Bændablaðið - 27.06.2019, Page 41

Bændablaðið - 27.06.2019, Page 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2019 41 100 BÍLAR EHF • STEKKJARBAKKA 4 • 109 REYKJAVÍK • S. 517 9999 • WWW.100BILAR.IS 100BILAR@100BILAR.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LOKAÐ LAUGARDAGA FRÁ 8. JÚNÍ TIL OG MEÐ 3. ÁGÚST NÝIR GMC SIERRA OG FORD F350 NOKKRIR LITIR Í BOÐI TÖKUM GAMLA BÍLINN ÞINN UPP Í. GMC SIERRA 3500HD DENALI FORD F350 PLATINUM ULTIMATE FX4 NÝ R NÝ R VERÐ: 9.160.000 KR. ÁN VSK. - 11.358.400 KR. M/VSK. VERÐ: 9.590.000 KR. ÁN VSK. - 11.891.600 KR. M/VSK. Akreinavari, regnskynjari, bakkmyndavél, Bluetooth, fjarlægðarskynjarar að framan og að aftan, glertopplúga, hiti og kæling í framsætum, hraðastillir, stigbretti o.fl. 360° myndavél, bakkmyndavél, blindsvæðisvörn, dráttarbeisli, fjarlægðarskynjarar, glerþak, hiti í framsætum og stýri, leðuráklæði, lykillaus ræsing, nudd í framsætum, regnskynjari o.fl. 155037 240283 Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið: Stjórnsýsla landbúnaðar- og matvælamála efld Alþingi samþykkti í byrjun þessa mánaðar frumvarp mitt um breytingu á stjórnsýslu landbúnaðar- og matvælamála þannig að verkefni, sem nú heyrir undir Matvælastofnun, færast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins frá 1. janúar næstkomandi. Verkefnin varða stjórn búvöruframleiðslunnar samkvæmt búvörulögum, búnaðarlögum, b ú v ö r u s a m n i n g u m o g búnaðarlagasamningi. Til þessa telst skráning greiðslumarks lögbýla, framkvæmd beingreiðslna, söfnun hagtalna um búvöruframleiðsluna, eftirlit með ásetningu búfjár, söfnun hjarðbóka o.fl. Flest þessara verkefna voru fram til ársloka 2015 í höndum Bændasamtaka Íslands en voru færð til Matvælastofnunar árið 2015 til samræmis við tillögur Ríkisendurskoðunar þar að lútandi. Með því að koma þessum stjórnsýsluverkefnum á einn stað undir einni yfirstjórn í ráðuneytinu er horft til þess að auka möguleika til forgangsröðunar og gefur möguleika til að þróa stjórnsýsluna með skilvirkari hætti. Þannig mun t.d. hverfa tvíverknaður sem sprottið hefur af framkvæmd greiðslna til bænda, gerð samninga og umfjöllun álitaefna á tveimur stöðum. Það auðveldar þennan flutning að umrædd verkefni eru skýrt aðgreind frá öðrum verkefnum Matvælastofnunar og falla raunar ekki sérlega vel að kjarnaverkefnum hennar sem eru matvælaeftirlit og eftirlit með heilbrigði og aðbúnaði dýra. Samþykkt frumvarpsins er því virkilega ánægjulegt skref sem mun efla stjórnsýslu og stefnumótun á sviði landbúnaðar- og matvælamála. Hér er því um mikið framfaramál að ræða fyrir íslenska bændur og raunar alla þá sem standa að íslenskri matvælaframleiðslu. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Kristján Þór Júlíusson. LESENDABÁS Vökvunarbúnaður fyrir stór og lítil ræktunarsvæði í mörgum útfærslum Slöngur og úðarar (sprinklerar) í öllum stærðum. Dælur: Rafdrifnar, bensín, dísil, traktorsdrifnar, glussadrifnar. Hákonarson ehf. S. 892-4163 hak@hak.is www.hak.is Sjávarútvegssýningin stækkar í Laugardalshöll Sjávarútvegssýningin SJÁVAR- ÚTVEGUR 2019 – ICELAND FISHING EXPO 2019 verður haldin Laugardalshöll í haust. Að sögn Ólafs M. Jóhannessonar, framkvæmdastjóra sýningarinnar, hefur sýningin stækkað umtalsvert frá síðustu sýningu 2016 og mun hún nú fylla alla sali Hallarinnar: „Sýningin hefur vaxið töluvert og mikil eftirspurn hefur verið eftir sýningarsvæðum bæði frá innlendum og erlendum aðilum. Það er ánægjulegt að sjá hversu fjölþætt sú þjónusta er sem íslenskur sjávarútvegur býr yfir. Á sýningunni verður að finna bæði stór og smá fyrirtæki er þjóna sjávarútveginum og sýna allt það nýjasta á þessu sviði. Ég hef alltaf haft sterkar taugar til sjávarútvegsins enda hefur hann fleytt okkur í gegnum boðaföll alls kyns kreppa og áfalla í gegnum áratugi. Sjávarútvegurinn er að þróast í átt til hátækniðnaðar sem má sjá í fjölbreytni fyrirtækjanna sem taka þátt í sýningunni. Tilgangur sýningarinnar er að veita fagaðilum og áhugafólki tækifæri til að kynnast þróun og nýjungum í sjávarútvegi. Þessar jákvæðu tæknibreytingar skipta miklu fyrir velferð íslensks samfélags. Við opnun sýningarinnar verða veittar viðurkenningar til þeirra er hafa skarað fram úr á árinu. Þarna hefur fjölbreyttur hópur innan sjávarútvegsgeirans tækifæri til að hittast en almenningur á einnig fullt erindi á sýninguna.“ Sjávarútvegssýningin 2019 hefst miðvikudaginn 25. september og lýkur föstudaginn 27. september.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.