Bændablaðið - 01.12.2016, Síða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
„Það eru margir sem skilja ekki
neitt í því hvernig við nennum
að standa í þessu. Að þeytast á
milli félagsheimila vítt og breitt
um landið, standa upp á sviði og
spila og syngja í fjóra tíma og
hendast svo á einhvern annan
stað jafnvel í órafjarlægð,“ segir
Friðjón Ingi Jóhannsson, sem fer
fyrir Danshljómsveit Friðjóns
Jóhannssonar.
Hljómsveitin var stofnuð árið
1995 og hefur verið að óslitið síðan.
Nýr diskur frá sveitinni var að koma
á markað; Austfirskir staksteinar 3
heitir sá og er, eins og heitið ber
með sér, sá þriðji í röð staksteina
austfirskra. Hinir fyrri komu út árið
1996 og 2003.
Friðjón svarar þeim sem skilja
ekki þrautseigju hljómsveitarmeð-
lima við þeyting og spilamennsku
á dansleikjum á þennan veg: Það er
adrenalínið. Þetta er svo ofboðslega
skemmtilegt. Og gefandi. Við fáum
mikið út úr þessu. Sumir fara út að
hlaupa, ganga á fjöll eða hvaðeina,
þetta er okkar áhugamál og okkur
þykir þetta langt í frá þreytandi eða
slítandi. Þá værum við auðvitað
ekki að þessu, auk þess sem gestir
á dansleikjum myndu fljótt finna ef
spilamennskan væri ekki af heilum
hug. Við gefum allt í þetta, reynum
eftir bestu getu að lesa salinn, hvað
fólk vill heyra og dansa við, þannig
að prógrammið hjá okkur getur verið
breytilegt eftir aldurssamsetningu og
stuðinu hverju sinni.“
Í mjólkuriðnaði í 40 ár
Friðjón Ingi er að austan,
Héraðsmaður í húð og hár og hefur
starfaði í mjólkuriðnaði í fjóra
áratugi. Hann er búfræðingur frá
Hvanneyri, var þar við nám á árunum
1974 og 1975 og á góðar minningar
frá árum sínum þar.
„Ég fór beint að námi loknu aftur
austur og til starfa hjá Mjólkursamlagi
K.H.B. á Egilsstöðum þar sem ég fór
á samning hjá öðlingnum Svavari
Stefánssyni og hélt síðan í mjólk-
urfræðinám til Danmerkur, þar sem
ég var árin 1978 til 1979,“ segir
Friðjón. Hann hóf að nýju störf að
námi loknu hjá Mjólkursamlaginu á
Egilsstöðum sem á þeim tíma var að
flytja í nýtt hús.
„Það var nóg að gera í því starfi,
fjölbreytt framleiðsla, árið 1975 voru
alls 146 kúabú á félagssvæðinu,“
segir hann og nefnir sem dæmi um
þá þróun sem orðið hefur í mjólk-
urframleiðslunni að kúabúin séu
nú innan við 30 talsins á svæðinu,
en þau séu vissulega mun stærri en
áður var.
„Mér fannst einhverjar blikur á
lofti þegar kom fram að aldamót-
um og taldi verulegar líkur á að
samlagið yrði lagt af. Ég fór því að
hugsa mér til hreyfings,“ segir hann
en tilfinning hans reyndist á rökum
reist, samlagið á Egilsstöðum var
selt Mjólkurbúi Flóamanna og eftir
stóru MS-sameininguna var tekin
ákvörðun um að leggja samlagið á
Egilsstöðum niður. Eftir dramatískt
ferli var þeirri ákvörðun þó snúið, en
framleiðslan eystra einfölduð og sér-
hæfð, þar var eftir breytingar einung-
is framleiddur Mozzarella-ostur.
Mikið til af minnisblöðum
Friðjón flutti ásamt fjölskyldu sinni
til Akureyrar árið 2000 og réð sig
til Mjólkurbús Flóamanna, eins
undarlega og það nú hljómar. Þar
tók hann við starfi mjólkureftirlits-
manns á svæði Mjólkursamsölunnar
í Reykjavík, með starfsaðstöðu
á Akureyri og í Borgarnesi, en
Mjólkurbú Flóamanna hafði þá
tekið að sér að sjá um mjólkureftirlit
á því svæði. Það náði allt norður í
Húnavatnssýslur, vestur í Dali og
Vestfirði og niður í Borgarfjörð
og Kjós. Þá var hann einnig aftur
kominn inn á sitt gamla svæði
Mjólkurbús K.H.B. á Egilsstöðum,
þar sem samlagið var nú komið í
eigu Mjólkurbús Flóamanna. Þessu
starfi gegndi Friðjón í sjö ár.
„Þetta var mjög skemmtilegt
tímabil og ómetanlegt að kynnast
bændum á mismunandi svæðum
landsins, en svakaleg vinna og svæð-
ið stórt. það voru miklir umbrotatímar
í iðnaðinum á þessum árum, bæði
umdeildar sameiningar og eins mjög
hertar kröfur til gæða framleiðslunnar
frá bændum. Ég lagði alltaf mikið upp
úr góðri þjónustu við bændur, enda af
bændum kominn, og ekki má gleyma
því að bændur eiga fyrirtækið. Það
voru því mikil viðbrigði að komast
undir þak þegar ég réð mig til starfa
hjá MS Akureyri árið 2008, eftir
allan þvælinginn sem fylgir mjólk-
ureftirlitsstarfinu.“
Friðjón kveðst oft og tíðum hafa
verið gagnrýninn á þær ákvarðanir
sem teknar hafa verið á umliðnum
árum í mjólkuriðnaðinum, telur
margar þeirra orka tvímælis, en telur
ekki rétt að tíunda þær skoðanir nánar,
slíkt geti haft afdrifaríkar afleiðingar.
„Það má þó koma fram að á 40 ára
ferli mínum í mjólkuriðnaðinum
hefur mikið orðið til af minnisblöð-
um, góðum og slæmum, og vinna
hafin við að opinbera þau á einn eða
annan hátt í fyllingu tímans.“
Í hljómsveitarbransanum frá 1972
Friðjón hefur meðfram sínum dag-
legu störfum stundað spilamennsku
af miklu kappi.
„Ég hóf ferilinn í Alþýðuskólanum
á Eiðum árið 1972 í hljómsveit sem
bar nafnið Thule 2,5. Þaðan lá leiðin
í hljómsveitina Völund og ég kom
svo víða við, þar má nefna hljóm-
sveitirnar Bigg-Fí-band, Skruggu,
Panik, Mánatríó og Slagbrandi. Það
er svo árið 1986 sem hljómsveitin
Bergmál var stofnuð og starfaði hún
allt til ársins 1995, að vísu á tímabili
undir nafninu Tríó Eyþórs.
Þá var stofnuð Danshljómsveit
Friðjóns Jóhannssonar. Sú hljóm-
sveit var stofnuð í því skyni að spila
á einu balli. Það vatt heldur betur
upp á sig, samkomustaðirnir sem
sveitin hefur leikið fyrir dansi á eru
orðnir 110 talsins í öllum lands-
hlutum „og við erum enn að,“ segir
Friðjón.
Með honum í sveitinni eru þeir
Árni Jóhann Óðinsson, sem leik-
ur á gítar og syngur, og Daníel
Friðjónsson, sonur Friðjóns, er á
trommum, en sjálfur er Friðjón á
bassanum auk þess að syngja.
Milli þess sem strákarnir þeytast
þvers og kruss um landið og spila á
böllum hér og hvar hafa þeir gefið
út fjölda diska. Sá nýjasti var að
koma á markaðinn og er sá þriðji í
röðinni með lögum eftir austfirska
Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar − sendir frá sér þriðja diskinn í röðinni Austfirskir staksteinar:
Viljum fyrst og fremst varðveita
dans- og dægurlög
− og forða þeim frá glötun
Friðjón Ingi Jóhannsson, tónlistarmaður, búfræðingur og mjólkureftirlitsmaður, starfar nú hjá MS-Akureyri og er þar á fullu í að framleiða smjör. / MÞÞ