Bændablaðið - 18.10.2018, Qupperneq 35

Bændablaðið - 18.10.2018, Qupperneq 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 2018 35 ÞÖKKUM FYRIR FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR Á LANDBÚNAÐARSÝNINGUNNI Og við bjóðum alla nýja meðlimi í Mannol Bændaklúbbnum velkomna í hópinn! Við minnum einnig á að tilboðið gildir á meðan birgðir endast. Vertu viðbúinn vetrinum LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR SNJÓKEÐJUR Nøsted Kjetting as Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Ný hönnun Allir félagsmenn Bændasamtaka Íslands teljast til sjóðs félaga og geta sótt um: # Styrki til endurgreiðslu aukins rekstrarkostnaðar vegna veikinda þess sem að búrekstri stendur eða slyss. - Útlagður launakostnaður, verktakagreiðslur og sambærilegur kostnaður sem leiðir af óvinnufærni. # Styrki til forvarnarverkefna. - Verkefni tengd forvörnum og vinnuvernd, slysavarnir og önnur verkefni sem hafa það að markmiði að bæta velferð sjóðsfélaga. Nánari upplýsingar á bondi.is og umsóknareyðublöð má nálgast á félagsmannasíðum á Bændatorginu. Umsóknir skulu berast eigi síðar en 15. nóvember nk. á netfangið: velferdarsjodur@bondi.is. VELFERÐARSJÓÐUR BÍ AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM Bændasamtök Íslands, Bændahöllinni við Hagatorg, 107 Reykjavík Við þökkum frábærar viðtökur á Landbúnaðarsýningunni. MS minnkar plastnotkun í mjólkurvöruumbúðum Nokkur stór skref hafa verið tekin hjá MS í að minnka plastnotkun og breyta umbúðum svo minna álag sé á umhverfið. Hefur fyrirtækið á síðustu misserum skoðað umbúðir fyrirtækisins með það að markmiði að draga úr plastnotkun. Mörkuð var í áætlanagerð fyrir árið 2018 um að fjarlægja plaströrin af G-mjólkurfernum sem fyrirtækið framleiðir og flytja vörur í umbúðir með minna kolefnisspor. Nú þegar er búið að fjarlægja rörin af umbúðum G-mjólkurinnar og í vor fóru allir drykkir á borð við KEA skyrdrykk, jógúrtdrykk og ab-drykk úr plastdósum yfir í pappafernur. Þar með urðu engir drykkir lengur fáanlegir í plastumbúðum hjá fyrirtækinu. Fernur Árið 2017 skipti MS mjólkur- fernunum sínum út fyrir nýjar og umhverfisvænni fernur sem eru ekki eingöngu endurvinnanlegar heldur jafnframt búnar til úr endurnýjanlegu hráefni úr plönturíkinu. Ferska mjólkin sem árlega er pakkað í 25 milljón fernur árlega er nú í umbúðum gerðum úr pappa úr ábyrgri skógrækt og plasti sem framleitt er úr sykurreyr. MS er fyrsta fyrirtæki sinnar tegundar í heimi sem setur allar mjólkurfernur í þessar umbúðir sem eru þær umhverfisvænstu sem völ er á fyrir drykkjarmjólk og við þessa breytingu varð kolefnisspor fernanna 66% minna en áður (Tetrapak, 2017). Könnun á vegum Gallup í júní 2017 sýndi að 64% neytenda tók eftir breytingum á umbúðunum og yfirgnæfandi meirihluti eða 86,7% var jákvæður gagnvart þeim. Plasttappi unninn úr sykurreyr Sagt er að tappinn sem er úr plasti megi fara með fernunni beint í endurvinnslu sem auðveldar sorpflokkun. Pappinn í fernunum er með vottun frá FSC™ (Forest S t e w a r d s h i p Council) og annarri vottaðri trjávinnslu. Með ábyrgri skógrækt er átt við að skógar sem nýttir eru til uppskeru fá að endurnýja sig og trjávexti er haldið gangandi. Samkvæmt upplýsingum frá MS er plastið í tappanum á fernunum unnið úr sykurreyr en ekki olíu. Þar er þó eigi að síður um plast að ræða sem ekki er æskilegt í umhverfinu frekar en annað plast sem unnið er úr olíu eða lífmassa. Bakgrunnurinn að vinnslunni á þessum töppum er þó ólíkur og ólíkt umhverfisvænni en olíuvinnsla. Sykurreyrinn er aðallega gróðursettur á rýru beitilandi og niðurníddum högum. Hverja plöntu er hægt að nýta til uppskeru í 5–7 ár áður en planta þarf nýrri. Með þessari nýju aðferð er ekki gengið á takmarkaðar jarðefnaauðlindir við framleiðsluna. Á sama tíma er dregið úr aukinni losun koltvísýrings út í andrúmsloftið þar sem sykurreyrinn bindur koltvísýring á líftíma sínum. Samhliða breytingu á fernum vildi Mjólkursamsalan vekja neytendur til umhugsunar um að tómar umbúðir eru ekki rusl og hvetja um leið til endurvinnslu. Yfirskriftin var Fernur eiga framhaldslíf. Haldin var ráðstefna árið 2017 í samstarfi við Festu, samfélagsábyrgð fyrirtækja og Tetra Pak. Aðalskilaboð Erik Lindroth, umhverfisstjóra Tetra Pak í N-Evrópu, sem var með erindi á fundinum: „… tómar umbúðir eru ekki rusl heldur efniviður til að framleiða nýjar umbúðir.“ Fjölnota ytri umbúðir Mjólkursamsalan hefur um árabil notað stálvagna og grindur til að flytja mjólk og mjólkurvörur til verslana og með því sparað notkun einnota ytri umbúða. Þetta fyrirkomulag er bæði fyrirtækinu og verslunum til mikils hægðarauka – svo ekki sé minnst á umhverfislegan ávinning þar sem vagnarnir eru í stöðugri hringrás milli MS og verslana og notaðir aftur og aftur. Enn fremur er hafin notkun á fjölnota kössum fyrir osta. Fyrst um sinn hafa þeir verið notaðir undir rifinn ost til aðila á fyrirtækjamarkaði (stórnotenda), en stefnt er að því að auka hlut þessara margnota kassa í flutningum á fleiri vörum og til smásöluaðila. Plastbakkarnir sem skyrinu er raðað í eru framleiddir úr endurunnu plasti, þeim er safnað saman af verslunum og skilað aftur til endurnýtingar.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.