Bændablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
„Góð heimasíða er gulls ígildi“
Einn af þeim þáttum sem
ferðaþjónustubændurnir í
Norður-Noregi hafa áhuga á
að bæta í sinni starfsemi er að
vera sýnilegri á netinu og þá
sérstaklega á samfélagsmiðlum.
Hér er gríðarlega mikilvægt
tæki á ferð, að mati Guðmundar
R. Einarssonar, betur þekktur
undir gælunafniu Gre, en
hann er vefhönnuður og einn
eigenda framkvæmdahússins
Vefgerðarinnar.
Vefgerðin vann á dögunum
þriðju alþjóðlegu verðlaunin sín
fyrir vefsíðuna Mekong Tourism
– ferðaþjónustusíðu fyrir lönd
sem eiga landamæri að Mekong-
ánni í Suðaustur-Asíu. Vefsíðan
hlaut ITB Asia-verðlaunin í
flokki Responsible Tourism
Website en verðlaunin eru afhent
af TravelMole, netsamfélagi fyrir
ferðabransann.
„Þessi verðlaun eru frábær við-
bót í verðlaunasafn Vefgerðarinnar
en vefsíðan Mekong Tourism,
sem unnin var fyrir ferðaþjón-
ustubransann í Kambódíu, Kína,
Laos, Myanmar, Taílandi og
Víetnam, vann HSMAI Adrian-
verðlaunin um síðustu áramót
fyrir nýstárlega vefsíðuhönnun
og framúrskarandi markaðsstarf.
Eru verðlaunin ein sú virtustu í
heiminum þegar kemur að ferða-
þjónustuiðnaðinum og haldin af
Hospitality Sales & Marketing
Association Inter national, alþjóð-
legum ferða þjónustu samtökum.
Síðan fékk einnig verðlaun fyrir
stuttu sem besta vefsíðan á árlegu
PATA Gold-verðlaunahátíðinni
sem haldin var í Indónesíu.
PATA eru ferðaþjónustusamtök í
Asíu og telur dómnefnd þeirra af
atvinnumönnum í ferðaþjónustu-
iðnaðinum að vefsíðan hvetji til
ábyrgrar ferðaþjónustu á Mekong-
svæðinu,“ útskýrir Guðmundur.
Endalausir möguleikar
„Góð heimasíða er gulls ígildi. Það
sést líklegast best á tveimur ferða-
þjónustusíðum sem við höfum gert
– sagatravel.is og laxnes.is. Eftir
að við tókum þær tvær síður í gegn
með möguleika á að bóka ferðir
beint á netinu hefur salan aukist
gríðarlega og selur til dæmis Saga
Travel 1/4 af sínum ferðum beint
á netinu sem þýðir að þeir þurfa
ekki að borga söluþóknun til milli-
gönguaðila,“ segir Guðmundur og
bætir við:
„Ferðaþjónusta á Íslandi er í
blóma og nýta ferðamenn það í
auknum mæli að bóka á netinu
og plana ferðina sína nokkra
mánuði fram í tímann með því
að púsla saman hinum og þess-
um ferðum. Mikilvægur þáttur í
þessu er bókunarkerfið Bókun sem
hvaða ferðaþjónustuaðili sem er
getur keypt aðgang að. Í Bókun
er bróðurpartur af öllum ferðum
sem seldar eru á Íslandi og við
erum búin að finna leið til að tengja
Bókun við vefsíður í Wordpress-
vefsíðukerfinu. Þannig að þeir sem
eru í ferðabransanum, til dæmis
með heimagistingu eða bjóða upp
á hestaferðir, geta rekið sína þjón-
ustu á vefnum en líka verið með
þessa tengingu við Bókun og selt
ferðir frá öðrum ferðaþjónustu-
aðilum og fá þá söluþóknun fyrir
hverja ferð. Möguleikarnir eru
endalausir í útfærslum á þessari
tengingu!
Heimasíðan er móðurskipið
Guðmundur bendir einnig á að
í mörg horn þurfi að líta þegar
kemur að vefsíðugerð enda séu
þær lykiltæki fyrir mörg fyrirtæki
í nútímaþjóðfélagi.
„Heimasíða þarf að virka á
öllum snjalltækjum. Það er mjög
mikilvægt. Fólk er á ferðalagi og
vill fá upplýsingar strax, þó að það
komist ekki í tölvu.
Í öðru lagi þarf að vera gott efni
inni á síðunni. Leitarvélar leita
eftir vissum lykilorðum á vefsíð-
um og til þess að þær finni vefsíður
þarf að vera efni á þeim.
Þannig að gott, skemmtilegt og
gagnlegt blogg um staðsetninguna,
starfsemina og reynslusögur kúnna
getur gefið margfalt til baka. Góðar
myndir eru líka plús.
Í þriðja lagi þarf síðan að líta
vel út. En hún má auðvitað ekki
líta vel út en ekki virka. Þannig að
þetta helst allt í hendur.
Í fjórða lagi þarf að hugsa vel
um vefsíðuna þannig að hún drabb-
ist ekki niður. Það er mjög gott að
fólk setji sér reglur um til dæmis
bloggskrif og uppfæri síðuna
reglulega,“ útskýrir Guðmundur
og bendir einnig á:
„Nú gæti einhver hugsað – er
ekki bara nóg fyrir mig að vera
á Facebook og öðrum samfélags-
miðlum? Okkar svar er einfaldlega
nei, því þú þarft alltaf að vera
með einhvern lendingarstað. Það
er erfitt að leita aftur í tímann á
Facebook. Þú til dæmis finnur
eitthvað sniðugt sem höfðar til þín
einn daginn en nokkrum dögum
seinna gæti orðið tímafrekt að
finna það aftur.
Við mælum með því að allt
efni sé frumbirt á vefsíðunni og
síðan endurbirt á samfélagsmiðlum
þannig að fólk þurfi að smella á
tengla og fara inn á vefsíðuna til
að fá umferð um síðuna.
Vefsíðan á að vera móðurskipið
þar sem allar upplýsingar eru til
staðar og hægt að nálgast þær á
einfaldan og fljótlegan máta.“
/ehg
Guðmundur R. Einarsson, vef-
hönnuður og einn eigenda fram-
kvæmda hússins Vefgerðarinnar,
segir mikilvægt að heimasíður virki
á öllum snjalltækjum.
Skjámynd af heimasíðu Mekong tourism sem Vefgerðin fékk verðlaun fyrir.
Bonito ehf. • Friendtex • Praxis
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is •www.praxis.is
Vegna breytinga seljum við lagerinn
okkar með miklum afslætti
40% afsláttur af öllum
nýjum vörum frá Friendtex
Allt að 80% afsláttur
af eldri vörum Friendtex
30% afsláttur
af öllum Praxis skóm
30% afsláttur
af öllum stuttum
primaloft úlpum
Opið þrjá laugardaga í desember 3. 10. og 17. frá kl. 12.00–16.00
Ath. Lokað í desember frá og með 19. desember til og með 4. janúar 2017
Ekki svartir
dagar bara
skærir og flottir
alla daga
til jóla
Weidemann smávélar og skotbómur
á stórlega lækkuðu verði.
VER
ÐLÆ
KKU
N
VER
ÐLÆ
KKU
N
VER
ÐLÆ
KKU
N
nar hefurVegna styrkingar krónun
að fá sér sjaldan verið hagstæðara
kotbómur. Weidemann smávélar og s
ÚRVA
L VÉL
A Á L
AGER
Viðarhöfða 6 - Reykjavík I Skútuvogi 1 - Reykjavík I Bæjarhrauni 12 - Hafnarfjörður
www.sindri.is / sími 575 0000
ALVÖRU VERKFÆRI
7SKÚFFUR
154.020 m/vsk
SÁ VINSÆLI
283 verkfæri