Bændablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Umræður um forsetakosningarnar
í Bandaríkjunum (USA). líkt og
mat á því sem verið hefur að ger-
ast í íslenskri og evrópskri pólitík,
virðist byggðar á miklu skilnings-
leysi ráðandi þjóðfélagshópa, eða
svokallaðrar „elítu“.
Kosning Donalds Trump hefur
aldrei snúist um sérstakan áhuga
landsbyggðarbúa á þessari sérkenni-
legu persónu sem var tilbúin til að
standa uppi í hárinu á ráðandi öflum í
stærstu stjórnmálaflokkum landsins.
Þess í stað snerist málið um óánægju
með ríkjandi kerfi og þá elítu sem
stýrt hefur kerfinu. Þetta kemur vel
fram í fréttaskýringum fjölmiðla eins
og politico.com, New York Post og
fleiri.
Í svipaðan streng tók Financial
Times í vikubyrjun varðandi alhæf-
ingar hagfræðingaelítunnar um
ástæður og afleiðingar af Brexit-
kosningunum í Bretlandi. Bendir
FT líka á að raunveruleg ástæða
þess sem er að gerast í Bretlandi,
Bandaríkjunum og einnig varðandi
uppgang hægri öfgaafla í Frakklandi,
sé óánægja almennings með stjórn
þess kerfis sem er undirstaða að
rekstri þessara þjóðfélaga.
Sigur Donalds Trump er afleiðing
af tilraun millistéttar sem missti
mikið í efnahagshruninu, þ.e. fag-
menntaðra iðnaðarmanna, verka-
fólks og bænda til að láta hlusta á
sín sjónarmið. Þar var einfaldlega
enginn til staðar og í framboði sem
gat skipt sköpum nema Donald
Trump. Þetta endurspeglaðist vel í
ræðum frambjóðenda strax í sept-
ember 2015. Allra síst var Hillary
Clinton vænlegur kostur, en í upphafi
kosningabaráttu sinnar stillti hún
sér upp við hlið verðbréfaguttanna
á Wall Street.
Ráðandi öfl sem fylktu sér að
baki Clinton, þ.e. sjálfskipuð elíta
í menntun, pólitík og í fjármála-
geiranum, talaði allan tímann niður
til andstæðinga sinna og sakaði þá
um kynþáttafordóma, þröngsýni og
heimsku. Þeir tóku þessu greinilega
sem persónulegum árásum og dylgj-
um um þeirra kunnáttu og andlegu
hæfni frá fólki sem var uppfullt af
menntahroka. Þetta varð trúlega öðru
fremur til að beina andstæðingunum
beint í faðm Donalds Trump.
Það sem elítan skilur ekki enn
New York Post fjallaði m.a. um þetta
fyrir skömmu undir fyrirsögninni
„Það sem elítan skilur ekki enn varð-
andi bandaríska pólitík“ (What the
elites still don’t get about American
politics).
„Firring Demókrataflokksins
varðandi málefni verkafólks kann að
vera ný af nálinni. Tilvera kjósenda
úr verkalýðsstétt og spennan milli
borgarbúa og íbúa í dreifbýlinu er
það hins vegar ekki. Kosningarnar
nú snerust því ekki um endur-
skipulagningu flokksins heldur
endurfullyrðingu.
Erfiðisfólk gegn
„gáfaða“ fólkinu
Dreifbýliskjósendur í Pennsylvaníu,
Michigan, Ohio, Wisconsin, Iowa
og fleiri ríkjum hafa alltaf verið til
staðar. Þeir létu heyra í sér núna
með því að kjósa Donald Trump.
Þannig sýndu þeir innmúraðri elít-
unni hvað þeim finnst um að vera
stjórnað úr fjarlægð og hundsuð á
sama tíma. Pólitíska elítan er samt
ekki að skilja sneiðina og fullyrðir að
Trump sé aðeins afurð af sögulegri
ókyrrð og nýrra tilburða í banda-
rískri pólitík eða svæðisbundinnar
sérhagsmunahyggju. Hún stilli erfið-
isfólkinu (backwoods rednecks) upp
á móti heimsvana, gáfaða, háþróaða,
menntaða og fágaða fólkinu í borg-
unum.“
Síðan spyr greinarhöfundur New
York Post, „hefur þetta fólk aldrei
lesið sögubækur?“ Þá fer hann í smá
upprifjun á sögu Bandaríkjanna og
tilurð ríkjaskipunarinnar. Hvernig
sundruð ríki með svæðisbundna sér-
hagsmuni sameinuðust gegn bresku
valdi. Þrátt fyrir sameininguna
hafi alltaf verið til staðar andstæð
öfl með mismunandi hagsmuni.
Ríkjandi elítan hafi bara ekki skil-
ið almenning og geri ekki enn. Það
hafi m.a. verið grunnurinn að hinni
illa skipulögðu Whiskey uppreisn
í Vestur-Pennsylvaníu 1791 í tíð
Georg Washington forseta. Ætlunin
hafi verið að neyða elítuöflin í borg-
unum við ströndina til að skilja þarfir
fólkisn sem þá var að ryðja braut
landnem anna. Það snerist að miklu
leyti um viðskiptahagsmuni og eins
var það ákall um vernd gegn bresk-
um agentum og árásum indíána. Á
móti var elítan óánægð með að þurfa
að greiða skatta til að leggja vegi
inn í landið, til að koma upp nýjum
skólum og til að halda úti her. Ráð
elítunnar var að skella á sérstökum
Whiskey-skatti sem bitnaði illa á
framleiðendunum í innríkjunum.
Bendir greinarhöfundur einnig
á að þegar Andrew Jackson var
kosinn forseti og nefndur „forseti
fólksins“ þá hafi elítan litið á hann
sem popúlista. Kosning hans hafi þó
fyrst og fremst verið uppreisn fólks-
ins í landinu gegn ráðandi öflum við
ströndina. Hann heldur síðan áfram:
„Í landi sem er jafn stórt og fjöl-
breytt og Bandaríkin ætti engan að
undra að sérhagsmunahyggja sé
þar til staðar. Það sem vekur hins
vegar undrun er hvað þetta kemur
elítunni á óvart. Svo mjög, að hún
flokkar þetta sem kynþáttafordóma
(racism), þröngsýni og eða heimsku
og reynir ekki að skilja hvað um er
að vera.
Íbúar í dreifðum byggðum
Bandaríkjanna vilja ekki að svæð-
isbundinn ágreiningur valdi klofn-
ingi. Þvert á móti líta þeir á slíkan
ágreining sem styrkleika. Þeir vilja
að ríkin standi saman. Viðbrögð
borgarbúaelítunnar við sigri Trump
mun síðan leiða í ljós hvort hún vilji
það sama.“
Kolrangar og villandi spár
sérfræðinga
Wolfgang Münchau, dálka höfundur
Financial Times, skrifaði einmitt
um skilningsleysi eltítunnar á því
hvað sé að gerast beggja vegna
Atlantsála. Þar hafi spunameistarar
úr stétt hagfræðinga og skriffinnar
hins opinbera, m.a. innan veggja
Evrópusambandsins, hvað eftir
annað komið fram með spár sem
voru hreinn uppspuni. Það var gert
til að reyna að hafa áhrif á afstöðu
almennings.
Kosningar í Bretlandi og
Bandaríkjunum hafi svo staðfest
hversu óáreiðanleg spálíkön þeirra
eru. Þar hafi verið settar fram full-
yrðingar um niðurstöðu sem reynd-
ust svo kolrangar. Þetta var sett
fram þrátt fyrir augljósa óvissu í
aðdraganda kosninga þar sem eina
tæknilega rétta svarið var „ég veit
það ekki“.
Fyrir Brexit-kosningarnar var
alið á ótta (Project Fear) við úrsögn
úr ESB. Einnig að fólk ætti að
hlusta á orð sérfræðinganna,
sem voru reyndar dregnir fram
hver af öðrum, meira að segja for-
seti Bandaríkjanna. Það hafi reynst
kolröng nálgun og hrein heimska.
Staðan er einfaldlega sú að fólkið
sem vantreystir kerfinu var fyrir
löngu farið að vantreysta öllum sér-
fræðingum kerfisins.
Vantraustið er líka á Íslandi
Þetta ættu menn líka að þekkja vel
hér á Íslandi. Ríkisstjórnir hafa t.d.
verið kolfelldar og flokkar nán-
ast þurrkaðir út vegna vantrausts
almennings. Traust almennings á
sérfræðingum bankanna og annarra
stofnana ríkisins er heldur vart til að
hrópa húrra fyrir. Nýjasta dæmið
um vantraust á stofnanasérfræðing-
um er brúneggjafárið sem upplýst
var um í Kastljósi sl. mánudag.
Það er kannski helst að lögreglan
á Íslandi haldi enn haus gagnvart
trausti almennings á kerfið. Lagning
rafstrengs til Bretlands, sem enn
og aftur hefur poppað upp í frétt-
um, er líka gott dæmi um hvernig
slíkt stórmál er keyrt áfram á sömu
blindu forsjárhyggju „stofnanasér-
fræðinga“.
Vantraust á
fríverslunarsamninga
Dálkahöfundur Financial Times
heldur áfram og bendir á það sem
verið hefur að gerast varðandi frí-
verslunarsamninga landa á milli. Þar
sé mikil andstaða meðal almennings
sem treystir því ekki hvað embættis-
menn og pólitíkusar séu þar að gera.
Það eigi við nýgerðan fríverslun-
arsamning ESB við Kanada og ófull-
gerðan TTIP-
samning við
Banda ríkin.
Fólk óttist
að verið sé
að ganga
á snið við
n e y t e n d a -
vernd í þágu hremminga
(grabbing) alþjóðlegra valdamikilla
stór fyrir tækja á valdi þjóðríkja.
Spinna upp pólitískar lagaflækjur
„Hagfræðisérfræðingarnir héldu að
enginn dirfðist að skora yfirvöld á
hólm. Enda hafa ítalskir pólitíkusar
leikið svona valdatafl alla tíð. Það er
síðan hlutverk embættismanna ESB
að finna snjallar leiðir til að spinna
upp pólitískar lagaflækjur og samn-
inga sem yfirtaka lög þjóð ríkjanna
sem aðild eiga að ESB. Kerfið held-
ur áfram þessum spuna þrátt fyrir að
menn horfi
á afleið-
i n g a r n a r
með upp-
gangi afla
á borð við
frú Marine
Le Pen í
Frakklandi,
herra Beppe
Grillo á Ítalíu
og Geert Wilder
í Þýskalandi.“
D á l k a -
höf und ur inn
heldur áfram
og segir kerfið óhæft
til að taka á þessum vanda.
Rétt viðbrögð hefðu verið að
hætta að móðga kjósendur, og það
sem meira er, að komast undan
áhrifum fjármálageirans. Taka á
ójöfnuði í tekjum og stjórnlausu
flæði fólks.
Á evrusvæðinu hafa pólitískir
leiðtogar helst fundið sér það verk-
efni að reyna að böðlast í gegnum
bankakreppuna og dýpka um leið
skuldakreppuna. Bara til að komast
að því að skuld-
ir Grykkja
eru ekki
sjálfbær-
ar og að
í t a l ska
b a n k a -
kerfið er
í alvarleg-
um vanda.
Eftir átta ára
baráttu eru fjárfestar enn að veðja
sínum pen-
ingum á hrun
evrusvæðisins
eins og við
þekkjum það.
H e r r a
Matteo Renzi
(forsætisráð-
herra Ítalíu)
hefði getað
notað sinn
pólitíska tíma
til að endur-
skipuleggja
peningakerfi
Ítalíu í stað
þess að leggja
allt í að styrkja
sín pólitísku
völd. Ímyndið
ykkur svo
hvað Angela
Merkel, kansl-
ari Þýskalands,
hefði getað
í mun stærra hagkerfi til að finna
lausn á fjölþættum vanda evrusvæð-
isins eða draga úr óhóflegri offram-
leiðslu.
Ef þú vilt berj ast við öfga öflin,
leystu þá vandamálið sem að baki
liggur.“
Síðan klykkir dálka höf undur
Financial Times út með því að segja:
„Varðhundar vestræns kapítal-
isma hafa, eins og forverar þeirra,
greinilega ekkert lært og engu
gleymt.“
„Það sem elítan skilur ekki enn“
− Hún stillir „sveitalubbum“ í dreifbýlinu upp sem andstæðingum „heimsvana gáfaða fólksins“ í borgunum, segir í New York Post
Andrew Jackson, sem var forseti
Bandaríkjanna 1829 til 1837, er ef-
-
Fréttaskýring
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
-
Brexit-kosningar í Bretlandi og for-
setakosningarnar í Bandaríkjunum
Geert Wilder