Bændablaðið - 01.12.2016, Qupperneq 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Lesendabás
Vegagerð um Hornafjarðarfljót
Íbúar á Suðausturlandi hafa lengi
beðið eftir bættum samgöngum yfir
Hornafjarðarfljót. Sveitarstjórn
Hornafjarðar hefur ákveðið að
endurskoða framkvæmdarleyfi
fyrir nýjum vegi yfir fljótið
vegna nýrra náttúruverndarlaga.
Samkvæmt skipulagslögum þá
hefur sveitarstjórn skipulagsvaldið
og gefur út framkvæmdarleyfi.
Núverandi vegarkafli á hringvegi
(1) er 30,3 km langur og á honum
eru 3 einbreiðar brýr; yfir Djúpá,
Hornafjarðarfljót og Hoffellsá.
Vegstæðið er að mestu leyti á flötu,
grónu landi. Árið 1961 var byggð
einbreið 255 metra löng brú yfir
Hornafjarðarfljót. Fyrir austan
fljótið liggur hringvegurinn yfir
Hoffellsá, austan við vatnið Þveit,
framhjá blómlegum bújörðum,
þéttbýlinu í Nesjum og framhjá
Hornafjarðarflugvelli að veginum
niður að Höfn.
Með nýjum hringvegi (1) yfir
Hornafjarðarfljót styttist leiðin um
11-12 km á milli Austurlands og
Suðurlands. Á leið 1 um 11 km, á
leið 2 um 12 km og á leið 3 um 11,5
km, það munar einungis 500 metrum
á leið 1 og 3. Sveitarstjórn hefur
lagt áherslu á að stytta samgöngur
innan héraðsins og þess vegna hefur
rökstuðningur sveitarstjórnar verið
að mæla með veglínu 3 þar sem
fjarlægðin af Mýrum og Suðursveit
er 2,5 km styttri með leiðarvali
3 í stað leiðar 1. Þess má geta að
íbúar Mýra og Suðursveitar eru
um 100 manns, en yfir 90% íbúa
sveitarfélagsins búa austan við
fljótið. Öræfin eru innan marka
sveitarfélagsins, en á milli Hafnar og
Svínafells í Öræfum eru um 130 km,
þannig að það skiptir ekki höfuðmáli
hvort leiðin úr Svínafelli verði 119
km eða 116,5 km.
Nauðsynleg hæð vegar gagnvart
sjávarflóðum
Í skýrslu Helga Jóhannessonar,
vatnaverkfræðings Vegagerðarinnar
frá 2007, kemur m.a. eftirfarandi
fram:
„Hvað sjávarflóð varðar þá hefur
Vegagerðin metið að nauðsynleg
hæð vegar verði í kóta 3,5 m gagn-
vart sjávarflóðum en til samanburðar
má nefna að núverandi flugvöllur
er í kóta 1,84 m þar sem hann er
lægstur. Vegfyllingar og vegfláar
munu hafa varanleg áhrif á lands-
lag Hornafjarðar og í Skarðsfirði.
Straumar breytast í nágrenni vegfyll-
inganna. Tillaga Vegagerðarinnar
um 40 m langa brú á leið 2 og 50
m langa brú á leið 3 en hún tryggir
að mannvirkin hafa nánast engin
áhrif á sjávarföll og vatnskipti innan
veglínanna. Þrátt fyrir þetta verður
að gera ráð fyrir að set safnist fyrir
í voginum í skjóli við vegfyllinguna
hraðar en ætti sér stað án mannvirkj-
ana. Ástæðan er sú að Hornafjörður
er grunnur fjörður og mikið set berst
í fjörðinn með Hornafjarðarfljóti
sem rótast upp í öldugangi í hvass-
viðri. Óhjákvæmilegt er að þetta
set berst með sjávarfallastraumum
í gegnum brúaropið á leiðum 2 og 3
og sest til í skjóli við vegfyllinguna
hraðar en ætti sér stað án vegar“.
Samkvæmt nýjum upplýsingum um
hönnun vegarins þá er gert ráð fyrir
að vegurinn verði í kóta 4,5 metrum
í stað kóta 3,5 m.
Aukið umferðaröryggi
Markmið Vegagerðarinnar er fyrst
og fremst að auka umferðaröryggi,
draga úr slysahættu og tryggja góðar
samgöngur á svæðinu. Að mati
Vegagerðarinnar voru þessar þrjár
veglínur sem skoðaðar voru álíka
varðandi vegtækni og umferðarör-
yggi. Hönnunarhraði vegarins verð-
ur 90 km/klst. Áætlaður kostnaður
við leið 3 er 4250 milljónir króna.
Vegsvæði vegarins telst vera 60 m
breitt og nær 30 metra frá miðlínu
vegar til hvorrar hliðar. Með allt
að 4,5 metra háum vegi með 1:4
vegfláum þá gæti neðsta burðarlag
vegarins verið allt að 40 metra á
breidd. Áætluð efnisþörf á leið 1 er
470.000 rúmmetrar og á leið 2 og
3 er áætlað 700.000 rúmmetrar, allt
að 50% meiri efnisþörf á leið 1 og
3. Grjótvarnir á leið 3 er margfalt
meiri en á leið 1 og er áætlað að
taka efni víða í Nesjum sem geta
valdið miklum breytingum á lands-
lagi svæðisins. Miklar líkur eru á
að efnisþörf í veginn sé vanáætluð,
enda fullnaðarhönnun vegarins ekki
lokið.
Miklu styttri nýlagning
Í skýrslu Náttúrufræðistofnunar
Íslands frá 2006 um gróður á
umræddri veglínu segir:
„Augljós kostur veglínu 1 fram
yfir veglínu 2 er hversu miklu
styttri nýlagning er á þeirri leið
og þar af leiðandi minna rask. Hér
vegur þyngst minni skering blaut-
ara votlendis á leið 1 þar sem um
25 ha þessara gróðurlenda á leið 1
en 110 ha á leið 2. Út frá þessum
rökum er leið 1 tvímælalaust betri
kostur“. Umhverfisstofnun tekur
undir álit N.Í. í sinni umsögn. Í
skýrslu Líffræðistofnunar Háskóla
Íslands frá 2006, fjölrit 75 „Ljóst
er að leið 1 mun ekki valda röskun
á leirum og fitjum Hornarfjarðar“.
Í áliti Skiplagsstofnunar frá 2009
um Umhverfismat vegna fram-
kvæmdarinnar taldi stofnunin að
neikvæð umhverfisáhrif leiðar
1 væru minni en leiðar 2 og 3 en
lagðist ekki gegn öðrum kostum.
Við leiðarval 1 nýtist lengri
kafli á núverandi hringvegi við
Hornafjarðarfljót, þar sem hún
fylgir að stórum hluta núverandi
vegi á Mýrum og í Nesjum. En leið
2 og 3 verður nánast eingöngu um
nýlagningu vega að ræða. Í mati á
landslagi kemur fram að mikilvægt
er að nýr vegur um Hornafjörð lagi
sig að landslagi. Það er að mínu mati
nánast ómögulegt að leið 2 og 3 geri
það, þar sem vegurinn liggur hátt
í landi og sker sig í gegnum sjáv-
arfitjar eða er sunnan við þær, en
þar mun gæta flóðs og fjöru beggja
vegna við fyrirhugaðan veg.
Samkvæmt náttúruverndarlög-
um njóta bæði sjávarfitjar og leirur
sérstakrar verndunar og skal forð-
ast röskun þeirra eins og kostur
er. Veglína 2 og 3 munu hafa
mikil áhrif á sjávarlón, sjávarfitj-
ar og votlendissvæði við Hrísey,
Árnanes, Lækjarnes, Dilksnes og
í Skarðsfirði.
Undirritaður fagnar nýlegri
ákvörðun sveitarstjórnar Horna-
fjarðar um að endurskoða fram-
kvæmdarleyfið fyrir lagningu vega
um Hornafjarðarfljót og hvetur
sveitarstjórn í framhaldi að skoða
breytingu á aðalskipulagi sveitarfé-
lagsins. Í aðalskipulagi Hornafjarðar
frá september 2014 er leiðarvalið
samkvæmt leið 3b. Til þess að
framkvæmdir geti hafist sumar-
ið 2017 þá þarf að náðst sæmileg
sátt á milli sveitarstjórnar og land-
eigenda í Nesjum, annars er hætta
á að löng bið verði á nýjum vegi
og brú fyrir Hornafjarðarfljót. Mat
á umhverfisáhrifum framkvæmda
á vegagerð yfir Hornafjarðarfljót
er brátt tíu ára gamalt, en ef fram-
kvæmdir hefjast ekki á næsta ári þá
þarf Skipulagsstofnun að meta hvort
endurskoða þurfi matskýrsluna að
hluta eða í heild sinni.
Sterkur rökstuðningur fyrir að
velja leið 1
Þegar velja á milli leiða 1, 2 og 3,
þá er sterkur rökstuðningur fyrir að
velja leið 1.
A. Hún raskar 85 ha minna af
votlendi, fellur betur að landslagi
og er þar af leiðandi betri m.t.t.
náttúruverndar.
B. Hún er yfir þúsund milljónum
ódýrari í framkvæmd, enda minni
vegalengd í nýja framkvæmd
og þar með efnistöku. Arðsemi
framkvæmdarinnar er því mikill.
C. Hún styttir hringveginn um 11
km og uppfyllir umferðaröryggi.
D. Hún er í meiri sátt við
landeigendur í Nesjum.
Opinberir fagaðilar mæla með
leið 1 vegna þess hún er í meiri
sátt við náttúruvernd. Það er því
umhugsunarvert fyrir innanríkis-
og umhverfisráðuneytið að það
sé rökstuðningur sveitarstjórnar
sem ráði endanlegu leiðarvali
samgangna yfir Hornarfjörð.
Sveitarstjórn Hornafjarðar má ekki
misnota skipulagsvald sitt þegar;
náttúru svæðisins er ógnað, ódýrari
vegkostur er til staðar og sambærileg
vegstytting er á hringveginum.
Ragnar Frank Kristjánsson
Höfundur er lektor og
landslagsarkitekt við
Landbúnaðarháskóla Íslands.
Bjó í Skaftafelli, Sveitarfélaginu
Hornafirði frá 1998–2007.
Átaksverkefni í sauðfjárrækt
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
fékk nýverið styrk af fagfé
sauðfjárræktar vegna átaks-
verkefnis í sauðfjárrækt.
Vinnuheiti verkefnisins er
„Auknar afurðir sauðfjár –
tækifæri til betri reksturs“.
Ástæða þess að ráðist er í þetta
verkefni er ekki síst mikil lækkun
afurðaverðs hjá sauðfjárbændum
nú í haust. Markmið verkefnisins
er að safna gögnum um rekstur
sauðfjárbúa og greina sóknarfæri
í rekstri hjá hverju þátttökubú
með það að markmiði að bæta
búreksturinn.
Undanfarin ár hefur RML boðið
upp á verkefni sem heitir „Auknar
afurðir sauðfjár“. Í því verkefni
hafa skýrsluhaldsgögn búsins verið
skoðuð og borin saman á ýmsan
hátt ásamt því að ráðunautur hefur
komið í heimsókn til viðkomandi
bónda og skilað greinargerð um
tækifæri í búrekstri sem eru til
staðar að heimsókn lokinni. Í þeim
pakka er engra rekstrargagna aflað
en gögn um rekstur sauðfjárbúa
hefur mjög skort undanfarin ár –
bæði í vinnu sem þessari og ekki
síður sem verkfæri í kjarabaráttu
sauðfjárbænda.
Markhópur verkefnisins eru öll
sauðfjárbú sem höfðu fleiri en 400
kindur á skýrslum, skýrsluhaldsárið
2014–2015. Þessi hópur er valinn
þar sem í honum er væntanlega
að finna flest þau bú sem treysta
í umtalsverðum mæli á tekjur af
sauðfjárrækt til framfærslu. Öll
þessi bú fengu sent kynningarbréf
seinni hluta nóvember þar sem þeim
er formlega boðin þátttaka.
Skilyrði fyrir þátttöku í
verkefninu eru þessi:
• Tilkynna þarf þátttöku fyrir 1.
janúar 2017.
• Skila ársreikningi og/eða
skattframtali fyrir árin 2014 og
2015 sem safnað er í lokaðan
gagnagrunn fyrir 1. janúar 2017.
• Þátttökubú hafi skilað
skýrsluhaldsgögnum 2016 fyrir
31. desember nk.
• Tekjur af sauðfjárrækt
þurfa að vera a.m.k. 70% af
búgreinatekjum hvers bús.
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
heldur nú utanum fagfé
sauðfjárræktarinnar og framlagið
til þessa verkefnis miðast við það
að þátttökubú greiði 35% af kostnaði
en styrkurinn nemi 65% af kostnaði.
Vinnuþátturinn er áætlaður fimm
tímar við hvert bú auk komugjalds.
Verkefnisstjórar þessa átaks-
verkefnis eru þau María Svanþrúður
Jónsdóttir og Eyjólfur Ingvi
Bjarnason. Þeir bændur sem áhuga
hafa á þessu verkefni eru hvattir til
að setja sig í samband við annaðhvort
Maríu eða Eyjólf en jafnframt
veita þau nánari upplýsingar um
verkefnið.
Brýn þörf er fyrir þetta verkefni en
í þeim takmörkuðu bókhaldsgögnum
frá sauðfjárbændum sem hafa skilað
sér inn undanfarin ár sést mikill
munur í afkomu og því er líklegt
að víða séu tækifæri til að bæta
reksturinn enda er öllum rekstri
hollt að fá greiningu á stöðu sinni
öðru hvoru.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
ráðunautur í
sauðfjárrækt
eyjolfur@rml.is