Bændablaðið - 01.12.2016, Page 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Karlamagnús kannaðist við
gúrkur, melónur og kalabass.
Auðvitað vildi hann ekki vera
án þeirra í görðunum sínum.
Gúrkur og melónur eru af sömu
ættkvísl. En kalabass eða flösku-
aldin af annarri. Allar þessar
tegundir tilheyra Graskersætt
(Cucurbitaceae) og hafa verið í
ræktun frá upphafi ræktunar-
sögunnar.
Svo lengi að eiginlega er ekkert
vitað um hinn eiginlega uppruna
þeirra. Rökréttar getgátur eru
samt um að uppruna þeirra megi
rekja til suður- og suðausturhluta
Asíu. En í árþúsunda gamalli og
samfelldri ræktunarsögu hafa þær
tekið svo miklum breytingum að
ekki hafa fundist tegundir sem þær
gætu verið komnar af. Engin þeirra
spjarar sig án aðstoðar manna.
Gúrkur – Cucumis sativus
Ættkvíslarheitið er komið frá róm-
verska söguritaranum Plíníusi og
þýðir bara gúrka en viðurnefnið
er dregið af latnesku sögninni yfir
sáningu. Við þekkjum það aftur í
heiti Satúrnusar – hins forna guðs
sáningarinnar.
Í Evrópu hafa gúrkur verið
ræktaðar frá því að söguritun
hófst og vegsummerki um rækt-
un þeirra hafa fundist við forn-
leifauppgröft í löndunum fyrir
botni Miðjarðarhafs. Þeirra er
getið í grískum og rómverskum
heimildum og voru vel þekktar í
Egyptalandi á dögum Faraóanna.
Gúrkur þess tíma voru nokkuð
grófari en gróðurhúsagúrkurnar
okkar og hafa líklega verið líkari
því sem við köllum nú reitagúrkur
eða pækilgúrkur. Sennilega komn-
ar austan úr Persíu. Þar eru enn
ræktaðar gúrkur sem eru gildari og
matarmeiri en þær gúrkur sem við
þekkjum best nú. Annars er gúrkum
skipt upp í nokkra hópa eftir útliti
og eiginleikum.
Eplagúrkur
Fyrsti hópurinn kallast eplagúrkur
eða asíugúrkur. Þær eru þybbnar
og þéttar, ná 15–30cm lengd og
með ljóst og slétt, en þykkt hýði.
Aldinkjöt þeirra er þétt og undir tönn
minnir það á epli. Þær mynda fræ
og eru teknar áður en þær ná fullum
þroska. Þetta eru gúrkurnar sem við
kaupum sem „asíur“. Afhýddar og
langskornar, innlagðar í edikslög.
Svo vill til að eitt helsta afbrigði
eplagúrkna er danskt og kallast
'LANGELANDS KÆMPE‘ og
er til komið sem úrval af gúrkum
sem hafa verið ræktaðar á dönskum
ökrum og görðum í aldaraðir.
Reitagúrkur
Annan hópinn skipa svo hinar
svokölluðu reita- eða pækilgúrkur.
Þær eru stuttar, með dökkgrænt,
dálítið hrufótt hýði. Fullsprottnar
verða þær um 15 cm langar og u.þ.b.
tvöfalt gildari um sig en bananar. Ef
þær ná að þroska fræ verður hýðið
gult og seigt. En það kemur ekki að
sök vegna þess að reitagúrkurnar
eru teknar óþroskaðar þegar þær
hafa náð 8–10 cm lengd. Það er
hægt að sneiða þær niður í hrásalöt
á því skeiði og nota eins og gróð-
urhúsagúrkur. Reitagúrkur eru
ræktaðar á beðum og lítið er gert
til að stjórna vexti þeirra, heldur
fá þær að breiða úr sér að vild. Hér
á landi þekkjum við reitagúrkur
helst sem „pikklisgúrkurnar“ sem
fást í matvörubúðum, ýmist niður-
sneiddar eða heilar í glerkrukkum
með söltum edikslegi eða bara í
saltpækli. Reitagúrkur eru
einu gúrkurnar sem hægt
er að rækta utanhúss
á Íslandi. En þá þarf
að viðra vel og þær
verður að hafa undir
plastbogaskýli eða
í köldu gróðurhúsi.
Norðlægu yrkin
'VÄSTERÅSGURKA‘
og 'RHENSK DRUV‘
hafa reynst sæmi-
lega. Helsta vanda-
málið er skortur á
humlum og býflugum
til að frjóvga blómin,
án frjóvgunar koma
engar gúrkur. Langir
og kaldir rigninga-
kaflar geta líka sett
strik í reikninginn.
Slöngugúrkur
eða agúrkur,
gróðurhúsagúrkan
Í þriðja hópnum eru
svo okkar venjulegu
gúrkur, agúrkurnar eða
slöngugúrkurnar sem
við ræktum hér í gróð-
urhúsum árið um kring.
Í hagskýrslum eru þær í
þriðja efsta sæti af þeim
jarðargróða sem ræktaður
er hér til manneldis. Næstar
á eftir kartöflum og byggi.
Samkvæmt því hesthúsar hver
Íslendingur um 4,5 kílógrömm
af agúrkum árlega. Það er all-
nokkuð! Gróðurhúsagúrkan, sem
við köllum, kom nokkuð seint til
evrópskra byggða. Líklega
ekki fyrr en nokkuð var
liðið frá landnámi Íslands.
Talið er að hún hafi borist
frá Indlandi til Ítalíu í upp-
hafi elleftu aldar. Hún er
hitakræfari en gúrkurnar í
hópunum hér á undan og
dafnar best á hitabilinu
21-29 °C en þolir ögn
lægri hita ef hann fer
aldrei niður fyrir 18°C.
Og ekki má skorta birt-
una. Í ræktun eru þær
bundnar upp og allir
hliðarsprotar teknir burt,
bara toppsprotinn látinn
halda sér. Eftir því sem
plönturnar hækka er þeim
slakað niður eftir ákveðnu
kerfi. Gróðurhúsagúrkur
eru langar og síval-
ar, með þunnu hýði.
Oftast 30-35cm á lengd.
G r ó ð u r h ú s a g ú r k u r
nútímans eru yfir-
leitt fyrstukynslóðar
blendingar (F1-sortir)
sem mynda frælausar
gúrkur eftir blómg-
unina og allar í
stöðluðum gæðum.
Fræfyrirtækin sjá til
þess. Það er hægt
að rækta þær í
h e i m a h ú s u m ,
ýmist í björtum
og rúmgóðum
gluggum eða
í smágróður-
húsum sem
halda 18 stiga
hita á næturnar. Í hobbýrækt heima
við hefur gefist vel að nota yrkin
'BALI-F1‘ sem er algjör „kvensort“
og hið ríflega aldargamla enska
yrki 'TELEGRAPH‘ sem kemur
með bæði karl- og kvenblóm.
Kvenblómin frjóvgast ekki nema
að meðvitað sé unnið í því, en
mynda samt góðar og safaríkar
gúrkur.
Snægúrkur
Í fjórða hópnum sem hér verður
talinn upp eru gúrkur sem hafa
mjallahvítt hýði. En við sjáum þær
sjaldan hér á landi nema innlagðar
eins og „asíur“. Snægúrkurnar eru
um flest eins og reitagúrkurnar
hvað ræktunina varðar, en eru
mun hitakræfari. Gúrkurnar eru
um 15cm langar og nokkuð gildar,
fastar fyrir og frísklega sætar á
bragðið. Þær eru vinsælar í sum-
arsalöt og innlagnir. Ræktun þeirra
fer mest fram þar sem sumur
eru hlý og sólrík eins og t.d. í
Kaliforníu, Mexíkó og ekki síst á
Ítalíu. Þaðan kemur yrkið 'MEZZO
LUNGO BIANCO‘ sem hefur skilað
ágætum árangri í Danmörku og á
Skáni ef það er ræktað undir gróð-
urdúk. Hér ætti að vera auðvelt að
rækta snægúrkur í plastbogahús-
um án upphitunar.
Almennt um gúrkurækt
Gúrkur eru einærar jurtir. Blöðin
eru breið, skert í nokkra tungu-
laga sepa á jöðrunum, hrjúfhærð
og stakstæð á nokkuð strendum
stöngli. Klifurþræðir og blóm
myndast við blaðfestingarnar.
Þeim er eðlilegt að klifra upp
eftir neti eða öðrum jurtum sem
þær ná að festa sig í. Blómin eru
samkrýnd, skærgul og ýmist kven-
kyns eða karlkyns. Bæði kynin
samt á hverri plöntu. En helstu
ræktunaryrki gróðurhúsagúrkurn-
ar, F1-sortirnar, eru handgerð með
samfrjóvgun foreldra sem geta
af sér plöntur sem einvörðugu
blómgast kvenblómum og þroska
aldin án undangenginnar frjóvg-
unar. Gúrkur þurfa frjóan, loft-
ríkan og jafnrakan jarðveg. Þær
vaxa hratt og eru þurftafrekar á
birtu og yl. Þrífast best þar sem
sól skín á þær daglangt og dafna
illa ef hitinn fer niður fyrir 18 °C.
Reitagúrkur spjara sig þó ef þær
búa við 15-18 °C meðalhita og
geta staðið af sér nótt og nótt þótt
næturhitinn geti dottið niður í 12
°C. Gúrkuplöntur sem ræktaðar
eru í reitum eða utanhúss þurfa
1-2 femetra vaxtarrými. En gróð-
urhúsagúrkur eru settar í raðir
með 80-100cm millibili og haft
um 50-60cm milli plantna í röð.
Aldinin eru tilbúin í uppskeru
þegar gúrkurnar eru orðnar því
sem næst jafngildar enda á milli.
Þroski frá blómgun í fullvax-
ið aldin tekur viku til tíu daga.
Gúrkum er sáð, 1-2 fræ í 10cm
potta, um 4-5 vikum fyrir áætl-
aða útplöntun. Fræin eru hulin
um 1cm með sáðmoldinni og
sáðílátið haft á björtum stað við
góðan stofuhita meðan á spírun
stendur. Uppeldi svo við 20-25
°C og dreifplantað þegar komin
eru tvö blöð ofan kímblaðanna.
Blómgunar má vænta af 45-60
daga gömlum plöntum við eðli-
legar aðstæður. Ef gúrkur eru
ræktaðar í pottum, þarf potturinn
að rúma 7,5-10 lítra af góðri gróð-
urmold og nauðsynlegt er að gefa
daufa áburðarlausn (tómatáburður
eða ígildi hans) einu sinni í viku.
Til að koma í veg fyrir vatnsskort
og vaxtartruflanir er gott að láta
pottana standa á fati með hreinu
vatni. Bætt á eftir þörfum dag-
lega, þannig að alltaf sé vatnslögg
undir pottinum. En áburðarvatnið
er alltaf sett yfir moldina.
Ein skrýtin að lokum
Á undanförnum árum hefur okkur
áður óþekkt gúrkutegund skotið
upp kollinum í aldinborðum stór-
markaðanna. Það er horngúrkan,
Cucumis metuliferus. Og eins og
viðurnefnið gefur til kynna er hún
ógnvekjandi, öll sett göddum eða
hornum líkt og eitthvert skrímsli
frá Risaeðlutímanum. En það
er bara utan á rauðgullnu yfir-
borðinu. Innan í er grængult, frem-
ur glært og slímkennt aldinkjöt
utan um urmul af fræjum. Bragðið
er frískandi sætsúrt og gefur fram-
andi, en afar viðkunnanlegt bragð
í salöt af ýmsu tagi og jafnvel
bara eitt og sér með hverju sem
er. Gúrkurnar eru skornar langs-
um eftir endilöngu og innvolsið
skafið úr með skeið. Fræin látin
fara með. Uppruni horngúrkunnar
er í löndunum sunnan Sahara þar
sem hún hefur tilheyrt matarmenn-
ingunni um aldaraðir. En ræktun
á henni í stórum stíl til útflutn-
ings er fyrst og fremst í Ísrael og
á Nýja-Sjálandi. Í þeim löndum
kunna menn á heimsmarkaðinn
og kúnstina við að svala eftirspurn
hins óseðjandi neyslusamfélags.
Horngúrkan ber hið alþjóðlega og
dularfulla söluheiti KIWANO, sem
við getum svosem tekið okkur í
munn og borið fram „kívanó“.
Fróðleiksbásinn
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur
Jurtir Karlamagnúsar
– gúrkur og annað skylt – fyrri hluti
Reitagúrka, yrkið 'Vesteråsgurka'.
Gúrkublómin gulu.
Horngúrka - Kiwano, Cucumis
metuliferus.