Bændablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 2018 43
Nýja-Sjálandi, FrieslandCampina
sem er í eigu bænda í Hollandi og
Arla Foods sem er í eigu bænda í 7
löndum Norður-Evrópu. Í sjöunda
sæti er hið kanadíska Saputo og
þá koma kínversku fyrirtækin
Yili og Menginu og því eru fjögur
af 10 stærstu fyrirtækjunum
samvinnufélög en öll hin eru
hlutafélög.
Samrunar ofan á samruna
Í skýrslu Rabobank kemur fram
að síðustu tvö árin hafa ekki
orðið neinar breytingar á listanum
yfir 20 veltumestu fyrirtækin í
mjólkuriðnaðinum í heiminum.
Segja skýrsluhöfundar það skýrast
af því að stærstu fyrirtækin haldi
afar sterkri stöðu á markaðinum
og stundi samruna og uppkaup á
smærri fyrirtækjum til að halda
áhrifum sínum.
Hér áður fyrr sameinuðust
fyrirtæki fyrst og fremst innan
landanna eða við önnur fyrirtæki
í næstu löndum og Arla Foods er
gott dæmi um það en það félag
hefur vaxið með samruna á milli
nágrannalanda og byrjaði ferlið
með samruna hins danska MD
Foods og hins sænska Arla. Síðan
hafa runnið inn í Arla Foods félög
í nágrannalöndunum og í dag
standa að Arla Foods kúabændur í
7 löndum. Sömu sögu má segja af
FrieslandCampina en það félag varð
til þegar tvö smærri runnu saman í
eitt í Hollandi.
Nú orðið er mun sjaldgæfara að
svona samrunar eigi sér stað og
mun algengara að fyrirtækin styrki
sig á markaði með uppkaupum eða
samruna við fyrirtæki í löndum sem
eru jafnvel óralangt í burtu. Góð
dæmi um þetta eru t.d. samruni á
síðasta ári milli Lactalis við hið
bandaríska WhiteWave og samruni
Saputo við hið ástralska Murray
Goulburn.
Samvinnufélögin í vörn
Skýrsluhöfundar spá því að
afurðastöðvum í heiminum
haldi áfram að fækka á komandi
tímum og þau stækki enn frekar.
Árið 2017 voru alls gerðir 127
samrunar eða uppkaup og um mitt
þetta ár var búið að tilkynna um
62 samrunasamninga sem bendir
til þess að árið 2018 verði áþekkt
fyrra ári þegar litið er til stækkunar
fyrirtækjanna í mjólkurvinnslu
í heiminum. Þá spá þeir því líka
að samvinnufélagaformið muni
eiga undir högg að sækja þar sem
hlutafélagaformið virðist henta
vel fyrir afurðavinnslu mjólkur
þar sem ákvarðanatakan er öllu
einfaldari og skilvirkari og nefna
uppkaup Saputo á Murray Goulburn
í Ástralíu, sem var samvinnufélag
bænda, sem dæmi um undan-
hald samvinnufélagsformsins.
Skýrsluhöfundar taka þó fram að
nokkur samvinnufélög séu mjög
sterk og áðurnefnd fjögur félög á
topp 10 listanum séu með rúmlega
tvöfalda veltu Nestlé sem sýnir
styrk þeirra.
20 stærstu með 25%
mjólkurinnar!
Sé horft frá veltu fyrirtækjanna og
í staðinn að umfangi þeirra litið til
þess mjólkurmagns sem þau vinna
með kemur upp svolítið öðruvísi
heimsmynd (sjá töflu 2). Samkvæmt
skýrslu IFCN nam innvigtun 20
stærstu aðilanna á markaðinum 211
milljörðum kílóa á síðasta ári en
það magn er um 25% af allri mjólk
sem var innvegin til afurðastöðva í
heiminum í fyrra.
Þessi 20 fyrirtæki og félög
juku innvigtun mjólkur um 11
milljarða kílóa frá árinu 2015 eða
um 5,5%. Þá vekur athygli að 5
stærstu aðilarnir eru með helming
magnsins eða um 100 milljarða
kg mjólkur! Til þess að setja þetta
magn í samhengi þá eru þessir fimm
aðilar með rúmlega 650 sinnum
meira mjólkur-magn en samanlögð
öll íslenska mjólkurframleiðslan var
á síðasta ári!
Ólíkur rekstur
Við skoðun á þessu yfirliti IFCN
um röðun fyrirtækja sem kaupa
mjólk af bændum, í samanburði
við tekjulista Rabobank af
fyrirtækjum í mjólkurvinnslu,
má m.a. sjá að töluverður munur
er á rekstrarfyrirkomulagi
fyrirtækjanna. Þannig er bandaríska
félagið Dairy farmers of America
með langmesta mjólkurmagnið en
velta þess er þó minni en margra
annarra.
Skýringin felst í því að félagið
selur mest af mjólkinni óunna til
annarra aðila sem svo framleiða
úr henni söluvörur. Þá má sjá á
þessum lista IFCN 4 fyrirtæki sem
ekki eru á listanum hjá Rabobank
á þetta sér hlið-stæðar skýringar
og um Dairy Farmers of America.
Nokkur fyrirtæki og félög bænda
eru þó sterk á báðum sviðum, þ.e.
bæði með mikla innvigtun mjólkur
og mikla veltu.
Evrópsk fyrirtæki sterk
Af 20 stærstu fyrirtækjum og
félögum sem kaupa mjólk af
bændum eru 10 þeirra evrópsk og
segir það sitt um mikilvægi Evrópu
sem mjólkurframleiðslusvæðis
í heiminum. Þessir 10 aðilar eru
með um helming mjólkurmagnsins
af stærstu 20 aðilunum en
mjólkurframleiðslan er einnig afar
öflug í Norður-Ameríku og af 20
stærstu aðilunum eru 6 þaðan.
Þá vekur athygli að kínversku
fyrirtækin Yili og Mengniu ná inn á
listann en þessi tvö fyrirtæki eru ung
að árum en hafa vaxið gríðarlega
mikið á stuttum tíma.
Ýmsar aðrar áhugaverðar
staðreyndir um stöðu og þróun
innvigtunar mjólkur og vinnslu
mjólkur-afurða má finna í þessum
skýrslum frá Rabobank og IFCN, en
báðar skýrslurnar eru aðgengilegar
á veraldarvefnum.
Heimildir: IFCN, 2108: Top
20 milk processors list 2018 /
RaboResearch, 2018: Global
dairy top 20.
Aflvélar ehf. • Vesturhrauni 3 • 210 Garðabær
Sími: 480 0000 • aflvelar.is • sala@aflvelar.is
Gluggar og hurðir fyrir
íslenskar aðstæður
Í yfir 20 ár hefur Viking Window AS selt tréglugga og hurðir á Íslandi
Gluggar og hurðir með eða
án álkápu
Margir litir í boði
Afhendist glerjað og tilbúið
til uppsetningar
Afgreiðslutími 5-8 vikur
Sjá nánar á:
viking.ee
Áhrif loftlagsbreytinga í heiminum
vegna hlýnunar eru margvíslegar.
Jöklar bráðna, fjöldi dýra og
plantna eru í útrýmingarhættu og
hungursneyð blasir við milljónum
manna. Ekkert af þessu virðist þó
vera nóg til að gripið sé í taumana.
Nýjar rannsóknir benda til að
uppskerubrestur á byggi vegna
þurrka muni leiða til bjórskorts
í heiminum og að verð á einum
köldum eigi eftir að hækka
umtalsvert. /VH
Loftlagsbreytingar:
Verð á bjór
mun hækka
Verð á einum köldum mun hækka
í kjölfar loftlagsbreytinga og upp-
skerubrests á byggi.
VIÐSKIPTABLAÐIÐ
LESTUR PRENTMIÐLA Á LANDSBYGGÐINNI
BÆNDAHÖLLIN VIÐ HAGATORG
Sími 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
0%
10%
20%
30%
40%
50%
DV STUNDIN MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ BÆNDABLAÐIÐ
8,0%
11,2% 9,4%
22%
27,3%
43,1%