Bændablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Norrænir og aðrir evrópskir bændur bera saman bækur sínar:
Heilbrigði og velferð
búfjár í brennidepli
Heilbrigði og velferð búfjár er
meðal mikilvægra mála sem
varða landbúnaðinn. Þetta við-
fangsefni eiga bændur sameigin-
legt, ekki hvað síst með kollegum
sínum á Norðurlöndunum og
annars staðar í Evrópu.
Margir þættir löggjafar ESB
um þessi mál eru lögleiddir hér
á landi í gegnum aðild að EES-
samningnum auk annars sem sam-
einar bændur í þessum löndum.
Ævinlega er það líka þannig að
þegar skæðir sjúkdómar breiðast
út eiga bændur í einu landi mikla
hagsmuni af viðbrögðum bænda
og yfirvalda í nágrannalöndum.
Á fundum sem ég hef sótt í haust
hefur margt áhugavert komið fram
og verður hér tiplað á nokkrum
punktum.
Sýklalyfjaþolnar bakteríur
Alls staðar er umræða um vaxandi
sýklalyfjaþol baktería á dagskrá
en hægt gengur að draga úr notk-
un þeirra. Til stendur að banna
íblöndun þeirra í fóður innan
ESB en að áfram verði heimilt að
blanda sýklalyfjum í drykkjarvatn
og nota þau í forvarnarskyni, þ.e að
gefa heilbrigðum dýrum sýklalyf,
dýrum sem ekki hefur verið greind
hjá þörf fyrir slíka meðhöndlun.
Notkun sýklalyfja án undan-
genginnar sjúkdómsgreiningar er
ekki leyfileg á Norðurlöndunum
og er litið á það sem nauðsynlegan
þátt í að tryggja ábyrga notkun
sýklalyfja. Þetta skýrir margfalda
notkun þeirra á við Norðurlöndin,
víða annars staðar í Evrópu. Þær
tillögur sem unnið er með innan
ESB til breytinga á reglum um
lyfja notkun fela einnig í sér að
bæta aðgengi að lyfjum.
Síðastliðinn vetur sendu
formenn bændasamtaka á
Norðurlöndunum, Norrænu ráð-
herranefndinni bréf þar sem þau
ítrekuðu þá afstöðu sína að banna
ætti notkun sýklalyfja í forvarnar-
skyni innan ESB og hvöttu þau
landanna sem eru aðilar að ESB
til að koma þessari afstöðu á
framfæri við setningu reglugerða
um þessi mál. Þessi afstaða hefur
vakið athygli út á við og mun full-
trúi frá dönsku bændasamtökunum
fylgja þessari afstöðu eftir á mál-
þingi sem haldið verður á vegum
Norrænu ráðherranefndarinnar 6.
desember nk.
Mikil umræða meðal bænda um
dýravelferð
Velferð búfjár var einnig til
umræðu á þessum fundum. Á fundi
í Brussel kom fram að aðeins 3 lönd
í ESB fylgja í reynd eftir banni við
halaklippingum á grísum. Mikil
umræða er einnig um geldingar
grísa en óvíst að takist að fram-
fylgja þeim áformum að banna þær
frá og með 2018. Afhornun á kálf-
um er annað vandamál af svipuðum
toga. Þá má nefna að ótti er meðal
bænda við vaxandi þol fyrir lyfjum
gegn sníkjudýrum (ormalyfjum).
Svínapest veldur áhyggjum
Nokkrir skæðir búfjársjúkdómar
herja nú á bústofna bænda í Evrópu.
Á fundi í samráðshópi bændasam-
taka í Evrópu um heilbrigði og vel-
ferð dýra var farið yfir það sem þar
ber hæst um þessar mundir. Miklar
áhyggjur eru af útbreiðslu afrískrar
svínapestar.
Sjúkdómurinn hefur greinst á
svínabúum í Eystrasaltslöndunum
þremur og Póllandi og hefur þegar
mikil áhrif á viðskipti með svín
og flutninga á þeim. Hann virð-
ist vera orðin nánast landlægur í
villisvínum á þessu svæði sem og
nærliggjandi héruðum í Rússlandi
og Hvíta-Rússlandi. Reynt er að
sporna við útbreiðslu hans með
veiðum á villisvínum, fyrst og
fremst gyltum, en áhersla er lögð
á að auka þekkingu veiðimanna og
bænda á smitleiðum til að verjast
því að smit berist í alisvín. Mikill
ótti er við að sjúkdómurinn berist
til nærliggjandi landa, þ.á m. hafa
Finnar og Svíar miklar áhyggjur.
Stór villisvínastofn er t.d. í Svíþjóð
og eitt af því sem reynt er að gera
til að sporna við fjölgun þeirra er
að fá fólk til að bera ekki út fóður
fyrir þau.
Húðsjúkdómar í nautgripum
Annar sjúkdómur sem breiðist
hratt í í SA-Evrópu kallast á
ensku Lump skin disease, og lýsir
sér sem hnjúskar eða bólgur á húð
nautgripa. Sjúkdómurinn greindist
fyrst í Grikklandi 2015 og barst
til fleiri landa á Balkanskaga og
SA-Evrópu sl. sumar en hann berst
með skordýrum. Breiðist hann mun
hraðar út en búist hafði verið við.
Bólusetningu er beitt til að stöðva
útbreiðslu hans og var sérstaklega
nefnt að vel heppnaðar aðgerðir í
Króatíu hafi skipt miklu máli sl.
sumar til að koma í veg fyrir að
hann bærist norðar í Evrópu. Eina
bóluefnið sem fáanlegt er, er fram-
leitt í S-Afríku og ekki framleitt í
samræmi við staðla ESB, evrópski
iðnaðurinn hefur ekki komið með
bóluefni en mikil þörf er á betra
bóluefni.
Blátunga útbreidd í Suður-
Evrópu
Blátunga (bluetounge) er þriðji
alvarlegi sjúkdómurinn sem herj-
ar á búfé í Evrópu og greindist þar
fyrir um 15 árum. Sjúkdómurinn er
nú útbreiddur í löndum í sunnan-
verðri Evrópu, þ.á m. Frakklandi,
Spáni og Portúgal, og herjar fyrst
og fremst á jórturdýr. Öll dýr ESB
eiga á hættu að fá sjúkdóminn til
sín þó reynt sé að sporna við því.
Bráðsmitandi fuglaflensa
Bráðsmitandi fuglaflensa (H5N8)
breiðist nú út um Evrópu og kom
fram hjá fulltrúum frá fram-
kvæmdastjórn ESB á fundinum í
Brussel um miðjan nóvember að
Evrópa stendur nú frammi fyrir
upphafi bráðsmitandi fuglaflensu-
faraldurs. Flensan hefur fundist í
villtum fuglum í Danmörku og
nú hefur verið staðfest að hún
hefur borist inn á bú þar í landi.
Stjórnvöld þar í landi hafa þegar
bannað að hafa alifugla utan dyra
og reiknað er með að slíkt bann
verði sett víðar. Flensan er t.d.
þegar komin inn á alifuglabú í
Ungverjalandi og alifuglaafurðir
þaðan, sem flytja átti til Asíu, hafa
verið endursendar. Sjúkdómurinn
veldur því þegar miklu fjár-
hagslegu tjóni hjá bændum, auk
kostnaðar við aðgerðir til að hefta
útbreiðslu hans.
ESB ver árlega háum fjárhæðum
í varnir gegn útbreiðslu sjúkdóma,
bæði þessa sem hér eru nefndir og
fleiri. Heilbrigðir búfjárstofnar
eru því ómetanleg auðlind okkar
Íslendinga. /EB
Landgræðsla ríkisins auglýsir hér með eftir
umsóknum um styrki úr Landbótasjóði
Landgræðslunnar, en sjóðurinn úthlutar árlega
styrkjum til margvíslegra landbótaverkefna til bænda,
sveitarfélaga, félagasamtaka og annarra umráðahafa
lands.
Við ákvörðun um styrkveitingar er m.a. lögð áhersla á:
Við mat á umsóknum er ennfremur tekið tillit til þess hvort
Styrkur til einstakra verkefna getur að hámarki numið
verkefna sem sjóðurinn styrkir og hefur jafnframt eftirlit
Umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur sjóðsins eru
Smellið svo á Umsóknareyðublöð.
Umsóknarfrestur er til 13. janúar nk. og umsóknir skal
land@land.is eða til Landgræðslu
ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hella.
Auglýsing um styrki úr Landbóta-
sjóði Landgræðslunnar árið 2017
Landgræðsla ríkisins
GE
YM
IÐ
A
UG
LÝ
SI
NG
UN
A
Til sölu
Eitt virtasta parketþjónustufyrirtæki
landsins frá 1984, er til sölu.
Upplýsingar gefur
Þorsteinn Geirsson í síma 898 1107.
Bændablaðið
Næsta blað kemur út 15. desember
FANNBERG FASTEIGNASALA EHF.
sími 487-5028
Guðmundur Einarsson lögg. fasteignasali
Til sölu er jörðin Helluvað 3 á Rangárvöllum ásamt kúabúi sem rekið
er á henni. Jörðin er staðsett við þéttbýlið á Hellu og er stærð hennar
um 600 hektarar, þar af er ræktað land 85 hektarar. Landið liggur að
Ytri Rangá og fylgir veiðiréttur í ánni. Á jörðinni er 171 fm íbúðar-
hús byggt 1985. Lausagöngufjós fyrir 48 gripi með haugkjallara og
mjaltagryfju, stærð 411 fm byggt 1980. Áföst fjósinu er 300fm hlaða
byggð 1973 og 133 fm flatgryfja byggð 1983. Auk þessa eru á jörðinni
nokkur eldri útihús í þokkalegu ástandi, heildarstærð þeirra nemur
um 810 fm. Greiðslumark í mjólk er 255.000 lítrar. Bústofninn telur
45 mjólkandi kýr og 50-60 kálfa og geldneyti. Nánari upplýsingar og
myndir á www.fannberg.is og á skrifstofu.
KÚAJÖRÐ Á SUÐURLANDI