Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Blaðsíða 38

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Blaðsíða 38
Kristín Jónsdóttir blindraráðgjafi: Helen Keller National Center Upphafið að HKNC var 1967 þeg- ar Peter J. Salmon, sem var stjórnandi The Industrial Home for the Blind, ákvað nýja stefnu. Hún var sú að neita einstaklingi ekki um þjón- ustu, þó viðkomandi einstaklingur ætti við tvöfalda skerðingu að stríða, sjón- og heyrnarskerðingu. Fljótlega kom í ljós aukin þörf fyrir þjónustu. Stofnuð var sérstök deild fyrir daufblinda. Helen Keller sagði: “Draumur hefur orðið að veru- leika”. 1969 var hafin þjálfun starfs- fólks og í framhaldi af því skipulögð þjálfun og endurhæfing fyrir dauf- blinda. Þegar HKNC hóf starfsemi sína í Sands Point í janúar 1969 voru 14 nemendur og 14 þjálfarar að meðtöldu öðru starfsfólki. í dag geta verið hér 38-46 nemendur á sama tíma og ævin- lega er biðlisti. Nemendur sem koma til HKNC, skiptast í þrjá mismunandi hópa eftir færni. “Live program” er fyrir þá sem minnsta færni hafa. I mörgum tilfell- um koma þeir nemendur frá stofnun- um og hafa yfirleitt ekki fengið þjálf- un áður. Þessir nemendur eru venju- lega án nokkurs tungumáls, þeir geta hvorki haft samskipti á ensku eða táknmáli. Hver starfsmaður vinnur með einn nemanda og í mesta lagi með tvo nem- endur í sérstökum tilfellum. Þeir sem hafa minnsta færnina hafa mesta þörf- ina fyrir röð og reglu og er lögð mikil áherzlaáþað. Þeir þurfa svo að þjálfa samskiptaleiðir. Notaðar eru myndir og hlutir. Nemendurhafa yfirleitt not- að mismunandi hegðun til að tjá sig. Markmiðið með þjálfun einstakl- inga í “Live” er undirbúningur undir að búa á sambýli: Þjálfun í þátttöku. Þjálfun í ákvarðanatöku. Stuðningur við að þroskast sem einstaklingur. Annar hópurinn er “Path”. Þarfer fram samskiptaþjálfun í eðlilegu um- hverfi. Það hentar ekki þessum ein- (H.K.N.C.) Kristín Jónsdóttir. staklingum að fara í stuttar kennslu- stundir á mismunandi staði og þess vegna er útvegað eðlilegt umhverfi sem gefur nemandanum möguleika til að æfa það sem verið er að þjálfa við eðlilegar aðstæður: við vinnu, við matargerð eða hvaðeina það sem unnið er með hverju sinni. Öll þjálfun sem á sér stað yfir daginn er notuð til að æfa samskiptaleiðir og tungumál. Þriðji hópurinn eru almennir nemendur. Þegar nemandi kemur til HKNC hefst 10 vikna mat. Þar er far- ið yfir færni viðkomandi í mismunandi störfum: umferli, pen- ingamálum, samskiptaleiðum, hegð- un og fleiru. Einnig er mjög nákvæm- lega farið yfir líkamlegt ástand viðkomandi og útveguð þau hjálpar- tæki sem eru nauðsynleg í því sam- bandi. Eftir að mat hefur farið fram hefst þjálfunartími sem venjulega er skipt upp í 8 vikur. Ákveðið er hvaða þjálfun viðkomandi einstaklingur þarf á að halda það tímabil. Þegar sá tími er liðinn er árangurinn metinn og næsta þjálfunartímabil skipulagt. Ekkert er ákveðið nema í fullu sam- ráði við viðkomandi einstakling. Á HKNC eru 3 íbúðir þar sem nemendur geta æft sjálfstæði sitt og fæmi viðaðbúaumsigsjálfir. Einnig er ein íbúð úti í bæ, sem notuð er þegar nemendur hafa öðlast meira sjálf- stæði. Allir þeir nemendur sem eru í búðunum stefna að því að búa einir. Hver nemandi fær þann stuðning sem hann þarf á að halda, en minnkar stöðugt eftir því sem nemandinn öðlast meira öryggi og fæmi. Margir nemendur sem hingað koma eru búnir að missa allt sjálfs- traust og finnst að þeir hafi enga möguleika í lífinu. En eftir því sem þjálfuninni miðar eykst sjálfstraustið aftur og augu fólks opnast fyrir þeim möguleikum sem lífið býður upp á. Ritað í maíbyrjun 1995 Kristín Jónsdóttir. Frá starfsvettvangi Kristínar hér heima. Ráðherrann í heimsókn. 38

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.