Bændablaðið - 01.12.2016, Síða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Sauðfjárrækt í „alvörugamni” á Ósabakka 1
Hér verður mjög stuttlega sagt frá
sauðfjárrækt í alvörugamni. Og
hvað er nú átt við með því? Jú,
hér er um að ræða ræktun sem
tekin er í fullri alvöru og rekin
sem slík en þó stunduð meira
til gamans og af forvitni en til
aukinnar framlegðar á ákveðinni
markaðsvöru svo sem ull eða keti.
Þó víkur hún ekki frá því markmiði
að vera ræktun á úrvalsgóðu fé.
Þessi alvörugamansræktun er
stunduð í góðum fjárstofni og er
knúin af forvitni um möguleikana
sem búa í stofninum og þeirri
ánægju sem hafa má af því að ná
árangri í aukinni vitneskju um bæði
fjárstofninn og einstaka gripi innan
hans, ánægjunni af því að uppgötva
og finna nýtt, rækta og sjá það sem
maður hefur ekki séð áður og veit
fyrirfram kannski ekki einu sinni
hvort er mögulegt.
Í íslenska sauðfjárstofninum
búa eiginleikar sem eru óvenjulegir
eða sjaldgæfir ef við tökum mið
af hinu algenga og sjálfsagða.
Margir ræktendur sauðfjár og
framleiðendur sauðfjárafurða hafa
litla vitneskju um ýmsa þessa þætti
stofnsins, hafa ekki séð þá eða átt,
ekki veitt þeim athygli eða haft á
þeim áhuga.
Hér verður tæpt á tveim
sjaldgæfum svona þáttum í
fjárstofninum okkar og sýndar
myndir til nánari útskýringa. Um er
að ræða fyrirbærin golsubotnótt fé
annars vegar og brúskfé hins vegar.
Í allmörg ár höfum við Jökull
Helgason á Ósabakka af og til átt
spjall um sauðfé, og þá yfirleitt um
eitthvað skemmtilegt og óvenjulegt
í fari þess. Jökull er mikill og góður
sauðfjárræktandi. Hann lætur heldur
ekki langt líða frá hugmynd til
framkvæmdar og því líður ekki á
löngu áður en hann er með gripinn
sprelllifandi sem við höfðum verið
að bollaleggja og velta vöngum
yfir einhvejum misserum fyrr,
langað að sjá og þreifa á, og vissum
ekki endilega hvernig myndi líta
út í smáatriðum ef hann þá væri
ræktanlegur.
Þeir gripir sem hér verður sagt
frá og sýndar myndir af eru sem
sagt orðnir til í fjárhúsum Jökuls
og fyrir hans glöggskyggni og
röggsemi í ræktun, stundum vegna
forvitnispurninga minna.
Golsubotnótt
Fyrir nokkrum árum fór ég að leita
að golsubotnóttu fé. Af því virtist
vera afar lítið í stofninum og sumir
sem ég spurði vissu ekki einu sinni
um hvað spurningar mínar snerust.
Þegar mynstur þetta er gaumgæft,
kemur líka í ljós að einkenni þess
eru slík að auðvelt er að láta sér
yfirsjást, þótt slíkir gripir beri manni
fyrir augu. Ég ræddi golsubotnótt
við Jökul og þar sem hann átti bæði
botnótt og golsótt fé áttaði hann sig
strax og leið ekki nema árið áður
en hann var með nokkur slík lömb
í hjörðinni.
Hvað er þá golsubotnótt og
hvernig lítur það út? Eins og felst
í heitinu er golsubotnótt blanda
af mynstrunum sem við köllum
golsótt annars vegar og botnótt
hins vegar. Liturinn sem mynstrið
kemur fram í getur verið hvort sem
er svartur eða mórauður. Einnig er
flekkótt golsubotnótt möguleiki,
og hvítt getur hulið golsubotnótt.
Til að þetta verði skiljanlegt er
líklega nauðsynlegt að lýsa bæði
golsóttu og botnóttu mynstri áður
en golsubotnótta mynstrinu sjálfu
er lýst.
Golsótt einkennist af því að
kindin er ljós að ofan og niður eftir
hliðunum en dökk undir kvið og
hefur dökka fætur og dökkan haus.
Dökki liturinn teygir sig upp eftir
lærum innan- og aftanverðum allt
upp með dindli og gjarna líka upp
eftir hálsi að framan og upp undir
kverk. Liturinn á haus og leggjum
er ekki eintóna heldur tekur á sig
mismunandi litblæ, mjög gjarnan
svokallaðan saffranóttan litblæ,
dökkan írauðan eða gulan lit. Þá sést
stundum að dauf lituð mön teygir sig
frá hnakka og mislangt aftur eftir
baki. Ofan og framan augna og
aðeins niður eftir nefbeini utanverðu
er mjög gjarnan dökk rönd. Litaskil
ljóss og dökks eru skörp á mörkum
kviðar og síðu.
Botnótt einkennist af því að
kindin er ljós á kviðinn en dökk að
ofan og niður eftir hliðunum. Ljóst
teygir sig, aðeins mismikið þó, upp
eftir brjósti og hálsi og þá gjarnan
alveg fram undir kverkina og um
neðri vör. Ljóst teygir sig upp eftir
fótunum innan- og aftanverðum
og upp meðfram dindlinum hvort
sínum megin megin, en hann er þó
dökkur sjálfur. Haus og fætur eru
dökk en taka ekki á sig sambærileg
litbrigði og gerist hjá golsóttu. Ljós
rönd er þó stundum á hausnum
ofan augna, sambærileg við dökku
röndina á golsóttu en yfirleitt minni
og óskýrari. Litaskilin eru skörp á
mörkum kviðar og síðu eins og í
fyrra tilvikinu.
Hvernig er þá hægt að búa til nýtt
mynstur úr þessu tvennu, þar sem
þessi tvö mynstur virðast í grund-
vallaratriðum vera andstæður hvað
varðar dreifingu ljóss og dökks? Því
skal nú lýst.
Golsubotnótt lýsir sér í því að
mest öllum lit úr hinum tveim
mynstrunum er eytt, þó ekki alveg.
Golsubotnótt hefur ljósan kvið og
líka ljósan efri hluta. En þar sem
litaskilin eru hjá botnóttu og gols-
óttu verður eftir mjó dökk rönd. Þessi
rönd er á mörkum síðu og kviðar og
sést líka í mörgum tilvikum þvert
yfir kvið framan við júgrið. Upp
eftir hálsinum framanverðum teygir
sig gjarnan veik litrönd og eins upp
eftir lærunum aftanverðum. Þessar
rendur eru ekki útlínuskarpar og eru
fljótar að hverfa í ullina þegar féð
gerist loðið. Þær sjást hins vegar vel
á nýrúnum kindum, eins og með-
fylgjandi myndir sýna. Á nýrúnu má
sjá að það er eins og liturinn á efri
hluta kindarinnar hverfi ekki algjör-
lega. Aðeins eimir eftir af honum, en
þetta er ósýnilegt með öllu á fénu
loðnu. Botnóttu eða öllu heldur gols-
óttu einkennin á höfði og fótum eru
til staðar en eru stundum ekki eins
sterk eða glögg og hjá hreingolsótt-
um kindum. Í stuttu máli má segja
að ljósu einkennin hjá botnóttu og
golsóttu mynstrunum séu lögð saman
í golsubotnóttu.
Á myndunum sem sýna þetta og
teknar eru á Ósabakka er þremur
gimbrum, botnóttri (A), golsóttri (B)
og golsubotnóttri (C) stillt upp hlið
við hlið og þær sýndar bæði undir
kvið og svo aftan frá. Þær eru allar
nýrúnar og einkennin eru því skýr.
Þar má m.a. sjá að aðeins vottar fyrir
meiri lit á síðum þeirrar golsubotn-
óttu en á kviðnum. Einnig er áberandi
litur á hálsi hennar og aftan á lærum.
Hins vegar er línan þvert yfir kviðinn
framan júgurs ekki heil alla leið yfir.
Þessar þrjár gimbrar eru allar
fæddar síðastliðið vor, 2016, og er
ekki beinn og náinn skyldleiki með
þeim. Sú sem kölluð er A á mynd-
unum er nefnd Strípa og kemur við
sögu í frásögninni hér á eftir líka.
Strípa er undan Töffa, sem er svart-
golsubotnóttur á lit og Stungu, sem
er hvít. Gimbur B á myndunum er
Jóna, undan sæðingarhrúti, sem heit-
ir Jónas og er svartgolsóttur flekk-
óttur og Botnu, sem er svartbotnótt.
Gimbur C á myndunum er Dúfa
undan Hafri, sem var svartgolsóttur
og Örnu, sem er svartbotnótt arn-
höfðótt.
Brúskfé
Það munu vera um tvö ár síðan ég
nefndi það við Jökul að mig lang-
aði mikið að sjá stóran mislitan og
ábúðarmikinn ferukollóttan hrút. Sá
hrútur er ekki enn vaxinn úr grasi
en til hans hefur verið stofnað og í
þeirri viðleitni hafa komið fram afar
athyglisverðar gimbrar.
Nýrúin svartgolsubotnótt kind séð á hlið. Litröndin sem eftir verður á golsubotnóttu fé þar sem litaskilin eru á bæði
Litmynstrin borin saman eins og þau eru á kindunum
svartgolsótt. C er Dúfa svartgolsubotnótt.
Litmynstrin borin saman eins og þau sjást aftan frá.
Kindurnar eru merktar eins og á fyrri myndinni.