Bændablaðið - 07.06.2018, Side 48

Bændablaðið - 07.06.2018, Side 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júní 2018 „Við höfum ekki farið varhluta af aukningu ferðamanna hér í Mývatnssveit enda er þetta svæði aðal ferðasegullinn á Norðurlandi eystra,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri í Skútustaðahreppi. Jarðböðin eru góður mælikvarði á aðsóknina og þar hefur mikil aukning orðið í aðsókn undanfarin ár. Mesta aukningin hefur verið yfir vetrartímann sem er ánægjuleg þróun að sögn Þorsteins og hefur gert það að verkum að ferðaþjónustan er orðin að heilsárs atvinnugrein í meira mæli en áður í Mývatnssveit. Vöxturinn er þó hægari en undanfarin ár. Til að bregðast við fjölguninni hefur sveitarfélagið, rekstraraðilar og Umhverfisstofnun brugðist við með uppbyggingu innviða. Til að styðja við ferðaþjónustuna allt árið er t.d. snjómokstur á göngustígum, landvarsla hefur verið aukin, en tveir landverðir eru í fullu starfi allt árið, og sjö yfir sumartímann. Sveitarfélagið hefur farið í umhverfisátak vegna ferðamannasorps og á næstunni verður aðgengi bætt að Höfða, sem er vinsæll áningastaður í Mývatnssveit og reyndar eina landið sem er í eigu sveitarfélagsins. Fjölbreytt afþreying Í Mývatnssveit hafa verið reist tvö glæsileg hótel síðustu misseri, þ.e. Fosshótel og Hótel Laxá. Sel- hótel var stækkað. Þá er hér fjöl- breytt gisting og þrjú tjaldsvæði. Veitinga- og kaffihús eru mörg og fjölbreytt. Það sama má segja um afþreyingu fyrir ferðamenn, sem dæmi eru í boði hestaleiðir, fjalla- jeppaferðir, vélsleðaferðir, ýmsar skoðunarferðir, skoðunarferð í lofti, Jarðböðin, hellaferðir, hunda- sleðaferðir, Fuglasafn Sigurgeirs, hjólaferðir og margt fleira. Upplýsingastofan Mývatnsstofa er öflug í að miðla upplýsingum til ferðamanna. Ferðalangar almennt ánægðir Rannsóknamiðstöð ferðamála og Háskóli Íslands gerðu ferðavenjukönnun 2016 á meðal erlendra gesta í Mývatnssveit. Í Mývatnssveit hefur hlutfall sumargesta frá Þýskalandi mælst hærra en á landsvísu undanfarin ár. Á tímabilinu 2014–2016 lækkaði það þó úr 22% í 18% á sama tíma og það fór úr 13% í 10% á landsvísu. Bandaríkjamönnum hefur fjölgað nokkuð hratt á svæðinu, eða úr 7% í 21%, á sama tíma og hlutfall þeirra jókst úr 16% í 26% á landsvísu. Almennt voru þátttakendur mjög ánægðir (52%) eða ánægðir (34%) með dvöl sína í Mývatnssveit. Um 3% aðspurðra sögðust hvorki vera ánægðir né óánægðir, um 1% gesta voru óánægðir og 10% mjög óánægðir. Á skalanum 1–5 var ánægjustig gesta 4,19. Gestir frá Bandaríkjunum mældust með 4,23 til samanburðar við 3,98 meðal gesta frá Þýskalandi og 4,05 meðal gesta frá Frakklandi. Meiri ánægja virtist vera meðal þeirra gesta sem fóru í gönguferð þar sem ánægjustig þeirra mæld- ist 4,29 til samanburðar við 3,99 meðal þeirra sem fóru ekki. Hjá þeim sem fóru á kaffi- eða veitinga- hús mældist ánægjan 4,34 til sam- anburðar við 4,08 meðal þeirra sem fóru ekki. Áhugavert fráveituverkefni Mývetningar hafa verið frumkvöðl- ar í ýmsu um tíðina, nú síðast í fráveitumálum. Umhverfisráðherra, fjármálaráðherra og fulltrúar Landgræðslunnar ásamt sveitar- stjóra undirrituðu í apríl viljayf- irlýsingu þessa efnis úti á ísnum á vatninu. Nýta á salernisúrganginn til uppgræðslu á Hólasandi. Umræða hefur staðið yfir um nokkra hríð um hvernig megi bæta frárennsl- ismál við Mývatn. Nú hefur verið ákveðið að aðskilja skólp frá salern- um í lokaðan tank sem á að nýta til uppgræðslu á Hólasandi í samstarfi við Landgræðsluna. „Þetta er mjög áhugaverð lausn sem orðin er að stóru umhverfisvænu verkefni. Við byrjum í sumar, en aðalþunginn á þeim framkvæmdum, bygging á safntanki og annað verður sumarið 2019. Umbótaáætlunin er 4 ára verkefni. Landgræðslan hefur verið með ekki ósvipað verkefni í uppsveitum Árnessýslu með góðum árangri. Þetta er bara mjög spennandi á allan hátt,“ segir Þorsteinn. /MÞÞ SKÓGRÆKT&LANDGRÆÐSLA Um fullnægjandi undirbúning og skýr markmið Hjörleifur Guttormsson nátt- úrufræðingur ritar grein í Morgunblaðið 28. maí og ræðir um gróður- og jarðvegsauðlindina. Um hana vanti heildstæða stefnu og löggjöf. Ábendingin er góð. Verri eru fullyrðingar Hjörleifs um þá mikilvægu atvinnugrein sem skóg- rækt er í landinu. Í yfirlætislegum tón ræðir Hjörleifur um nytjaskógræktar- verkefni á lögbýlum sem hann nefnir þó ekki réttu nafni. Orðrétt stendur: „Plöntun barrtrjáa í birkiskóglendi heyrir víðast sögunni til en undirbúningur og eftirlit með svonefndri bændaskógrækt er allsendis ófullnægjandi og markmiðin óskýr.“ Hér er undið upp á hlutina vægast sagt. Hvergi eru barrtré gróðursett í birkiskóglendi nú orðið. Það hefur ekki verið gert í áratugi þótt víða kunni annað að virðast. Birkið fagnar þeirri beitarfriðun sem skógræktinni fylgir og er fljótt að dreifa sér inn í skógræktarsvæði. Þá getur litið svo út sem barrtrén hafi verið gróðursett í birkikjarri þótt svo sé alls ekki. Gott væri að sjá rökstuðning fyrir þeim orðum Hjörleifs að undirbúningur og eftirlit með skógræktarverkefnum á lögbýlum sé „allsendis ófullnægjandi og markmiðin óskýr“. Annars eru þetta dylgjur. Vandað til verka í skógrækt á lögbýlum Þegar bændur eða aðrir landeigendur óska eftir því að gera skógræktarsamning við Skógræktina hefst mjög vönduð undirbúningsvinna sem snertir ótalmarga þætti. Send er inn ítarleg umsókn þar sem fram kemur hvar og hversu mikið landeigandi vilji rækta af skógi. Taka þarf tillit til ræktaðs lands svo sem túna og akra, huga að fornleifaskráningu, náttúruminjum og lífverum sem njóta verndar, taka mið af vatnsverndarsvæðum og fleira. Þegar samningssvæði hefur verið afmarkað er sótt um framkvæmdaleyfi til sveitarfélagsins og send inn greinargerð skógræktarráðgjafa ásamt loftmynd af landinu. Öll þessi vinna lýtur ákvæðum laga um skipulag og vernd náttúru og minja en einnig aðal- og deiliskipulagi viðkomandi sveitarfélags. Svo ströng er gangan að stundum þarf þrautseigju til að komast yfir þennan hjalla í umsóknarferlinu. Þegar leyfi hefur fengist fyrir samningi um skógrækt á lögbýli gera skógfræðingar Skógræktarinnar skógræktaráætlun fyrir viðkomandi jörð. Nú er liðin tíð að skógræktarreitir séu pínulítil ferhyrnd „frímerki“ í fjallahlíðum. Skógræktin er skipulögð með tilliti til landslags, látin fylgja bugðum og beygjum og leitast við að hafa fjölbreytni í vali trjátegunda eftir því sem skynsamlegt og mögulegt þykir. Tekið er tillit til mikilvægra vistkerfa, fugla og fleiri þátta. Alltaf er þó hægt að gera betur og við það er leitast. Skýr markmið Markmið nytjaskógræktar verkefna á lögbýlum eru alls ekki óskýr. Lagt var upp með það með lagasetningu fyrir rúmum aldarfjórðungi að rækta skyldi skóg á 5% láglendis undir 400 metra hæð yfir sjó. Hægt gengur að ná því markmiði enda voru framlög til nýskógræktar lækkuð verulega eftir hrun og hafa ekki hækkað síðan. Rétt er að benda á að skógræktarverkefni á lögbýlum eru ein tegund landbúnaðar sem stunduð er á landbúnaðarlandi ekki ósvipað túnrækt og akuryrkju. Stefnt hefur verið að því um árabil af hálfu hins opinbera að gerð yrði landsáætlun í skógrækt og landshlutaáætlanir. Sú vinna er nú hafin hjá Skógræktinni. Með slíkum áætlunum verða markmiðin enn skýrari og þar með auðveldara að laga skógræktarverkefnin að öðrum þáttum sem snerta landnýtingu og vernd. Þá geta allir séð hvar skuli rækta skóg og hvar skuli ekki rækta skóg. Ef að því kemur að mótuð verði „heildstæð stefna og löggjöf“ um gróður- og jarðvegsauðlindina er víst að Skógræktin hefur unnið heimavinnu sína og er tilbúin með sitt. Eitt er þó víst. Löngu er þörf á afgreiðslu nýrra skógræktarlaga sem eru að stofni til frá 1955. Vandað eftirlit Vandséð er að „svonefnd bændaskógrækt“ sé nokkuð annað en vel undirbúin starfsemi. Eftirlitið er líka gott. Skógræktarráðgjafar gera reglulegar úttektir á skógræktarjörðum, meta gæði gróðursetninga, taka út tilviljanakennda mælifleti og leiðbeina skógareigendum um það sem betur megi fara. Allt er ítarlega skráð og skógareigendur búa við stöðugt aðhald fagfólks. Mógilsá, rannsóknasvið Skógræktarinnar, sér um að mæla allt skóglendi á Íslandi með vissu millibili, þar á meðal ræktað skóglendi á lögbýlum. Tölum er skilað á hverju ári til Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna. Loftslagssamningurinn sendir fulltrúa sína hingað til lands annað veifið til að meta aðferðir og vinnubrögð þeirra sem mælingarnar gera og hefur aldrei gert athugasemdir. Er þörf á meira eftirliti? Hjörleifur endar grein sína á því að nefna hækkun meðalhita sem spáð er á norðlægum slóðum. Hækkaður hiti muni væntanlega bæta vaxtarskilyrði innlends gróðurs, þar á meðal birkis. Ekki er einsýnt um þetta. Skaðvaldar herja nú á birki, einkum á láglendi. Óvíst er hvernig íslenska birkinu reiðir af á láglendi í hlýnandi loftslagi. Þá er enn meiri þörf annarra trjátegunda svo Íslendingar geti bundið kolefni og séð sjálfum sér fyrir því timbri sem verður meginhráefni framtíðarinnar þegar jarðarbúar snúa bakinu við kolum, olíu, stáli og steinsteypu. Vonandi fær birkið griðland til fjalla og á hálendinu í friði fyrir sauðfjárbeit og öðrum öflum sem viðhalda auðnum. Á Íslandi eru ógnarstórar auðnir sem við mennirnir eigum sök á. Þessar auðnir losa mikinn koltvísýring því þar liggja gamlar jarðvegsleifar enn og rotna. Að klæða þessar auðnir gróðri er eitt stærsta náttúruverndarverkefnið sem blasir við okkur. Skyldi undirbúningur og eftirlit með ástandinu á svonefndum ósnortnum víðernum vera fullnægjandi og markmiðin skýr? Pétur Halldórsson Kynningarstjóri Skógræktarinnar Snauður melur sem áður var einskis nýtur og losaði jafnvel kolefni með rotnun gamalla jarðvegsleifa skrýðist Mynd / Pétur Halldórsson Oft margt um manninn í Mývatnssveit: Brugðist við fjölgun ferðamanna með uppbyggingu innviða - „Við höfum ekki farið varhluta aðal ferðasegullinn á Norðurlandi

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.