Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Side 2
fréttabréf
ÖRYRKJABANDALAGS
ÍSLANDS
2. TÖLUBLAÐ
8. ÁRGANGUR 1995
Ritstióri 02 ábyrcðarmaður:
Helgi Seljan
Umbrot:
K. Fjóla Guðmundsdóttir
Prentun:
Steindórsprent/
Gutenberg h.f.
Ljósmynd á forsíðu:
Sigurgeir Þorbjörnsson
Aðrar myndir:
Gerður Arnórsdóttir o.fl.
Frá ritstjóra
rítugasta eintaki Fréttabréfsins er nú fylgt ferðbúnu úr hlaði á
fund ykkar lesenda. Sem fyrr vonar ritstjóri að margan nytsaman
fróðleik megi hér finna, ánægjuauka einhvern um leið og óskandi
er að sem flestir finni eitthvað það á síðum blaðsins er þeir fái numið
staðar við og lesið sér til nokkurrar nytsemdar
eða einhvers yndis. Það er gleðileg staðreynd,
að margt gerist á víðfeðmum vettvangi félaga
okkar og ætíð spurning um það hversu vel til skila
er haldið. í ofurhógværð sinni virðist oft sem þar
á bæjum sé því gleymt að sannanlega ber að halda
á lofti því merka verki sem svo víða er innt af
hendi, allt frá þeirri kyrrlátu önn daganna sem
svo mörgu skilar vel á veg sem og hverri farsælli framkvæmd. Vissa
ritstjóra er sú að þetta beri sem bezt að gera, bæði fyrir lesendur
dagsins í dag svo og fyrir þá fjölmörgu sem í framtíðinni vilja heyja
sér frekari fróðleik um söguna, einstök átök sem iðju góða. Engum
dylst að efni merkt ritstjóra er fyrirferðarmikið, en hinu má þó ekki
gleyma honum til vorkunnar að hlutverk hans er að koma sem allra
flestu því til skila sem virkilega er frásagnar vert. Nú sem fyrr hafa
lofsverðir liðsmenn lagt blaðinu til hið bezta efni og þökk sé þeim.
Hlutur slíkra liðsmanna fyrr og nú er ómetanlegur.
Við göngum nú mót sumri og sól - á vit vermandi tíðar sem
vekur okkur bjartsýni í brjósti, léttir lundina, lífgar og nærir.
Eftir myrkan og kaldan áfallavetur þráum við sóldýrð og
sunnanblæ er sigrað fái myrkur og kulda. Lesendum eru sendar
sólvermdar sumaróskir.
Helgi Seljan.
EFNISYFIRLIT
Fréttir af starfi Sjálfsbjargar
Af erlendum vettvangi.
..2 Lofsvert framtak 32
„3 Fræðslurit MS félags íslands 33
..4 Gátuvísur Magnúsar 33
..5 Svipmynd af samferðamanni 34
..6 Frá Sjóði Odds Ólafssonar 36
,40 Vísa til vorsins 36
10 Styrkveitingar ÖBI 37
12 Frá Starfsþjálfun fatlaðra 37
13 Helen Keller 38
14 Af vænu athvarfi í Vin 39
17 Karlmenn óskast 40
20 Frá Alnæmissamtökunum 41
22 Fagnaðaróður til vorsins 41
23 Bréf frá blindri konu 42
24 Gimsteinar 44
26 Minning um draum - Sorg 44
28 Meira úr fórum Guðmundar 45
29 Óður um vor 45
30 Frá Námssjóði Sigríðar 45
31 I brennidepli 46
2