Bændablaðið - 18.10.2018, Side 28

Bændablaðið - 18.10.2018, Side 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 201828 HROSS&HESTAMENNSKA FæreyjaFengur – Færeyingar eiga sinn eigin landnámshestastofn sem telur nú 93 hross: Gagnagrunnur fyrir færeyska hestinn byggður á WorldFeng – Eru afkomendur hesta sem bárust með landnámsmönnum og eru náskyldir íslenska hestinum en talsvert smávaxnari Hestar af færeyska landnáms- stofninum eru í dag 93 en í heild eru hestar í Færeyjum um 700 og er stór hluti þeirra íslenskir hestar. Félagið Föroysk ross í samvinnu við Bændasamtök Íslands vinnur að gerð gagnabanka um færeyska hestinn. Gagnabankinn er byggður á WorldFeng. Hans Petersen, flugmaður og áhugamaður um færeyska hesta segir að færeyski hesturinn sé afkomandi hesta sem bárust til Færeyja með landnámsmönnum. „Hestarnir eru náskyldir norskum og íslenskum hestum og 95 til 96% erfðafræðilega. Færeysku hestarnir eru minni en þeir íslensku og ekki nema 122 sentímetrar upp á herðakamb að meðaltali og teljast því smáhestar.“ Í dag telur færeyski smáhesta- stofninn 93 einstaklinga auk þess sem hugsanlega gætu leynst einhverjir á Bretlandseyjum sem ekki er vitað um. Til samanburðar er talið að finna megi ríflega 1.500 villta pandabirni í heiminum. Föroyafengur í vinnslu „Til eru mjög nákvæmar skrár um færeyska hestinn en þær eru mikið með gamla laginu og á spjaldskrám. Sem stendur er unnið að gerð gagnabanka með þessum upplýsingum í samvinnu við Bændasamtök Íslands og byggt á WorldFeng og mun færeyski gagnagrunnurinn kallast FöroyaFengur.“ Fundu fjóra einstaklinga „Eitt af þeim vandamálum sem fylgir verndun færeyska hestsins er hversu fáir hestarnir eru. Vinna við verndun stofnsins hófst á seinni hluta sjötta áratugar síðustu aldar af áhugafólki um færeyska hestinn en þá voru einungis fjórir slíkir til í heiminum. Allir færeyskir hestar í dag eru því afkomendur þriggja mera og eins graðhests.“ Félagið Föroysk ross var stofnað 1978 og hefur síðan unnið að varðveislu færeyska hestsins og safnað upplýsingum um hann. Í heimasíðu félagsins segir að um 1800 hafi færeyskir hestar í Færeyjum verið um 800. Vegna smæðar hestsins voru þeir aðallega notaðir til burða en þess á milli gengu hrossin sjálfala. Frá 1850 til 1920 seldu Færeyingar talsvert af hrossum til Bretlands þar sem þau voru notuð sem dráttardýr í kolanámum. Um svipað leyti og Færeyingar hófu útflutning á hrossum hófu þeir innflutning á erlendum hrossum annars staðar frá og aðallega frá Íslandi og Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Færeyskir smáhestar. Allir færeyskir hestar í dag eru því afkomendur þriggja mera og eins graðhests. Mynd / Alessio Mesiano Irdi Petersen, Þorvaldur Kristjánsson, ábyrgðarmaður í hrossarækt, Jóna Adelaide Ólavsdóttir, Jón Baldur Lorange, verkefnastjóri WorldFengs, og Hans Petersen. Indri og Jóna er tilvonandi skrásetjarar FæreyjaFengs. Mynd / smh. Vegnar smæðar hestsins voru þeir aðallega notaðir til burða en þess á milli gengu hrossin sjálfala.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.