Bændablaðið - 01.12.2016, Side 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
lagahöfunda. Hann heitir sem áður
segir Austfirskir staksteinar 3 og
kemur í kjölfar tveggja samnefndra
diska sem einnig innhalda lög eftir
lagahöfunda að austan. Einnig
kom út árið 1997 nítján laga diskur
sem inniheldur 19 lög eftir Óðin
G. Þórarinsson frá Fáskrúðsfirði.
Fyrstu þrír diskarnir eru nú algerlega
ófáanlegir, en þá var brugðið á það
ráð árið 2006 að gefa út 44 laga tvö-
faldan safndisk, en þeir félagar voru
að fá þriðju útgáfu af þeim diskum í
hendurnar, jafnhliða þeim nýja.
Varðveislugildið skiptir mestu
„Það sem fyrir okkur vakir með
þessari útgáfu er að varðveita
dans- og dægurlög eftir hina ýmsu
höfunda sem tengjast Austurlandi
á einhvern hátt. Það er fyrst og
fremst sú hugsjón sem rekur okkur
áfram í þessu, að forða verkum sem
í flestum tilvikum eru eftir minna
þekkta höfunda, frá glötun. Má því
segja að það sé aðalmarkmið okkar
með útgáfunni og höfum við fengið
mikið þakklæti fyrir sem við kunn-
um auðvitað vel að meta.
Lögin hafa komið til okkar með
ýmsu móti, fyrir utan það að þekkja
svæðið býsna vel tónlistarlega, þá
gaukar fólk þeim að okkur hér og
hvar, sum hef ég fengið í hendur á
ferðum mínum um svæðið, en nú
veit fólk líka af okkar hugsjón og
hefur samband,“ segir Friðjón og
bætir við, að hann og félagar lúri enn
á mörgum lögum á lager. Þau bíði
þess að tækifæri gefist til að gefa út.
„Það er minn draumur að gefa út
fleiri diska, það væri mjög gaman
að geta gefið út diska með laga- og
textahöfundum frá fleiri landshlut-
um. Staksteinum að norðan, vestan
og sunnan. Við finnum vonandi einn
góðan veðurdag tíma og grundvöll
til að sá draumur rætist.“
Útgáfustarfsemin er alfar-
ið í höndum félaganna í
Danshljómveitinni, þeir sjá um allar
hliðar málsins og gera það til hliðar
við hefðbundinn hljómsveitarrekstur
og önnur störf. Friðjón segir marga
hafa lagt þeim lið, leikið með þeim
á hin ýmsu hljóðfæri og kunni hann
þeim bestu þakkir fyrir, en þeirra
stoð og stytta í þessari vinnu frá
árinu 2000 hefur verið Brynleifur
Hallsson, mjólkurfræðingur og tón-
listarmaður á Akureyri. Á meðan
allir meðlimir hljómsveitarinn-
ar bjuggu á Egilsstöðum var það
hins vegar Einar Bragi Bragason,
þá skólastjóri Tónlistarskólans á
Seyðisfirði, sem sá um upptökur
og útsetningar.
Góðar viðtökur
„Viðtökur almennings við okkar
diskum hafa verið afar góðar, fólk
tekur þeim fagnandi og hefur greini-
lega ánægju af. Við segjum stundum
bæði í gamni og alvöru að mark-
hópurinn sé 50+ til 100 + og skömm-
umst okkar síður en svo fyrir það.
Þetta eru að mestu alveg óþekkt lög
eftir höfunda sem í flestum tilfellum
hafa ekki skapað sér nafn í hinum
viðurkennda poppiðnaðarheimi.
Við höfum þetta sem áhugamál,
stöndum í þessu öllu alveg sjálfir,
sjáum um útgáfu og dreifingu frá
A til Ö, án allra styrkja. Við lítum á
þetta sem okkar framlag til alþýðu-
menningar hér á landi og erum
stoltir af því. Þessi tónlist virðist þó
ekki hátt skrifuð hjá Svæðisútvarpi
Reykjavíkur og nágrennis (RÚV),
sem er rekið undir slagorðinu útvarp
allra landsmanna, en það er bara í
góðu lagi, við þurfum ekkert á því
að halda,“ segir Friðjón og ekki laust
við að greina megi góðlátlegt glott
á vörum hans.
/MÞÞ
Bílabúð Benna
Sími: 590 2045
www.benni.is
RÉTTU DEKKIN KOMA ÞÉR ALLA LEIÐ!
Fáðu aðstoð við val á réttu dekkjunum fyrir
þig hjá söluaðilum okkar um land allt
Hér er Kristján við tæki hjá MS-Akureyri sem nýlega var tekið í notkun og í daglegu tali er nefnt Smjörbyssan.
Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar. Árni Jóhann Óðinsson, sem leikur
á gítar og syngur, og Daníel Friðjónsson, sonur Friðjóns, er á trommum, en
sjálfur er Friðjón á bassanum auk þess að syngja.