Bændablaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 25

Bændablaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júní 2018 „Auk þess sem vinnan við gerð garðsins var skemmtileg var ekki síður áhugavert að kynna sér hvað Skúli var að gera í tengslum við matjurtarækt fyrir rúmum 260 árum. Skúli var helsti hvatamaður þeirrar matjurtaræktarbylgju sem fór af stað með tilkomu Innréttingarinnar. Hann hóf ræktun á matjurtum í Viðey 1753 og var þá búinn að panta fræ að utan. Skúli hafði í gegnum Innréttingarnar forgöngu að því að dönsk yfirvöld fóru að hvetja landsmenn til að rækta matjurtir. Ákefð Skúla sýnir sig í því að hann vildi ganga mun lengra en dönsk yfirvöld í að skikka ábúendur jarða yfir ákveðinni stærð til að rækta matjurtir og refsa þeim fyrir sem ekki gerðu það. Dönsk yfirvöld milduðu tóninn og gáfu út vinsamleg tilmæli til ábúendanna um að prófa sig áfram. Við megum ekki gleyma því að yfirvöld í Danmörku lögðu sitt af mörkum til að efla matjurtarækt í landinu með því að hvetja menn til dáða með því að veita þeim sem náðu að rækta ákveðið magn af matjurtum verðlaun. Danski kóngurinn var reyndar mjög áhugasamur um að efla matjurtarækt á Íslandi og var það öðrum þræði liður í að tryggja matvælaöryggi landsmanna enda hungurfellir algengur hér á landi á þessum tíma. Hann sendi út boð til Íslands árið 1754 um að Íslendingar kæmu sér upp matjurtagörðum og skyldu sýslumenn fylgja boðinu eftir. Samt sem áður gekk framan af erfiðlega að fá almenning til að taka þátt í ræktuninni. Þegar upp var staðið voru það fyrst og fremst embættismenn og stórbændur sem höfðu bolmagn til að standa undir svona tómstundaiðju eins og litið var á ræktunina á þeim tíma. Það er áhugavert að margir landsmenn töldu hyggilegra að fara til fjalla og tína grös en að stunda ræktun og borða matjurtir sem þeir töldu í sumum tilfellum jafngilda því að éta gras eða skepn- ufóður.“ Misjafn gangur í ræktun Skúla Þrátt fyrir góðan vilja og að ræktunartilraunir Skúla sé upphafið af þeirri matjurtarækt sem á sér stað á landinu í dag gekk ræktunin hjá Skúla misjafnlega. Sumar tegundir, eins og grænkál og kartöflur, gáfust vel. Hann fékk verðlaun frá Friðriki V. Danakonungi fyrir kartöflurækt, en önnur ræktun gekk ekki eins vel. „Skúli var duglegur að deila kartöfluútsæði og kálplöntum til annarra og ýtti þannig undir ræktun. Síðar reyndi hann fyrir sér með trjárækt og hún gekk vægast sagt ekki vel. Hann reyndi meðal annars að rækta hrossakastaníu, perutré og ask í Viðey, sem eru báðar viðkvæm- ar tegundir hér og því nánast dauða- dæmdar frá upphafi. Auk þess sem það komu nokkrir kaldir vetur í röð eftir að hann setti trén niður og er talið að það hafi gengið endanlega af þeim dauðum. Skúli náði betri árangri með rifs og stikkilsber sem eru hvort tveggja tegundir sem við plöntuðum sem framtíðar skjólgjafa fyrir matjurtabeðin.“ Skúli var atorkumaður Einar segir að þrátt fyrir að ekki sé vitað hversu stór matjurtagarður Skúla Magnússonar í Viðey hafi verið sé alveg ljóst að um mikið framtak var að ræða með þess tíma verkfærum. „Skúli var greinilega atorkumaður og frumkvöðull í matjurtaræktun á Íslandi og vonandi mun garðurinn í Viðey vekja athygli á starfi hans,“ segir Einar Örn Jónsson skrúðgarðyrkjumaður að lokum. Beltone ™ Enn snjallari heyrnartæki HEYRNARSTÖ‹IN Be lto ne T ru st g en gu r m eð iP ho ne X o g el dr i g er ðu m , i Pa d A ir, iP ad (4 . k yn sl óð ), iP ad m in i m eð R et in a, iP ad m in i og iP od to uc h (5 . k yn sl óð ) m eð iO S eð a ný rr a st ýr ik er fi. A pp le , i Ph on e, iP ad o g iP od to uc h er u vö ru m er ki s em ti lh ey ra A pp le In c, s kr áð í Ba nd ar ík ju nu m o g öð ru m lö nd um . Verkið á lokametrunum. Mynd / Einar Örn Jónsson Matjurtagarðurinn sem kenndur er við Skúla Magnússon, landfógeta í Viðey. Mynd / Einar Örn Jónsson Fyrstu ræktunarreitirnir. Mynd / Einar Örn Jónsson Örnefnið Tóbakslaut ber bjartsýni land fógetans gott vitni og talið er að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.