Bændablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Að þessu sinni verður
ekki beint fjallað um
gamla dráttarvél heldur
farið vítt og breitt yfir
dráttarvélaframleiðslu í
Kína.
Erfitt er að henda
reiður á sögu dráttar-
vélaframleiðslu í Kína.
Landbúnaðar framleiðsla í
landinu hefur aukist hratt
og er enn í vexti og á sama
tíma eru sveitir landsins að
vélvæðast. Í dag eru vel
yfir 60 dráttarvélaverksmiðjur
í landinu.
Verksmiðjurnar framleiða
traktora á ýmsum þróunarstig-
um, hvort sem það eru dráttar-
vélar sem byggja á tækni frá því
um 1960 eða hátæknitraktora í
samvinnu við John Deere eða
AGCO.
Laun í Kína eru lág í sam-
anburði við Vesturlönd og því
hafa stórir vestrænir dráttarvéla-
framleiðendur flutt starfsemi
sína þangað. Fyrir vikið er hægt
að halda framleiðslukostnaðin-
um og verði á heimamarkaði
líka niðri. Auk þess er talið að
markaður fyrir dráttarvélar og
önnur landbúnaðartæki í Kína
eigi eftir að margfaldast á næstu
áratugum með vaxandi landbún-
aðarframleiðslu.
Traktorsvæðing Kína
Dráttarvélavæðing Kína
hófst fyrir alvöru árið
fyrir fráfall Maó for-
manns, 1976. Fyrir þann
tíma voru dráttarvélar
sameign samyrkjubúa
en á árunum 1975 til
1985 komust um 80%
allra traktora í landinu í
einkaeigu. Í fyrstu voru
flestar vélarnar notaðar
í byggingargeiranum og
annarri verktakastarf-
semi en minna var um
þá við plægingar úti á ökrunum.
Sama kram annað nafn
Margar af vélaverksmiðjunum
í Kína framleiða sömu dráttar-
vélarnar undir sömu nöfnum.
Annars staðar getur traktorinn
heitið eitthvað allt annað þrátt
fyrir að kramið sé það sama.
Einnig eru til verksmiðjur sem
framleiða traktora eftir eigin
hönnun og hafa gert það árum
saman án sjáanlegra framfara.
Í Kína er að finna fjölda drátt-
arvélaframleiðenda í fjölmörg-
um héruðum landsins sem bera
orðin Weifang eða Shandong í
heitinu. Sum þessara fyrirtækja
eru í eigu ríkisins en önnur hafa
verið seld einkaaðilum án þess
að skipt hafi verið um nafn.
Innreið vestrænna
stórfyrirtækja
Eftir að Kínverjar hófu að
einkavæða eða einkavæða að
hluta fyrirtæki í eigu rík-
isins hafa mörg vestræn
stórfyrirtæki tekið til
stafa í Kína. Í mörgum
tilfellum hafa framleið-
endur landbúnaðartækja
hafið samstarf við kín-
verska dráttarvélafram-
leiðendur eða yfirtekið
rekstur þeirra með leyfi
kínversku stjórnarinnar.
Árið 2001 hófu risa
landbúnaðartækjafram-
leiðandinn CNH og kín-
verski véla framleiðandinn SAIC
samstarf undir heitinu Shanghai
New Holland Agricultural
Machinery Corp. Í dag fram-
leiðir það fyrirtæki dráttar-
vélar undir vörumerkjunum
Shanghai Tractors, Shanghai-
New Holland og New Holland
tractors.
Árið 2007 keypti John
Deera kínverska traktora fram-
leiðandann Ningbo Benye
Tractor Co., sem framleiddi
dráttarvélar sem kölluðust
Bebye.
Hansen er málið
Þekktustu dráttarvélarnar sem
Kínverjar framleiða í eigin
verksmiðjum eru Foton Lovol,
Jinma og Tai Shan. Hjá fyrir-
tækinu sem framleiðir Jinma er
hægt að sérpanta dráttarvél með
hvaða heiti sem er. Eins og til
dæmis Hansen-traktorinn. /VH
Draumurinn um Hansen frá Kína
Skráning örnefna heima í héraði
Ekki þarf að fjölyrða um
mikilvægi örnefna og þeirra
menningarverðmæta sem felast
í örnefnum á Íslandi. Breytingar
í atvinnuháttum og tækni á
undanförnum áratugum hafa þó
orðið til þess að þekking manna
á örnefnum hefur minnkað og
vitneskja um þau er hætt að ganga
mann fram af manni.
Til að varðveita þessi örnefni og
staðsetningu þeirra er því mikilvægt
að fá aðstoð staðkunnugra við að
merkja þau á kort eða loftmynd
þannig að þau verði aðgengileg til
framtíðar í örnefnagrunni.
Árið 2015 voru lög um örnefni
samþykkt á Alþingi en markmið
þeirra er meðal annars að stuðla að
verndun örnefna og nafngiftarhefðar
í landinu sem hluta af íslenskum
menningararfi og tryggja að honum
verði viðhaldið handa komandi
kynslóðum. Í lögunum kemur einnig
fram að Landmælingar Íslands skuli
sjá um skráningu, viðhald og miðlun
örnefnagrunns í samráði við Stofnun
Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum.
Örnefnagrunnurinn er aðgengi-
legur öllum án gjaldtöku og
undanfarin ár hafa Landmælingar
gert staðkunnugum kleift að skrá
örnefni í þennan örnefnagrunn og
eru nú þegar um 110.000 örnefni í
honum. Þar hefur munað mest um
samstarf við heimildarmenn og
skráningaraðila víða um land og
hafa ýmis stærri og smærri verkefni
á sviði örnefnaskráningar verið í
gangi.
Sem dæmi um verkefni má nefna
að menningarfélagið Urðarbrunnur
í Þingeyjarsveit hefur skráð örnefni
beint inn í örnefnagrunn með því
að nota örnefnaskráningarveftól
Landmælinga Íslands. Þar vinna
skráningaraðilar náið með heimafólki
og staðkunnugum og nýta sér
skjávarpa til að varpa loftmyndum
upp á tjald og skrá jafnóðum örnefni
sem fláka, línur og punkta samkvæmt
tilsögn heimildarmanna á hverri jörð.
(sjá mynd 1)
Félag aldraðra í Borgarfjarðar-
dölum hefur lokið skráningu á
sínu svæði en þar var valin sú leið
að teikna fláka, línur og punkta á
útprentaðar loftmyndir og vísa í
númer úr örnefnalýsingum jarða.
Skráningaraðili tekur svo við
myndunum og skráir örnefnin
inn í örnefnagrunn. Þannig eru
örnefnalýsingar jarða alltaf
lykillinn að skráningunni ásamt
staðkunnugum heimamanni. (Sjá
mynd 2)
Að auki má nefna að fjöldi
einstaklinga hefur verið að skrá
í örnefnagrunninn um allt land.
Sem dæmi um hve mikilvægt
framlag hvers og eins er má nefna
að Gunnþóra Gunnarsdóttir frá
Hnappavöllum skráði og staðsetti
um 500 örnefni og Sigurgeir
Jónsson á Fagurhólsmýri skráði
og staðsetti um 800 örnefni
en Sigurgeir, sem lést í árslok
2015, var elsti skráningaraðili
stofnunarinnar sem skráði beint
inn í örnefnagrunn
Staðkunnugir heimildarmenn,
flest eldra fólk, gegnir lykilhlut-
verki við staðsetningu örnefna.
Ekki væri mögulegt að staðsetja
örnefni úr örnefnalýsingum jarða
með jafn mikilli vissu og hraða án
þeirra. Það er því mikilvægt að fá
fleiri í lið skráningaraðila örnefna
og flýta því björgunarstarfi sem
um er að ræða á þessum mikilvæga
menningararfi.
Þeir sem hafa áhuga á samstarfi
um örnefnasöfnun geta haft samband
við Landmælingar Íslands í netfangið
lmi@lmi.is eða í síma 430 9000.
Gunnar H. Kristinsson
Kort sem sýnir örnefni fyrir og eftir skráningu heimamanna í Reykjadal í Þingeyjarsveit.
Rannveig Lydia Benediktsdóttir, verkefnastjóri örnefnaskráningar hjá Land-
skráningin fer fram. Mynd / LMÍ
Mynd / Baldur Daníelsson
Lesendabás