Bændablaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2019 23
Stærsta hótel Clarion-keðjunnar
á Norðurlöndunum var opnað
1. mars síðastliðinn á besta stað
í Osló í Noregi með rúmlega
800 herbergi. Það sem hefur
einna helst vakið athygli er sú
nýbreytni að á þaki hótelsins
verður ræktað grænmeti og
kryddjurtir ásamt ávöxtum fyrir
dvalargesti hótelsins.
Það er bæjarbóndi Oslóarborgar,
Andreas Capjon, sem sér um
garðinn á þakinu á 13. hæð
hótelsins sem þjónar eldhúsi
hótelsins. Sænski stjörnukokkurinn
Marcus Samuelsson, sem meðal
annars hefur unnið á frægum
veitingastöðum eins og Aquavit
og Red Rooster í New York og er
uppáhaldskokkur Barack Obama
vel að merkja, vinnur verkefnið í
samstarfi við bæjarbóndann.
Andreas hefur unnið ýmsar
tilraunir áður en sjálf ræktunin
á þakinu hófst, meðal annars
með að rækta í rigningarvatni og
vikurmold. Einnig hefur Andreas
kannað hvort hann geti notað
matarafganga sem áburð á það
sem ræktað er. Markmiðið er að
matarafgangar geti gagnast fyrir
veitingastað hótelsins sem er á
efstu hæð. Nú er verkefnið komið
vel af stað og lofar góðu þar sem
gestir hótelsins fá hluta af næringu
sinni með matvælum sem ferðast
um afar stuttan veg. Ef vel gengur í
sumar mun hótelkeðjan einnig þróa
hugmyndina á öðrum hótelum sem
hafa slíka möguleika. /ehg
Hótelkeðja ræktar matvæli á húsþaki í miðborg Oslóar
Bæjarbóndi Oslóar ásamt forsvarsmönnum Clarion-Hub hótelsins í Osló skoða
hvernig til hefur tekist með ræktun á þakinu en verkefnið nefnist Grow-Hub.
Beint af þakinu og á disk gestanna.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
SÍUR Í
DRÁTTARVÉLAR
Selfoss // Akureyr i // Egilsstaðir // Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
McHale & Pöttinger setja ný og hærri
viðmið þegar kemur að heyvinnutækjum.
McHale samstæður og 5500 rúlluvélar til á lager
Orbital pökkunarvélar er á leiðinni
Leitið upplýsinga hjá sölumönnum
Pöttinger tveggjastjörnu rakstrarvélar ásamt ýmsum stærðum
af heyþyrlum til á lager. Einnig fram og aftur sláttuvélar í
ýmsum stærðum til á lager.