Bændablaðið - 18.10.2018, Page 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 201846
Laugardaginn 6. október
frumsýndi Suzuki Bílar hf. í
Skeifunni nýjustu árgerðina af
Suzuki Jimny, jeppanum sem
hefur verið einn mest seldi jeppi
landsins síðustu ár.
Fyrir mér er Jimny einn af fáum
bílum sem kemst í þann flokk bíla
sem ég kalla jeppaflokkur. Það eru
bílar sem eru fjórhjóladrifnir, með
„hásingu“ framan og aftan, hátt og
lágt drif og dekk sem eru a.m.k.
með prófíl sem er að lágmarki í
hæð dekkja 70% af breidd þeirra.
Allt þetta ofantalið er í nýja Suzuki
Jimny sem ég fékk að prófa að
lokinni frumsýningunni á bílnum.
Ný kraftmikil 102 hestafla
bensínvél
Bíllinn sem ég prófaði var Suzuki
Jimny GLX sem er aðeins betur
búinn en GL bíllinn. GL bíllinn
kostar frá 3.455.000 beinskiptur, en
GLX bíllinn kostar 4.180.000 og er
þá sjálfskiptur. Eins og allir vita er
bíllinn ekki stór og varla nema fyrir
mjög smáa að sitja í aftursætunum
tveim, en í framsætunum er gott
pláss og þægilegt að sitja í, jafnvel
fyrir menn allt að tveggja metra
háa án þess að reka sig upp í þak
bílsins. Vélin er 1,5 lítra sem skilar
102 hestöflum. Dekkjastærðin
undir bílnum er 195/80/15 og má
auðveldlega stækka og breikka þau
því nóg er plássið.
Prufuaksturinn
Í fyrstu ók ég bílnum nálægt 30 km
innanbæjar og fannst það þægilegt,
sérstaklega þegar ég var að leggja
í stæði þar sem bíllinn er lítill og
beygjuradíusinn er mikill.
Samkvæmt aksturstölvunni var
ég að eyða í innanbæjarakstrinum
8,1 lítra af bensíni á hundraðið.
Í utanbæjarakstrinum eyddi ég
nálægt 7 lítrum, en uppgefin eyðsla
í blönduðum akstri er frá 6,8 til 7,5
lítrar á hundraðið.
Næst var það að prófa bílinn í
torfærum og versti slóði sem ég
veit um er vegslóði í Hvassahrauni
niður að eyðibýlinu Lónakoti.
Slóða þennan hef ég ekki komist
áður á bíl, en nokkrum sinnum á
fjórhjóli. Það er skemmst frá því
að segja að í lága drifinu labbaði
bíllinn þetta auðveldlega. Þrátt fyrir
að ekki væri nema 21 cm undir
lægsta punkt rak ég bílinn aldrei
niður við þessar torfæruæfingar
mínar og fannst bíllinn ekki fara
neitt illa með mig sem í bílnum sat.
Lítið pláss fyrir farangur
Að lokum keyrði ég bílinn
malarveginn upp að Keili (með
eindæmum vondur malarvegur).
Í fjórhjóladrifinu var bíllinn
ekkert laus á veginum upp á enda
vegarins, en í bakaleiðinni tók ég
hann úr fjórhjóladrifinu og var
hann þá aðeins laus á veginum,
sérstaklega þar sem holurnar voru
verstar.
Að endingu, áður en ég skilaði
bílnum, var farið í dæmigerðan
innkaupaleiðangur fyrir heimilið.
Til að koma innkaupunum fyrir í
bílnum var annað sætið lagt niður
því plássið fyrir aftan aftursætin er
varla fyrir neitt.
Sem lokaorð um bílinn þá
mundi ég halda þennan bíl henta
vel fyrir tvo til að ferðast í ef
á að fara langt. Jimny er hörku
torfærujeppi og virðist vera hægt
að fara í ótrúlegar torfærur á
honum. Ég myndi halda að þetta
væri draumabíll fyrir þá sem eru
mikið tveir saman í veiðiferðum
þar sem vegir og slóðar eru sérlega
vondir.
Mín lokaorð fyrir áhugasama
Farið í Suzuki Bíla og skoðð
gripinn, hann er svo sérstakur að
maður verður að skoða sjálfur.
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Royal Enfield Himalayan
– Indverskt torfærumótorhjól
Á sýningunni Íslenskur land-
búnaður voru mörg tæki sem
gaman væri að prófa. Eitt af
þessum tækjum var indverskt
torfærumótorhjól sem Vallarbraut
sýndi á kerru á útisvæðinu.
Í hálfan mánuð fyrir sýninguna
fékk ég að hafa hjólið til prófunar
og skilaði hjólinu rétt fyrir opnun
sýningarinnar og má því segja um
mig eins og í kvæðinu:
„Þú komst í hlað á hvítum hesti“
þegar ég mætti á sýninguna.
Lágt mótorhjól og smæstu
einstaklingar ná vel niður með
fæturna
Það var kalt, blautt, hvasst og
ekki skemmtilegt veður til að keyra
mótorhjól dagana sem ég hafði hjólið,
en samt náði ég að keyra það um
150 km. Royal Enfield Himalayan er
ekki kraftmesta mótorhjól sem ég hef
keyrt, en ágætt að keyra það.
Hjólið er mjög lágt og þegar
ég var stopp náði ég niður með
hælana og meira að segja aðeins
með bogin hné. Sætishæð er 80
cm. Hjólið er ekki nema 24,5
hestöfl, vélin einn strokkur 411 cc.
Hámarkshraði uppgefinn er 140 km.
15 l bensíntankur og 182 kg þurrvigt.
Hæð undir lægsta punkt er 22 cm.
Framfjöðrunin er 20 cm og að aftan
18 cm.
Gott að keyra hjólið við allar
aðstæður sem prófaðar voru, en
vantaði stundum hestöfl
Fyrst tók ég um 30 km innanbæjarrúnt
á frekar litlum hraða í miklum kulda
og saknaði aðeins handfangahitara
í stýrinu (rúntur til fjáröflunar á
rannsóknum á krabbameini sem
nefnist Gentleman´s Ride).
Næst var slóðaakstur upp
Hafrahlíðina á fjallið Lala fyrir ofan
Hafravatn, sá slóði er þokkalegur,
hlykkjóttur og frekar brattur. Þar
vantaði svolítið af hestöflum upp
brekkurnar, en hægt er að plata
fá hestöflin með því að stækka
afturtannhjólið um t.d. 4 tennur og
þá hefði hjólið verið snarpara út úr
beygjunum upp brekkuna (með því
að stækka afturtannhjólið hefði að
vísu hámarkshraðinn lækkað niður
í um 120 km, gerir ekkert til því á
svona hjóli er maður ekki að flýta
sér, bara að njóta). Síðasta prófunin
var að hjóla í miklu roki. Til að
prófa það fór ég upp í Bláfjöll þar
sem vindurinn var 17–20 m á sek. og
stóðst hjólið vel þá prófun og kom
það mér á óvart hvað hjólið tók vel
vindinn.
Fínt mótorhjól fyrir byrjendur og
þá sem ekki eru að flýta sér
Ólíkt öðrum framleiðendum mótor-
hjóla þá er uppgefin smurolíu-
skipti á Royal Enfield Himalayan
10.000 km., en á flestum öðrum
mótorhjólum er ætlast til að skipta
mun örar um olíu á mótorum (allt
niður í á 500 km fresti).
Hjólið er með ABS bremsur og
beina innspýtingu á vélinni. Svo
þægilegt er að keyra þetta hjól að
fyrir mér er þetta ekta hjól fyrir
byrjendur, en til að mega keyra
hjólið þarf maður A2 bifhjólaréttindi
eða að vera 19 ára. Royal Enfield
Himalayan kostar 999.000 og hægt
er að nálgast nánari upplýsingar
um hjólið á vefslóðinni www.
vallarbraut.is.
Vondi slóðinn að Lónakoti var ekkert vandamál fyrir Jimny. Myndir / HLJ
Gormarnir í fjöðruninni frekar innarlega sem gefa góða sveigjanlega fjöðrun. Lítil innkaupaferð er frekar fyrirferðarmikil í Jimny.
Miðað við hvað bíllinn er stuttur
fanst mér samt gott að keyra hann
á vondum malarvegi.
Sonurinn ánægður með að hafa þurft að bíða eftir gamla koma upp slóðann
á toppi fjallsins.
Báðir fætur niðri og aðeins boginn
í hnjánum, hjól sem hentar vel
lágvöxnum.