Bændablaðið - 07.06.2018, Qupperneq 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júní 2018
Segja má að Íslendingar hafi dottið
í lukkupottinn þegar makríll fór
að venja komur sínar í íslenska
lögsögu á fyrsta áratug þessarar
aldar. Nemur útflutningverðmæti
makrílafurða nú um og yfir 20
milljörðum á ári.
Síðustu árin hefur makríllinn
gengið í auknum mæli á Íslandsmið
á sumrin og fram á haust. Makríll
hefur oft áður sýnt sig hér við land
á hlýviðraskeiðum en að þessu sinni
bárum við gæfu til að nýta hann.
Auknar göngur makríls hingað eru
taldar tengjast stækkun stofnsins,
hlýnun sjávar og fæðuframboði á
hefðbundum ætisslóðum.
Fjöldi áskorana
Árið 2006 fór makríllinn að veiðast
sem meðafli við síldveiðar í
flotvörpu úti fyrir Austurlandi. Það
ár veiddu íslensk skip rúm 4 þúsund
tonn af makríl. Íslendingar sáu sér
leik á borði og árið 2007 var farið
að veiða makríl í beinni sókn. Einnig
var því hagað þannig að sem mest
fengist af makríl sem meðafli við
síldveiðar.
Þessi nýja „búgrein“ hafði í
för með sér krefjandi áskoranir á
fjölmörgum sviðum. Þróa þurfti
veiðarnar, yfirstíga erfiðleika í
vinnslu afurða, finna markaði fyrir
afurðirnar, koma á stjórnkerfi fyrir
veiðarnar og síðast en ekki síst að
fá rétt Íslendinga til makrílveiða
viðurkenndan á alþjóðavettvangi
en um er að ræða sameiginlegan
nytjastofn sem skip margra
Evrópuþjóða hafa veitt í áraraðir.
Veiðarnar gengu vel
Íslendingar voru fljótir að ná
tökum á makrílveiðum. Árið
2007 fór makrílaflinn í 36 þúsund
tonn og stóra stökkið kom 2008
en þá veiddust 112 þúsund tonn.
Uppsjávarskipið Huginn VE ruddi
brautina í beinum veiðum.
Hæst fór aflinn í 173 þúsund
tonn 2014 og á síðasta ári veiddum
við 165 þúsund tonn. Leyfilegur
heildarafli íslenskra skipa í makríl
á árinu 2018 er tæp 135 þúsund tonn.
Veitt umfram ráðgjöf
Makríllinn er uppsjávarfiskur og
finnst víða í Norður-Atlantshafi.
Hrygningarsvæðið er allt frá hafinu
vestur af Spáni og langt norður
eftir, jafnvel til Íslands. Mjög stór
hluti makrílsins hrygnir vestur af
Bretlandi og Írlandi.
Makríllinn er veiddur í verulegu
magni. Lengst af var heildarfli allra
veiðiþjóða 600 til 700 þúsund tonn
á ári en hefur aukist mjög síðustu
10 árin. Árið 2014 fór aflinn í
tæpar 1,4 milljónir tonna. Helstu
veiðiþjóðir eru Bretar og Norðmenn.
Mörg undanfarin ár hefur verið
veitt verulega umfram ráðgjöf
Alþjóðahafrannsóknaráðsins.
Deilt um makrílinn
Stjórn makrílveiða, eins og veiðum
úr öðrum deilistofnum, er þannig
háttað að hlutaðeigandi strandríki
eiga að koma sér saman um
heildarafla og skiptingu hans á
milli veiðiþjóða. Það hefur ekki
alltaf gengið þrautalaust. Árið
2010 var Ísland loks viðurkennt
sem strandríki varðandi makríl og
hleypt að samningaborðinu um
stjórn veiðanna. Þar voru fyrir á fleti
ESB, Noregur og Færeyjar. Þótt við
hefðum fengið viðurkenningu á rétti
til veiðanna voru hin strandríkin ekki
tilbúin að veita okkur sanngjarna
sneið af kökunni.
Því hefur Ísland, líkt og aðrar
þjóðir í raun, ákveðið sína hlutdeild
einhliða. Þess má geta að Rússar
hafa einnig veitt makríl í gegnum
tíðina í úthafinu en Rússland er ekki
strandríki.
Árið 2014 náðist samkomulag
um nýtingu makrílsins á milli
ESB, Noregs og Færeyja án
aðkomu Íslands. Í þeim samningi
eru aðeins skilin eftir 15,6% fyrir
Ísland, Rússland og Grænland.
Ísland mótmælti þessum gjörningi
harðlega. Samningafundir í
makríldeilinu síðan þá hafa engu
skilað. Væntanlega mun útganga
Breta úr ESB flækja málin enn
frekar.
Árin 2011 til 2013 var veiði-
hlutfall Íslands í makríl nokkuð
stöðugt, eða um 16,5%, en lækkaði
síðan þegar Grænlendingar hófu
veiðar í lögsögu sinni. Ísland hefur
síðustu árin miðað kvótasetningu
sína við um 16-17% hlutdeild í
heildarmakrílkvótanum í Norður-
Atlantshafi.
Stór hluti stofnsins hér á sumrin
Rök Íslendinga í makríldeilunni
eru þau að makríll veiðist í miklum
mæli á Íslandmiðum eins og fram er
komið. Rannsóknir hafa einnig sýnt
að verulegur hluti makrílstofnsins
heldur sig hér á sumrin. Í alþjóðlegum
makrílleiðangri sumarið 2016
mældist til dæmis tæpt 31% af
heildarvísitölu stofnsins í íslenskri
lögsögu. Merki þess að makríll
hafi hrygnt í íslenskri lögsögu hafa
einnig fundist.
Síðast en ekki síst étur makríllinn
óheyrilegt magn af lífmassa hér sem
hleypur á nokkrum milljónum tonna
og spikfitnar á því.
Eins konar gullgrafaraæði
Í fyrstu voru makrílveiðar frjálsar
meðan íslensku skipin voru að ná
tökum á veiðunum og verið var
að sýna fram á að makríll væri
veiðanlegur í íslenskri lögsögu.
Einskonar gullgrafaraæði ríkti
á fyrstu árum makrílveiða. Skipin
kepptust við að moka makrílnum
upp til að ná sem mestri aflareynslu
þannig að þau stæðu vel að vígi ef
og þegar makríll yrði settur í kvóta.
Leiddi það til þess að langstærstur
hluti aflans fór í vinnslu fiskimjöls
en makríll er sem kunnugt
er hinn besti matfiskur. Voru
Íslendingar réttilega gagnrýndir
á alþjóðavettvangi fyrir þessa
umgengni um sjávarauðlindina. Í
þessu samhengi er rétt að taka fram
að vinnsluskipið Hákon EA lagði
frá upphafi megináherslu á að vinna
makríl til manneldis um borð.
Yfir 160 milljarða
útflutningsverðmæti
Verksmiðjur í landi voru í fyrstu
ekki í stakk búnar til að vinna makríl
til manneldis svo nokkru næmi. Þeir
erfiðleikar voru yfirunnir á fáum
árum og má segja að þar hafi greinin
staðið sig vel með dyggum stuðningi
vísindmanna hjá Matís.
Íslensku fyrirtækin náðu einnig
góðum árangri í markaðssetningu
á makrílafurðum. Makríllinn hefur
skilað gríðarlegum verðmætum í
þjóðarbúið. Frá 2006 til 2017 hafa
útflutningsverðmæti makrílafurða
numið samtals yfir 160 milljörðum
króna. Árið 2014, svo dæmi sé tekið,
námu útflutningsverðmæti makríls
tæpum 24 milljörðum sem eru tæp
10% af útfluttum sjávarafurðum
það ár.
Pottar en ekki kvóti
Fljótlega fóru stjórnvöld að setja
reglur um makrílveiðar íslenskra
skipa. Árið 2010 var leyfilegum
heildarafla skipt niður á skip
sem skapaði skilyrði fyrir betri
samstillingu veiða og vinnslu.
Ekki leið á löngu þar til makríllinn
var nær eingöngu tekinn til
manneldisvinnslu.
Þótt heildarafla hafi verið skipt
niður á skip var ekki farin hefðbundin
leið innan kvótakerfisins að hvert
skip fengi aflahlutdeild miðað við
veiðireynslu síðustu þriggja ára.
Stjórnvöld bjuggu til nýtt og flókið
kerfi sem var og er enn umdeilt.
Í meginatriðum er kerfið þannig
að leyfilegum heildarafla er skipt
niður í fjóra misstóra potta eða
útgerðarflokka eftir mismunandi
leiðum. Þrír pottar eru fyrir stærri
skip og báta en einn fyrir smábáta.
Í upphafi giltu einnig strangar
reglur um framsal veiðiheimilda í
makríl og um veiðiskyldu.
Flæði milli potta
Hömlum á framsali aflaheimilda
í makríl hefur nú verið aflétt að
verulegu leyti sem og veiðskyldu.
Hefur það leitt til þess að pottakerfið
hefur riðlast og veiðiskipum
fækkað umtalsvert, eins og sjá má
í umfjöllun hér á eftir. Nú er farið
með aflaheimildir í makríl hvað
varðar flutning milli skipa innan
ársins að miklu leyti eins og gert er
í kvótakerfinu þótt fjórir aðskildir
pottar séu enn við lýði að forminu
til. Makríllinn flæðir nánast frjálst
milli skipa og báta innan hvers potts
og milli potta hjá stærri skipum og
bátum. Er þar í mörgum tilvikum um
að ræða flutning aflaheimilda milli
skipa í eigu sömu útgerða en einnig
leigu til óskyldra aðila.
Uppsjávarskipin með
stærstan hlut
Stærsta pottinum, kringum 70%
af heild, er úthlutað til sérhæfðra
uppsjávarskipa samkvæmt
aflareynslu á fyrstu árum
makrílveiða. Um 20 uppsjávarskip
veiddu makríl á síðasta ári og er það
svipaður fjöldi og undanfarin ári.
Nú er svo komið vegna tilflutninga
að uppsjávarskipin veiða yfir 85%
af makrílnum.
89 skip með úthlutun en 4 á
veiðum
Frystiskip eru í sérstökum potti
og heimildum þar er skipt jafnt
á skip eftir stærðarflokkum.
Hlutdeild þeirra í heildarúthlutun
er tæp 26%. Um helmingur af
heimildum frystiskipa var fluttur
til uppsjávarskipanna á síðasta ári.
Þá fékk 21 frystiskip úthlutun en
aðeins 4 stunduðu veiðar.
Bátar og ferskfisktogarar
eru í þriðja pottinum. Þar er
einnig úthlutað jafnt á skip eftir
stærðarflokkum. Lítið hefur komið
í hlut hvers og eins skips í gegnum
árin því potturinn er ekki stór, rúm
5% af heild, en skipin fjölmörg.
Árið 2014 stunduðu 58 skip veiðar
úr þessum potti. Á síðasta ári
fengu 66 skip úthlutun en ekkert
þeirra veiddi sínar heimildir. Þær
voru fluttar á önnur skip, einkum
uppsjávarskip. Bátur, sem hefur litla
sem enga reynslu af makrílveiðum,
hefur til dæmis getað sótt um og
fengið heimildir í þessum potti í
þeim eina tilgangi að leigja þær frá
sér.
Í þessum tveimur pottum fengu
sem sagt samtals 89 skip úthlutun í
fyrra en einungis 4 skip stunduðu
veiðar.
Frá ólympískum veiðum til kvóta
Smábátar eru frumkvöðlar við veiðar
á makríl hér við land á handfæri.
Fjórði potturinn er helgaður þeim.
Í fyrstu var aflaheimildum ekki
skipt niður á báta heldur mátti
hver og einn veiða eins mikið og
hann gat innan heildartakmarkana,
svokallaðar ólympiskar veiðar.
Árið 2015 var handfærapotturinn
settur í kvóta. Veiðiheimildum
var úthlutað á bát í samræmi við
aflareynslu á ákveðnu árabili. Í ár
fær handfærapotturinn um 4% af
heild. Auk þess hafa verið tekin frá
2 þúsund tonn sem handfærabátum
stendur til boða að leigja til sín.
Árið 2014 stunduðu 120 smábátar
veiðarnar en þeim hefur fækkað
vegna kvótasetningar. Á síðasta ári
voru þeir 50 að tölu.
Tveir flokkar virkir
Af þessari upptalningu má sjá að
makrílveiðar eru að þróast þannig
að aðeins tveir útgerðarflokkar
eru fullkomlega virkir, þ.e.
uppsjávarskipin og smábátar.
Mörgum finnst tímabært að
horfast í augu við staðreyndir og
setja makríllinn í kvóta með sömu
reglum og gilda fyrir aðrar veiðar
helstu nytjastofna. Um þetta atriði
er þó deilt eins og svo margt annað
í stjórn fiskveiða.
Á miðunum umhverfis landið
hafa fundist 15 tegundir af
ættbálki skatna. Algengastar
eru skata (Raja batis),
tindaskata (R. radiata),
hvítskata (R. lintea), skjótta
skata (R. hyperborea) og
Maríuskata (Bathyraja
spinicauda).
Meðal sjómanna er algengt að
nota samheitið náskata yfir allar
skötur nema skötu og tindaskötu.
Hins vegar er einnig til sérstök
tegund sem heitir náskata og
veldur það stundum ruglingi.
Eiginlegar skötur (R. batis) geta
náð allt að 2,5 metrum á lengd
og orðið um 100 kíló að þyngd.
Þær eru auðgreindar frá öðrum
tegundum á því að neðra borðið
er grátt og oft með hríslóttum
blásvörtum rákum.
Líf byrjaði í sjónum
Haf eða sjór þekur 71% af
yfirborði jarðar. Selta sjávar er
um 3,5%. Talið er að allt líf hafi
hafist í vatni en sumar lífverur
byrjuðu síðar að færa sig upp á
yfirborðið og af þeim er talið að
líf á yfirborðinu sé komið.
Þörungar til manneldis
Aldagömul hefð er fyrir að nýta
þörunga til manneldis í Japan,
Kína og Kóreu. Þörungar eru
ríkir af steinefnum, snefilefnum
og vítamínum. Sem dæmi
um matvæli má nefna sushi,
wasabi, nori og kombu. Söl og
marinkjarni eru vel þekkt fæða
hérlendis.
Þörungar eru einnig notaðir í
fóður, lífeldsneyti og í húðvörur.
Rostungar við Ísland
Rostungar (Odobenus rosmarus),
helst ungir brimlar, eiga það til
að heimsækja Ísland þótt slíkt sé
sjaldgæft en rostungar tilheyra
flokki hreifadýra eins og selir.
Leifar rostungsbeina og tanna
hafa fundist víða um land og
stundum langt frá landi og þykja
benda til þess að mikið hafi verið
af rostungi hér á ísöld og fyrir
landnám. Síðast sást rostungur
eða rosmhvalur eins og þeir
eru stundum kallaðir á Íslandi í
Ófeigsfirði á Ströndum í ágúst
2008. Sá var brimill og vó um
hálft tonn og hafði skriðið milli 30
og 40 metra upp á land en drapst
skömmu eftir að hann fannst.
Furðuleg ævisaga áls
Fullvaxnir Evrópuálar hrygna
í Þanghafinu út af Mexíkóflóa.
Ekki hefur tekist að staðsetja
h r y g n i n g a r s t ö ð v a r n a r
nákvæmlega og enn hefur
engin hrognafull hrygna eða
hrogn fundist í sjó en talið er að
hrygningin fari fram í febrúar til
apríl á 400 til 700 metra dýpi.
Hvalur í Jónsbók
Í Jónsbók er langur bálkur um
hvali og hvalnytjar. Þar er m.a.
kveðið á um að ef hval sem í er
hvaljárn eða spjót rekur beri að
skipta honum milli landeiganda,
eiganda járnsins og fátækra.
Spjótveiðar voru stundaðar á
hvölum á miðöldum en spjótið
samanstóð af tréskafti og haus
eða hvaljárni. Ólíkt skutlunum
var engin taug í hvaljárnunum
og því ekki möguleiki á að draga
hvalinn á land eða tryggja sér
skrokkinn með öðrum hætti.
Hvalveiðimennirnir urðu að
bíða þess að hvalurinn dræpist
úr blóðeitrun og treysta því að
skrokkinn ræki dögum eða jafnvel
vikum seinna. Því voru hvaljárnin
merkt eigendum sínum, mörkin
voru þinglýst, og hlaut eigandi
merkts járns skotmannshlutann
sem var helmingur hvalsins. /VH
Hæg viðkoma
hjá skötu
STEKKUR
HLUNNINDI&VEIÐI
Kjartan Stefánsson
kjartanst@simnet.is
Mala gull úr nýjum nytjastofni