Bændablaðið - 18.10.2018, Síða 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 201828
HROSS&HESTAMENNSKA
FæreyjaFengur – Færeyingar eiga sinn eigin landnámshestastofn sem telur nú 93 hross:
Gagnagrunnur fyrir færeyska
hestinn byggður á WorldFeng
– Eru afkomendur hesta sem bárust með landnámsmönnum og eru náskyldir íslenska hestinum en talsvert smávaxnari
Hestar af færeyska landnáms-
stofninum eru í dag 93 en í heild
eru hestar í Færeyjum um 700 og
er stór hluti þeirra íslenskir hestar.
Félagið Föroysk ross í samvinnu
við Bændasamtök Íslands vinnur
að gerð gagnabanka um færeyska
hestinn. Gagnabankinn er
byggður á WorldFeng.
Hans Petersen, flugmaður og
áhugamaður um færeyska hesta
segir að færeyski hesturinn sé
afkomandi hesta sem bárust til
Færeyja með landnámsmönnum.
„Hestarnir eru náskyldir norskum
og íslenskum hestum og 95 til 96%
erfðafræðilega. Færeysku hestarnir
eru minni en þeir íslensku og
ekki nema 122 sentímetrar upp á
herðakamb að meðaltali og teljast
því smáhestar.“
Í dag telur færeyski smáhesta-
stofninn 93 einstaklinga auk
þess sem hugsanlega gætu leynst
einhverjir á Bretlandseyjum sem
ekki er vitað um. Til samanburðar
er talið að finna megi ríflega 1.500
villta pandabirni í heiminum.
Föroyafengur í vinnslu
„Til eru mjög nákvæmar skrár
um færeyska hestinn en þær
eru mikið með gamla laginu og
á spjaldskrám. Sem stendur er
unnið að gerð gagnabanka með
þessum upplýsingum í samvinnu
við Bændasamtök Íslands og
byggt á WorldFeng og mun
færeyski gagnagrunnurinn kallast
FöroyaFengur.“
Fundu fjóra einstaklinga
„Eitt af þeim vandamálum sem
fylgir verndun færeyska hestsins
er hversu fáir hestarnir eru. Vinna
við verndun stofnsins hófst á seinni
hluta sjötta áratugar síðustu aldar
af áhugafólki um færeyska hestinn
en þá voru einungis fjórir slíkir til
í heiminum. Allir færeyskir hestar
í dag eru því afkomendur þriggja
mera og eins graðhests.“
Félagið Föroysk ross var
stofnað 1978 og hefur síðan unnið
að varðveislu færeyska hestsins
og safnað upplýsingum um hann.
Í heimasíðu félagsins segir að
um 1800 hafi færeyskir hestar í
Færeyjum verið um 800. Vegna
smæðar hestsins voru þeir aðallega
notaðir til burða en þess á milli
gengu hrossin sjálfala. Frá 1850
til 1920 seldu Færeyingar talsvert
af hrossum til Bretlands þar sem
þau voru notuð sem dráttardýr
í kolanámum. Um svipað leyti
og Færeyingar hófu útflutning á
hrossum hófu þeir innflutning á
erlendum hrossum annars staðar
frá og aðallega frá Íslandi og
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Færeyskir smáhestar. Allir færeyskir hestar í dag eru því afkomendur þriggja mera og eins graðhests. Mynd / Alessio Mesiano
Irdi Petersen, Þorvaldur Kristjánsson, ábyrgðarmaður í hrossarækt, Jóna Adelaide Ólavsdóttir, Jón Baldur Lorange,
verkefnastjóri WorldFengs, og Hans Petersen. Indri og Jóna er tilvonandi skrásetjarar FæreyjaFengs. Mynd / smh.
Vegnar smæðar hestsins voru þeir
aðallega notaðir til burða en þess á
milli gengu hrossin sjálfala.