til skemmda á náttúrunni vegna
ofnýtingar.
Norður- Ameríkusamningurinn
NAFTA
NAFTA, eða „North American
Free Trade Agreement“, er síðan
fríverslunarsamningur sem gerður
var á milli Kanada, Bandaríkjanna
og Mexíkó og tók gildi 1. janúar
1994. Þessi samningur nær til rúm-
lega 487 milljóna manna. Hann
hefur m.a. leitt til þess að banda-
ríski bílaiðnaðurinn hefur að stórum
hluta flust til Kanada og Mexíkó. Þá
afnam hann m.a. margvísleg einka-
réttarákvæði á milli samningsland-
anna. Hefur Donald Trump, verð-
andi Bandaríkjaforseti, gagnrýnt
þennan samning harðlega og telur
að hann hafi stórskaðað bandarískt
atvinnulíf. Hvort hann stendur við
stóru orðin eða ekki, fær fólk svo
væntanlega að kynnast á komandi
mánuðum og misserum.
Fríverslunarsamningar Íslands
Ísland hefur líka gert sína
fríverslunarsamninga þótt í smærri
skala sé. Þar má fyrst nefna EFTA-
samninginn (European Free
Trade Association) milli Íslands,
Liechtenstein, Noregs og Sviss.
Síðan er samningurinn um Evrópska
efnahagssvæðið, EES, sem er
sameiginlegt markaðssvæði 31 ríkis
í Evrópu, þar af 28 ESB-ríkja. Sá
samningur hefur bæði verið talinn
til mikilla hagsbóta fyrir Ísland,
en af sumum líka til bölvunar.
Vegna hans hefur Ísland t.d. þurft
að breyta lögum og regluverki til
samræmis við Evrópusambandið.
Önnur ríki EFTA-samningsins eru
líka aðilar að EES, nema Sviss,
sem hafnaði aðild að samningnum
í þjóðaratkvæðagreiðslu. Auk
þessa er Ísland með ýmsa tvíhliða
viðskiptasamninga við önnur lönd,
þar á meðal við Kanada, Kína
og Færeyjar, eða svokallaðan
Hoyvíkur-samning.
Ísland þátttakandi í TiSA-
viðræðum bak við luktar dyr
TiSA, eða „Trade in Services
Agreement“, er enn einn samn-
ingurinn sem sagður er eiga að
auðvelda milliríkjaviðskipti með
þjónustu og auka gegnsæi í slíkum
viðskiptum.
Ísland, ásamt fimmtíu öðrum
ríkjum, tekur þátt í samninga-
viðræðunum en þar á meðal eru
aðildarríki ESB, Bandaríkin,
Kanada, Noregur, Sviss, Japan o.fl.
Samningurinn mun byggja á gildandi
samningum (GATS-reglum) og
fjalla m.a. um fjármálaþjónustu,
fjarskipta- og upplýsingatækni,
för þjónustuveitenda og rafræn
viðskipti. Virðist þar vera um sömu
grunnáherslur að ræða og í TPP-
samningnum.
Viðræðurnar eru formlega utan
WTO (World Trade Organization)
þótt 23 aðildarríki taki þátt í
samningagerðinni. Vonast er til að
fleiri aðildarríki WTO gerist aðilar
að TiSA-samningnum þegar fram
í sækir.
Eins og viðræður um aðra
viðskiptasamninga af þessum toga,
er almenningur ekki upplýstur mikið
um gang mála. Leyndin er því mikil
og hafa ESB ríkin t.d. einungis leyft
almenningi að kíkja á einstakar
tillögur. Samningafundir voru í
síðasta mánuði um TiSA, en engin
formleg dagsetning hefur verið
sett á hvenær samningaviðræðum
á að ljúka samkvæmt vefsíðu
framkvæmdastjórnar ESB.
Ísland er meðal fjölmargra þjóða sem eiga aðild að viðræðum um nýjan fríverslunarsamning, sem nefndur hefur
verið „Trade in Services Agreement“ skammstafað TiSA. Viðræðurnar fara fram með mikilli leynd samkvæmt
upplýsingum á vefsíðu framkvæmdastjórnar ESB.
Aðildarríki EES-samningsins. Öll ríki ESB auk EFTA-landanna að Sviss
undanskildu.
Áhrifasvæði CETA-samningsins milli Kanada og Evrópusambandsins.
Mótmæli í Mexíkó gegn TPP-samningnum. Þar á Donald Trump greinilega
einhverja samherja þrátt fyrir allt tal hans um að reisa múr á landamærunum.
Sprettur