Bændablaðið - 07.06.2018, Qupperneq 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júní 2018
Hagnaður hefur verið
af rekstri Vilko ehf.
undanfarin tvö ár, í
fyrra skilaði rekstur-
inn 1,2 milljóna króna
hagnaði og árið á
undan 1,6 milljónum
króna.
Vilko hefur farið
í gegnum mikið
breytingarskeið undan-
farin ár, en fyrirtækið
flutti í stærra húsnæði
þar sem hið eldra upp-
fyllti engan veginn þá
þörf sem Vilko var
komin í. Í fyrra flutti
Vilko því starfsemi
sína í gamla MS húsið, en miklar
og kostnaðarsamar breytingar voru
gerðar á húsinu til að mæta þörfum
Vilko.
Nýr vélbúnaður og vottanir
Samhliða flutningi fjárfesti Vilko
í fullkomnum vélbúnaði til hylk-
junargerðar og kryddáfyllingar á
árinu. Síðastliðið ár einkenndist af
uppbyggingu á eigin framleiðslu
og innri skipulagsvinnu. Vilko er
nú komið með ýmsar vottanir, s.s.
Tún vottun og öll aðstaða er til fyr-
irmyndar fyrir matvælaframleiðslu.
Lengi má þó gott bæta og áfram
verður unnið að smávægilegum
lagfæringum í húsinu.
Fram kemur í tilkynningu frá
félaginu að eigendur og starfs-
fólk horfi bjartsýn fram á veg-
inn, Vilko ætli sér stærri hluti í
framtíðinni.
Á gömlum merg
Fyrirtækið Vilko stendur á gömlum
merg. Það var stofnað í Kópavogi árið
1969 en árið 1986 keypti Kaupfélag
Húnvetninga framleiðsluna og flutti
starfsemina á Blönduós.
Árið 2000 var fyrirtækið
gert að hlutafélagi sem er í eigu
Ámundarkinnar ehf., Ó. Johnson
& Kaaber ehf., sveitarfélaganna
í Austur-Húnavatnssýslu sem
og nokkurra starfsmanna og
einstaklinga.
Vel þekkt vörumerki
Vilko-vörurnar þekkja flestir, heilu
kynslóðir landsmanna hafa verið
aldir upp á súpum, grautum, vöfflum,
kökum og fleira góðgæti sem
framleitt er undir merkjum Vilko.
Vilko á einnig vörumerkið Prima
sem er mest selda kryddlína á Íslandi.
Prima kryddtegundirnar eru um 100
talsins í öllum stærðum og gerðum
af pakkningum.
Hluthafar í Vilko ehf. eru 20 og
starfsmenn 8 en starfsmönnum mun
fjölga nokkuð á næstu mánuðum.
/MÞÞ
FRÉTTIR
Glimrandi gangur hjá
Vilko á Blönduósi
-
Mynd / MHH
Fjölbrautaskóli Suðurlands
opnar FabLab smiðju í haust
Nýlega skrifuðu forsvarsmenn
Háskólafélag Suðurlands (HfSu)
og Nýsköpunarmiðstöð Íslands
(NMÍ) undir samning sem felur í
sér samstarf og styrk við FabLab
smiðju sem verið er að setja upp
í Fjölbrautaskóla Suðurlands
(FSu) á Selfossi.
Samningurinn er til þriggja ára
og leggur áherslu á faglegt samstarf
um innra starf smiðjunnar og
samstarf FabLab smiðja hér á landi.
Samningurinn kemur í kjölfar
undirskriftar FSu, Samtaka
sunnlenskra sveitarfélaga (SASS),
Héraðsnefndar Árnesinga og HfSu
um samkomulag um uppsetningu
og rekstur smiðjunnar. Þessa
dagana er verið að vinna í að
fjármagna tækjakaup fyrir smiðjuna
og þar eiga stóran þátt sunnlensk
fyrirtæki auk Atorku sem er félag
atvinnurekenda á Suðurlandi, en
þau leggja til meginþorra þess
fjármagns sem þarf til þess að
fjármagna tækjakaupin.
„Við stefnum á að opna smiðjuna
í haust en tilgangur hennar er að
þjálfa sköpunargáfu einstaklinga og
hjálpa þeim að hrinda hugmyndum
í framkvæmd með því að hanna,
móta og framleiða hluti með
aðstoð stafrænnar tækni. Með
uppsetningu og rekstri smiðjunnar
opnast hvetjandi umhverfi til
nýsköpunar, menntunar og þróunar
í héraðinu en auk nemenda í FSu
og grunnskólum svæðisins, munu
fyrirtæki og almenningur hafa
aðgang að smiðjunni,“ segir Olga
Lísa Garðarsdóttir, skólameistari
Fsu. Magnús St. Magnússon hefur
verið ráðinn sem umsjónarmaður
smiðjunnar. /MHH
Harðfisksúpa var hlutskörpust
í vali í hugmyndasamkeppninni
„Þjóðlegir réttir á okkar veg“
sem Matarauður Íslands stóð
fyrir á dögunum. Eliza Reid for-
setafrú afhenti verðlaun til þátt-
takenda á uppskeruhátíð sem
haldin var í nýjum húsakynnum
Mathallarinnar á Granda mánu-
daginn 28. maí sl. Gestum bauðst
að smakka á réttunum sem voru
hver öðrum betri. Veitingastaðir
um allt land munu á næstunni
velja einn rétt til þess að setja á
matseðilinn hjá sér.
Alls bárust 107 hugmyndir og
uppskriftir af þjóðlegum réttum en
keppnin var opin og öllum frjálst að
senda inn tillögur. Það gætti ýmissa
grasa, allt frá njólasúpu, grasystingi
og grjúpáni í skemmtilega
útfærða samtímarétti. Algengustu
hugmyndirnar án uppskriftar voru
kótelettur í raspi, plokkfiskur og
útgáfur af lúxuspylsum, ýmist með
fiski eða kjöti.
Matarkörfur í verðlaun
Nemendur í Hótel- og veitinga-
skólanum útfærðu hugmyndirnar
í samvinnu við sína kennara.
Dómnefnd mat svo árangurinn en
efstu fimm vinningshafarnir fengu
veglegar matarkörfur ásamt því sem
vinsælasti rétturinn í netkosningu
fékk verðlaun
Vinningshafar
1. sæti. Harðfisksúpa.
Baldur Garðarsson.
2. sæti. Íslenskt ramen,
rófunúðlukjötsúpa.
Hafliði Sævarsson.
3. sæti. Brauðsúpa.
Anna Lára Pálsdóttir.
4. sæti. Rófugrautur.
Helga Jóna Þorkelsdóttir.
5. sæti. Nesti smaladrengsins.
Hafsteinn Hjartarson.
Fjallagrasa-brulee vinsælt
Vinsælasti rétturinn samkvæmt
netkosningu var Fjallagrasa-
brulee sem kúabóndinn og fyrrum
þingmaðurinn, Jóhanna María
Sigmundsdóttir, átti heiðurinn af.
Vinningar voru ekki af verri
endanum, stútfullar gjafakörfur
af matvörum frá Beint frá býli,
Mjólkursamsölunni og flugmiði frá
Air Iceland Connect fyrir fyrsta sætið.
Safna matarminningum
Samhliða söfnun uppskrifta óskaði
Matarauður Íslands eftir skriflegum
matarminningum. Þær er hægt að
senda áfram inn í gegnum vefsíðuna
mataraudur.is.
107 uppskriftir bárust í keppni um þjóðlega rétti:
Harðfisksúpa, fjallagrasa-brulee og nesti
smaladrengsins unnu til verðlauna
Undirbúningur undir stór-
sýninguna Íslenskur landbún-
aður 2018, sem haldin verður í
Laugardalshöllinni dagana 12.-14
október í haust, gengur afar vel að
sögn sýningarhaldara. Þegar hafa
tæplega áttatíu sýningaraðilar til-
kynnt þátttöku.
Að sögn Ólafs M. Jóhannessonar,
framkvæmdastjóra Ritsýnar sf.,
sem heldur sýninguna, er nær
fullskipað í útisvæði og inni í
Laugardalshöllinni eru fáir básar
eftir.
„Við erum þessa dagana
að klára að selja þau hólf sem
eftir eru. Það er mikill áhugi
hjá sýnendum og greinilegt að
það er gróska í landbúnaðinum
í dag. Við búumst við miklum
fjölda í Laugardalinn í haust,
bæði bændum að sjálfsögðu og
öðrum áhugasömum um nútíma-
landbúnað og íslensk matvæli.
Félagsmenn Bændasamtakanna
fá allir boðsmiða á sýninguna og
við munum einnig bjóða upp á
vandaða fyrirlestradagskrá,“ segir
Ólafur.
Tímarit Bændablaðsins kemur út
samhliða sýningunni
Í tilefni sýningarinnar verður
Tímarit Bændablaðsins gefið út í
hátíðarútgáfu, glanstímarit í A4-broti
sem verður dreift til allra bænda
landsins og á sýningunni sjálfri.
Ritið mun innihalda upplýsingar
um sýnendur ásamt viðtölum við
bændur, kort af sýningarsvæðinu
og fleira.
Landbúnaðarsýning lofar góðu
Myndir / TB