Bændablaðið - 27.06.2019, Page 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2019 49
Ég hef lengi dáðst að litadýrðinni
í Drops Eskimo garninu, en það er
fáanlegt í 52 litbrigðum. Ég hafði
bara ekki fundið rétta verkefnið
þar til ég fann uppskriftina að
þessum hekluðu sessum. Þá vissi
ég að rétta verkefnið væri fundið.
Samverustundirnar í garðinum
verða enn notalegri með þessar
litríku sessur að sitja á. Uppskriftin
er í hekltáknum.
Garn: Drops Eskimo, fæst hjá Handverkskúnst
1 dokka af hverjum lit í eina sessu.
• Litasamsetning 1: Litur 1 - millifjólublár nr
54, litur 2 - bleikur nr 26, litur 3 - pastelblár
nr 31, litur 4 - natur nr 01.
• Litasamsetning 2: Litur 1 - ljósbleikur nr 30,
litur 2 - ljósblár nr 12, litur 3 - lime nr 35, litur
4 - natur nr 01.
• Litasamsetning 3: Litur 1 - gulur nr 24, litur
2- sægrænn nr 66, litur 3 - ljós bleikur nr 30,
litur 4 - natur nr 01.
Heklunál: nr 9
Stærð: Þvermál 56 cm fyrir þæfingu, þvermál 34
cm eftir þæfingu.
Þæfing: Setjið sessuna ásamt handklæði í þvottavél
með þvottaefni án enzyma og bleikiefna. Þvoið við 40
gráður með venjulegri vindingu án forþvottar. Mótið
sessuna á meðan hún er enn blaut og leggið til þerris.
Síðar meir er sessan þvegin eins og venjuleg ullarflík.
Litaskipti eftir umferðum: Umf 1, 2, 6 og 8 eru í
lit 1. Umf 3 og 7 eru í lit 2. Umf 4 og 9 eru í lit 3. Umf
5 og 10 eru í lit 4.
Mynstur
= Heklið 5 loftlykkjur og tengið
saman í hring með keðjulykkju í
fyrstu loftlykkju, svarti punkturinn
táknar byrjun umferðar. umferð
= Loftlykkja
= Tvöfaldur stuðull
heklaður í/undir loftlykkjur
= Tvöfaldur stuðull
heklaður í tvöfaldan stuðul
= Hálfstuðull
= 4 loftlykkjur heklaðar í byrjun
umferðar, telst sem 1 tvöfaldur
stuðull, umferðinni er lokað með
keðjulykkju í 4. loftlykkju.
= 2 loftlykkjur heklaðar í byrjun
umferðar, telst sem 1 hálfstuðull,
umferðinni er lokað með
keðju lykkju í 2. loftlykkju
og svo er hekluð keðjulykkja yfir í
næsta loftlykkjubil.
= 2 loftlykkjur heklaðar í byrjun
umferðar, telst sem 1 hálfstuðull,
umferðinni er lokað með
keðjulykkju í 2. loftlykkju.
Sumarlegar sessur
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
3 4 2 1 6
6 4 3 9
7 9 1 2 3
5 7 1 2
2 5 6 9
3 8 5 4
3 1 8 7 5
9 2 5 7
5 6 3 4 8
Þyngst
6 7 2 8 3
4 8 1
8 9 3 4 5
7 4 2
8 3 1 4
1 5 9
4 7 1 9 6
9 5 7
2 6 8 9 5
6 4 7
2 1 5 3
5 7 9 1
6 1 2 9
9 3
3 4 5 8
3 4 6 5
1 9 2 7
8 5 1
2 1 4
9 2
8 5
6 2 9 3
8 4 1 5
1 8 7 6
8 9
7 6
3 7 1
Ætlar að verða afreks-
maður í íþróttum
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Viðar Hrafn stefnir á að njóta
lífsins í sveitinni í sumar með
fjölskyldu og vinum.
Nafn: Viðar Hrafn Victorsson.
Aldur: Ég verð 13 ára 2. desember.
Stjörnumerki: Bogmaður.
Búseta: Skyggnisholt, Flóahreppi.
Skóli: Flóaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Íþróttir og sund.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundur.
Uppáhaldsmatur: Nautasteik.
Uppáhaldshljómsveit: Led
Zeppelin.
Uppáhaldskvikmynd: Gladiator.
Fyrsta minning þín? Þegar ég var
4 ára og labbaði Leggjabrjótinn með
fjölskyldu minni.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi fótbolta en er
frá vegna meiðsla og æfði á bassa
í nokkur ár.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Afreksmaður í
íþróttum.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Að stelast í kappreiðar
með Victori bróður og Tindi frænda
á sumarkvöldum.
Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt
í sumar? Spila fótbolta og vera með
fjölskyldu og vinum.
Næst » Viðar Hrafn skorar á Kötlu
Rún Magnúsardóttur frá Djúpavogi
að svara næst.
Aflvélar ehf. • Vesturhrauni 3 • 210 Garðabær
Sími: 480 0000 • aflvelar.is • sala@aflvelar.is
Gluggar og hurðir fyrir
íslenskar aðstæður
Í yfir 20 ár hefur Viking Window AS selt tréglugga og hurðir á Íslandi
Gluggar og hurðir með eða
án álkápu, allir RAL litir í
boði að innan og utaverðu
Afhendist glerjað og tilbúið
til uppsetningar
Afgreiðslutími 6-10 vikur
Sjá nánar á: viking.ee
Bænda
bbl.is Facebook