Bændablaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júní 2018
Náttúrustofa Norðausturlands
hefur nýverið samið við
Umhverfisstofnun um rannsóknir
á plasti í fýlum (Fulmarus glacial-
is) sem hluta af staðlaðri vöktun á
plastmengun á OSPAR-svæðinu.
OSPAR hóf að nota plast í
fýlum sem vistfræðilegan metil á
plastmengun hafsins árið 2009 en
þá höfðu rannsóknir á plastmengun
í fýlum staðið yfir frá níunda áratug
síðustu aldar.
Ákjósanleg tegund til að vakta
plastmengun í sjó
Fýll er talinn mjög ákjósanleg
tegund til að rannsaka og vakta
plastmengun í sjó. Helstu ástæð-
ur þess er að fýlar afla sér fæðu
eingöngu á sjó og sjaldan nærri
landi. Þeir eiga erfitt með að
kafa og því afla þeir sér fæðu
mest sem næst yfirborði sjávar.
Komið hefur í ljós að fýlar gleypa
talsvert af plasti og eru nokkrar
ástæður taldar fyrir því. Einna
helst er talið að sumt plast líkist
fæðu, plast geti verið í mögum
dýra sem fýllinn étur (úrgang-
ur frá fiskibátum) og að plast í
nágrenni fæðu geti borist í fýla
við fæðuupptöku.
Fýlar sem notaðir eru í þessa
vöktun eru fyrst og fremst fýlar sem
finnast dauðir á ströndum Vestur-
Evrópu. Einnig hafa verið notaðir
fýlar sem drepast við að festast í
veiðarfærum fiskiskipa og -báta og
er stefnt að því að nota þá aðferð
hér á landi.
Starfsmaður Náttúrustofunnar,
Aðalsteinn Örn Snæþórsson, fór til
Hollands í febrúar og sótti þar nám-
skeið á vegum rannsóknastofnunar-
innar Wageningen Marine Research.
Umjónarmaður námskeiðsins var Jan
van Franeker, sem sér um samræm-
ingu rannsóknaraðferða við athugun
á plasti í fýlum fyrir OSPAR. Við
krufningu á hræjum eru ýmsir líf-
fræðilegir þættir mældir og kyn og
aldur greindur. Plastið sem finnst í
mögum er flokkað eftir uppruna þess
í iðnaðarplast og neysluplast og er
neysluplastið svo flokkað nánar eftir
gerð þess.
/MÞÞ
Náttúrustofa Norðausturlands:
Fýlar gleypa talsvert af plasti
AUÐLINDIR&UMHVERFISMÁL
Magainnihald var skolað í sigti og
allar plastagnir teknar frá.
eins fýls. Mynd / Nina Dehnhard
Mynd / Daniel Turner.
Allt var mælt og skráð af mikilli
nákvæmni.
Flugu 14.000 km leið til þess eins að vera skotnar á óðali sínu
Starfsmenn Náttúrufræðistofu
Norðausturlands, sem voru við
árlegar talningar á mófuglum
nýverið, gengu fram á kjóapar
sem hafði verið skotið þar sem það
sat á óðali sínu við undirbúning
varps.
Augljóst var að kjóarnir höfðu
verið skotnir með riffli í um 140
m fjarlægð frá þjóðvegi. Sesselja
Guðrún Sigurðardóttir, líffræðingur
hjá stofunni, segir í pistli sem
hún ritar á heimasíðu hennar að
þetta sé vitnisburður um algjört
virðingarleysi gagnvart náttúrunni.
Verja varpafkomu sína eins og
frekast er unnt
Fram kemur í pistli Sesselju að
tvö kjóapör hafi um áraraðir
orpið á mófuglatalningasvæði
Náttúrustofunnar við Hringver á
Tjörnesi. Frá árinu 2009 hafi það
verið fastur punktur í sumarbyrjun
að heilsa upp á þau á óðulum sínum
við talningar. Þar hafa þau tekið
heimsókninni af almennri varkárni,
með látbrögðum eða ógnun, allt
eftir því hve gengið er nærri þeirra
heilaga vé, eggjunum. Þeim er enda
mikið í mun að verja varpafkomu
sína eins og þeim frekast er unnt fyrir
hvers kyns afföllum, því lífsbaráttan
er hörð og mikið lagt á sig til að
koma genum sínum áfram til næstu
kynslóða í gangverki lífsins.
Ferðast um langan veg
Til vitnis um það sýna nýlegar
rannsóknir fram á að íslenskir kjóar
ferðast um langan veg til suðurhvels
jarðar, líkt og krían, að loknu varpi
hér, til að afla sér lífsviðurværis
yfir vetrartímann. Dvelja þeir úti á
sjó beggja vegna Atlantsála, m.a.
við S-Afríku og Argentínu. Þar, líkt
og hér, sækja þeir sér fæðu í sjó en
einnig með því einkennandi hátterni
sem þeir hafa tileinkað sér við að
komast af, að ræna fæðu frá öðrum
fuglum. Í því eru kjóar sérfræðingar
en ránið stunda þeir með því að
hrella sjófugla (t.d. kríur og lunda)
sem bera smáfiska og aðra fæðu til
unga sinna, þannig að þeir missi
fæðuna sem kjóarnir síðan hirða upp.
Þegar líða fer að vori á
norðurhveli halda kjóarnir af stað
að nýju í 14.000 km langt ferðalag
norður eftir Atlantshafinu til þess að
verpa eggjum sínum og koma upp
ungum á óðali sínu sem þeir verja
frá ári til árs, sama óðalið. Á hverju
ári má því áætla að hver íslenskur
kjói fljúgi tæplega 30.000 km um
Atlantshafið frá norðri til suðurs og
til baka milli varp- og vetrarstöðva.
Þyngra en tárum taki
„Það er þyngra en tárum taki að á
tímum upplýsinga og náttúruverndar
sé til fólk sem drepur kjóa án
nokkurrar rökstuddrar ástæðu.
Kjóar eru alfriðaðir skv. lögum
líkt og almennt gildir um íslenska
fugla, nema við friðlýst æðarvörp
á tímabilinu frá 15. apríl til 14. júlí.
Því miður virðist sem kjóar séu
víða drepnir utan friðlýstra æðarvarpa
því Náttúrustofunni hefur borist til
eyrna fleiri dæmi um slík lögbrot á
Norðausturlandi. Sýslumaður annast
friðlýsingu æðarvarpa sem gildir í 10
ár frá birtingu í Lögbirtingablaðinu.
Engar auglýsingar er að finna
um friðlýsingu æðarvarpa hjá
Sýslumanninum á Norðurlandi
eystra síðustu 10 ár, frá 1. janúar
2008 til 1. febrúar 2018 (sjá www.
syslumenn.is),“ segir Sesselja í pistli
sínum.
Vekur fólk voandi til umhugsunar
„Vonandi vekur þessi pistill fólk til
hugsunar um að bera virðingu fyrir
öllu lífi, því lífsbaráttan er hörð hvert
sem í horn er litið og allir þurfa að
hafa fyrir sínu.
Virðingin þarf að gilda almennt
um auðlindanýtingu okkar og
umgengni í náttúrunni. Einungis
fáfræði og tilfinningasemi mannsins
flokkar lífverur í góðar og vondar.
Gild rök ætti að þurfa að færa
fram ef drepa á dýr, líkt og kjóann,
til að verja tiltekna hagsmuni. Ekki
er ólíklegt að kjóaparið á Hringveri
hafi farið víðar um heiminn og séð
meira á lífsleiðinni en sá er fann
hjá sér löngun til að miða þau út í
gegnum riffilkíkinn sinn, þar sem
þau sátu friðsöm á óðali sínu, og taka
í gikkinn,“ segir Guðrún. /MÞÞ
Heimild: Sölvi Rúnar Vignisson,
Gunnar Þór Hallgrímsson, Yann
Kolbeinsson. Migration of the
Icelandic Arctic Skua Stercorarius
parasiticus. Veggspjald á 2nd World
Seabird Conference í Höfðaborg,
S-Afríku 26.–30. október 2015.
varpstöðva á Íslandi að vori.