Bændablaðið - 01.12.2016, Side 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Hin heimsþekkta landbúnaðar-
sýning EuroTier var haldin
dagana 15.-18. nóvember sl. í
Hannover í Þýskalandi. Sýning
þessi er einstök í heiminum og sú
langstærsta sem haldin er þegar
horft er til tæknibúnaðs er varðar
hefðbundna búfjárrækt.
Langumsvifamestu greinar
sýningarinnar eru alifugla-, svína- og
nautgriparækt en einnig var gaumur
gefinn að öðrum búfjárkynjum.
Sýningin hefur aldrei verið stærri en í
ár en alls voru 2.629 sýnendur frá 58
löndum með bása á sýningunni á 283
þúsund fermetra svæði. Á sýningunni
var sett nýtt að-göngumet, en alls
sóttu 163 þúsund gestir sýninguna
heim að þessu sinni! Flestir gestanna
voru að sjálfsögðu Þjóðverjar en
erlendir gestir voru þó rúm 20% eða
um 36 þúsund, þar af voru margir
Ís-lendingar meðal gestanna.
Fjölbreytt að vanda
Þó svo að mest áhersla sé á
innréttingar og tækjabúnað fyrir
alifugla, svín og nautgripi er
mikil á-hersla einnig á aðra þætti
framleiðslunnar. Þar á meðal var
þáttur fóðurefna ýmiskonar umfangs-
mikill, sem og kynningar á lyfjum og
allskonar skömmtunarbúnaði bæði
fyrir lyf og bætiefni. Ennfremur
voru á sýningunni haldnir margar
framsögur og fundir en þessi þáttur í
starfseminni hefur aukist jafnt og þétt
undanfarin ár, enda upplagt að bjóða
bændum og gestum upp á fróðleik
og fundahöld þegar þeir eru á annað
borð komnir saman. Þá var tækni
til bættrar nýtingar á mykju gefinn
þónokkur gaumur auk þess sem
sérstaklega var horft til margskonar
tækni til orkuframleiðslu heima á
búunum.
25 gull- og silfurverðlaun
Það er næsta ómögulegt að gera
lesendum Bændablaðsins grein
fyrir sýningunni með einföldum
hætti enda umsvif hennar slík að
taka þyrfti í raun mörg blöð undir
umfjöllun ef vel ætti að vera en
með þó má bera niður þar sem
helstu nýjungar sýningarinnar voru
kynntar.
Allir sýnendur geta nefni-
lega tilnefnt tæki sín eða tól til
sýningarnefndar og óskað eftir því
að fá annað hvort gull viðurkenn-
ingu, silfur eða brons. Þetta er gert
til þess að draga fram nýjungina
sem felst í viðkomandi tæki eða
tóli en séu veitt gullverðlaun þýðir
það að um frumsýningu er að ræða
og séu silfurverðlaun veitt þá þýðir
það að um verulega nýjung er að
ræða. Í ár voru veitt 4 gullverðlaun
og 21 silfurverðlaun fyrir nýjungar
á þessari sýningu.Gullverðlaunin
runnu öll til nýjunga á sviði
nautgriparæktar:
1. Nýburastía
Hollenska fyrirtækið Spinder fékk
gullverðlaun fyrir nýjung sína „The
Cuddle Box“ eða sem e.t.v. mætti
kalla nýburastíu sem þó er varla
nógu lýsandi en um er að ræða litla
stíu sem er fyrir nýfæddan kálfinn.
Þegar kýrin ber í burðarstíunni
er kálfurinn settur beint í þessa
stíu og þar getur kýrin karað hann.
Stærsta EuroTier-
sýning frá upphafi
Utan úr heimi
Nagdýraplága í Jakarta:
Rottum fjölgar og
þær hafa stækkað
Yfirvöld í Indónesíu hafa miklar
áhyggjur af sívaxandi fjölda rottna
í höfuðborginni Jakarta. Ekki er
annað að sjá en að rottunum í
Jakarta líði vel því ekki er nóg með
að þeim hafi fjölgað gríðarlega
undanfarin ár heldur hafa þær
einnig stækkað talsvert líka.
Heilmiklu púðri hefur verið eytt
í að halda rottufaraldrinum niðri en
árangurinn hefur látið á sér standa.
Reynt hefur verið að eitra fyrir þeim,
veiða þær lifandi í gildrur og að gasa
skólpræsi og aðra staði þar sem rottur
halda sig. Fjöldi rottnanna virðist
óteljandi því svo virðist sem alveg
sama sé hversu margar eru drepnar,
alltaf koma fleiri sem fylla í skarðið.
Rotturnar naga göt á rafleiðslur
og hafa skemmdir af þeirra völdum
valdið fjölda minni og stærri
eldsvoða í borginni. Völskurnar
valda einnig skemmdum á skólp- og
vatnslögnum og geta borið sýkingar
í vatnsból.
Tilraun til að fjölga köttum í
borginni hefur einnig skilað litlu
þar sem veiðikettirnir leggja á
flótta undan rottunum sem ráðast á
þá margar saman og eru í flestum
tilfellum álíka stórar ef ekki stærri
en kettirnir.
Almenningur á rottuveiðum
Nýjasta útspil yfirvalda er að
greiða borgarbúum sem vilja
gerast rottufangarar 20.000 rúpíur,
ríflega 135 krónur, fyrir rottu sem
þeir fanga. Þrátt fyrir að upphæðin
sé ekki há í okkar huga er hún
það í landi þar sem meginþorri
landsmanna lifir á innan við 250
krónum á dag. Sá hængur fylgir
veiðunum að til að fá greiðslu þarf
að skila völskunum lifandi.
Fjöldi fólks og sérstaklega
ungir karlmenn hafa séð sér hag
í veiðunum og beita margs konar
ráðum og tólum til að komast yfir
sem flestar rottur á sólarhring.
Þegar best lætur hafa afkastamiklir
fangarar veitt allt að 250 rottur á
sólarhring.
Hætta á sýkingum
Rottuveiðar almennings eru harðlega
gagnrýndar af heilbrigðisyfirvöldum
sem segja að sýkingar af völdum
veiðanna séu óhjákvæmilegar og
að þeim geti fylgt faraldur margs
konar sjúkdóma og þar á meðal
holdsveiki.
Stórar rottur í Svíþjóð
Indónesíubúar eru ekki þeir einu
sem kvarta yfir stórum rottum því
samkvæmt nýlegum tíðindum frá
Svíþjóð hefur rottum einnig fjölgað
þar í landi og þær sem veiðast eru
stærri en völskurnar sem veiddust
fyrir nokkrum árum. /VH
Talsverðu púðri hefur verið eytt í að halda rottufaraldrinum niðri en árangurinn
hefur látið á sér standa.
Hugmyndir um að refsa Bretum fyrir Brexit:
Mun valda Evrópusambandinu
stórtjóni segir forseti Póllands
Það mun valda Evrópu-
sambandinu stórtjóni ef ákveðið
verður að halda ekki uppi
viðskipta samvinnu við Bretland
þegar það gengur út úr ESB.
Þetta var haft eftir Andrzje
Duda, forseta Póllands í The
Brussels Times vegna viðbragða
hans við hugmyndum um að refsa
beri Bretum fyrir Brexit.
„Það verður meiri háttar tjón
fyrir ESB ef skorið verður á
tengslin við Bretland,“ sagði Duda
forseti í viðtali 21. nóvember. Kom
þessi yfirlýsing örfáum dögum
eftir að Jeroen Dijsselbloem,
yfirmaður Eurogroup, sagði
áframhaldandi samstarf við Breta
óraunhæft eftir útgöngu þeirra úr
ESB. Fjármálaþróunarráðherra
Ítalíu, Carlo Calenda, sagði
áframhaldandi samvinnu
óframkvæmanlega.
Andrzje Duda segir að það muni
reynast hættulegt fyrir þrjóska
evrópska pólitíkusa ef þeir reyni
að refsa Bretum fyrir að ganga úr
Evrópusambandinu. Hvatti pólski
forsetinn menn til að sýna stillingu
til að koma í veg fyrir að allir verði
taparar þegar upp verður staðið.
Ekki síður ESB en Bretland.
Þess má geta að um 800 þúsund
Pólverjar búa nú í Bretlandi og er
þetta stærsta einstaka þjóðarbrotið
þar í landi. /HKr.
Andrzje Duda, forseti Póllands, hvetur menn til að sýna stillingu.
Sýningarsvæði EuroTier í Hanover í Þýskalandi samanstendur af á þriðja tug sýningarhalla. Þetta sýningarsvæði
er nýtt undir fjölmargar aðrar sýningar árlega eins og landbúnaðartækjasýninguna Agri Technica.
Nýburastían frá Spinder er áhugaverð nýjung, sérstaklega fyrir stærri kúabú.
töluverða athygli á sýningunni en
um er að ræða bæði sogdælu sem
sogar slím upp úr veikburða fæddum
kálfum en hinn enda dælunnar má