Bændablaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 201938
MENNING&SAGA
Presturinn Stefán sterki
Stephensen, sem var uppi 1832
til 1922, var þjóðsagnapersóna
í lifanda lífi. Stefán var ann
álaður kraft amaður, stórhuga
hugsjónamaður og dugnaðar
forkur sem skilaði merku
ævistarfi. Stefán er einn þeirra
sem lagði grunninn að stofnun
Búnaðarfélags Íslands. Hann var
einnig breyskur drykkjumaður og
á köflum fljótfær og mistækur.
Í bókinni Stefán sterki, myndbrot
úr mannsævi, segir Þórir Stephensen,
fyrrverandi dómkirkjuprestur og
sonarsonur Stefáns, ítarlega frá ævi
afa síns og samtíð hans.
Framfaramaður í landbúnaði
Stefán var af fátæku fólki kominn en
honum tókst með dugnaði og forsjá
að koma traustum fótum undir
efnahag sinn. Af mikilli hörku
hóf hann sig yfir ótrúlegar
raunir í fjölskyldumálum
og varð sterkur og
framsýnn athafnamaður í
öllu er að búskap lýtur.
Hann varð ótrúlega
fundvís á nýjungar,
sem skiptu miklu máli
fyrir þjóðarhag. Má þar
nefna Skeiðaáveituna
og framkvæmdir hans
á Ólafsvallaengjunum,
tilraunir til svínaræktar,
framkvæmdir Búnaðar
félags Grímsneshrepps
undir hans stjórn og tillögur
sem lögðu grundvöllinn að
Búnaðarfélagi Íslands. Hér má
einnig nefna tillöguflutning hans í
sýslunefnd, sem leiddi til stofnunar
Sláturfélags Suðurlands og síðar
Kaupfélags Árnesinga.
Stefán var lengstum prestur í
Árnesþingi, fyrst á Ólafsvöllum
á Skeiðum og síðar á Mosfelli.
Um leið og hér er rakin lífssaga
sveitaprests fáum við innsýn í
merka atburði Íslandssögunnar
og ættarsögu Stefánunga eins og
lesa má í eftirfarandi brotum úr
bókinni.
Hefðbundinn búskapur
Fráfærur voru hluti hins hefðbundna
búskapar á þessum árum.
Sauðamjólkin var mest nýtt til
skyrgerðar. Nautgriparæktin var
undirstaða smjörframleiðslunnar,
en þar varð líka til undanrenna til
skyrgerðar. Aukaafurðir þar voru
áfir, sem mest voru gefnar kálfum,
og mjólkursýra, sem mikið var
notuð til drykkjar, en varðveitti svo
líka súrmatinn. Á seinni hluta 19.
aldar bættust við sauðfjárræktina
búdrýgindi í formi sauðasölu til
Englands. Hross voru ræktuð til
reiðar og áburðar, þ. e. fólks og
vöruflutninga. Allar húðir voru
verkaðar og nýttar heima í skæði og
klæði, kjöt allt til fæðu. Þar var þó
ein stór undantekning. Hrossakjötið,
sem áður var notað til fórna handa
hinum heiðnu goðum, þótti ekki við
hæfi á betri heimilum og alls ekki á
prestssetrum, sbr. þáttinn um veru
séra Stefáns í Görðum.
Sjávarfangs var aflað með því
að senda vinnumenn til útróðra á
vertíðum. Þannig var aflað matar
fyrir heimilið, en einnig til innleggs
á Eyrarbakka í verslunarreikninginn
þar. Séra Stefán þurfti að láta sauma
skinnklæði á vermenn sína og frú
Sigríður að útbúa þá með góðan
skrínukost, sem þeir höfðu gjarnan
í koffortum eða skrínum.
Þau hjón tóku við tveimur
kálgörðum, er þau fluttu að
Ólafsvöllum. Enginn vafi er á því,
að þar hafa verið ræktaðar kartöflur
eins og heimilið þurfti og jafnvel
eitthvað fleira.
Engjaheyskapur var mikill og
var það algengt, að bændur úr
nágrannasveitum keyptu slægjur hjá
Skeiðabændum. Eitt sinn fékk Helgi
Magnússon í Birtingaholti leyfi hjá
sr. Stefáni til að senda vinnumann
sinn, Helga nokkurn Eyjólfsson, til
eins dags sláttar á engjum hans. Sló
hann þá 40 hestburði á þessum eina
degi. Séra Stefán mun hafa skrifað
Birtingaholtsbónd anum bréf með
vinnu manninum,
er hann hélt heim
á leið, og sagt, að
ekki hefði hann
leyft honum slægjurnar, hefði hann
vitað, að hann mundi senda „sjálfan
árann“ til sláttarins.
Hinn hagsýni framkvæmdamaður
Kaflarnir tveir hér að framan um
bóndann og búnaðarfélags manninn
séra Stefán segja sögu, sem víða er
hægt að finna líkindi við. Séu aftur
á móti lesnar tvær merkustu
blaðagreinar hans um
búnaðarmál, er ekki
margt að finna eftir
íslenskan prest
og bónda á hans
tíma, sem jafnist
á við þær.
Önnur þeirra,
S u ð u r a m t s
b ú n a ð a r
félagið og
sveitabúnaðar
félögin, er
skrifuð 25. júlí
1894, árið sem séra
Stefán var kosinn
forseti félagsins. Það
hefur trúlega verið ástæða þess,
að hann fór á þar umræddan fund
Búnaðarfélags Suðuramtsins. Það
var stofnað 1837 að nokkru leyti
að tilhlutan stjórnvalda og naut
ríkisstyrks. Félagið notaði hann til
að verðlauna umbætur í landbúnaði,
styðja menn til búnaðarnáms erlendis,
fá hingað erlenda áveitufræðinga og
launa ráðunauta. Þetta var nokkurs
konar ríkisstofnun. En á aðalfundi
1894 lagði séra Stefán fram róttækar
og reyndar nútímalegar tillögur um
breytt skipulag félagsins. Þeim var í
fyrstu tekið með tortryggni, en séra
Stefán kom sínu fram, íslenskum
landbúnaði til mikilla hagsbóta.
Skemmtilegar sögur og
þjóðlífsmyndir
Ævisaga Stefáns Stephensen er
vönduð ævisaga þar sem fjallað
er á áhugaverðan hátt um Stefán
sterka og samtíð hans. Bókin er
ríkulega myndskreytt og í henni er
að finna bæði skemmtilegar sögur
og áhugaverðar þjóðlífsmyndir sem
gera hana að áhugaverðri lesningu
um líf og starf framfarasinnaðs
landsbyggðarprests um miðja
nítjándu öld og í byrjun þeirrar
tuttugustu. Útgefandi er Þórir
Stephensen. /VH
Sigríður
Stephensen,
eiginkona
Stefáns.
Prestsskurðurinn sem Stefán lét grafa úr Vatnsstæðum norðan
Ólafsvalla upp í Baulubotna.
Stefán 78 ára gamall.Mosfellskirkja í Grímsnesi.
Stefán Stephensen
um sextugt.