Bændablaðið - 01.12.2016, Page 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Væntingar af erfðabreyttri ræktun hafa ekki staðist:
Enginn marktækur ávinningur
umfram hefðbundna ræktun
– er niðurstaða nýlegrar rannsóknar í The New York Times
Efasemdir eru um að árangur-
inn af ræktun á erfðabreyttum
plöntuafbrigðum standist þær
væntingar sem lagt var upp með
í upphafi. Í rannsókn sem Danny
Hakim, blaðamaður The New
York Times, hefur nýlega gert
kemur í ljós að slík plöntuafbrigði
hafa ekki aukið uppskerumagn
í Bandaríkjunum og Kanada
umfram það sem búast má við af
hefðbundnum yrkjum. Þá hefur
ekki dregið úr eiturefnanotk-
un (e. pesticides) í landbúnaði
með slík plöntuafbrigði þegar á
heildina er litið.
Fyrirheit sem gefin voru um
ávinninginn af erfðabreyttum
plöntuafbrigðum voru tvenns
konar. Annars vegar að með því
að gera plönturnar ónæmar fyrir
illgresiseyðum og ýmsum skaðvöld-
um, myndu þær verða svo öflugar
að ekki væri hægt að sniðganga þær
í þeirri baráttu að brauðfæða hinn
sívaxandi fólksfjölda heimsins. Þá
voru fyrirheit gefin um að færri
tegundir eiturefna þyrfti að nota í
ræktun á erfðabreyttum afbrigðum.
Fyrirheitin innistæðulaus
Raunar kemur í ljós þegar gögn eru
skoðuð að á þessum 20 árum, sem
liðin eru frá því að Bandaríkin og
Kanada kynntu þessar erfðabreyttu
ræktunartegundir til sögunnar, að
fyrirheitin voru innistæðulaus. Í sam-
antekt blaðsins, sem unnin er úr gögn-
um frá Sameinuðu þjóðunum, kemur
fram að Bandaríkin og Kanada hafa
ekki notið neins ávinnings af hinum
erfðabreyttu ræktunarafbrigðum í
uppskerumagni. Eru dæmi tekin um
ræktun á maís, repju og rauðrófum
(sugar beet).
Til að fá marktækan samanburð
var árangurinn vestan hafs borinn
saman við hefðbundinn nútíma-
legan landbúnað í Vestur-Evrópu,
eins og stundaður er í Þýskalandi og
Frakklandi. Auk gagna frá Sameinuðu
þjóðunum er vísað til nýlegrar skýrslu
National Academy of Sciences þar
sem sams konar niðurstöður koma
fram.
Á þessu 20 ára tímabili hefur
notkun á illgresiseyðum aukist í
Bandaríkjunum, jafnvel þótt undir-
stöðunytjajurtir eins og maís, soja-
baunir og bómull, hafi færst yfir í
erfðabreytt afbrigði. Bandaríkin hafa
í raun ekki haldið í við Frakkland,
sem framleiðir mest evrópskra
þjóða af slíkum nytjajurtum, í því
að draga úr notkun eiturefna í slíkum
landbúnaði. Tölur frá United States
Geological Survey sýna að frá því að
erfðabreyttu plöntuafbrigðin maís,
bómull og sojabaunir voru kynnt
til sögunnar í Bandaríkjunum hefur
notkun á eiturefnum, sem drepa
sveppi og skordýr, dregist saman
um þriðjung. Hins vegar hefur notk-
un á illgresiseyðum, sem mun meira
er notað af, aukist um 21 prósent. Í
Frakklandi hefur hins vegar notkun
á sveppa- og skordýraeitri dregist
saman um 65 prósent á sama tíma og
illgresiseyðanotkun um 36 prósent.
Vísbendingar um skaðsemi
eiturefnanna
Í umfjöllun blaðsins er tekið fram
að flest haldbær vísindaleg gögn
bendi til að neysla á erfðabreyttum
matvælum sé skaðlaus. Hins vegar sé
sjónum vísindamanna æ meira beint
að hugsanlegum skaðlegum áhrifum
af neyslu á eiturefnum sem notuð eru í
landbúnaði, sem talið er að geti valdið
krabbameinum og þroskahömlun í
miðtaugakerfi barna.
Hakim segir í grein sinni að fram-
leiðendur erfðabreyttra ræktunaraf-
brigða njóti góðs af því að selja bæði
fræin og eitrið sem bændur þurfa
að nota þegar þeir gangast inn á að
rækta þessi erfðabreyttu afbrigði.
Þetta fyrirkomulag leiði til gríðarlegs
fjárhagslegs ávinnings fyrir stærstu
fyrirtækin á þessu sviði í ljósi þess að
notkun á illgresiseyðum virðist fara
sífellt vaxandi í erfðabreyttri ræktun.
Robert T. Fraley, yfirmaður
tæknimála hjá líftæknifyrirtækinu
Monsanto, var inntur eftir áliti á
niðurstöðum rannsóknar Hakim. Í
svari hans kemur fram að blaða-
maður hafi handvalið gögn í þeim
tilgangi að sverta ímynd tækninn-
ar. Bændur væru útsjónarsamir
rekstraraðilar og þeir færu ekki að
borga fyrir tækni sem þeir væru
ekki vissir um hvort hefði mikinn
ávinning í för með sér. Verkfæri
líftækninnar hefði aukið uppskeru-
magn gríðarlega. Í yfirlýsingu frá
Monsanto um notkun á illgresiseyð-
um, sem var birt með umfjöllun
Hakim, kemur fram að þó það geti
verið að slík notkun hafi aukist á
sumum svæðum, þar sem bændur
fylgja bestu leiðbeiningum til að
halda illgresi niðri, hefur notkunin
á öðrum svæðum staðið í stað eða
dregist saman.
Hakim segir að erfðabreytt rækt-
unarafbrigði geti í sumum tilfellum
gagnast vel. Oft sé vitnað til rann-
sókna Matin Qaim, við Georg-August
háskólann í Göttingen í Þýskalandi,
sem sýni það. Einkum hafi Qaim bent
á mikinn ávinning af afbrigðum sem
væru ónæm fyrir skordýrum (e. insect
resistant) og eru notuð í þróunarlönd-
um – aðallega Indlandi. Hakim hefur
eftir Qaim að hann efist þó um að
erfðabreytt ræktun í Evrópu myndi
hafa mikinn ávinning í för með sér.
Varðandi erfðabreytt ræktunaraf-
brigði, sem eru ónæm gagnvart ill-
gresiseyðum, segir Qaim, í viðtali við
Hakim, að hann líti ekki á slík afbrigði
sem einhver tækniundur sem ekki sé
hægt að lifa án.
Monsanto segir erfðabreytta
ræktun hluta af lausn vandans
Í bréfi til blaðsins, þann 11.
nóvember síðastliðinn, segir Fraley
enn fremur að ástæða þess að um
20 milljónir bænda um allan heim
hafi fjárfest í þessari tækni sé að þeir
hafi náð betri árangri með henni.
Umfangsmiklar óháðar rannsóknir
hafi sýnt fram á ávinning bænda sem
nota erfðabreytt ræktunarafbrigði.
Hann felist í betri stjórn á illgresi
og meindýrum í ræktuninni, dregið
hafi úr notkun á skordýraeitri, dregið
hafi úr jarðvegseyðingu og jarðvegur
orðið heilbrigðari – auk þess sem
uppskera hafi aukist. Á þeim 20
árum sem erfðabreytt ræktun hafi
verið stunduð hefur uppskerumagn
sojabauna aukist um 28 prósent og
maís um nærri 32 prósent. Erfðabreytt
ræktun er að mati Fraley mikilvægt
tæki fyrir nútímalegan og sjálfbæran
landbúnað. Þar sem búist sé við
að fólksfjöldi í heiminum nái tíu
milljörðum árið 2050 hafi bændur
not fyrir alla hjálp sem er í boði til
að hægt verði að framleiða meiri mat
með sjálfbærum hætti. Erfðabreytt
ræktun sé nauðsynlegur hluti af
lausn vandans. /smh
Utan úr heimi
Íslenskur repjuakur. Í gögnum frá The New York Times kemur fram að aukning á uppskerumagni á repju hefur verið
svipuð í Vestur-Evrópu og Kanada frá 1995 – þegar erfðabreytt afbrigði repju voru kynnt til sögunnar. Mynd / HKr.
MENNING&LISTIR
Út er komin ljóðabókin Sonnettur
síkvikra daga eftir Bjartmar
Hannesson, bónda á Norður-
Reykjum í Borgarfirði.
Vísna- og leikskáld
Bjartmar hefur gegnum árin samið
og flutt gamanvísur við hin ýmsu
tækifæri og gefið út geisladiskana
„Sögur úr sveitinni“ og „Fleiri sögur
úr sveitinni“.
Þá hefur hann samið tvær revíur
sem settar hafa verið upp af leik-
deild UFR Reykdæla.
Fyrsta ljóðabók höfundar
Sonnettur síkvikra daga er fyrsta
ljóðabók höfundar og hefur að
geyma 31 ljóð í sonnettuformi.
Farið er um víðan völl í efnistök-
um, m.a. staldrað við í „smókpásu“
með Fidel Castro og Che
Guevara, ástin fundin á
Mímisbar í Bændahöllinni,
Lúkas fundinn í Hlíðarfjalli
og Livingstone fundinn í
Belgísku Kongó.
Einnig skjóta upp kollin-
um jöfrar úr tónlistarheimin-
um, svo sem, Elvis Presley,
Dúmbó af Akranesi, Doctor
Hook og Steini Spil.
Bókin er 37 blaðsíður og
er prentuð hjá Fjölritunar-
og útgáfuþjónustunni,
Prentþjónustu Vesturlands
Borgarnesi. Höfundur gefur
bókina út.
Þeir sem vilja eignast
bókina geta sent póst á
netfangið: nordurreykir@
emax.is eða haft samband í
síma: 4351219 – 8471219
eða 8671991.
Sonnettur síkvikra daga
– er ný ljóðabók eftir Bjartmar bónda á Norður-ReykjumStóra smákökubókin eftir Fanneyju
Rut Elínardóttur er gull falleg bók
með 55 smáköku uppskriftum.
Smákökubakstur er rík hefð á
Íslandi. Uppskriftir ganga gjarnan
á milli kynslóða og sömu kökurn-
ar kunna jafnvel að vera ólíkar eftir
landshlutum. Í þessari bók eru gamlar
og góðar kökur sem hafa lifað með
þjóðinni í stílabókum, dagbókum,
glósubókum og lausum blöðum en
einnig nýjar og spennandi uppskriftir
að ljúffengum smákökum.
Þá má ekki gleyma smákökum
sem eru án sykurs eða hveitis og eru
hreinlega bráðhollar. Þetta er ómis-
sandi bók á hverju heimili. Góða
skemmtun!
„Ég óttast mest að geta ekki
bakað neitt upp úr þessari bók því
síðurnar eru svo girnilegar að mig
langar helst að borða þær heilar!“
- Lilja Katrín Gunnarsdóttir, blaka.is
Höfundurinn
Fanney Rut Elínardóttir
Fanney er höfundur metsölu-
bókarinnar Hvorki meira né minna
sem kom út 2010 og hefur skrifað
og eldað fjölda uppskrifta fyrir blöð
og tímarit.
Systir Fanneyjar, María
Elínardóttir ljósmyndari, tók allar
myndir í bókinni.
Stóra smákökubókin