Bændablaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júní 2018
Orkustykkið Brewbar hlaut fyrstu
verðlaun í vöruþróunarsamkeppn-
inni Ecotrophelia sem haldin er
árlega. Uppistaðan í Brewbar er
hrat sem fellur til við bjórgerð.
Kristján Þór Júlíusson sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra
afhenti frumkvöðlunum sem
standa að baki Brewbar verðlaunin
við upphaf ráðstefnunnar „Ábyrg
matvælaframleiðsla“ sem haldin
var í Hörpu á dögunum.
Ecotrophelia Ísland er
vöruþróunarsamkeppni meðal
nemenda í íslenskum háskólum.
Markmið keppninnar er að stuðla
að þróun nýrra, umhverfisvænna
matvara fyrir íslenskan og
alþjóðlegan markað, ásamt
því að auka umhverfisvitund
og þjálfa frumkvöðlahugsun
nemenda. Að keppninni standa
Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Matís
og Samtök iðnaðarins í samstarfi við
íslenska háskóla.
Sérfræðiaðstoð og aðgöngumiði í
Evrópukeppni
Í tilkynningu frá Samtökum iðnað-
arins segir að með þátttöku í keppn-
inni öðlist nemendur þekkingu og
reynslu af heildarferli vöruþróunar
en auk þess fá sigurvegararnir viður-
kenningarskjöl fyrir þátttökuna,
vegleg peningaverðlaun og verð-
launagrip frá aðstandendum keppn-
innar. Vinningshafinn fær jafnframt
ávísun á sérfræðiaðstoð og ráðgjöf
frá bæði Nýsköpunarmiðstöð og
Matís og síðast en ekki síst þátt-
tökurétt í Ecotrophelia Europe
sem er sambærileg keppni við
sigurlið frá öðrum Evrópuríkjum.
Evrópukeppnin verður haldin í
París í október.
Sigurvegarar fyrri ára hafa tekið
þátt í Evrópukeppninni og jafnan
staðið sig með prýði en Ísland hefur
tekið þátt frá árinu 2011.
Útlitsgallað blómkál og
mjólkurdropar á föstu formi
Þrjú lið tóku þátt í keppninni í ár og
voru verkefnin öll ólík og frumleg.
„Bítsa og Basta er pítsubotn og
pestó hvoru tveggja búin til úr
útlitsgölluðu blómkáli, höfundar
eru Ingibjörg Ásbjörnsdóttir, Ólafur
Pálsson, Stefán Örn Snæbjörnsson
og Þóra Kristín Sigurðardóttir.
Brewbar er orkustykki þar sem
uppistaðan í hráefninu er hrat úr
bjórgerð, að því verkefni standa
Ainhoa Arriero Castaño, Björn
Kr. Bragason og Dovydas Raila.
Mjólkurdropinn eru smáskammtar
af mjólk á föstu formi til að forðast
plastumbúðir, ætlaðir út í heita
drykki. Höfundar eru Dagbjört
Inga Grétarsdóttir og Magnús Snær
Árnason.
Fjölskipuð dómnefnd
Dómnefnd skipuðu Ragnheiður
Héðinsdóttir og Bryndís Skúladóttir
frá Samtökum iðnaðarins, Grímur
Ólafsson, matvælafræðingur og
sérfræðingur hjá Matvælastofnun,
Hannes Ottósson, verkefnastjóri
hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og
Lilja Rut Traustadóttir, gæða- og
mannauðsstjóri hjá Gæðabakstri,“
segir í tilkynningu frá Samtökum
iðnaðarins.
/TB
Vöruþróunarsamkeppnin Ecotrophelia stuðlar að nýsköpun í matvælaframleiðslu:
Orkustykki úr bjórhrati frumlegasta nýjungin
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra afhenti Birni
Kr. Bragasyni, fulltrúa Brewbar-hópsins, Ecotrophelia-verðlaunin.
Dagbjört Inga Grétarsdóttir (Mjólkurdropinn), Ingibjörg Ásbjörnsdóttir (Bítsa og Basta), Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Björn Kr. Bragason (BrewBar) og Ragnheiður Héðinsdóttir hjá SI.
Myndir / TB
Matvælalandið Ísland hélt ráðstefnu um matvæli og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna:
Ábyrg matvælaframleiðsla margborgar sig
Matvælalandið Ísland hélt
ráðstefnu í Hörpu í síðustu viku
þar sem umfjöllunarefnið var
ábyrg matvælaframleiðsla. Fjöldi
fyrirlesara kom fram og sagðar
voru reynslusögur úr atvinnulífinu.
Einn frummælenda var Sveinn
Margeirsson, forstjóri Matís, sem
hélt erindi um samkeppnisforskot
fyrirtækja sem byggja starfsemi
sína á grunni ábyrgðar og
upplýsingagjafar. Hann sagði að
ábyrg framleiðsla fælist í stuttu
máli í því að vanda allt sem gert er
og sagt – og standa við það.
Sveinn sagði að íslensk
fyrirtæki stæðu sig að mörgu leyti
ágætlega þegar kemur að ábyrgum
framleiðsluháttum en verkefnin
væru þó næg og þróunin ekki alltaf
jákvæð. Til dæmis nefndi hann að
Ísland væri með fjórðu hæstu losun
gróðurhúsalofttegunda á íbúa af
öllum þjóðum og hér hefði orðið
23% aukning á úrgangi á milli
áranna 2015 og 2016. Útstreymi
gróðurhúsalofttegunda á Íslandi
hefði aukist um 26% frá 1990
til 2014 en þó hefði náðst góður
árangur í sjávarútvegi þar sem losun
gróðurhúsalofttegunda hefði dregist
mikið saman á síðustu árum, m.a.
vegna minni olíunotkunar á sjó.
Aukning frá stóriðju væri hins vegar
áhyggjuefni.
Til þess að ná árangri í
fyrirtækjarekstri á sviði matvæla
sagði Sveinn það lykilatriði að
ástunda ábyrga hráefnisöflun og
framleiðslu. Mikla áherslu ætti að
leggja á uppruna og koma í veg fyrir
matarsvik sem eru því miður algeng
vandamál víða um heim. Virða ætti
reglur um merkingar, upplýsa um
uppruna og miðla upplýsingum
um umhverfisáhrif. Í máli Sveins
kom fram að yfir 2000 fræðigreinar
hefðu verið birtar um tengsl ábyrgra
fjárfestinga og arðsemi. 48–62%
niðurstaðna sýndu að jákvæð tengsl
séu á milli ábyrgra fjárfestinga og
fjárhagslegrar arðsemi. Einungis 8%
fræðigreina segja neikvæð tengsl
fyrir hendi. Það væri því engin
spurning að heiðarleiki og ábyrg
framleiðsla borgaði sig.
Verum gagnrýnin
Sveinn velti því upp í erindi sínu
hvað neytendur geti gert til þess að
ástunda ábyrga neyslu. Hann hvatti
fólk til að vera gagnrýnið og spyrja:
„Er verð vöru of gott til að vera satt?
Er varan rétt merkt?“ og síðan en
ekki síst: „Þarf ég á þessu að halda?“
Neytendur geti gert mikið betur í
því að lágmarka sóun, t.d. með því
að flokka úrgang og vanda valið á
þeim matvörum sem við kaupum
dags daglega.
Erindi af ráðstefnunni verða
aðgengileg á næstu dögum á vefnum
bondi.is. /TB
www.VBL.is REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
Mikið úrval aukahluta á Avant vélar
Sjá nánar á íslensku Avant síðunni: www.avanttecno.com/www/is
Eigum til Avant sláttuvélar
120 cm með og án safnkassa
150 cm án safnkassa
Greiðusláttuvél
AVANT SLÁTTUVÉLAR
Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís. Rebekka Hilmarsdóttir, lögfræðingur í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu-
neytinu, Sunna G. Marteinsdóttir og Bjarni R. Brynjólfsson, starfsmenn MS.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, Bryndís Skúladóttir hjá SI og Stefán
Magnússon hjá Coca Cola European Partners á Íslandi. Myndir / TB