Bændablaðið - 07.06.2018, Page 19

Bændablaðið - 07.06.2018, Page 19
19Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júní 2018 samþætt og órjúfanleg og mynda jafnvægi milli hinna þriggja stoða sjálfbærrar þróunar: hinn- ar efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu. Markmið og undirmarkmið þeirra munu örva aðgerðir næstu fimmtán ár á afgerandi sviðum fyrir mannkynið og jörðina. Markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærrar þróunar eru 17 og undirmarkmiðin 169 undirmark- mið. Meginmarkmið SÞ um sjálfbæra þróun 1. Útrýma fátækt í allri sinni mynd alls staðar. 2. Útrýma hungri, tryggja fæðuöryggi og bætta næringu og stuðla að sjálfbærum landbúnaði. 3. Stuðla að heilbrigðu líferni og vellíðan fyrir alla frá vöggu til grafar. 4. Tryggja jafnan aðgang allra að góðri menntun og stuðla að tækifærum allra til náms alla ævi. 5. Jafnrétti kynjanna verði tryggt og völd allra kvenna og stúlkna efld. 6. Tryggja aðgengi að og sjálfbæra nýtingu, allra á hreinu vatni og salernisaðstöðu. 7. Tryggja öllum aðgang að öruggri og sjálfbærri orku á viðráðanlegu verði. 8. Stuðla að viðvarandi sjálf bærum hagvexti og arðbærum og mannsæmandi atvinnutækifærum fyrir alla. 9. Byggja upp viðnámsþolna innviði fyrir alla, stuðla að sjálfbærri iðnvæðingu og hlúa að nýsköpun. 10. Draga úr ójöfnuði innan og á milli landa. 11. Gera borgir og íbúðasvæði öllum mönnum auðnotuð, örugg, viðnámsþolin og sjálfbær. 12. Sjálfbær neyslu- og framleiðslumynstur verði tryggð. 13. Grípa til bráðra aðgerða gegn loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra. 14. Vernda og nýta hafið og auðlindir þess á sjálfbæran hátt í því skyni að stuðla að sjálfbærri þróun. 15. Vernda, endurheimta og stuðla að sjálfbærri nýtingu vistkerfa á landi, sjálfbærnistjórnun skógarauðlindarinnar, berjast gegn eyðimerkurmyndun, stöðva jarðvegseyðingu og endurheimta landgæði og sporna við hnignun líffræðilegrar fjölbreytni. 16. Stuðla að friðsælum og sjálfbærum samfélögum fyrir alla menn, tryggja öllum jafnan aðgang að réttarkerfi og byggja upp skilvirkar og ábyrgar stofnanir fyrir alla menn á öllum sviðum. 17. Styrkja framkvæmd og blása lífi í alþjóðlegt samstarf um sjálfbæra þróun. /VH LANDSMÓT HESTAMANNA REYKJAVÍK 1.7–8.7 2018 #landsmot2018 • www.landsmot.is facebook.com/landsmothestamanna VERTU MEÐ FRÁ BYRJUN! P ip ar \T B W A \ S ÍA TIL 15. JÚNÍ TRYGGIÐ YKKUR MIÐA Í TÍMA! 18.900 Við ásetjum okkur að losa mannkynið undan ánauð fátæktar og að græða jörðina og auka öryggi hennar. Við einsetjum okkur að stíga afgerandi skref til breytinga sem nauðsynleg eru í því skyni að koma veröldinni á braut sjálfbærni og auka viðnámsþol hennar. Mynd /TB Markmið númer eitt er að útrýma fátækt.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.