Bændablaðið - 27.06.2019, Qupperneq 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2019 41
100 BÍLAR EHF • STEKKJARBAKKA 4 • 109 REYKJAVÍK • S. 517 9999 • WWW.100BILAR.IS
100BILAR@100BILAR.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LOKAÐ LAUGARDAGA FRÁ 8. JÚNÍ TIL OG MEÐ 3. ÁGÚST
NÝIR
GMC SIERRA OG
FORD F350
NOKKRIR LITIR Í BOÐI
TÖKUM GAMLA BÍLINN ÞINN UPP Í.
GMC SIERRA
3500HD DENALI
FORD F350
PLATINUM ULTIMATE FX4
NÝ
R
NÝ
R
VERÐ: 9.160.000 KR. ÁN VSK. - 11.358.400 KR. M/VSK. VERÐ: 9.590.000 KR. ÁN VSK. - 11.891.600 KR. M/VSK.
Akreinavari, regnskynjari, bakkmyndavél, Bluetooth,
fjarlægðarskynjarar að framan og að aftan, glertopplúga,
hiti og kæling í framsætum, hraðastillir, stigbretti o.fl.
360° myndavél, bakkmyndavél, blindsvæðisvörn,
dráttarbeisli, fjarlægðarskynjarar, glerþak, hiti í framsætum
og stýri, leðuráklæði, lykillaus ræsing, nudd í framsætum,
regnskynjari o.fl.
155037 240283
Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið:
Stjórnsýsla landbúnaðar- og matvælamála efld
Alþingi samþykkti í byrjun
þessa mánaðar frumvarp mitt
um breytingu á stjórnsýslu
landbúnaðar- og matvælamála
þannig að verkefni, sem nú
heyrir undir Matvælastofnun,
færast til atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytisins frá 1.
janúar næstkomandi.
Verkefnin varða stjórn
búvöruframleiðslunnar samkvæmt
búvörulögum, búnaðarlögum,
b ú v ö r u s a m n i n g u m o g
búnaðarlagasamningi. Til þessa telst
skráning greiðslumarks lögbýla,
framkvæmd beingreiðslna, söfnun
hagtalna um búvöruframleiðsluna,
eftirlit með ásetningu búfjár,
söfnun hjarðbóka o.fl. Flest þessara
verkefna voru fram til ársloka 2015
í höndum Bændasamtaka Íslands
en voru færð til Matvælastofnunar
árið 2015 til samræmis við tillögur
Ríkisendurskoðunar þar að lútandi.
Með því að koma þessum
stjórnsýsluverkefnum á einn stað
undir einni yfirstjórn í ráðuneytinu
er horft til þess að auka möguleika
til forgangsröðunar og gefur
möguleika til að þróa stjórnsýsluna
með skilvirkari hætti. Þannig
mun t.d. hverfa tvíverknaður
sem sprottið hefur af framkvæmd
greiðslna til bænda, gerð samninga
og umfjöllun álitaefna á tveimur
stöðum. Það auðveldar þennan
flutning að umrædd verkefni
eru skýrt aðgreind frá öðrum
verkefnum Matvælastofnunar
og falla raunar ekki sérlega vel
að kjarnaverkefnum hennar sem
eru matvælaeftirlit og eftirlit með
heilbrigði og aðbúnaði dýra.
Samþykkt frumvarpsins er
því virkilega ánægjulegt skref
sem mun efla stjórnsýslu og
stefnumótun á sviði landbúnaðar-
og matvælamála. Hér er því
um mikið framfaramál að ræða
fyrir íslenska bændur og raunar
alla þá sem standa að íslenskri
matvælaframleiðslu.
Kristján Þór Júlíusson,
sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júlíusson.
LESENDABÁS
Vökvunarbúnaður fyrir stór og lítil ræktunarsvæði í mörgum útfærslum
Slöngur og úðarar (sprinklerar) í öllum stærðum.
Dælur: Rafdrifnar, bensín, dísil, traktorsdrifnar, glussadrifnar.
Hákonarson ehf. S. 892-4163 hak@hak.is www.hak.is
Sjávarútvegssýningin
stækkar í Laugardalshöll
Sjávarútvegssýningin SJÁVAR-
ÚTVEGUR 2019 – ICELAND
FISHING EXPO 2019 verður
haldin Laugardalshöll í haust.
Að sögn Ólafs M. Jóhannessonar,
framkvæmdastjóra sýningarinnar,
hefur sýningin stækkað umtalsvert
frá síðustu sýningu 2016 og mun hún
nú fylla alla sali Hallarinnar:
„Sýningin hefur vaxið töluvert
og mikil eftirspurn hefur verið
eftir sýningarsvæðum bæði frá
innlendum og erlendum aðilum.
Það er ánægjulegt að sjá hversu
fjölþætt sú þjónusta er sem íslenskur
sjávarútvegur býr yfir. Á sýningunni
verður að finna bæði stór og smá
fyrirtæki er þjóna sjávarútveginum
og sýna allt það nýjasta á þessu
sviði.
Ég hef alltaf haft sterkar taugar
til sjávarútvegsins enda hefur hann
fleytt okkur í gegnum boðaföll alls
kyns kreppa og áfalla í gegnum
áratugi. Sjávarútvegurinn er að
þróast í átt til hátækniðnaðar sem má
sjá í fjölbreytni fyrirtækjanna sem
taka þátt í sýningunni. Tilgangur
sýningarinnar er að veita fagaðilum
og áhugafólki tækifæri til að kynnast
þróun og nýjungum í sjávarútvegi.
Þessar jákvæðu tæknibreytingar
skipta miklu fyrir velferð íslensks
samfélags.
Við opnun sýningarinnar verða
veittar viðurkenningar til þeirra er
hafa skarað fram úr á árinu. Þarna
hefur fjölbreyttur hópur innan
sjávarútvegsgeirans tækifæri til að
hittast en almenningur á einnig fullt
erindi á sýninguna.“
Sjávarútvegssýningin 2019 hefst
miðvikudaginn 25. september og
lýkur föstudaginn 27. september.