Bændablaðið - 18.10.2018, Side 2

Bændablaðið - 18.10.2018, Side 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 20182 Þröstur Heiðar Erlingsson og Ragnheiður Lára Brynjólfsdóttir, bændur í Birkihlíð í Skagafirði, kynntu eigin framleiðslu á bás Matís á íslenskum landbúnaði 2018 um síðustu helgi. Þau voru hæstánægð með viðtökurnar. „Þetta er mjög flott sýning og aðstandendum til sóma,“ sagði Þröstur. „Við erum hér að kynna nautakjötið okkar, en annars erum við líka að framleiða lambakjöt í okkar heimavinnslu. Þar erum við að framleiða ýmsar afurðir og berjast við að selja allar okkar afurðir sjálf. Þó látum við sláturhúsið stundum vinna fyrir okkur. Við erum með 160 kindur og rétt um 80 mjólkandi kýr. Þá erum við með nautaeldi, enda látum við alla gripi lifa.“ Með mun strangari regluverk en þekkist í okkar nágrannalöndum Þröstur segir að í Birkihlíð sé kjötvinnsla sem uppfyllir öll lög og reglur. Honum finnst þó reglugerðarsmíðin ganga allt of langt og mun lengra en þekkist í okkar nágrannalöndum. Því hafi þau tekið höndum saman við Matís við að reyna að þoka regluverkinu á skynsamari brautir. Þau komust heldur betur í fréttir fyrr í þessum mánuði er þau framkvæmdu heimaslátrun í samstarfi við Matís. Farið var með kjötið á Bændamarkaðinn í Hofsósi þar sem afurðirnar voru seldar í trássi við reglugerðir. Kjötið var síðan innkallað en þess má geta að enginn hefur skilað kjötinu. „Það er gert í öllum löndunum í kringum okkur að slátra heima og vinna kjötið í svona kjötvinnslum,“ segir Þröstur. Dæmi um jafnvel enn ýktari aðferðir má sjá í grein með myndum af grunnskólabörnum í Noregi að kynna sér heimaslátrun í síðasta Bændablaði. Þar var slátrað inni í fjárhúsi, undir eftirliti dýralæknis, en greinilegt að kröfurnar voru ekki í neinu samræmi við þær sem íslenskir bændur verða að undirgangast. Samt lúta Norðmenn sömu EES reglugerðum og Íslendingar. „Þar að auki er mun heitara í þessum löndum en hjá okkur sem gerir vinnsluna viðkvæmari og við búum á eyju og erum laus við ýmsa óværu sem aðrir þurfa að glíma við. Að mínu mati er þessi stífni hér ótrúleg þröngsýni þótt við verðum auðvitað að vera með alla umgjörðina í lagi,“ sagði Þröstur. „Svo má ekki lóga lambi við góðar aðstæður heima við og verka það sjálfur til sölu. Þetta er mjög skrítið, ekki síst þar sem neytendur kalla mjög eftir svona afurðum. Við höfum sterklega orðið vör við það á þessari sýningu, það hefur mikið verið spurt um heimaslátrað kjöt.“ Heimavinnsla lykillinn að bættum hag bænda Þröstur segir heimavinnslu vera lykilinn að því að bændur geti náð meiri virðisauka af sinni framleiðslu. En það er samt lítið gagn í því að koma sér upp heimavinnslu ef afurðastöðvarnar hækka sífellt heimtökugjaldið og koma þannig í veg fyrir að bændur geti tekið kjötið sitt heim. Þess vegna verðum við að fá aðra leið í sambandi við slátrun. „Það er himinn og haf á milli þess sem bóndinn fær fyrir að leggja inn í afurðastöð og þeirrar framleiðslu sem hann getur selt sjálfur. Ég ætla ekki einu sinni að ræða það, svo mikill er munurinn. Þetta getur algjörlega skipt á milli feigs og ófeigs, t.d. í sauðfjárræktinni. Ég tala nú ekki um þá sem búa afskekkt og geta ekki stundað vinnu fyrir utan búið. Þarna gætu þeir klárlega búið sér til margfalt meiri verðmæti ef rýmkað yrði um reglurnar. Það getur hæglega snúist um það hvort menn lifa af í þessari grein eða ekki. Við erum ekki að reyna að koma höggi á neinn heldur viljum við bara að bændur hafi eitthvert val fyrir sínar vörur. Milliliðalaus viðskipti, frá bónda til neytenda, það eru óskir neytenda, það skynjum við vel hér á sýningunni. Menn hafa tækifærið en er bannað að nota það. Ég held að þetta samstarf okkar við Matís hafi sýnt fram á hvað þetta er galið. Nú er það bara alþingismanna að standa í lappirnar og lagfæra þetta umhverfi.“ Hann segir að sú uppákoma sem átti sér stað við heimaslátrun í Birkihlíð fyrr í mánuðinum hafi einfaldlega verið framkvæmd til að sýna fram á fáránleika regluverksins. „Neyðin er bara orðin þannig, t.d. í sauðfjárbúskapnum, að það verður að brjóta lög ef menn ætla að komast af. Neytendur og bændur kalla eftir að regluverkið verði sett upp af skynsemi, en ekki bara fyrir kerfið sjálft,“ segir Þröstur Erlingsson. /HKr. – Sjá nánar á innsíðum FRÉTTIR Mynd /HKr. Sýningin Íslenskur landbúnaður 2018 haldin í Laugardalshöll eftir 50 ára hlé: Mjög flott sýning og aðstandendum til sóma – segja bændur í Birkihlíð í Skagafirði sem kynntu þar eigin kjötframleiðslu Ræða Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og formanns VG á flokksráðsfundi Vinstri grænna: „Leiðigjarnt stef að tala innlendan landbúnað niður“ – Við þurfum að tryggja ungum bændum frelsi til að fara ótroðnar slóðir í matvælaframleiðslu Katrín Jakobsdóttir forsætis- ráðherra kom víða við í ræðu sinni á flokksráðsfundi Vinstri grænna sem haldinn var fyrir skömmu. Þar sagði Katrín meðal annars að það væri orðið leiðigjarnt stef þegar menn kappkosta að tala niður innlendan landbúnað eins og hann sé þurfalingur í íslensku samfélagi þegar hann er einmitt undirstöðuatvinnugrein til þess að Ísland geti orðið raunveruleg matarkista. Í upphafi ræðu sinnar sagði Katrín að verkefni frá kosningum hafi verið ærin enda hefði flokkurinn sett fram skýra stefnu með þremur höfuðatriðum sem voru: uppbygging samfélagslegra innviða til að jafna lífskjör og bæta hag almennings, aukið samráð um stórar pólitískar ákvarðanir og raunverulegar umfangsmiklar aðgerðir í loftslagsmálum. Umhverfismál og landbúnaður komu talsvert við sögu í ræðu Katrínar og sagði hún meðal annars í ræðu sinni: „Í tíð þessarar ríkisstjórnar hafa orðið straumhvörf í fjárveitingum til loftslagsmála og í stefnumörkun. Ríkisstjórnin kynnti í byrjun september fyrstu áfangana í metnaðarfullri aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Þar munu landgræðsla, skógrækt og endurheimt votlendis verða fyrirferðarmikil til þess að binda aukið kolefni en í stjórnarsáttmála er kveðið á um að Ísland eigi að verða kolefnishlutlaust ekki seinna en 2040. Annar stór áfangi eru orkuskipti í samgöngum þar sem stórátak verður í uppbyggingu fyrir rafbíla og rafhjól og sett niður tímaáætlun um að ekki verði fluttir inn nýir bílar sem ganga fyrir bensíni eða olíu eftir 2030. Ný skýrsla um loftslagsbreytingar sýnir gjörla að aðgerða er þörf – og víðar en á þessum tveimur sviðum.“ Katrín sagði einnig: – „Við þurfum að huga að því hvernig við getum orðið mun öflugri í matvælaframleiðslu til að draga úr vistspori innfluttra matvæla og verða sjálfum okkur nægari í matvælaframleiðslu. Við þurfum að tryggja ungum bændum frelsi til að fara ótroðnar slóðir í matvælaframleiðslu, tryggja að bændur eigi ólíka valkosti í framleiðslu sinni, geti selt beint frá býli og greiða fyrir því að þeir geti sinnt nýsköpun og þróun. Leiðigjarnt að tala niður innlendan landbúnað eins og hann sé þurfalingur Það er orðið leiðigjarnt stef þegar menn kappkosta að tala niður innlendan landbúnað eins og hann sé þurfalingur í íslensku samfélagi þegar hann er einmitt undirstöðuatvinnugrein til þess að Ísland geti orðið raunveruleg matarkista. Öll okkar stefnumörkun á að miðast við þá heildarsýn að við drögum úr vistsporinu, minnkum sóun, eflum nýsköpun í matvælaframleiðslu og tryggjum matvæla- og fæðuöryggi. Sýna þarf stórhug í hvers konar landbúnaði og sjávarútvegi og setja niður matvælastefnu fyrir Ísland sem bregst við þeim raunverulegu áskorunum sem heimurinn stendur frammi fyrir. Atvinnulíf í sátt við samfélag og umhverfi Atvinnulíf í sátt við samfélag og umhverfi er kjarni okkar stefnu; kjarni hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Við eigum einstakt tækifæri til að ráðast í breytingar sem munu gera íslenskt samfélag sjálfbærara. Þar skiptir öllu máli það sem við erum að gera í þessari ríkisstjórn, sú kúvending sem nú hefur orðið í þessum málaflokki, mestu áskorun aldarinnar; loftslagsmálunum.“ /VH

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.